Morgunblaðið - 22.01.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019
Því segja má að minna verði til
skiptanna og fleiri um hituna. Það er
eins gott að lífeyrissjóðirnir standi
sig og skili sínu. Það er enda stefna
stjórnvalda að lífeyrissjóðirnir
standi nær eingöngu undir fram-
færslu fólks þegar á efri árin er
komið,“ segir Gísli.
Gætu þurft að vinna lengur
FEB er nú með auglýsinga-
herferðina Grái herinn. Hvetja þjóð-
þekktir Íslendingar atvinnurek-
endur til að nýta reynslu eldra fólks.
Gísli segir fyrirséða fjölgun eldri
borgara munu þrýsta á að Íslend-
ingar vinni jafnvel lengur, fram
undir sjötugt. Það sé hins vegar
áleitin spurning hvort eldra fólk vilji
það. Þá beri að horfa til þess að fólk
sem hafi unnið erfiðisvinnu áratug-
um saman eigi erfiðara en skrif-
stofufólkið með að vinna svo lengi.
Hvað snertir lífeyrisréttindin
segir Gísli aðspurður að margir eldri
borgarar á Íslandi hafi unnið sér inn
takmörkuð lífeyrisréttindi. Iðgjalda-
sagan sé ekki nógu löng. Margir hafi
lífeyri sem sé undir 60% af meðal-
launum.
„Hér kemur margt til. Greiðslur
fólks í lífeyrissjóð til að byrja með
brunnu upp. Það á við elsta fólkið
okkar í dag. Síðan var lengi vel ekki
greitt iðgjald til lífeyrissjóða af
heildarlaunum. Þá fóru margar
heimavinnandi konur, sem voru
heima með börn sín, seint eða ekki
út á vinnumarkaðinn, þar sem enga
dagvistun var að fá. Margar konur í
þessum hópi eru ekkjur í dag þar
sem þær lifa lengur en makar sínir.
Þarna er dulinn hópur sem hefur
ekki mikið milli handanna.“
Gísli segir aðspurður að takmörk-
uð lífeyrisréttindi þessa hóps geti
jafnframt takmarkað kaupgetu í
húsnæði. Af því leiði að mikill
skortur sé að skapast á hagkvæmum
íbúðum fyrir þennan hóp. Flestar
nýjar íbúðir í lyftuhúsum séu enda
of dýrar fyrir þorra eldri borgara
sem nálgast eftirlaun. Þá sé húsa-
leigan að jafnaði of há fyrir marga.
Skortir lausnir á markaðinn
„Margir eldri borgarar búa í stóru
húsnæði og getur rekstrarkostnaður
eftir atvikum verið hár. Algengt er
að kominn sé tími á viðhald. Það
getur aftur kostað drjúgan hluta af
sparnaði. Ef lífeyrir er takmarkaður
getur fólk því þurft að komast í
ódýrara húsnæði. Það skortir
lausnir fyrir fólk í þessari stöðu.
Fasteignagjöld hafa til dæmis aldrei
verið hærri en núna í Reykjavík. Það
kostar sitt,“ segir Gísli sem telur að
skortur á hagkvæmum íbúðum leiði
til þess að eldra fólk búi lengur en
það vildi í stóru húsnæði. Börnin séu
löngu farin úr hreiðrinu. Þarna
þurfa að koma til lausnir líkt og
FEB vinni að í Árskógum í Suður-
Mjódd. Þar sé félagið að ljúka bygg-
ingu 68 íbúða fyrir félagsmenn.
Borgin hafi brugðist eldra fólki
„Betur má ef duga skal. Félagið
hefur sóst eftir fleiri lóðum. Við
erum nokkuð stórt húsnæðisfélag
með rúmlega 409 íbúðir í eldra hús-
næði auk þeirra 68 íbúða sem áður
eru nefndar. Það hefur tvívegis verið
á skipulagi gert ráð fyrir og merkt
fyrir FEB svæði þar sem byggja
mætti 100 nýjar íbúðir fyrir félags-
menn. Það gekk í hvorugt skiptið
eftir.
Annars vegar í Árskógum 5-7, þ.e.
við hlið þeirra húsa sem félagið
byggir nú. Þar er kjörið að byggja
meira vegna hagkvæmni þess að
vera við núverandi þjónustukjarna á
vegum borgarinnar, jafnframt því að
nýta aðstöðu sem verktakinn hefur
nú þegar. Hins vegar var það lóð í
Hraunbæ sem fór á uppboð hjá
borginni og var seld hæstbjóðanda.
Aðferð sem örugglega leiðir ekki til
lækkunar íbúðarverðs í borginni.“
Vilja ekki endurreista bragga
Gísli rifjar upp að á fjölmennum
fundi FEB með framboðunum í
Reykjavík fyrir síðustu sveitar-
stjórnarkosningar hafi nær öll fram-
boðin lofað samráði við Félag eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni. Þá
hafi fulltrúar framboðanna boðað að-
gerðir í húsnæðismálum eldri
borgara. Efndirnar séu nær engar.
„Fólkið sem ólst upp í bröggum
fyrir um 60 árum lifir ekki á minn-
ingum um endurreista bragga. Ég
veit að flestir vilja gleyma því skeiði
og þeim húsnæðisvanda sem þá ríkti
í Reykjavík. Ég hef ekki orðið var
við að „fang félagsins hafi fyllst af
uppbyggingu í þágu eldra fólks“ eins
og einn æðsti núverandi borgar-
fulltrúinn orðaði það á fundi okkar 5.
maí sl.,“ segir Gísli og bendir á um-
fjöllun um umræddan fund í Félags-
tíðindum FEB.
Félagsmenn í FEB eru nú um 12
þúsund.
