Morgunblaðið - 16.01.2019, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 16.01.2019, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Elsku amma, Bros þitt hlýjar, þinn hlátur kitlar. Hvert andartak með þér sem gullið ljós geymt í hjartastað. Elsku yndislega Imma amma mín nú hefur þú kvatt þennan heim og trúi ég því að þú sért búin að hitta elsku afa á góðum stað þar sem sálir ykkar munu lifa áfram saman. Þegar ég hugsa til ykkar afa þá fyllist hjarta mitt svo miklu þakklæti og kærleika fyrir að hafa fengið að njóta margra Ingibjörg Pétursdóttir ✝ Ingibjörg Pét-ursdóttir fædd- ist 11. júní 1934. Hún lést 5. janúar 2019. Útför Ingibjarg- ar fór fram 15. jan- úar 2019. yndislegra ára með ykkur. Á heimilinu ykkar í Stóragerði í Reykjavík eignuð- umst við saman margar góðar minningar. Ég man að ég vildi oft fá að gista hjá afa og ömmu enda fékk ég alltaf mikið dekur hjá ykkur. Þið gáf- uð ykkur svo mik- inn tíma í samverustundir og spjall um allt og ekkert með mér. Við spiluðum ólsen ólsen, veiðimann og byggðum stórar spilaborgir á teppalagðri stof- unni ykkar. Við afi stóðum oft saman á höndum enda bæði miklar fimleikastjörnur og monta ég mig enn þann dag í dag yfir að hafa átt afa sem gat staðið á höndum fram á gamals- aldur. Nuddið þitt var það besta í heimi og alltaf samþykktir þú að nudda fæturna á mér. Hend- urnar á þér og hvernig þú nuddaðir höfðu ákveðinn mátt að ég held, því það kom alltaf ákveðin ró yfir mig og svo sofn- aði ég strax í kjölfarið. Morgnarnir voru svo gæða- stundirnar okkar afa þar sem þú, elsku amma, fékkst að sofa aðeins lengur á meðan við afi spjölluðum og fengum okkur hafragraut. Ég verð ykkur afa ávallt mjög þakklát fyrir að leyfa mér alltaf að gista, taka vel á móti mér og gefa ykkur tíma til að eiga góðar samveru- stundir með mér. Sem barn var ég svo lánsöm að fá að vera í pössun á sumrin hjá þér, amma mín, þar sem við brölluðum mikið saman. Með strætó fór- um við allt sem okkur langaði, meðal annars í sund, í Hljóm- skálagarðinn með nesti og eft- irminnilegast er hversu gott okkur þótti að fara í kirkju- garðinn í Fossvogi og velta líf- inu fyrir okkur. Ég spurði auð- vitað og spurði en þú svaraðir alltaf öllum mínum spurningum vel og af mikilli þolinmæði. Minningarnar lifa um allar sumarbústaðaferðirnar sem voru farnar með ykkur afa, öll jólin sem við áttum saman í Stóragerðinu og allar heim- sóknirnar til ykkar afa í kaffi og spjall. Þegar ég varð eldri voru þið alltaf til staðar fyrir mig, vini mína, Ármann minn og svo langömmubörnin ykkar. Við vorum alltaf velkomin í mat eða kaffi, þið voruð alltaf reiðubúin að skutlast um allt og rétta hjálparhönd í hinum ýmsu verk- efnum sem við Ármann tókum okkur fyrir hendur. Elsku amma mín, takk fyrir að vera þú, takk fyrir að taka alltaf vel á móti mér og fjöl- skyldu minni, takk fyrir allt spjalliðsem við höfum átt saman og samverustundirnar. Takk fyrir að eiga alltaf ís í frystin- um, enda var mjög vinsælt að koma í heimsókn til þín amma mín. Mig langar að kveðja þig með þessum orðum og í leiðinni þakka þér fyrir allt sem þú hef- ur kennt mér í lífinu. Minning þín mun ávallt lifa í mínu hjarta. Þér ég þakka amma mín vináttu og góðar stundir. Hlýja hönd og handleiðslu, okkar stundir saman. Bjartar minningar lifa ævina