Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 24

Morgunblaðið - 16.01.2019, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 ✝ Ragnar fæddistí Reykjavík 21. september 1940. Hann lést á Hrafn- istu í Keflavík 30. desember 2018. Foreldrar hans voru Henrik W. Ágústsson, prentari og prentsmiðju- stjóri í Reykjavík, f. 19. mars 1905, d. 11. nóvember 1966, og Gyða Þórðardóttir, tal- símakona í Reykjavík, f. 19. febrúar 1910, d. 25. maí 2003. Systkini Ragnars voru: Nanna Guðrún hjúkrunarfræðingur f. 13. júní 1938, d. 16. janúar 1998, og Þórður Ágúst prentari f. 27. júní 1942. Uppeldissystir Ragn- ars var Guðrún Björgvinsdóttir en þau voru systkinabörn og hún var alltaf sem systir okkar systk- inanna, f. 10. september 1931, d. 29. nóvember 1978. Eftirlifandi kona Ragnars er Jórunn Erla Stefánsdóttir sjúkraliði, f. 28. júní 1948. Þau gengu í hjónaband hinn 17. febrúar 1990. Faðir hennar var Stefán Júlíus Ísaksson, f. 2. júní 1915 á Rauf- arhöfn, d. 15. des- ember 1991, verka- maður í Reykjavík. Móðir hennar var Sigurbjörg Jóhann- esdóttir, f. 4. mars 1914 á Ak- ureyri, d. 12. júlí 1973, hús- freyja. Ragnar ólst upp í Reykjavík. Hann lærði prent hjá föður sín- um í PÁS prentsmiðju og vann við fagið stærsta hluta ævi sinn- ar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ragnar Henriksson mágur minn er fallinn frá. Síðla sumars árið 1966 bauð vinkona mín mér í ferðalag með sér og frænda sínum og hópi af fólki í Þjórsárdalinn, þetta var áð- ur en Búrfellsvirkjun kom. Í þessari ferð voru Raggi og bróðir hans Þórður, sem síðar varð eiginmaður minn. Í nóvem- ber sama ár lést faðir þeirra og þeir bræður tóku við rekstri PÁS prentsmiðju. Þarna var Ragnar 26 ára og Þórður 24 ára. Saman ráku þeir prentsmiðjuna til margra ára. Ragnar var mikill útivistar- maður og naut þess að ferðast vítt og breitt um landið, á mótorhjóli, í bíl og gangandi. Gekk á fjöll og hálendi. Myndavélin alltaf með og hann tók mikið af myndum. Var í mörgum félagasamtök- um sem tengdust ferðamennsku og náttúru Íslands. Við fórum margar góðar ferðir saman. Ragnar var mjög barngóður, átti mikið safn af legókubbum og barnablöðum. Þegar börnin mín Linda og Henrik voru niðri í PÁS, þá var farið upp í risið í íbúðina til Ragga frænda og kubbað og lesið og þar voru oft krakkar úr hverf- inu. Ragnar hitti Jórunni sína frek- ar seint og var að verða fimm- tugur þegar þau giftu sig. Jórunn var hans gæfa. Þau áttu góð ár saman í Noregi og síðan í Vog- unum. Guð veri með Jórunni. Kveðja Ásta. Góður drengur, vinur til 65 ára, er nú fallinn frá. Ragnar prentari í PÁS tók vel á móti ungum sendli 1953. Þar var hollt og gott að vinna með honum, hjá Henrik pabba hans. Ferðalög bar oft á góma. Margar brekkur voru gengnar. Yndislegt að standa á fjallsbrún og horfa yfir landið með Ragnari. Njóta, það kunni hann. Horn- strandir, Kjölur, Stórisandur, Vatnajökull. Ragnar var víðförull, með góð- um félögum „Skollabræðrum“ og „Tjaldlausum“, Ferðafélaginu og Farfuglum og bjsv. Ingólfi. Gang- andi, á vélsleðum og jeppum. Duglegur ferðafélagi lagði víða lið. Margir voru hraustari, en fáir seigari. Á fjöllum í hríðarbyl kynnast menn vel. Þar var gott að ganga með Ragnari. Margs er að minnast og þakka. Ragnar þakkaði vini sínum Jesú og Guði oft, þeir áttu samleið. Glíman við Elli er afstaðin og nú síðasta ferðin farin. Kveður hljóðlega. Ættingjum færi ég innilegar samúðarkeðjur. Kveð góðan dreng með sökn- uði. Torfi H. Ág. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. Eg veit einn að aldrei deyr: dómur um dauðan hvern. (Úr Hávamálum.) Ragnar æskuvinur minn fór á vit forfeðra sinna þegar sólin var að byrja nýtt ár og nær því fullum byr inn í nýtt sólarár og hver veit nema á Sólfara. Þú varst kátur og hress fullur af orku eftir skemmtilegt ferða- lag þegar við gömlu félagarnir sem höfðum þá haldið hópinn í meir en 60 ár og fórum í eina af okkar árlegu ferðum og í þetta sinn á Reykjanesið. Þar vast þú í essi þínu enda vissum við að þú varst fróður um nýju heimaslóð- irnar þínar. Áhugi á ferðalögum kviknaði þegar við vorum unglingar og var Prentsmiðja föður Ragnars ferðabækistöð og mikið spekúler- að og skrafað um staði sem okkur langaði að sjá svo reiðhjól, skelli- nöðrur og mótorhjól urðu farar- skjótar okkar í byrjun. Þegar þið bræður Þórður og þú eignuðust splunkunýjan Landróverinn fóru oft glaðir og kátir strákar með ykkur bræðrum og fullan bíl af vistum og ferðagræjum og Ljómi var ekki sparaður enda eins og Kadilak í okkar augum á þeim tíma. Já, hann var ferða-Kadilakk- inn. Árin liðu en við félagarnir köll- uðum ykkur bræður ýmist Ragn- ar og Þórð eða Þórð og Ragnar en þið voru alltaf sem einn. Já, hóp- urinn stækkaði og það bættust við Austurbæingar sem var eng- an veginn samkvæmt sáttmálan- um en Austur- og Vesturbæingar voru í stríði á þeim árum en við létum það ekki trufla ferðalöngun okkar. Já, svo komu Laugnesingar og Fossvogsbúar og ferðirnar urðu lengri og strangari og hálendið með jöklunum varð fyrir barðinu á okkur svo við sáum nauðsyn þess að kaupa saman ferðagræj- ur sem voru geymdar í miðstöð klúbbsins, Prentsmiðju þeirra feðga, en faðir þeirra bræðra var mikill hvatamaður okkar á fyrstu árunum enda mikill ferðamaður sjálfur og skáti. Svo byrjuðum við flestir í Björgunarsveit slysavarnafélags- ins Ingólfs sem var enn ein skemmtileg reynsla. Já, svo stelpurnar en við höfð- um aldrei mátt vera að því að spá í þær enda oft ekki álitlegir, drull- ugir upp fyrir haus á mótorhjól- unum, lyktandi eins og ég veit ekki hvað enda ekki sturtur hvar sem var og oft gantast í tjaldbúð- unum okkar að kveldi ferðadags með orðið „alýfát“ og menn voru fljótir að koma sér í svefnpokana og renna rennilásnum upp. Lesið alýfát aftur á bak þá skiljið þið þetta. Já, stelpurnar komu og ferða- munstrið breyttist. Jepparnir tóku yfir og við fórum að vera hreinir og snyrtilegir enda engin miskunn hjá stelpunum og í stað þess að við værum að „éta“ sviða- hausa og naga kjöt af beini eða sviðasultu beint úr dósinni elduðu þær góðar máltíðir fyrir okkur svo enginn kvartaði, menn urðu eldri, giftust sínum heittelskuðu og eignuðust börn og buru og þá aftur stækkaði hópurinn og börn okkar ólust upp við sama um- hverfi og við félagarnir og nú hafa þau sama munstur og njóta sín á sama hátt og við. Ragnar, hvað er yndislegra en að hafa tilgang í líf- inu. Við Guðrún og gömlu Skolla- ferðafélagarnir þínir viljum segja góða ferð og votta Jórunni konu þinni og bróður þínum og hans fjölskyldu samúð okkar. Valdimar Samúelsson. Meira: mbl.is/minningar Ragnar Jóhannes Henriksson Smáauglýsingar Raðauglýsingar Styrkir Styrkir vegna þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum Mennta- og menningarmálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki vegna þátttöku framhalds- skólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum á árinu 2019. Markmið styrkjanna er að fjölga nemendum í raunvísindum og stærðfræði og eru styrkirnir veittir til að standa straum af ferðakostnaði vegna þátttöku í keppnunum. Að auki mun ráðuneytið veita styrki sérstaklega til keppenda. Umsóknir berist mennta- og menningarmála- ráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið postur@mrn.is í síðasta lagi föstudaginn 8. febrúar 2019. Nánari upplýsingar eru í auglýsingu á vef ráðuneytisns, menntamalaraduneyti.is Umsóknarfrestur er til og með 8. febrúar 2019. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Til sölu ónotuð 66º Norður úlpa, Hekla, í stærð L. Fullt verð kr. 39.000, tilboð aðeins kr. 20.000-, Upplýsingar í síma 698-2598 Til sölu Vantar þig pípara? FINNA.is Mér er aumt að kveðja Edda, föð- urbróður minn og uppáhaldsfrænda, sem dó á nýársdag 2019. Kveðjustundin rennur undar- lega óvart upp, þrátt fyrir 85 æviár hans. Eftir að hafa þraukað heilsubrest og slæm- ar heimilisaðstæður í mörg ár náði Eddi áttum þegar hann kom á dvalarheimilið Grund síðla sumars 2018. Hann var á vissan hátt ánægður með að vera kominn aftur vestur í bæ, en hann ólst upp við Hring- brautina á fjórða og fimmta áratug fyrri aldar. Eddi var á sínum tíma hlutaeigandi í Breiðfjörðs blikksmiðju, þar sem hann starfaði til 67 ára aldurs, og átti heimili á Laugateigi í austurhluta Reykjavíkur frá árinu 1947 til 2003. Seinna var hann á leigu- markaði. Hann var einhleypur alla tíð og skilur ekki eftir sig Eiður A. Breiðfjörð ✝ Eiður A. Breið-fjörð fæddist 17. ágúst 1933. Hann lést 1. janúar 2019. Útför Eiðs fór fram 14. janúar 2019. afkomendur. Hann var með fyrir- myndar minni, og ísmeygilegan húm- or sem yfirleitt var alúðlegur, og hann var ágætis neftób- aksfræðingur – það sem ég veit um ætt mína á Ís- landi hef ég að mestu leyti frá honum eða hef ég rætt við hann. Hann var ekki félagslyndur, en vel fyrir spjal- laugliti til auglitis yfir kaffi- bolla. Ég geymi í hjarta mínu nærri fimmtugar minningar um þennan blessaða hlýhug. Í sannleika talað heyrði ég hann aldrei tala illa um fólk, sér- staklega ekki ættingja. Mér þótti ákaflega vænt um Edda, og þykir enn, og ég tek fráfall hans mjög nærri mér. Þess vegna eru þessi minningarorð fátækleg og máttvana, ólíkt sorginni. Fyrir hönd bróður míns, Agnars, og systur minnar, Sól- veigar, – Eddi bað mig alltaf að skila kveðju til þeirra, og seinna líka til sonar míns Marí- usar. Kristján Breiðfjörð. Ástkær eiginkona mín, HJÁLMFRÍÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR, lést sunnudaginn 13. janúar. Halldór Stefánsson Ástkær sambýliskona mín, móðir, dóttir og systir, BJÖRK ALBERTSDÓTTIR, varð bráðkvödd á Spáni laugardaginn 12. janúar. Elí Pétursson Bergur Snorri Salomonsen Elí Xavi Bjarkar Elison Ingibjörg Gísladóttir Albert K. Skaftason Emilía Davíðsdóttir Eyvindur Elí Albertsson Gylfi Geir Albertsson Skafti Þór Albertsson Kærleiksríka LAUFEY GUÐMUNDSDÓTTIR, Egilsstaðakoti, verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 8. janúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Fossheima, Selfossi. Helga Elín Halldór Sigurbjörg Árni Guðsteinn Frosti Kristín Einar Elín Bjarnveig og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.