Styttri starfsævi ekki á allra færi
Framkvæmdastjóri Félags eldri borgara bendir á takmarkaðan lífeyri hjá mörgu eldra fólki
VR hefur bent á langa starfsævi á Íslandi FEB telur borgina hafa brugðist eldri borgurum
Fjölgun Íslendinga 50 ára og eldri 1958-2018
Ásamt 67 ára og eldri á tímabilinu
Hlutfall 50 ára og eldri
350
300
250
200
150
100
50
0
35%
30%
25%
20%
15%
10%
5%
0%
% af heild mannfjöldi, þús.
1958 2018
’58 ’63 ’68 ’73 ’78 ’83 ’88 ’93 ’98 ’03 ’08 ’13 ’18
9,7%
15,8%
10,6%
16,4%
Karlar Konur
32,2%
20,2%
12,1%
6,4%
Hlutfall 67 ára og eldri
1958 2018
2,8%
5,7%
3,6%
6,4%
Karlar Konur
H
ei
m
ild
: H
ag
st
of
an
60% hærra hlutfall Íslendinga voru 50 ára
eða eldri árið 2018 en árið 1958
50 ára og eldri 67 ára og eldri
Heildarmannfjöldi
Hlutfall 50 ára og
eldri af heildar-
mannfjölda
Hlutfall 67 ára og
eldri af heildar-
mannfjölda
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hlutfall Íslendinga sem eru 67 ára
eða eldri hefur nær tvöfaldast á síð-
ustu 60 árum. Það var 6,4% árið 1958
en 12,1% árið 2018.
Morgunblaðið kannaði breytingar
á aldurssamsetningu þjóðarinnar í
tilefni af kröfum
verkalýðshreyf-
ingarinnar um
styttingu vinnu-
vikunnar. Jafn-
framt er bent á að
Íslendingar séu
lengi á vinnu-
markaði. Sam-
kvæmt úttekt VR
er starfsævin á
Íslandi rúmum
áratug lengri en á
öðrum löndum á Norðurlöndum.
Vinnuvikan er jafnframt töluvert
lengri á Íslandi en í þessum löndum.
Hún er hins vegar að styttast á Ís-
landi, þá fyrst og fremst hjá körlum.
Verða orðin 63 þúsund 2030
En hversu raunhæft er að stytta
starfsævina á næstu árum? Hvert er
svigrúmið til slíkra aðgerða?
Gísli Jafetsson, framkvæmda-
stjóri Félags eldri borgara, hefur
bent á spár um að fólki sem er 67 ára
og eldra muni fjölga úr 42 þús. í
fyrra í um 63 þús. 2030, skv. miðspá í
mannfjöldaspá Hagstofunnar.
Gísli segir slíka fjölgun fela í sér
margvíslegar áskoranir. Breytt ald-
urssamsetning þjóðarinnar þýði að
hlutfallslega færra yngra fólk muni
standa undir velferðinni í framtíð-
inni en verið hefur. Samhliða sé
þjónustukrafan til handa eldri borg-
urum að aukast ár frá ári.
„Þetta er tækifæri fyrir Félag
eldri borgara. Með fleiri félögum
eykst slagkraftur félagsins. Hins
vegar er þetta viss ógnun fyrir líf-
eyrisþega. Mikil fjölgun lífeyrisþega
gæti enda reynst veikleiki fyrir þá
sem hefja töku lífeyris eftir 10-15 ár.
Gísli
Jafetsson
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Síðustu dagar útsölunnar
• Leðurkuldaskór
• Fóðraður með lambsull
• Reimaður að framan,
rennilás að innanverðu
• Grófur gúmmísóli
skór
verð
7
14.995
-42
Útsölu
.
er ur
30-70%
afsláttu
r
Það er vel þekkt að eldra fólk er
mikilvægur viðskiptahópur fjöl-
margra fyrirtækja. Á efri árum á
fólk gjarnan húsnæði skuldlaust,
börnin eru farin að heiman og
launin hafa náð hámarki með
aukinni reynslu og ábyrgð.
Sérfræðingur í markaðs-
rannsóknum, sem Morgunblaðið
ræddi við, benti á að minni munur
væri nú milli eldra og yngra fólks
en fyrir nokkrum áratugum. Eldra
fólk hefði haft meiri tækifæri til
menntunar en kynslóðir á undan.
Það birtist meðal annars í betri
málakunnáttu og færni sem gerði
eldra fólki kleift að ferðast á
annan máta en áður.
Þá væri heilsa eldra fólks mun
betri en áður var. Fólk væri ekki
jafn slitið af erfiðisvinnu og byggi
við mun betri heilsugæslu. Af því
leiddi að eldra fólk gæti ferðast
meira og sótt í fjölbreyttari af-
þreyingu en eldri kynslóðir. Nú
væri til dæmis algengt að eldra
fólk spilaði golf í útlöndum í fríinu.
Viðmælandinn benti á að í
mörgum neysluflokkum væri eldra
fólk mikilvægasti viðskiptahóp-
urinn. Til dæmis hefðu nýir og dýr-
ir bílar fyrst og fremst verið seldir
eldra fólki eftir efnahagshrunið.
Loks má nefna að verktakar
horfa orðið mikið til eldra fólks við
hönnun íbúða. Til dæmis er eldra
fólk einn helsti kaupendahópur
nýrra íbúða í miðborginni.
Kynslóðamunur að minnka
NEYSLA ELDRA FÓLKS ER FJÖLBREYTTARI EN ÁÐUR
Morgunblaðið/Golli
Sinfóníuhljómsveit Íslands Eldra fólk er mikilvægur markhópur fyrir listir og
menningu. Sá hópur hefur kaupgetu og frítíma. Svo þroskast smekkurinn.