á enda. Ég elska þig svo heitt, elsku amma mín, og bið að heilsa afa mínum. Knús og margir kossar. Þín Sigríður (Sirrý). Það er þyngra en tárum taki fyrir okkur að setja niður á blað minningarorð um barnabarnið okkar hann Óttar, sem var mikið glæsimenni eins og amma minnti hann á reglulega. Minningarnar streyma fram, þegar Öddi og Birna giftu sig var Óttar fjögurra ára og Birkir tveggja ára, afi og amma fengu að fylgja litlu fjölskyldunni í brúð- kaupsferðina. Ferðin lá til Ítalíu þar sem við áttum ógleymanlegar tvær vikur. Þeir bræður voru samrýndir, það voru því mikil tíðindi þegar Hekla kom inn í líf þeirra. Þeir voru stoltir af systur sinni frá fyrsta degi og þreyttust aldrei á að dásama hana. „Sjáið hvað hún er falleg, sjáið hvað hún er flott.“ Við sóttum bræðurna oft í skól- ann, fórum heim á Álfhól og sett- umst við spil. Óttar þoldi ekki að tapa, grét af vonbrigðum og sagði „amma Ingibjörg leyfir mér alltaf að vinna“. Okkar svar: „Óttar minn, þú lærir svo mikið af því að tapa.“ Þetta fannst honum ekki sérstaklega merkileg rök. Óttar var fróðleiksfús, forvitinn og hafði áhuga á öllu milli himins og jarðar. Skemmtilegar þóttu honum minningar afa þegar hann sagði frá sínum unglingsárum, stofnun Íþróttabandalags drengja, ferðalögum og fleira. Fyrir jólin mátti reikna með þeim bræðrum í alls kyns aðstoð við jólaundirbúning, að fægja silfrið og koparborðið og ýmislegt fleira, ómetanlegar stundir þegar litið er til baka. Þarna var mikið spurt, Óttar spurði sérstaklega mikið um okk- ar uppruna en hann var forvitinn um uppruna sinn enda vissi hann ótrúlegustu hluti þrátt fyrir ungan aldur. Óttar var góður námsmað- Óttar Arnarson ✝ Óttar Arnarsonfæddist í Reykjavík 28. ágúst 1996. Hann lést á Landspítalanum Fossvogi 3. janúar 2019. Foreldrar Óttars eru hjónin Örn Logason, f. 1966, og Sigríður Birna Kristinsdóttir, f. 1969. Systkini Ótt- ars eru Birkir Arnarson, f. 1998, og Hekla Arnardóttir f. 2007. Útför Óttars fer fram frá Há- teigskirkju í dag, 16. janúar 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. ur, þó að hann hafi ekki lokið prófi þá var hann fróður um ótrúlega hluti á mörgum sviðum, tölvumál voru hans sérsvið, hann kynnti sér til dæmis upp- götvanir og nýjung- ar í m.a. verkfræði og læknisfræði. Svo var það tón- listin, hann hlustaði á allt og kom oft með okkur á sin- fóníutónleika. Óttar vissi allt um verkin sem flutt voru, og fræddi okkur þá langt umfram það sem nokkurn tímann stóð í dagskránni. Þegar verslun Costco var opn- uð gerðist Óttar sjálfboðaliði í inn- kaupaferðum ömmu. Einu sinni í mánuði var byrjað á því að taka bensín, síðan var farið í IKEA, amma fékk „smörrebröd“ en Ótt- ar stóran skammt af kjötbollum, alltaf það sama. Svo var farið í Costco, ekki leiðinlegt, Óttar sagði: „já, hafa þeir þetta svona hér, þetta er nú svolítið sniðugt fyrir ykkur afa“. Hann hafði skoð- un á þessu öllu. Amma þurfti ekki að hafa fyrir neinu, hann hljóp um og náði í það sem átti að kaupa og þegar heim var komið hjálpaði hann afa við að koma varningnum fyrir. Svo var sest niður og rabbað, stundum í marga klukkutíma. En sitt er hvað gæfa eða gjörvi- leiki, Óttar fægir ekki meira silfur eða koparborð eða spjallar við okkur um sín hugðarefni. Síðastliðið sumar átti Óttar erfitt, þá hringdi hann