Morgunblaðið - 22.01.2019, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019
Skokk Nú viðrar heldur betur til útivistar í borginni, ekki einasta hefur fólk fagnað snjónum og dregið fram gönguskíði sín heldur er fátt meira hressandi en skokka úti í vetrarstillu.
Eggert
Helgi Seljan, útsend-
ari Kastljóss, tók 40
mínútna viðtal við Elínu
Björgu Ragnarsdóttur
lögfræðing í janúar
2012 undir því yfirskini
að efnið yrði notað í
sjónvarpsþætti sem
aldrei spurðist meira til.
Í Kastljósi í lok mars
2012 var kafli úr viðtal-
inu birtur. Umfjöllunarefnið var
kynnt þannig að vaknað hefði grunur
um að Samherji og Vinnslustöðin
(VSV) seldu fisk á undirverði til er-
lendra dótturfyrirtækja og færu
þannig á svig við gjaldeyrislög.
Undirbúningur Kastljóss hafði
staðið lengi og við blasir að tímasetn-
ing útsendingar var engin tilviljun.
Viðtalið við Elínu Björgu var klippt
og skorið til að hún liti út fyrir að
taka fullan þátt í aðförinni að Sam-
herja, gott ef ekki vera upphafs-
maður að öllu saman. Hún hafði ekki
hugmynd um þessa ótrúlegu mis-
notkun á viðtali sem veitt var meira
en tveimur mánuðum áður á allt öðr-
um forsendum.
Kastljós þverbraut þarna siða-
reglur og reglur Ríkisútvarpsins um
snemma því ég heyrði úr fleiri áttum
að Helgi Seljan & Co spyrðust fyrir
um mál tengd VSV, sölufyrirtækjum
hennar og Hugins allt að sex vikum
áður en flautað var til leiks gegn
fyrirtækjunum. Aldrei var leitað
upplýsinga hjá framkvæmdastjórum
fyrirtækjanna og ekkert samband
haft við VSV fyrr en þremur tímum
fyrir útsendingu!
Skýrt lá fyrir á þessum tíma til
hvers refirnir væru skornir. Ég vitna
í eigin ummæli í Kastljósinu 2. apríl
2012:
„Þetta vekur mér spurningar um
vinnubrögð Kastljóss. Þetta vekur
mér líka spurningar um tímasetn-
ingu Kastljóss. Samherji daginn áð-
ur, strax í kjölfar framlagningar fisk-
veiðistjórnunarfrumvarpsins. Við
daginn eftir til að reyna að kasta rýrð
á Vinnslustöðina.
Við höfum allt okkar á hreinu. Við
getum boðið sjómannaforystunni að
koma og skoða öll gögnin, sem við
reyndar gerðum í janúar síðast-
liðnum og ítrekuðum í mars. Við get-
um boðið Kastljósi að koma og skoða
öll gögnin og fara yfir allt saman.
Það sem er óhreint og stendur eft-
ir er aðdragandinn og rannsókn á að-
draganda umfjöllunarinnar Kastljóss
og tímasetningin í tengslum við
framlagningu fiskveiðistjórnarfrum-
varpsins. Það er það sem stendur eft-
ir og ég óska eftir því að fá tækifæri
til að rannsaka og skoða með stjórn-
endum Kastljóss.“
Viðtalið var afkynnt með þessum
orðum: „Vegna orða framkvæmda-
stjóra Vinnslustöðvarinnar vill Kast-
ljós taka fram að þátturinn stendur í
einu og öllu við umfjöllun sína“.
Málatilbúnaður Seðlabankans og
Kastljóss snerist sem sagt um að
saka fyrirtækin um undirverðlagn-
ingu og brot á gjaldeyrislögum. Fyr-
ir Jóhönnustjórnina var himnasend-
ing að fá innrás í Samherja og
framhaldsþætti í RÚV um leið og
hún lagði frumvörp um veiðigjöld
fram á Alþingi.
