Morgunblaðið - 16.01.2019, Síða 30

Morgunblaðið - 16.01.2019, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Heimildarmyndin Hans Jónatan – maðurinn sem stal sjálfum sér eftir hjónin Valdimar Leifsson og Bryn- dísi Kristjánsdóttur verður sýnd hjá RÚV í kvöld kl. 20. Meðan Gísli Pálsson prófessor vann að bók sinni um Hans Jónatan, sem kom út árið 2015, fór hann að velta fyrir sér að áhugavert gæti verið að gera heimildarmynd um sögu hans. Hafði hann í þeim til- gangi samband við Valdimar. „Ég var honum strax sammála um að þetta gæti orðið ævintýraleg mynd, jafnvel að hluta til leikin, og tók verkefnið að mér,“ sagði Valdimar í viðtali við Sunnudagsblaðið í apríl 2017 stuttu áður en myndin var frumsýnd á Djúpavogi Hans Jónatan er, eftir því sem best er vitað, fyrsti þeldökki mað- urinn sem settist að á Íslandi, á Djúpavogi árið 1802. „Enginn virt- ist hafa neitt við húðlitinn að at- huga heldur var Hans Jónatan met- inn fyrir sína góðu menntun og manngæsku. Hann starfaði við verslunina í Löngubúð á Djúpavogi og varð síðar verslunarstjóri. Hann kenndi þorpsbúum ýmislegt nyt- samlegt og kvæntist að lokum hreppstjóradótturinni. Það sem er mjög sérstakt við Hans Jónatan er að hann hafði fæðst þræll á eyjunni St. Croix í Karíbahafinu, barðist sem ungur maður við Englendinga fyrir danska herinn og taldi sig eiga skilið að vera frjáls maður eft- ir það. En eigandi hans var ekki á sama máli; fyrir henni var hann þræll sem mátti selja. Hans Jóntan stal því sjálfum sér og fór til Ís- lands,“ segir í kynningu á efni myndarinnar. Þar kemur fram að afkomendur Hans Jónatans og Katrínar, eiginkonu hans, nálgist það að vera um 1.000 að tölu. „Afkomendur, og aðrir velunn- arar söfnuðu fé til að hægt væri að gera kvikmynd,“ segir í tilkynn- ingu. Í myndinni er sýnt frá heim- sókn nokkurra afkomenda Hans Jónatans til St. Croix auk þess sem Gísla er fylgt eftir í leit að efni um Hans Jónatan í Danmörku, á St. Croix og Íslandi. „En ekki er til mikið efni sem lýsir lífi þræla. Nokkur atriði úr lífi Hans Jónatans eru sviðsett og það gerir þessa sögu enn meira lifandi.“ Hans Jónatan á skjánum í kvöld Hjón George Leite de Oliveira San- tos í hlutverki Hans Jónatans og Edda Björnsdóttir í hlutverki Katr- ínar Antoníusdóttur, eiginkonu hans. Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Margir sem hafa dúðað sig út í kuld- ann á þessum myrka miðvikudags- morgni í janúar vildu efalítið vera í sporum Elvu Hreiðarsdóttur grafík- listamanns sem seinna í dag tekur flugið í sólina í Tampa á Flórída, einni mestu útivistarborg Bandaríkj- anna. Tilgangur ferðarinnar er þó ekki að sleikja sólina – að minnsta kosti ekki einvörðungu – enda hefur Elva mikilvægari og menningarlegri hnöppum að hneppa. „Menningarfulltrúi Tampa Bay- svæðisins og Icelandair, sem hefur verið með áætlunarflug þangað síðan haustið 2017, buðu mér að halda sýn- ingu í sex mánuði í þar til gerðu rými í flugstöðinni,“ segir Elva, sem fyrir tveimur árum var líka með sýn- ingu í Tampa, en þá hjá innanhúss- hönnunarfyrirtækinu Doxa Home. Hún lýsir tildrögunum á þessa leið: „Yfirhönnuðurinn og eigandi fyr- irtækisins sá verkin mín í galleríinu Stígur á Skólavörðustíg, sem ég rek ásamt fimm öðrum, þegar hún var stödd á Íslandi fyrir tæpum fjórum árum og hafði í kjölfarið samband við mig. Hún hannar allt inn í til- tekið rými; velur málningu á vegg- ina, gardínur, húsgögn og hvaðeina fyrir kúnnana, sem eru frekar í efn- aðri kantinum. Henni fannst mynd- irnar mínar falla vel að hönnun sinni og hafði notað þær í slíkum rýmum um nokkurt skeið áður en hún setti upp sérstaka sýningu á þeim í húsa- kynnum Doxa Home.