í ömmu, bað hana að koma því hann þyrfti að tjá sig, tala og kryfja til mergj- ar. Margt varð mér ljósara um líf ungs manns eftir það samtal. Brostin vinaböndin blessuð minning lifir Drottins hjálpar höndin heilög vaki yfir. (Hjörtur Þórarinsson.) Hvíl í friði „óttalegur Grímur getspakur“ okkar, Amma Árný og afi Logi. Það er steinn í brjósti mér, dökkur og þungur. Ég þarf að bera hann um stund en veit að hann mun léttast og breytast í ljós, ljósið hans Óttars. Minningar eru eins og silfur- þráður sem rekur okkur í gegnum lífið sem við höfum lifað. Þær lýsa upp tilveruna og leita okkur uppi á ögurstundu þegar öll sund virðast lokuð og flæða stjórnlítið í gegn- um hugann. Þetta eru myndir af atvikum sem gera lífið þess virði að lifa því. Sumar eru beiskar þegar þér finnst að þú hefðir getað gert bet- ur. Aðrar ylja þér og fá þig jafnvel til að brosa þegar þér fannst lífið vera þér ljúft. Ég man þig sem ákafan dreng sem vildi sigra og alls ekki tapa. Ég man þig sem vandaðan dreng sem átti yngri bróður sem besta vin í mörg ár. Ég man þig kláran dreng sem þekkti alla fugla Ís- lands átta ára. Ég man þig sem skemmtilegan strák sem átti góða vini sem sótt- ust í að fylla litla sjö fermetra her- bergið í Safamýrinni. Ég man þig sem ótrúlegan strák sem elskaði pylsur og borðaði alltaf þrjár. Ég man þig magnaðan mann sem stóð sterkur eftir áföll. Ég man þig fróðleiksfúsan mann sem var allt- af brosandi af ákefð þegar þú sagði frá. Ég man þig ungan mann sem var þungur á morgnana og allt var ömurlegt. Ég man þig, PePe besta Counter Strike Surf- spilara í heimi. Ég man þig bjartsýnan mann sem ætlaðir sér svo margt. Ég man þig stuðboltann við matar- borðið sem sá um að aldrei væri þögn. Það bætast ekki við fleiri nýjar minningar um Óttar, hann er far- inn frá okkur. Ótal myndir hans lýsa upp steina í brjóstum okkar Birnu, Heklu og Birkis. Við sökn- um hans sárt. Við munum þó hitt- ast aftur síðar og þá spilum við saman uppáhaldslögin okkar og tökum kannski í einn tölvuleik, ég mun örugglega tapa en það skiptir engu. Örn Logason. Tuttugu og tveggja ára. Mér finnst ég vera alltof ung til að skrifa minningargrein. Og þú varst líka alltof ungur til að um þig væri skrifuð minningargrein. En svona er lífið, allt of hverf- ult. Ég mun alltaf minnast þín með hlýju í hjarta, því þannig varst þú: hlý og góð manneskja sem vildi öllum vel, alltaf. Þegar ég hugsa um þig þá sé ég strax brosið, heyri hláturinn og finn fyr- ir húmornum sem var aldrei langt undan þegar við Álftófrændfólkið hittumst yfir Alias og Dommara með súkkulaðirúsínum. Ég sakna þín, elsku Óttar. Eng- in orð fá því lýst hversu sárt það er að þú sért farinn. En ég vil bara að þú munir það sem ég sagði við þig þegar við kvöddumst niðri á spít- ala í síðustu viku: mér þykir svo óendanlega vænt um þig og mér mun alltaf þykja svo óendanlega vænt um þig sama hvað. Ég vona svo innilega að þú sért kominn á góðan stað þar sem þér líður vel og ert sæll í eigin skinni. Ásta Kristín. Tilvera okkar er undarlegt ferðalag. Við erum gestir og hótel okkar er jörðin. Einir fara og aðrir koma í dag, því alltaf bætast nýir hópar í skörðin. Og til eru ýmsir, sem ferðalag þetta þrá, en þó eru margir, sem ferðalaginu kvíða. Og sumum liggur reiðinnar ósköp á, en aðrir setjast við