Morgunblaðið - 16.01.2019, Síða 31
Menning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019
Sýningin Fyrstu kynni – Grænlend-
ingar á Ísafirði árið 1925. verður
opnuð í sýningarsal Veraldar – húss
Vigdísar á morgun, fimmtudaginn
17. janúar, klukkan 16.
Árið 1925 komu sjaldséðir gestir
til Ísafjarðar, tæplega 90 Grænlend-
ingar. Á sýningunni er fjallað um
hvernig þessi heimsókn átti rætur
að rekja til deilna Dana og Norð-
manna um yfirráð á hluta Austur-
Grænlands, hvernig tekið var á móti
gestunum á Ísafirði, athyglina sem
hún vakti og hvaða þýðingu hún
hafði fyrir samskipti þjóðanna.
Auk þess að vera sett upp í sýn-
ingarsal Veraldar – húss Vigdísar þá
er hluti hennar á Landsbókasafni Ís-
lands – Háskólabókasafni.
Við opnunina verður boðið upp á
léttar veitingar og eru allir velkomn-
ir. Sýningin stendur til 30. júní.
Fyrstu kynni Á sýningunni er fjallað um heimsókn Grænlendinga árið 1925.
Sýning um heim-
sókn Grænlendinga
Að lesa er að uppgötvaóvænta stíga sem liggjainn á við, að kjarna okkarsjálfra.“ Þessi hugleiðing
er í Tregahandbókinni eftir Magnús
Sigurðsson höfð eftir skáldinu
Octavio Paz um bókmenntaratleik
hvers og eins. Þetta er færsla eða er-
indi númer ccxxxix (í rómverskum
tölum) af ccl eða 250 í bókinni. Og sú
næsta fjallar líka um lestur: „Ef bók
leiðir okkur fyrir sjónir eitthvað sem
okkur var áður ókunnugt um, nærir
hún okkur á orku sinni; ef hún stað-
festir eingöngu að höfundur hennar
vissi eitthvað
sem við vissum
líka, dregur hún
orku frá okkur.“
Þetta er kenning
Ezra Pounds um
sama, svo kemur
tilvitnun í Öldu-
fall áranna eftir
Hannes J.
Magnússon um
það hvað hann hungraði og þyrsti í
æsku eftir bókum og síðan tilvitnun í
eitt bréfa skáldsins Emily Dickinson
og er „Um tregaljósin skæru. / Orð-
lampana.“ Lokalínurnar eru Magn-
úsar sjálfs.
Tregahandbókin er illskilgrein-
anlegt verk. Hér er fjöldi allskyns
tilvitnana í skáld og hugsuði, setn-
ingar og hugleiðingar úr skáldskap,
bréfum, dagbókum, og höfundur
vinnur afar markvisst úr þeim og
blandar saman við sín eigin ljóð,
hugleiðingar og ýmiskonar texta
sem kallast með mjög markvissum,
skemmtilegum og á stundum hríf-
andi hætti á við textabrotin og til-
vitnanirnar í hina höfundanna. Og
verkið er illskilgreinanlegt, eins og
ég sagði, en ein allra skemmtileg-
asta og áhugaverðasta bókin sem
rýnir las á liðnu ári, og komu þó
mjög margar góðar út hér á landi.
Og ekki síst ljóðabækur en þessi fell-
ur í þann flokk, þar sem í henni er að
finna, samhliða öllum hugrenning-
unum og textunum frá öðrum skáld-
um og hugsuðum, vel mótað og at-
hyglisvert safn ljóða Magnúsar.
Þetta er sjötta bókin með frum-
ortum ljóðum sem Magnús sendir
frá sér á 11 árum en einnig hefur
hann sent frá sér smásögur, rit-
gerðasafn og bækur með vönduðum
þýðingum á ljóðum Adelaide Crap-
sey, Tors Ulven og Ezra Pound.
