Morgunblaðið - 22.01.2019, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.01.2019, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019 Liðinn var í gær réttur mánuður frá vetrarsólstöðum, þ.e. þegar sólin var lægst á lofti hinn 21. desember síð- astliðinn. Birtan eykst smám saman, dag frá degi, og nú það mikið að fólk er farið að sjá verulegan mun. Enda hefur sólargangurinn lengst um 94 mínútur frá því hann var skemmstur í Reykjavík. Í gær var sólarupprás klukkan 10:39 og sólsetur var klukk- an 16:37. Nú fer að styttast í hátíðarhöld víða um land sem tengjast sólinni, þ.e. svonefnt sólarkaffi. Í mörgum þröngum fjörðum og dölum lands- ins, aðallega á Vestfjörðum og Aust- fjörðum, en líka á Norðurlandi, líða oft nokkrar vikur þar sem sólin sést ekki yfir fjallabrúnum. Þegar hún birtist aftur er áratuga venja að fagna sólarkomunni. Sólarkaffi Ís- firðinga er án efa þekktast. Á sjálf- um sólardeginum, 25. janúar nk., fagna Ísfirðingar komu sólar með því að drekka sólarkaffi og gæða sér á pönnukökum. Sólardagur er mið- aður við að þann dag sleikir sólin Sólgötu við Eyrartún (ef veður leyf- ir), eftir langa vetursetu handan fjalla. Sólin hverfur á bak við fjöll seint í nóvember og birtist loks aftur í lok janúar. Átthagafélög víða um land hafa tekið upp þann sið að hafa sólarkaffi einhvern dag í nánd við endurkomu sólarinnar í þeirra heimasveit. Sól- arkaffi Ísfirðingafélagsins verður haldið á Grand hótel föstudaginn 25. janúar nk., á sjálfan sólardaginn. „Í ár ætlar Önfirðingafélagið að slást í för með okkur og mæta á Sól- arkaffið þannig að þetta verður enn skemmtilegra enda Önfirðingar ann- álað gleðifólk!“ segir í auglýsingu um hátíðina. Fulltrúar frá árgangi 1959 ætla að hefja sextugasta ald- ursárið sitt með trompi og troða upp á Sólarkaffinu. Að loknu borðhaldi verður dansiball með hljómsveitinni „Húsið á sléttunni“. Þessi árlega hátíð er jafnan vel sótt af Ísfirðingum. sisi@mbl.is Sólardagurinn er á næstu grösum  Rétt rúmur mán- uður er nú liðinn frá vetrarsólstöðum Morgunblaðið/Eggert Útivist í góðviðrinu Margir höfuðborgarbúar notfærðu sér helgina til útiveru. Sólin hækkar á lofti og með snjónum hefur birt yfir í skammdeginu. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sala á mjólkurafurðum minnkaði á nýliðnu ári. Er það í fyrsta skipti í um áratug sem salan minnkar en á þessu tímabili hefur hún aukist stórlega, sérstaklega sala á fituríkum afurðum. Þegar sala á einstökum tegundum er reiknuð í lítrum og kílóum, sam- kvæmt upplýsingum Samtaka afurða- stöðva í mjólkuriðnaði (SAM), sést að sala á mjólk og sýrðum vörum hefur minnkað um 2,8% á milli ára. Sala á flestum öðrum afurðaflokkum, eins og viðbiti og ostum, minnkar á milli ára. Hins vegar eykst sala á rjóma og sýrðum rjóma um 7,1%. Heildarnið- urstaðan er sú að sala á mjólkuraf- urðum hefur minnkað um 2,2% frá árinu á undan. Þessar tölur sýna magnbreytingar í einstökum vörum en meiri mjólk er á bak við hvert kíló í vinnsluvörum. Mjólkursamsalan lítur á sínar tölur í tekjugreiningu með aðeins öðrum hætti. Samkvæmt þeim er sala á birgðavöru eins og viðbiti og ostum að aukast en dregst saman í ferskvöru. Breyttar neysluvenjur Einar Einarsson, framkvæmda- stjóri tekjusviðs MS, segir að sala á viðbiti standi nokkurn veginn í stað en aðeins sé aukning í sölu á osti. Aukn- ingin sé drifin áfram af feitari afurð- um eins og smjöri, feitari gerðum af osti, sneiðum og rifnum osti en sam- dráttur í magrari osti. 5% samdráttur er í drykkjarmjólk í heildina sem staf- ar af minni sölu á undanrennu og létt- mjólk en það vekur athygli að aukn- ing er í sölu á nýmjólk. Þá er aukning í sölu á rjóma en lítilsháttar samdrátt- ur í skyrsölu. Einar segir að margir kraftar séu