Morgunblaðið - 22.01.2019, Side 17

Morgunblaðið - 22.01.2019, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Evrópusambandið tilkynnti í gær að það hygðist beita fjóra menn sem tengjast GRU, leyniþjónustu rúss- neska hersins, refsiaðgerðum vegna meintrar þátttöku þeirra í efnavop- naárásinni í Salisbury í mars á síð- asta ári. Þá hyggst sambandið frysta eigur fimm Sýrlendinga sem sagðir eru leika lykilhlutverk við hönnun efnavopna þeirra sem Sýrlandsher hefur beitt í borgarastríðinu þar. Rússarnir fjórir sem um ræðir eru annars vegar tveir æðstu yfirmenn GRU og hins vegar tveir menn, Ana- toly Chepiga og Alexander Mishkin, sem sagðir eru vera þeir sem fram- kvæmdu árásina, en hún beindist að rússneska gagnnjósnaranum Sergei Skrípal. Þeir Chepiga og Mishkin voru nafngreindir í fyrra af breskum rannsakendum sem líklegir gerend- ur í árásinni, og hafði verið búist við því að Evrópusambandið myndi setja þá á svartan lista. Hafna öllum ásökunum Utanríkisráðuneyti Rússlands sagði hins vegar á mánudaginn að ákvörðunin um að refsa yfirmönnum GRU, Igor Kostyukov og aðstoðar- manni hans Vladimir Alexseyev stæðist ekki skoðun, en Kostyukov var skipaður yfirmaður GRU í nóv- ember síðastliðnum. Þá sagði ráðuneytið í tilkynningu sinni að það myndi vega og meta hefndaraðgerðir gegn Evrópusam- bandinu vegna ákvörðunarinnar. Sagði Konstantín Kosachev, formað- ur utanríkismálanefndar rússnesku dúmunnar, að Evrópusambandið hefði engar sannanir í höndunum. Jeremy Hunt, utanríkisráðherra Bretlands, fagnaði hins vegar ákvörðun Evrópusambandsins og sagði hana mikilvægt skref til þess að refsa fyrir „óábyrgar aðgerðir“ GRU. Boða nýjar refsiaðgerðir  Evrópusambandið refsar yfirmönnum leyniþjónustu rússneska hersins vegna Skrípal-málsins  Rússar hóta að þeir svari í sömu mynt vegna þvingananna AFP Skrípal Mikil viðbrögð voru eftir árásina í Salisbury í mars í fyrra. Eldglæringar voru yfir Damaskus, höfuðborg Sýr- lands, í gær þegar loftvarnafallbyssur reyndu að granda eldflaugum frá Ísrael, sem skotið var að nokkr- um skotmörkum í nágrenni höfuðborgarinnar í gær- morgun. Ísraelar viðurkenndu árásirnar og sögðu þær hafa beinst að bækistöðvum íranska byltingarvarðar- ins. Hét Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísra- els, því að Íranir myndu ekki fá fótfestu í Sýrlandi. AFP Ísraelar ráðast á skotmörk í Sýrlandi Hæstiréttur Zim- babwe úrskurð- aði í gær að ráð- herra hefði ekki haft heimild til þess að lögum að loka netinu og því bæri ríkinu að opna aftur fyrir netaðgang landsmanna þeg- ar í stað. Stjórn- völd ákváðu í síðustu viku að loka fyrir netið vegna fjöldamótmæla, sem hófust vegna fyrirhugaðra eldsneytishækkana ríkisstjórnar- innar. Lögregla og öryggissveitir landsins hafa hins vegar gengið mjög hart fram við að berja niður mótmælin og segja mannréttinda- samtök að tólf manns hafi látið lífið í síðustu viku. Emmerson Mnangagwa, forseti Zimbabwe, hélt heimleiðis úr opin- berri heimsókn í fyrradag og sagð- ist vilja tryggja frið og ró í landinu á ný. Var ekki heimilt að loka fyrir netið Emmerson Mnangagwa ZIMBABWE Kamala Harris, öldungadeildar- þingmaður Demókrata- flokksins í Kali- forníu, tilkynnti í gær að hún myndi bjóða