Morgunblaðið - 16.01.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019
Þegar frost
er á fróni
Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Heimkaup
Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Lífland, Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði
Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga
Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði • Þernan, Dalvík
Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
100% Merino
ullarnærföt
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.run.is
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Verðbréfafyrirtækið Arctica Finance
skoðar nú möguleika á því að koma
saman hópi fjárfesta sem ráðast muni í
að fjárfesta í leigufélaginu Heimavöll-
um í því skyni að skrá félagið af mark-
aði. Hugmyndin er komin til vegna
þeirrar staðreyndar að upplausnar-
virði fyrirtækisins virðist mun hærra
en markaðsvirði bréfa félagsins í
Kauphöll Íslands. Við lokun markaða í
gær var gengi bréfa félagsins 1,12 og
virði félagsins því 12,6 milljarðar
króna. Samkvæmt nýjasta birta upp-
gjöri félagsins fyrir þriðja ársfjórðung
2018 nam eigið fé félagsins hins vegar
18,7 milljörðum og jafngilti það gengi í
kringum 1,7. Því var bókfært eigið fé
félagsins ríflega sex milljörðum hærra
í lok september en markaðsvirðið nú.
Varpað fram áður
Á umliðnum mánuðum hafa ýmsir
greiningaraðilar og hluthafar í félaginu
bent á þessa staðreynd. Þannig kom
m.a. fram í verðmati sem unnið var af
Capacent um mitt ár í fyrra að „virði
eigna félagsins endurspeglast ekki í
markaðsverði, ef marka má meðalfer-
metraverð á starfssvæðum félagsins.
Því væri ekki óeðlilegt að eigendur fé-
lagsins myndu spyrja sig hvort það sé
ekki hagstæðast að leysa félagið upp
og selja eignir“.
Þreifingar á frumstigi
Þreifingar Arctica Finance eru sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins á
frumstigi en þó hefur fyrirtækið kallað
til samtals við sig fjárfesta þar sem
möguleikar á afskráningu eru kannað-
ir. Heimildir Morgunblaðsins herma
að í hópi núverandi hluthafa félagsins
gæti nokkurs óþols gagnvart stöðu
þess á markaði en það hefur ekki náð
sér á strik frá því að það var skráð á al-
mennan hlutabréfamarkað hinn 24.
maí í fyrra. Í aðdraganda skráningar-
innar réðst félagið í útboð þar sem
seldar voru 750 milljónir hluta á geng-
inu 1,39. Gengi félagsins hefur því
lækkað um tæplega 20% frá skráning-
unni í fyrra.
Skiptar skoðanir uppi í hópi
núverandi hluthafa
Munu fyrrnefndir hluthafar hlynnt-
ir þeirri nálgun að reyna að hámarka
virði eignanna með afskráningu og
eignasölu. Aðrir hluthafar Heimavalla,
sem Morgunblaðið ræddi við, eru hins
vegar hikandi gagnvart slíkum við-
snúningi og telja m.a. varhugavert að
ætla að hægt sé að hámarka virði
þeirra ríflega 2.000 fasteigna sem fé-
lagið á með því að setja þær á markað.
Slíkt kunni að valda of mikilli fram-
boðsaukningu á markaði sem nú þegar
hefur kólnað nokkuð frá árinu 2017.
Kanna möguleika á af-
skráningu Heimavalla
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Hlutabréf Félagið var skráð á markað í fyrra en gæti nú verið á leiðinni út.
Eigið fé félagsins er ríflega sex milljörðum hærra en markaðsverð í Kauphöll
Stærstu hluthafar
» Stálskip ehf. (8,6%)
» Snæból ehf. (7,5%)
» Gani ehf. (7,5%)
» Landsbankinn (6,9%)
» Birta lífeyrissj. (5,6%).
» Sjóvá (4,8%)
» Klasi (3,9%)
» M75 ehf. (3,8%)
alþjóðlegum og innlendum fjár-
festum. Aðspurður segir Róbert að
horft sé til þess að ljúka fjár-
mögnun erlendis strax á þessu ári.
