Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 16.01.2019, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Arndís Hrönn Egilsdóttir leikkona fagnar 50 ára afmæli sínu ídag. Hún hefur verið áberandi í sjónvarpsþáttum og bíómynd-um, en hefur einnig leikið töluvert á sviði og var síðast í leikrit- inu Samþykki sem var sýnt í Þjóðleikhúsinu, en sýningum á því er ný- lokið. Meðal sjónvarpsþátta og bíómynda sem Arndís hefur leikið í eru Fangar, Pressa og kvikmyndin Þrestir. Á þessu ári er von á tveimur bíómyndum sem Arndís leikur í og fer hún með aðalhlutverkið í annarri þeirra. Þetta eru myndirnar Alma, í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur, og Héraðið sem Grímur Hákonar- son leikstýrir, en Arndís fer með aðalhlutverkið í henni. „Þetta er kvenhetjusaga og fjallar um Ingu sem er miðaldra kúa- bóndi. Hún missir manninn sinn í byrjun myndarinnar og veröldin um- turnast og viðhorf hennar gagnvart samfélaginu sem hún býr í. Tök- urnar fóru fram í Dölum síðastliðið vor og haust, ég hef aldrei verið í sveit og þurfti að læra helling af bústörfum eins og að keyra traktor og umgangast kýr. Þetta var lærdómsríkt og mikið af góðu fólki var að vinna í myndinni.“ Núna er Arndís í upptökum á sjónvarpsþáttum sem verða sýndir í haust á Rúv. „Í tilefni afmælisins ætla ég í dag að halda lítið kokteilboð fyrir mína nánustu fjölskyldu og af því að ég gifti mig á síðustu vetrarsólstöðum þá verð ég með meira partí í vor, þegar sólin fer að hækka á lofti, fyrir vini og vandamenn.“ Eiginmaður Arndísar er Eiríkur Stephensen, líffræðingur og sér- fræðingur hjá menntamálaráðuneytinu. Dóttir þeirra er Úlfhildur Júlía 9 ára en börn Eiríks af fyrra sambandi eru Þórhildur og Ólafur Sverrir. Ljósmynd/Margrét Seema Takyar Brúðkaup Eiríkur og Arndís ásamt Úlfhildi á vetrarsólstöðum. Fer með aðalhlutverk- ið í nýrri bíómynd Arndís Hrönn Egilsdóttir er fimmtug í dag G unnar Kvaran fæddist 16. janúar 1944 á Víði- völlum í Laugardal í Reykjavík og ólst upp í Þingholtunum til 14 ára aldurs en flutti þaðan á Seltjarnar- nes með fjölskyldu sinni. Gunnar hóf ungur að leika á ýmis hljóðfæri undir handleiðslu dr. Heinz Edelsteins við Barnamúsík- skólann í Reykjavík. Tólf ára gamall hóf hann nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Einari Vigfússyni sellóleikara. Árið 1964 hélt hann til náms við Konunglega tónlistar- háskólann í Kaupmannahöfn hjá hinum heimsþekkta dansk-íslenska sellóleikara Erling Blöndal Bengts- son. Þar ytra féllu honum ýmis verð- laun í skaut, þar á meðal tónlistar- verðlaun kennd við Jacob Gade og hlaut hann námsstyrk tónlistar- háskólans. Á árunum 1968-1974 starfaði hann sem kennari við sama skóla. Framhaldsnám stundaði Gunnar í Basel undir handleiðslu René Flachot og sótti meistara- námskeið hjá André Navarra og Gregor Piatigorsky í Danmörku og á Ítalíu. Gunnar hefur haldið einleiks- tónleika og kammertónleika á Norð- urlöndum, í Þýskalandi, Frakklandi, Hollandi, Belgíu, Bandaríkjunum, Kanada og Bretlandi, m.a. Wigmore Hall í London, í Beethoven Haus í Bonn, Mendelssohn Haus í Leipzig ásamt Hauki Guðlaugssyni og Carnegie Recital Hall í New York ásamt Gísla Magnússyni píanóleik- ara. Gunnar og Gísli áttu í farsælu samstarfi um árabil og komu fram á fjölmörgum tónleikum bæði heima og erlendis. Gunnar hefur einnig átt í framúrskarandi samstarfi við pí- anóleikarann Selmu Guðmunds- dóttur og hörpuleikarann Elísabetu Waage. Gunnar er stofnandi hins kunna Tríós Reykjavíkur ásamt eig- inkonu sinni, Guðnýju Guðmunds- dóttur fiðluleikara og Halldóri Har- aldssyni píanóleikara. Síðar komu til píanóleikararnir Peter Máté og Richard Simm. Gunnari hefur oft verið boðið að taka þátt í virtum tónlistarhátíðum vestan hafs jafnt sem austan, svo sem Killington Music Festival og Manchester Music Festival, bæði sem flytjandi og kennari. Hann hef- ur margoft leikið einleik með Sinfón- íuhljómsveit Íslands, Sinfóníu- hljómsveit Sjálands og Fílharmóníu- Gunnar Kvaran sellóleikari – 75 ára Hjónin Guðný og Gunnar stödd við kastalann í Köthen þar sem Bach var tónlistarstjóri 1717-1723 við hirðina þar. Tónlist og mannúðarmál Sellóleikarinn Gunnar Kvaran. Reykjavík Katla fæddist 24. júní 2018 kl. 20.05 (9 vikum fyrir tímann). Hún vó 1.600 gr og var 40 cm. Foreldrar eru Signý Hermannsdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Slípivélar í úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.