hótelgluggann og bíða. En það er margt um manninn á svona stað, og meðal gestanna er sífelldur þys og læti. Allt lendir í stöðugri keppni’ um að koma sér að og krækja sér í nógu þægilegt sæti. En þó eru sumir, sem láta sér lynda það að lifa úti’ í horni, óáreittir og spakir, því það er svo misjafnt, sem mennirnir leita að, og misjafn tilgangurinn, sem fyrir þeim vakir. En mörgum finnst finnst hún dýr þessi hóteldvöl, þó deilt sé um hvort hótelið sjálft muni græða. En við, sem ferðumst, eigum ei annars völ. Það er ekki um fleiri gististaði að ræða. Að vísu eru flestir velkomnir þangað inn, og viðbúnaður, er gestirnir koma í bæinn, og margir í allsnægtum una þar fyrst um sinn. En áhyggjan vex, er menn nálgast burtferðardaginn. Þá streymir sú hugsun um oss sem ískaldur foss, að allt verði loks upp í dvölina tekið frá oss, er dauðinn, sá mikli rukkari, réttir oss reikninginn yfir það sem var skrifað hjá oss. Þá verður oss ljóst, að framar ei frestur gefst né færi á að ráðstafa nokkru betur. Því alls, sem lífið lánaði, dauðinn krefst – í líku hlutfalli og Metúsalem og Pétur. (Tómas Guðmundsson.) Hallvarður, Jóhanna og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, STEFÁN JÓNSSON málarameistari, Bakkahlíð 2, Akureyri, lést sunnudaginn 6. janúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 18. janúar klukkan 13.30. Heiðrún Björgvinsdóttir Jón Ari Stefánsson Hjördís Stefánsdóttir Heiðar Konráðsson Heiðrún Valdís og Hildur Védís Okkar ástkæri, EIRÍKUR INGÓLFSSON, búsettur í Fredrikstad, Noregi, lést á heimili sínu aðfaranótt 9. janúar. Útför í Fredrikstad verður þriðjudaginn 22. janúar. Minningarstund og jarðarför á Íslandi auglýst síðar. Mette Bakken Áslaug Eiríksdóttir Helgi Þ. Möller Leifur Eiríksson Heiðar Eldberg Eiríksson Svala K. Eldberg Þorleifsdóttir og barnabörn Ingólfur Guðmundsson Áslaug Eiríksdóttir og systkini hins látna Ástkær systir okkar, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR frá Kirkjuhvoli, Akranesi, dvalarheimilinu Höfða, lést þann 10. janúar sl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 18. janúar klukkan 13.00. Systkinin Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRIR FINNUR HELGASON húsasmíðameistari, Iðalind 3, Kópavogi, lést á Landspítalanum, Fossvogi, föstudaginn 4. janúar. Útför fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi föstudaginn 18. janúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill. Vigdís Björnsdóttir Ingibjörg Halla Þórisdóttir Bárður Sveinbjörnsson Helgi Þórisson Sigríður Pálsdóttir Björn Þórisson Kristín Garðarsdóttir barnabörn og langafabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN SIGURÐSSON, Hánefsstöðum, Seyðisfirði, lést á hjúkrunarheimilinu Fossahlíð mánudaginn 14. janúar. Jarðarförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugardaginn 19. janúar klukkan 11. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Hollvinsamtök Fossahlíðar Seyðisfirði. Svanbjörg Sigurðardóttir börn, tengdabörn og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN DAN ÓSKARSSON, Ísafirði, varð bráðkvaddur 14. janúar. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 26. janúar klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, Rannveig Hestnes

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.