Morgunblaðið - 16.01.2019, Síða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú gætir orðið fyrir harkalegri gagn-
rýni en láttu það ekki á þig fá. Þú veist að
þú átt það ekki skilið. Þú stappar í aðra stál-
inu.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú verður ekki lengur undan því kom-
ist að hrinda í framkvæmd áætlun sem hef-
ur verið í startholunum. Gefðu þér því tíma
til að kryfja málin til mergjar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Oftast fyllistu ekki valkvíða, en val-
kostirnir nú eru nú svo girnilegir að þú verð-
ur að hugsa þig vel um. Njóttu þess að ræða
málin og freista þess að fá botn í hlutina.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Áhugaverðir einstaklingar koma inn í
líf ykkar á næstunni. Ástamálin blómstra og
ef þú ert ekki búin/n að finna lífsförunaut
þá er ekki langt í að hann birtist.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Öllum tíma sem þú eyðir heima hjá þér
er vel varið í dag. Gerðu ráðstafanir ef eitt-
hvað skyldi koma upp á þegar þú bregður
þér í frí.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að koma öllum málum á
hreint við vini og vandamenn svo einhverjir
draugar á því sviði séu ekki að þvælast fyrir
þér. Samræður við systkini eða náinn vin
geta komið þér á sporið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú vilt styrkja vináttuböndin skaltu
muna að góðir vinir geta verið saman bæði í
sorg og gleði. Hreinskilni borgar sig alltaf.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að gefa þér tóm til
þess að skemmta þér svolítið. Hreint borð
er fögur sjón! Víðsýni þín er aðlaðandi í aug-
um margra.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú gætir þurft á óvenjumikilli
hvíld að halda næstu vikurnar. Láttu ekki
undan freistingunni að láta kæruleysisleg
orð falla því þau gætu reitt einhvern til reiði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Óvænt daður kann að gleðja og
jafnframt rugla þig í ríminu í dag. Heimilis-
aðstæður þínar munu batna á árinu. Lestu
smáa letrið og vertu viss um hvað tilheyrir
þér og hvað ekki.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það þýðir ekkert að stinga
hausnum í sandinn eins og strúturinn. Það
er í lagi að bera sig eftir því sem þú óskar
þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nýttu þér greiða sem þú átt inni til
þess að koma verkefni áleiðis. Þú tekur ekki
þátt í að breiða út kjaftasögur og það mun
koma sér vel.
Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-aði fyrir viku rúmri í Leirinn:
„Þótt lítið líf sé á þessum árstíma í
Krossanesborgum var tilvalið að
prófa þar nýju gönguskóna:
Hér er hvorki önd né ugla,
álftin flúin, sefur blóm.
Þó má líta furðufugla
á flunkunýjum gönguskóm.
Næsta dag upplýsti Sigurlín Her-
mannsdóttir að hitatölur þessa dag-
ana væru svipaðar og við sáum síð-
asta sumar hérna á horninu. Og
rigningin er líka svipuð. Þetta
stefnir allt í eina átt:
Á hverjum einum ársins degi
allt að sama veðri hnígi
og árstíð bara marka megi
af mismunandi birtustigi.
Ólafur Stefánsson var með á nót-
unum:
Íslendingar eiga „bátt,“
oft með vind í fangi.
Stefnir flest í eina átt
undan lægðagangi.
Hagyrðingum hefur orðið tíðrætt
um „þægilegt líf“, – Ármann Þor-
grímsson byrjaði:
Er nú kominn á minn stað
ætla hér að vera
ánægður ég er með það
ekkert þarf að gera.
Fía á Sandi sendi honum kveðju:
Út um glugga ekkert sést
annað en bara snjórinn.
Ég hugsa að nú sé heima best
þó hér sé lítill bjórinn.
Gústa Mar þóttu þetta tíðindi:
Iðkar hérna ekki slór
yrkir kvæði hugumstór.
En ekki í ríkið Fía fór
fyrir helgi að kaupa bjór.
En Fía er góð búkona:
Tilveran er fjári fín
og flott er líka að spara.
En undir kodda á ég vín
örlítið, til vara.