“ „Algjörlega frábært" Þá, rétt eins og núna, fylgdi Elva verkum sínum eftir til Tampa. Hún segir sýninguna, sem samanstóð af 35 myndum, hafa verið afar fallega og vel upp setta. „Eitt mesta ævin- týri lífs míns var að vera viðstödd formlega opnun sýningarinnar ásamt gríðarlegum fjölda gesta. Al- gjörlega frábært og ekki verra að nánast öll verkin seldust,“ rifjar hún upp. Eitt leiddi af öðru. Meðal gesta á opnuninni í Doxa Home var fyrr- nefndur menningarfulltrúi Tampa Bay. „Hún kom að máli við mig og spurði hvort ég gæti hugsað mér að sýna verk mín á Tampa-flugstöðinni í tilefni þess að Icelandair væri að hefja þangað beint flug.“ Það gat Elva vel hugsað sér. Hún hófst þegar handa við undirbúning- inn og vann flestar af þeim 22 myndum sem eru til sýnis í flug- stöðvarbyggingunni sérstaklega fyrir sýninguna. Þess má geta að um 20 milljónir farþega fara þar um á ári hverju svo trúlega berja ein- hverjar milljónir þær augum. Og um leið myndband, sem Elva og maður hennar, Halldór E. Eyjólfs- son, unnu í samvinnu við Ólaf Krist- jánsson, og er bakgrunnur sýning- arinnar. Það er annars vegar af landslagi og hins vegar af lista- manninum við vinnu sína. Inblásin af náttúrunni Elva notar tækni sem kallast collagraph við gerð myndanna. Hún veit ekki til að annar íslenskur grafíklistamaður noti þá aðferð í sama mæli og hún. „Ég teikna með alls konar efnum; sandi, lími og öðru, á plöturnar þannig að yf- irborðið verður mjög gróft. Síðan ber ég lit á plöturnar og þrykki af yfir á pappír þannig að í rauninni eru þetta pappírsverk,“ segir Elva og bætir við að sérstaða hennar fel- ist þó fyrst og fremst í því að allt efni sem hún noti sé eiturefnalaust, þar með taldar plöturnar og litirnir. Hún er enda mikill náttúru- verndarsinni eins og hún vonar að speglist í verkum sínum. „Mynd- irnar eru misstórar, allt frá 30 x 30 cm til 90 x 130 cm, frekar abstrakt og þemað er yfirleitt náttúrutengt. Til dæmis er níu mynda jöklasería á sýningunni, en annars eru mynd- irnar að mestu innblásnar af sönd- um, hverum og öðrum náttúrufyr- irbærum. Ég fer mikið út í náttúruna, skissa og tek myndir og horfi þá grannt ofan í svörðinn – á það smáa. Stundum velti ég fyrir mér hvort verkin mín séu eða verði einhvern tímann minning um jörð vegna loftslagsáhrifa og fleiri þátta sem eru óðum að breyta henni, bræða ísa og þar fram eftir göt- unum. Kannski verður jörðin ekki eins og hún er núna eftir 20 ár eða 100 ár og því mætti segja að ég fengist við að skrásetja.“ Ýmislegt á döfinni Elva hefur haldið allmargar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga frá því hún útskrifaðist frá grafíkdeild Listaháskóla Ís- lands árið 2000, en áður hafði hún lokið prófi frá myndmenntadeild Kennaraháskóla Íslands og kennt myndmennt í grunnskólum í mörg ár. Núna er hún í hlutastarfi sem kennari á námskeiðum í útibúi Myndlistaskólans í Reykjavík á Korpúlfsstöðum þar sem hún er jafnframt með vinnustofu. Hún er einnig mikið á vinnustofu sinni í Hvítahúsi í Krossavík á Snæfells- nesi, sem þau hjónin eiga og leigja listamönnum, en þaðan er stutt til Ólafsvíkur þar sem hún er fædd og uppalin. „Í vor er á döfinni að fara á smá endurmenntunarnámskeið í Frakk- landi og síðan verð ég með einka- sýningu í Listasafni Reykjanes- bæjar í nóvember,“ segir Elva. En fyrst Tampa. Varla þarf að taka það fram að hún er full tilhlökkunar auk þess sem hún kveðst minna stressuð en hún var fyrir sýninguna í Doxa Home um árið. Vanur lista- maður á ferð – í sólinni á Flórída. Morgunblaðið/Hari Náttúruverndarsinni Grafíklistaverk Elvu eru oftast innblásin af náttúrunni og unnin úr efnum án eiturefna. Minningar um jörð  Elva Hreiðarsdóttir grafíklistamaður sýnir tuttugu og tvö verk í Tampa-flugstöðinni á Flórída  Horfir ofan í svörðinn og leitar að því smáa  Kappkostar að vinna með efni án eiturefna Út í heim Eitt verkanna á sýning- unni í Tampa-flugstöðinni á Flórída. ÁN TÓBAKS MEÐ NIKÓTÍNI Zonnic Mint munnholsduft í posa og Zonnic Pepparmint munnholsúði innihalda nicotin. Lyfin eru ætluð til meðferðar við tóbaksfíkn. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.