Morgunblaðið - 16.01.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 16.01.2019, Síða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. JANÚAR 2019 Verðlaun halda áfram að sópast að mexíkóska leikastjóranum Alfonso Cuarón fyrir Roma, svarthvíta kvik- mynd sem byggist á æskuminingum hans í samnefndu hverfi Mexíkóborg- ar árið 1970. Cuarón og aðrir aðstand- endur kvikmyndartinnar hlutu flest verðlaun eða fern alls á Critics’ Choice-hátíðinni, árlegri uppgjörs- hátíð gagnrýnenda í kvikmyndabrans- anum vestanhafs. Menningar- blaðamenn stórblaða segja að með vali gagnrýnenda á Roma til þessara verð- launa hafi líkurnar á því að kvikmynd- in verði valin sú besta á Óskarshátíð- inni aukist. Gagnrýnendurnir völdu Roma bestu kvikmyndina, Cuarón var valinn besti leikstjórinn og besti kvikmynda- tökumaðurinn – en auk þess að leik- stýra skrifaði hann handritið og stýrði tökuvélinni. Þá var myndin valin besta erlenda kvikmyndin á nýliðnu ári. Á síðasta áratug hafa þær kvik- myndir sem hreppt hafa verðlaun gagnrýnendanna sjö sinnum hreppt Óskar sem besta kvikmynd ársins. Gamanmyndin The Favorite, sem fjallar um átök við hirð Önnu Breta- drottningar snemma á átjándu öld, var tilnefnd til flestra Critics’ Choice- verðlauna, fjórtán alls, en hreppti að- eins tvenn. Olivia Colman sem túlkar drottninguna var valin besta leikkona í gamanhlutverki og þá var leikarahóp- urinn valinn sá besti. Coleman var ekki valin besta leikkonan í öllum flokkum, þeim verðlaunum deildu þær Glenn Close, sem leikur eiginkonu Nóbelsverðlaunahafa í The Wife, og Lady Gaga sem leikur söngkonu sem er að öðlast frægð í A Star Is Born. Christian Bale var valinn besti karl- leikarinn fyrir frammistöðu sína í kvikmyndinni Vice. Gagnrýnendur völdu Roma bestu myndina  Cuarón safnar fleiri verðlaunum AFP Sigursæl Alfonso Cuarón og leik- konurnar Yalitza Aparicio og Mar- ina De Tavira með verðlaunin. Teiknimyndin Lói – þú flýgur aldrei einn verður að hljómleikabíósýningu í Hofi 23. september og í Hörpu stuttu seinna með lifandi undirleik heillar sinfóníuhljómsveitar undir stjórn tónskáldsins Atla Örvars- sonar. „Sinfóníuhljómsveit Norðurlands er enginn nýgræðingur þegar kem- ur að tónleikabíói en sveitin spilaði eftirminnilega undir þríleikinn Lord of the Rings þar sem þúsundir áhorf- enda komu og nutu lifandi flutnings- ins undir ævintýramyndunum. Hljómsveitin hefur einnig leikið inn á fjölda erlendra og innlendra kvik- mynda. Þorvaldur Bjarni Þorvalds- son, framkvæmdastjóri Sinfonia- Nord, segir að í teiknimyndinni hafi í fyrsta sinn á Íslandi verið leikin tónlist af stórri sinfóníuhljómsveit frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu líkt og gert hefur verið í rúma öld í mekka kvikmyndaiðnaðarins Holly- wood,“ segir í fréttatilkynningu. Lói á bíótónleikum í Hofi og Hörpu Lói Myndin fjallar um lóuunga sem er ófleygur þegar farfuglarnir halda suður og þarf að lifa af harðan vetur og illgjarna óvini til að sameinast ástinni sinni að vori. Anna Valdís Kro frá ljóðaútgáfunni Ós Pressunni flytur erindi í Bóka- safni Kópavogs í dag kl. 12.15. Þar ræðir hún um landslag og þróun ljóðaútgáfu hér á landi og skoðar það í samanburði við aðrar Norður- landaþjóðir. Erindið, sem fer fram á íslensku, er liður í Dögum ljóðsins í Kópa- vogi og tilheyrir einnig erindaröð Menningarhúsa Kópavogs: Menn- ing á miðvikudögum. Erindi um þróun ljóðaútgáfu hérlendis Fyrirlesarinn Anna Valdís Kro. Playing Hard IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 22.10 First Reformed Metacritic 85/100 IMDb 