Eftir að Tregahandbókin hefst á
tilvitnun í veraldarsköpun Lés kon-
ungs – „Ekkert hefst af engu“, og
síðan í skrif Emily Dickinson og
Leibnitz um ekkert, taka ljóð og
hugleiðingar Magnúsar sjálfs að
birtast. Sumt eru um skáldskapinn,
eins og „Ekkert skáldlegt við þetta
skáld. / Ekki einusinni þunglyndið.“
(viii), og þá taka að birtast skrif
skáldsins um tregann og felldar inn í
kunnuglegar setningar, erindi og
auglýsingar héðan og þaðan. Til að
mynda: „Ég er sannleikurinn / treg-
inn / og lífið“. Og: „Draumsýn // Með
fjaðrabliki / háa tregaleysu“.
Fleiri atriði birtast endurtekið,
eitt er upptalning í stafrófsröð yfir
tungumál sem eru að hverfa og ann-
að eru heiti bóka, einnig í stafrófs-
röð, út tilvitnaðri Spjaldskrá. Og síð-
an kemur lesandinn að fínum ljóðum
Magnúsar, eins og þessu, sem kall-
ast alltaf á við tilvitnanirnar í kring:
Dauðinn
er stórborgin
í norðri
og borgarhliðið
risavaxin vængjahurð
úr fjaðurhami engla
sem opnast bara
í eina átt
Einsog hliðgrindur
sláturhúsa
og stórmarkaða
Í upphafi Tregahandbókarinar er
vitnað í Þorstein frá Hamri: Mér er í
mun að setja heiminn saman, og það
er einmit það sem skáldið ræðst í að
gera, Magnús mótar hér heim. Text-
arnir eiga það sameiginlegt að fjalla
um skáldið, höfundinn, og um sköp-
unina; í bókinni takast á tregi og þrá,
og umfjöllun um mikilvægi listar-
innar, skáldskaparins. Undirtitill
verksins er ferðalag, og er við hæfi
um þessa ferð um hugarlöndin og
skáldskapinn. Því það er merkilegt
að sjá hversu víða að textabrotin
koma og hvað höfundurinn tengir
þau vel saman; stundum tekur eitt
við af öðru með þeim hætti að þótt
lönd og aldur skilji höfundana að þá
tala raddirnar saman með afar
áhrifamiklum hætti, og svo blandast
ljóð og textar Magnúsar sjálfs þar
við svo úr verður, í bestum hlutum
verksins, afar öflugur og áhrifaríkur
seiður. Sem staðfestir fyrir lesand-
anum, enn og aftur, hvað skáldskap-
urinn og listin eru – og það þrátt fyr-
ir hugarmyrkur, tregann og
þjáningar á stundum, manninum í
rauninni mikilvæg.
Morgunblaðið/Hari
Skáldið „… öflugur og áhrifaríkur
seiður,“ segir um verk Magnúsar.
Með fjaðrabliki
háa tregaleysu
Ljóð og textar
Tregahandbókin bbbbm
Eftir Magnús Sigurðsson.
Dimma, 2018. Innb., 104 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Sigríður Laufey Guðmundsdóttir
opnar yfirlitssýningu á verkum sín-
um í Herberginu, sýningarsal
Kirsuberjatrésins, að Vesturgötu 4
í Reykjavík laugardaginn 19. jan-
úar milli kl. 15 og 17.
„Sigríður Laufey sem varð níræð
í vor hefur skapað leirlistaverk síð-
an hún útskrifaðist úr Myndlista-
og handíðaskóla Íslands 1984 eftir
að hafa lokið námi í bæði vefnaðar-
deild og keramíkdeild. Sigríður
hefur starfað sem leirlistakona í
tæp 40 ár og eftir hana liggja hátt í
þúsund einstök leirlistaverk,“ segir
í tilkynningu. Þar kemur fram að
sýningin stendur til 25. janúar og er
opin á afgreiðslutíma verslunar-
innar, það er mánudaga til föstu-
daga milli kl. 10 og 18 og laugar-
daga milli kl. 10 og 17.
Sigríður Laufey
opnar yfirlitssýn-
ingu í Herberginu
Leir Sigríður Laufey Guðmundsdóttir.