að verki á þessum markaði. Hann nefnir fyrst breytingar á neysluvenj- um, frá léttari tegundum í fitumeiri. Hann segir að MS finni ekki mikið fyrir auknum innflutningi. Nefnir að hafra- og möndludrykkir séu enn inn- an við 2% af markaðnum. MS er að skoða möguleika á að framleiða slíka drykki úr íslensku vatni. Verið er að opna fyrir tollfrjálsan innflutning á ostum. Einar segir að MS finni ekki mikið fyrir honum, enn sem komið er. MS er að þróa afurðir til að mæta samkeppni á þessu sviði. Metár í framleiðslu Mjólkursamlögin tóku við 152,4 milljónum lítra af mjólk á síðasta ári og hefur framleiðslan aldrei verið meiri. Salan er talsvert minni eða 145 milljón lítrar ef hún er reiknuð á fitu- grunni og 129 milljón lítrar á prótein- grunni. Þrátt fyrir framleiðslu umfram inn- anlandsmarkað hafa ekki orðið telj- andi breytingar á birgðum á árinu, enda er umframframleiðslan flutt á erlendan markað. Þó aukast osta- birgðir heldur. 150 140 130 120 110 2.000 1.500 1.000 500 0 tonn 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Viðbit Ostar Duft Sala mjólkurafurða 2018 Skipting afurða 2018 Birgðir mjólkurvara Framleiðsla og sala, milljónir lítra Heimild: SAM Sala eftir vörufl okkum (þúsundir lítra / tonn) 2017 2018 Breyting % Mjólk og sýrðar vörur 42.019 40.825 -2,8 Rjómi og sýrður rjómi 2.842 3.044 7,1 Skyrvörur 3.328 3.161 -5 Viðbit 2.385 2.351 -1,4 Ostar 6.311 6.208 -1,6 Duft 1.186 1.191 0,4 Samtals 58.071 56.780 -2,2 Innvegin mjólk Heildarsala umreiknuð í fi tu Heildarsala umreiknuð í prótein Mjólk og sýrðar vörur, 72% Rjómi og sýrður rjómi, 5% Viðbit, 4% Duft, 2% Ostar, 11% Skyr og skyr drykkir, 6% 320 2.004 341391 1.815 585 Ársbyrjun Árslok Samtals 56.780 þúsundir lítra og kílóa Sala mjólkurafurða farin að minnka  Sala á fituríkari afurðum eykst en minnkar á léttari vörum Hollvinasamtök Elliðaárdals ætla að knýja fram íbúakosningu vegna breytinga á deiliskipulagi fyrir þró- unarsvæðið Stekkjarbakki Þ73. Borgarráð samþykkti nýlega með fjórum atkvæðum borgarráðsfull- trúa Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata og VG gegn þremur atkvæð- um borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins að auglýsa tillögu fyrir húsnæðisuppbyggingu á svæðinu. „Þetta er bara kornið sem fyllti mælinn. Það er búið að tala um að búa til borgardal í dalnum og friða hann og aldrei neitt gert. Við erum orðin þreytt á því að það er ekki hægt að tala um afmörkun dalsins. Dalurinn hefur ekki ennþá verið afmarkaður,“ segir Halldór Páll Gíslason, formaður Hollvinasamtak- anna. „Það á að fara að byggja fyrir neð- an Stekkjarbakkann og eins og þessi þróunarreitur lítur út þá er bara verið að fara að byggja ofan í dalinn og við dalmörkin.“ Hann segir að Reykvíkingar ættu að horfa á Elliðarárdalinn sömu aug- um og íbúar New York-borgar líta á Central Park-garðinn. „Það er búið að þétta byggð það mikið í Reykja- vík að það eru ekki margar perlur eftir, þetta er eitt af síðustu vígjun- um þar sem þú getur farið að ganga og ekki gengið milli húsa.“ Samtökin kynntu sér hvernig er hægt að fara fram á íbúakosningu á stjórnafundi í gær. „Þetta fer fram í gegnum island.is sem þjóðskrá hef- ur umsýslu með. Þar getur þú komið svona viðurkenndri könnun að. Ef þú nærð tilætluðum fjölda ertu kom- inn með eitthvað í hendurnar sem yfirvöld þurfa að líta til. Þetta er okkar síðasta úrræði til að mótmæla þessu.“ mhj@mbl.is Vilja íbúakosningu um Elliðaárdal  Húsnæðisuppbygging við dalsmörkin VÍKURVAGNAR EHF. Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is Vörulyftur og varahlutir frá sænska framleiðandanum Einnig mikið úrval varahluta í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum, ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.