Höfðu mikið fyrir fénu
Róbert segir að Genís hafi þurft að
hafa mikið fyrir því að klára fjár-
mögnunina hér á landi. Umhverfi
nýsköpunarfyrirækja af þeirri
stærð sem Genís er í sé ekki nógu
gott þótt umhverfi smærri nýsköp-
unarfyrirtækja sé þokkalegt. „Það
er búið að ganga svo nærri lífeyris-
sjóðunum að þeir þora ekki að taka
áhættu. Áhættufjármagn er mjög
takmarkað á Íslandi. Fyrirtækið er
í fínum málum, það er fjárhagslega
sterkt og verkefnið er flott. Maður
spyr sig hvort maður sé á vitlausum
stað á jarðarkringlunni með svona
fyrirtæki.“
Í fréttatilkynningu segir að Genís
hafi að undanförnu lagt áherslu á
að markaðssetja fæðubótarefnið
Benecta hér á landi og erlendis. Hið
nýja fjármagn verður meðal annars
nýtt til að ráðast í næstu skref í þró-
un félagsins. tobj@mbl.is
Líftæknifyrirtækið Genís á Siglu-
firði hefur lokið fyrsta áfanga af
fjármögnun til að styðja við frekari
vöxt félagsins og mun TFII, fag-
fjárfestasjóður í rekstri Íslenskra
verðbréfa, koma inn í félagið sem
nýr hluthafi. Róbert Guðfinnsson,
stjórnarformaður og eigandi Genís,
segir í samtali við Morgunblaðið að
um hundraða milljóna fjárfestingu
sé að ræða. Með henni sé lokið
þeirri fjármögnun sem fara átti
fram á Íslandi. Næstu skref verði
tekin erlendis.
Eins og kom fram í Morgun-
blaðinu í febrúar á síðasta ári
hyggst Genís, með fulltingi og ráð-
gjöf frá GAMMA, afla samtals allt
að tveggja milljarða króna bæði frá
Kaupa fyrir hundruð milljóna í Genís
Hærri upphæð erlendis síðar á árinu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Nýsköpun Líftæknifyrirtækið Genís er staðsett á Siglufirði.
● Átta eru í framboði til stjórnar Haga á
hluthafafundi sem haldinn verður á
föstudaginn. Þegar tilnefninganefnd lauk
störfum höfðu sjö gefið kost á sér og
lagði nefndin til að þau Davíð Harðarson,
Eiríkur S. Jóhannsson, Erna Gísladóttir,
Katrín Olga Jóhannesdóttir og Stefán
Árni Auðólfsson yrðu kjörin í stjórn.
Ásamt þeim höfðu gefið kost á sér þeir
Jón Ásgeir Jóhannesson og Kristján Óli
Níels Sigmundsson. Eftir að nefndin lauk
störfum tilkynnti svo Sandra Hlíf Oc-
ares, sjálfstætt starfandi ráðgjafi, að hún
hygðist bjóða sig fram. Í tilnefninganefnd
Haga sitja þau Ásta Bjarnadóttir vinnu-
og skipulagssálfræðingur og endurskoð-
endurnir Björg Sigurðardóttir og Símon
Á. Gunnarsson.
Enn fjölgar í hópi fram-
bjóðenda hjá Högum
16. janúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.58 121.16 120.87
Sterlingspund 154.86 155.62 155.24
Kanadadalur 90.76 91.3 91.03
Dönsk króna 18.501 18.609 18.555
Norsk króna 14.093 14.177 14.135
Sænsk króna 13.47 13.548 13.509
Svissn. franki 122.63 123.31 122.97
Japanskt jen 1.1144 1.121 1.1177
SDR 168.29 169.29 168.79
Evra 138.11 138.89 138.5
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 166.4932
Hrávöruverð
Gull 1293.7 ($/únsa)
Ál 1815.0 ($/tonn) LME
Hráolía 60.62 ($/fatið) Brent
● Vilborg Helga
Harðardóttir mun
taka við starfi for-
stjóra Já.is hinn 1.
febrúar næstkom-
andi. Sigríður Mar-
grét Oddsdóttir
hefur óskað eftir
því að láta af starfi
forstjóra en hún er
í hópi hluthafa fé-
lagsins og mun við
vistaskiptin taka sæti í stjórn þess.
Vörumerkin sem heyra undir félagið eru
Gallup á Íslandi, Leggja og Markaðs-
greining. Hjá félaginu eru 115 starfs-
menn í 75 stöðugildum.
Vilborg Helga hefur starfað í 13 ár hjá
félögum innan samstæðu Já.is. Hún er
með BA-próf í sálfræði frá HÍ og MBA-
gráðu frá HR.
Sigríður Margrét lætur
af starfi forstjóra Já.is
Vilborg Helga
Harðardóttir
STUTT