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 190. s Fös 25/1 kl. 20:00 194. s Sun 3/2 kl. 20:00 198. s
Lau 19/1 kl. 20:00 191. s Lau 26/1 kl. 20:00 195. s Fim 7/2 kl. 20:00 199. s
Sun 20/1 kl. 20:00 192. s Fös 1/2 kl. 20:00 196. s Lau 9/2 kl. 20:00 200. s
Fim 24/1 kl. 20:00 193. s Lau 2/2 kl. 20:00 197. s
Stjarna er fædd.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Mið 16/1 kl. 20:00 6. s Sun 27/1 kl. 20:00 9. s Sun 17/2 kl. 20:00 12. s
Fim 17/1 kl. 20:00 7. s Fim 31/1 kl. 20:00 10. s
Mið 23/1 kl. 20:00 8. s Sun 10/2 kl. 20:00 11. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 27. s Fim 24/1 kl. 20:00 28. s Fös 1/2 kl. 20:00 29. s
Allra síðasta sýning 1. febrúar.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 18/1 kl. 20:00 aukas. Lau 26/1 kl. 20:00 25. s Lau 9/2 kl. 20:00 29. s
Lau 19/1 kl. 20:00 20. s Fös 1/2 kl. 20:00 26. s Sun 10/2 kl. 20:00 30. s
Sun 20/1 kl. 20:00 aukas. Lau 2/2 kl. 20:00 27. s Fim 14/2 kl. 20:00 31. s
Fös 25/1 kl. 20:00 24. s Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Núna 2019 (Litla sviðið)
Sun 20/1 kl. 17:00 5. s Sun 27/1 kl. 20:00 7. s
Mið 23/1 kl. 20:00 6. s Mið 30/1 kl. 20:00 8. s
Núna er ekki á morgun, það er NÚNA
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Fim 17/1 kl. 20:00 3. s Fös 25/1 kl. 20:00 5. s Lau 2/2 kl. 20:00 7. s
Lau 19/1 kl. 20:00 4. s Lau 26/1 kl. 20:00 6. s Sun 3/2 kl. 20:00 8. s
Athugið. Aðeins verða átta sýningar.
Ég dey (Nýja sviðið)
Mið 16/1 kl. 20:00 3. s Fim 24/1 kl. 20:00 5. s Fim 31/1 kl. 20:00 7. s
Fim 17/1 kl. 20:00 4. s Sun 27/1 kl. 20:00 6. s
Trúir þú á líf fyrir dauðann?
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Lífið er ekki nógu ávanabindandi
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Lau 19/1 kl. 13:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas.
Lau 19/1 kl. 16:00 Aukas. Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn
Sun 20/1 kl. 13:00 32.sýn Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka
Sun 20/1 kl. 16:00 33.sýn Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka
Lau 26/1 kl. 13:00 Auka Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka
Lau 26/1 kl. 16:00 Auka Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn
Sun 27/1 kl. 13:00 34.sýn Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn
Sun 27/1 kl. 16:00 35.sýn Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn
Sun 3/2 kl. 13:00 36.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 3/2 kl. 16:00 37.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fim 17/1 kl. 19:30 7.sýn Fös 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn
Fös 18/1 kl. 19:30 8.sýn Lau 2/2 kl. 19:30 11.sýn Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn
Fim 24/1 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Fös 25/1 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas.
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 22/2 kl. 19:30 Frums Fös 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 7/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 16/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Fly Me To The Moon (Kassinn)
Lau 19/1 kl. 19:30 23.sýn Lau 26/1 kl. 19:30 24.sýn
Nýtt verk eftir höfund hins geysivinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fös 25/1 kl. 18:00 Frums. Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn
Fim 31/1 kl. 18:00 2.sýn Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka
Lau 2/2 kl. 15:00 3.sýn Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn
Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Velkomin heim (Kassinn)
Lau 2/2 kl. 19:30 Frums Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn
Sun 3/2 kl. 19:30 2.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn
Insomnia (Kassinn)
Fim 17/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 18/1 kl. 19:30 9.sýn
Brandarinn sem aldrei deyr
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 16/1 kl. 20:00 Mið 30/1 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Mið 23/1 kl. 20:00 Mið 6/2 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 17/1 kl. 20:00 Lau 19/1 kl. 22:30 Lau 26/1 kl. 20:00
Fös 18/1 kl. 20:00 Fim 24/1 kl. 20:00 Lau 26/1 kl. 22:30
Fös 18/1 kl. 22:30 Fös 25/1 kl. 20:00
Lau 19/1 kl. 20:00 Fös 25/1 kl. 22:30
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 20/1 kl. 20:00 Sun 27/1 kl. 20:00 Sun 3/2 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200