sig fram í forvali flokksins fyrir forsetakosning- arnar á næsta ári. Fjöldi framboða hefur þegar borist fyrir forkosningar flokksins, en auk Harris hafa öldungadeild- arþingmennirnir Elizabeth Warren og Kirsten Gillibrand og fulltrúa- deildarþingmaðurinn Tulsi Gabb- ard einnig lýst yfir framboði sínu meðal annarra. Rúmt ár er þar til fyrstu for- kosningarnar fara fram í Iowa- ríki, og má því enn gera ráð fyrir að fleiri innan flokksins muni til- kynna framboð sitt á komandi mánuðum. Býður sig fram í forvali demókrata Kamala Harris BANDARÍKIN Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær að hún myndi leita eftir frekari viðræðum við for- kólfa Evrópusambandsins í þeirri von um að hægt yrði að finna leið til þess að ná samkomulagi um útgöngu Breta úr sambandinu fyrir 29. mars næstkomandi. Í máli hennar kom fram að hún myndi leggja sérstaka áherslu á að finna lausn á „varnaglanum“ svo- nefnda varðandi landamæri Írlands og Norður-Írlands, en ákvæðin um hann hafa valdið ólgu í Íhaldsflokkn- um og norðurírska DUP-flokknum sem styður við ríkisstjórnina. Jeremy Corbyn, leiðtogi Verka- mannaflokksins, sakaði May hins vegar um að horfa framhjá þeirri staðreynd að samkomulagi hennar hefði verið hafnað af breska þinginu. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar létu einnig í ljós efasemdir sínar um að nægur tími væri til stefnu fyrir May. Varnaglinn líklega óbreyttur Leiðtogar Evrópusambandsins hafa hingað til ekki viljað ljá máls á því að breyta samkomulaginu sem náðist í lok síðasta árs svo nokkru nemi. Á það sérstaklega við um kröf- ur útgöngusinna á Bretlandi um að varnaglinn verði tekinn út úr sam- komulaginu eða að gildistími hans verði takmarkaður. Jacek Czaputowicz, utanríkisráð- herra Póllands, lagði hins vegar til um helgina að samkomulaginu yrði breytt á þá vegu að varnaglinn myndi einungis gilda í fimm ár ef til hans kæmi, en Simon Coveney, vara- forsætisráðherra Írlands, hafnaði þeirri hugmynd alfarið. Neðri deild breska þingsins mun ræða næstu skref í útgöngumálinu og greiða svo atkvæði 29. janúar næstkomandi. sgs@mbl.is Leitar enn eftir viðræðum  May kynnti næstu skref sín í Brexit-málinu AFP Brexit Mótmælt er bæði með og á móti Brexit við breska þinghúsið. Hæstiréttur Venesúela lýsti því yfir í gær að núverandi yfirstjórn þjóð- þings landsins væri „ólögmæt“ og ógilti allar ákvarðanir þess. Stjórn- arandstöðuflokkar landsins hafa nú meirihluta á þinginu, en Nicolas Maduro, forseti landsins, hefur á móti reynt að færa völd þess yfir til hæstaréttar landsins. Þingið samþykkti í síðustu viku ályktun, þar sem Maduro var sagður „valdaræningi“, en stjórnarand- staðan hefur neitað að viðurkenna úrslit forsetakosninga sem fram fóru á síðasta ári. Hafa leiðtogar stjórnarandstöðunnar boðað mót- mæli á morgun, miðvikudag. Ákvörðun réttarins kom sama dag og uppreisn innan hersins var kveð- in niður, en hópur hermanna réðst á stjórnstöð þjóðvarðliða í höfuðborg- inni Caracas og hvatti til þess á sam- félagsmiðlum að þjóðin risi upp gegn stjórn Maduros. Hópurinn var hins vegar handtekinn fljótlega. Ógilda ákvarðanir þingsins  Uppreisn innan hersins kveðin niður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.