Og lauk með því að Sigmundur
Benediktsson sendi Fíu þessa
kveðju: „Var að reyna að finna út
bæjarbraginn hjá þér, ort án ábyrð-
ar eða sannsögulegra heimilda.“:
Hríðarfálan hreint óþjál
hefur málað bæinn.
Fía rjálar fim við skál
fegrar sálarhaginn.
Hagyrðingar gerðu sér það að
yrkisefni að enn og aftur skyldi rif-
ist um bragga og nú í Silfrinu. – Fía
gat ekki orða bundist: „Já. Er þetta
ekki bara alltaf svona fyrir sunnan?
Og ekkert við að gera.“:
Gullkálfinn þeir ganga kringum
græðgin þeirra er engu lík.
Allt má bjóða Íslendingum
einkanlega í Reykjavík.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sama veðrið og þægilegt líf
„EF ÞÚ GLEYMIR AÐ TAKA SKAMMT
SKALTU BIÐJA LÆKNINN UM EITTHVAÐ
MEIRA ÁVANABINDANDI.”
„HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ KALLA ÞESSA:
UXAHALA-, GRÆNMETISSÚPU EÐA SÚPU
DAGSINS?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann horfir á
þig en ekki símann á
meðan þú talar.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG GERI ALLTAF
MITT BESTA
ÞAÐ GENGUR
EKKI
ÞÚ ÆTTIR AÐ GERA
EINHVERS ANNARS BESTA
HRÓLFUR, ÉG
GET SÆTT MIG
VIÐ HEIMILI
MEÐ SKÍTUGUM
GÓLFUM …
EN ÞESSI SKURÐUR ÚT Í
MATARBÚR ER HÆTTULEGUR!
Þar kom að því að snjór féll úr loftiá höfuðborgarsvæðinu. Reyndar
verður að segjast eins og er að vart
er orð á þessari snjókomu gerandi,
varla að örþunnt lag af snjó næði að
hylja jörð.
x x x
Íslendingar eiga til að hæðast að út-lendingum þegar þeir lenda í
hremmingum vegna snjókomu og
samgöngur lamast. Ekki er það allt-
af maklegt og snjór hefur líka sín
áhrif á umferð hér á landi. Þá grunar
Víkverja að ekki séu Íslendingar
jafn miklir sérfræðingar í að aka í
snjó og þeir vilja vera láta. Oft er
það frekar heppni en færni sem ræð-
ur því að menn komast klakklaust
milli staða.
x x x
Víkverji ætlar reyndar ekki aðsetja sig á háan hest og segjast
betri en allir aðrir að aka í snjó.
Hann veit hins vegar að snjór veldur
hálku, sem getur verið afdrifarík
þegar geyst er farið. Hann reynir
því að gæta þess að hægja það mikið
á sér áður en hann kemur í beygjur
eða að gatnamótum að hann geti
numið staðar. Sennilega á gamli
frasinn úr ökunáminu á sínum tíma
um að fara ekki hraðar en svo að
unnt sé að stöðva bifreið á þriðjungi
þeirrar vegalengdar sem auð er og
hindrunarlaus framundan aldrei
betur við en í hálku.
x x x
Þá rakst Víkverji fyrir skömmu ágrein um það hvað ökumönnum
væri hætt við að treysta hjólbörðum
umfram alla skynsemi. Þar sagði að
heilsársdekk dygðu lítt í hálku, enda
væru þau einhvers konar mála-
miðlun rétt eins og húsbátar, sem
væru hvorki góð hús né góðir bátar.
Góð vetrardekk gerðu hins vegar
sýnu meira gagn í hálku.
x x x
Í greininni sagði og að ökumenn of-mætu iðulega aksturseiginleika
bíla með fjórhjóladrif. Drif á öllum
hjólum kæmi sér vel þegar komast
þyrfti af stað eða fara upp brekku,
en slíkir bílar væru alveg jafnmiklir
sleðar og aðrir þegar nema þyrfti
staðar í hálku. vikverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er
nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir
ljóma þinn yfir himininn.
(Sálm: 8.2)