Verðlagningarmál VSV og Hugins
voru upplýst og gerð var grein fyrir
niðurstöðum í greinargerð sem
kynnt var sjómönnum og forystu-
mönnum þeirra um áramótin 2011/
2012. Þar með lauk því máli og það
áður en Kastljós fór af stað.
Seðlabankastjóri elti Samherja í
dómssölum og endaði hnípinn og
gjörsigraður í Hæstarétti. Gjaldeyr-
islög höfðu ekki verið brotin og engin
undirverðlagning átti sér stað.
Reyndar höfðu kollegar mínir, hag-
fræðingar Seðlabankans, lagt til
grundvallar meðaltal meðaltala en
ekki meðaltal heildarinnar og reikn-
að útflutningsverð Samherja kolvit-
laust.
Eftir stendur að í Kastljósþátt-
unum vorið 2012 helgaði tilgangurinn
meðalið. Ódaun lagði af vinnubrögð-
unum og leggur enn. Víst er að gæða-
kerfi RÚV, sé það yfirleitt til, stenst
engan veginn gæðakerfi sjávar-
útvegsins!
Því má svo bæta við að formaður
Sjómannasambandsins og fleiri við-
mælendur Kastljóss á þessum tíma
undruðust að sjá í hvaða samhengi
viðtöl við þá voru notuð. Það virðist
nefnilega hafa verið við siðs hjá
starfsmönnum þessa þáttar að koma
aftan að viðmælendum sínum og
sigla undir fölsku flaggi. Fólk sem
kann mannasiði hegðar sér ekki
þannig.
Ekkert bólar á því að Kastljós
kannist við misgjörðir sínar, hvað þá
biðjist afsökunar. Fyrrverandi koll-
egar í Efstaleitinu velja frekar að
verja vonlausan málsstað þeirra sem
tröðkuðu á réttindum Elínar Bjargar
og annarra viðmælenda þáttarins.
fréttir og fréttatengt
efni. Breytir engu að
bæði Sigmar Guð-
mundsson, þáverandi
ritstjóri Kastljóss, og
Páll Magnússon, þá-
verandi útvarpsstjóri,
telji meðferðina á við-
talinu vera í lagi af því
tekið hafi verið fram í
inngangi að upptakan
átti sér stað áður en
rannsóknin á Samherja
hófst! Slík rök eru
haldlaus. Helgi Seljan
sigldi undir fölsku flaggi gagnvart
Elínu Björgu allan tímann. Það er
kjarni málsins.
Ummæli Páls og Sigmars stað-
festa fyrir mér að Kastljósið hafi far-
ið á kreik strax í ársbyrjun 2012 til að
draga efni í hús og gera sig klárt þeg-
ar kallið kæmi úr Stjórnarráðinu og/
eða Seðlabankanum til að þáttaserí-
an yrði klár til sýningar þegar ráðist
yrði inn í Samherja og frumvörp um
veiðigjöld lögð fram á Alþingi. Allt
skyldi gerast samtímis. Starfsmenn
þáttarins voru þarna fyrst og fremst
í málpípu- og gerendahlutverkum.
Látið var svo líta út að húsleitin í
Samherja hefði átt sér stað vegna
„rannsókna Kastljóss“!
Það kemur mér reyndar ekki á
óvart að Kastljósið hafi tekið árið
Eftir Sigurgeir
Brynjar Krist-
geirsson
» Ódaun lagði af
vinnubrögðunum og
leggur enn. Víst er að
gæðakerfi RÚV, sé það
yfirleitt til, stenst engan
veginn gæðakerfi
sjávarútvegsins.
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar hf.
binni@vsv.is
Kastljós undir fölsku flaggi
Hálf öld er senn liðin frá því að
stofnuð voru fyrstu umhverfis- og
náttúruverndarsamtökin hérlendis.