7,1/10 Bíó Paradís 22.10 Shoplifters Metacritic 93/100 IMDb 8,1/10 Bíó Paradís 17.40, 20.00 Kalt stríð Metacritic 91/100 IMDb 7,8/10 Bíó Paradís 22.20 Roma Morgunblaðið bbbbb Metacritic 95/100 IMDb 8,6/10 Bíó Paradís 17.30 Suspiria Morgunblaðið bbbbm Metacritic 64/100 IMDb 7,3/10 Bíó Paradís 17.10 Nár í nærmynd Bíó Paradís 22.20 Green Book 12 Metacritic 70/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Álfabakka 16.40, 17.00, 19.20, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.40 Sambíóin Kringlunni 21.40 Sambíóin Akureyri 19.30, 22.00 Escape Room 16 Metacritic 50/100 IMDb 6,4/10 Smárabíó 17.20, 17.20, 19.30, 19.30, 20.00, 20.00, 22.00, 22.00, 22.20, 22.20 Háskólabíó 21.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 19.30, 19.30, 21.30 Holmes og Watson 12 Metacritic 24/100 IMDb 3,4/10 Sambíóin Keflavík 22.00 Smárabíó 19.40, 21.50 Háskólabíó 18.20, 18.20, 21.10, 21.10 Ben Is Back Metacritic 68/100 IMDb 6,9/10 Laugarásbíó 19.50, 19.50, 22.00, 22.00 Háskólabíó 18.10, 18.10, 20.50, 20.50 Borgarbíó Akureyri 19.30, 19.30 Second Act IMDb 5,8/10 Laugarásbíó 17.30, 19.50, 22.00, 22.00 Sambíóin Keflavík 19.45 Borgarbíó Akureyri 17.30, 21.30 Adriana Lecouvreur Sambíóin Kringlunni 18.00 Bumblebee 12 Metacritic 35/100 IMDb 7,0/10 Sambíóin Álfabakka 17.00, 19.20 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Akureyri 17.00 Smárabíó 17.00 Mortal Engines 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 48/100 IMDb 6,6/10 Smárabíó 19.30, 22.20 Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald Bönnuð börnum yngri en 9 ára. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 57/100 IMDb 7,7/10 Sambíóin Álfabakka 17.00 Bohemian Rhapsody 12 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 49/100 IMDb 8,4/10 Laugarásbíó 19.50, 19.50, 22.30, 22.30 Háskólabíó 20.30, 20.30 A Star Is Born 12 Morgunblaðið bbbbm Metacritic 88/100 IMDb 8,3/10 Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.15, 22.00 Spider-Man: Into the Spider-Verse Miles Morales telur sig hinn eina og sanna köngulóar- mann. Hann rangt fyrir sér því hann er bara einn af nokkrum sem geta kallað sig því nafni. Morgunblaðið bbbbm Metacritic 87/100 IMDb 8,8/10 Laugarásbíó 17.20, 17.20 Smárabíó 15.00, 15.00, 16.40, 17.10, 19.50, 22.30 Háskólabíó 18.00 Borgarbíó Akureyri 17.15, 17.15 Nonni norðursins 2 Smárabíó 15.00, 17.40, 17.40 Ralf rústar internetinu Metacritic 71/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 17.00 The Grinch Trölli lætur það fara í taug- arnar á sér þegar fyrrverandi nágrannar hans byrja að skreyta fyrir jólin, kaupa gjafir og gleðjast. Smárabíó 15.10, 15.10 Mary snýr aftur til Banks-fjölskyldunnar í London á tímum kreppunnar miklu. Metacritic 66/100 IMDb 7,6/10 Laugarásbíó 17.20 Sambíóin Álfabakka 17.50 Sambíóin Egilshöll 17.00 Sambíóin Kringlunni 16.20, 19.00 Sambíóin Akureyri 17.00 Háskólabíó 17.50, 17.50 Mary Poppins Returns 12 Robin Hood 12 Robin af Loxley, sem hefur marga fjöruna sopið í kross- ferðum, og Márinn félagi hans, gera uppreisn gegn spilltum enskum yfirvöldum. Metacritic 32/100 IMDb 5,4/10 Sambíóin Álfabakka 19.50, 22.20 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00 Sambíóin Akureyri 19.30 Aquaman 12 Arthur Curry kemst að því að hann er erfingi neðansjávarríkisins Atl- antis, og þarf að verða leiðtogi þjóðar sinnar. Metacritic 53/100 IMDb 7,9/10 Sambíóin Álfabakka 20.30, 21.50, 22.00 Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 21.45 Sambíóin Akureyri 22.00 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.