Landvernd, sem í upphafi byggðist á
aðild félagasamtaka, reið á vaðið
haustið 1969 og setti landgræðslu og
gróðurvernd á oddinn. Í kjölfarið kom
bylgja náttúruverndarsamtaka með
einstaklingsaðild áhugafólks í öllum
landshlutum. Fyrst á þeim vettvangi
1970 voru SUNN á Norðurlandi og
NAUST eystra uns hringnum var
lokað og myndað var Samband ís-
lenskra náttúruverndarfélaga um
miðjan áttunda áratuginn. Flest eða
öll þessi náttúruverndarfélög gerðust
jafnframt aðilar að Landvernd. Þessi
umhverfisbylgja átti sér alþjóðleg
upptök sem andsvar við blindum hag-
vexti eftirstríðsáranna með Banda-
ríkin í fararbroddi. Bækur eins og
Raddir vorsins þagna (ísl. útgáfa Al-
menna bókafélagið 1965) eftir Rachel
Carson og rit Rómarklúbbsins Endi-
mörk vaxtarins (ísl. útg. Menning-
arsjóður 1974) eru dæmi um viðbrögð
við fordæmalausri ágengni gagnvart
umhverfi jarðar. Sjálfur reyndi ég að
tengja þessa stöðu mála við innlend
átakaefni í ritinu Vistkreppa eða nátt-
úruvernd (Mál og menning 1974).
Vitundarvakningin upp úr 1970
Viðbrögðin við vaxandi mengun og
röskun náttúrufars birtust á alþjóða-
vettvangi með Náttúruverndarári
Evrópu 1970 og á vett-
vangi Sameinuðu þjóð-
anna þar sem fyrsta
stóra umhverfis-
ráðstefnan var haldin í
Stokkhólmi 1972. Ný
náttúruverndarlöggjöf
hérlendis (lög 47/1971)
var stórt framfaraskref
með Náttúruverndar-
ráð að miklu leyti skip-
að fulltrúum áhuga-
samtaka um
náttúruvernd og þá
undir formennsku Eysteins Jóns-
sonar alþingismanns til ársins 1978.
Þetta reyndist sóknaráratugur í um-
hverfismálum með fjölda tilnefninga
svæða á náttúruminjaskrá og upp-
byggingu tveggja nýrra þjóðgarða, í
Skaftafelli og í Jökulsárgljúfrum. Það
sem á vantaði var einkum að fallist
væri á tillögur um sérstakt umhverf-
isráðuneyti, sem fyrst kom til sög-
unnar ári 1990, og að sameinast væri
um breytta og nútímalega skipulags-
löggjöf. Það endurspeglaði stöðuna á
því sviði að fyrst árið 1979 var allt
landið gert skipulagsskylt og lengi vel
var það ákvæði lítið meira en orð á
blaði.
Ófullkomin skipulags-
löggjöf dragbítur
Litið til baka var vinna að skipu-
lagsmálum í allt öðrum og lakari far-
vegi hérlendis á síðasta fjórðungi 20.
aldar en gerðist annars staðar á
Norðurlöndum. Því
tengdust m.a. átök um
stjórnsýslueiningar, þar
sem sýslu- og kaup-
staðaformið var lagt nið-
ur 1986 og við tóku yfir
200 sveitarfélög að heita
mátti einráð í skipulags-
málum en fæst með for-
sendur til að sinna þeim
sæmilega. Tillaga mín á
Alþingi um millistig í
stjórnsýslunni í formi
héraða var þá felld, en
hefði gerbreytt forsendum á mörgum
sviðum, ekki síst um skipulag og
stofnanauppbyggingu í stjórnsýsl-
unni. Sést það best af því að nú eru á
kreiki hugmyndir um sameiningu
sveitarfélaga sem taki til heilla fjórð-
unga, m.a. á Austurlandi. Augljóst er
hverjar takmarkanir slíkt hefði á lýð-
ræðisleg samskipti íbúa stórra land-
svæða við kjörna fulltrúa. Loks þegar
ný skipulagslöggjöf var samþykkt ár-
ið 1997 fengust ekki tekin inn í hana
skýr ákvæði um landsskipulag og sat
við þann keip í hálfan annan áratug í
viðbót. Ári síðar, 1998, tóku við ný lög
um sveitarfélög sem fólu m.a. í sér að
óbyggðasvæðum var skipt upp á milli
þeirra. Jafnframt hófst þjóðlenduferli
Óbyggðanefndar til greiningar á
eignarrétti sem enn er ekki að fullu
lokið. Svæðisskipulag miðhálendisins
sem staðfest var 1999 og gilti í hálfan
annan áratug innan ákveðinnar
markalínu var athyglisverð nýlunda
sem gerði m.a. kleift að þoka fram
vinnu við stórmál eins og stofnun
Vatnajökulsþjóðgarðs, en nú hefur
landsskipulagsstefna leyst það af
hólmi.
Skipulagsferli enn
alltof fjarlæg almenningi
Þótt löggjöf og vinna að skipulags-
málum hafi verið endurnýjuð og bætt
hin síðustu ár, m.a. í kjölfar löggjafar
frá árinu 2010, vantar enn mikið á að
störf að skipulagsmálum og þær
stóru ákvarðanir sem þeim oft tengj-
ast hafi náð þeirri athygli almennings
sem æskilegt væri. Hefur þó Skipu-
lagsstofnun gert sitt til að kynna laga-
ákvæði og réttarstöðu almennings.
Þessi lagaákvæði eiga m.a. að stuðla
að skynsamlegri nýtingu lands og
landgæða, að tryggja verndun lands-
lags, náttúru og menningarverðmæta
og koma í veg fyrir umhverfisspjöll og
ofnýtingu með sjálfbæra þróun að
leiðarljósi. Afar ólík staða sveitarfé-
laga, bæði hvað stærð og íbúafjölda
snertir og vöntun á þjálfuðum starfs-
kröftum eiga sinn þátt í þessu og allt-
of lítil fræðsla til almennings um rétt-
arstöðu sína. Við það bætist að
grunnupplýsingar er varða náttúru-
far og aðrar forsendur hefur vantað
þótt smám saman sé að rætast úr,
m.a. með kortum sem sýna mismun-
andi vistgerðir á landi. Í ljósi þeirra
stóru vandamála sem nú steðja að,
t.d. vegna loftslagsbreytinga af
mannavöldum, er afar brýnt að al-
menningur sé meðvitaður og vel upp-
lýstur um áhrif þessa á umhverfið og
framtíðarskipulag.
Náttúrustofurnar
fái aukið hlutverk
Augljós þörf er á að í grunnskólum
og framhaldsskólum verði fræðsla um
skipulag og samspil þess og umhverf-
isþátta aukin og bætt, sem og starfs-
menntun þessu tengd á háskólastigi.
Skipulagsvaldið er áfram hjá sveitar-
félögunum og þau þurfa að hafa að-
gang að hæfu starfsfólki og ráðgjöf
sem byggist á bestu fáanlegum upp-
lýsingum. Mér sýnist kjörið að gera
náttúrustofum landshlutanna kleift
að eiga hér aukinn hlut að máli og að
ríkið leggi þeim til fjármagn í þessu
skyni. Með því vinnst í senn að komið
verði upp þekkingarneti víða um land
með nærtækri ráðgjöf fyrir sveitar-
félög sem búa við ólíkar aðstæður.
Fátt er brýnna en aukin meðvitund
fólks hvar sem er á landinu um gildi
vandaðra skipulagsákvarðana og
þátttaka almennings í aðdraganda
þeirra. Á því sviði hafa samtök áhuga-
fólks um umhverfis- og náttúruvernd
verk að vinna. Tíföldun á fjölda ein-
staklinga í Landvernd síðustu sjö árin
ber vott um góðan byr sem nú þarf að
nýta.
Stórefla þarf skipulagsvinnu
í þágu umhverfis- og náttúruverndar
Eftir Hjörleif Guttormsson »Augljós þörf er á að í
grunnskólum og
framhaldsskólum verði
fræðsla um skipulag og
samspil þess og umhverf-
isþátta aukin og bætt,
svo og starfsmenntun.
Hjörleifur Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.