Morgunblaðið - 22.01.2019, Page 27
var hann yfirlæknir á svæfingadeild,
gjörgæslu og bráðamóttöku meðan
stríðið í Kúveit 2 ágúst til desember
2000 meðan stríðið geisaði þar. Gísli
var síðan yfirlæknir og prófessor á
Háskólasjúkrahúsinu í Bern í Sviss
frá júlí 1991 til ágúst 2000 og prófess-
or við Háskóla Íslands og forstöðu-
læknir við svæfinga- og gjörgæslu-
deild Landspítalans frá 2000 til
janúarloka 2019.
Gísli hefur unnið að vísindarann-
sóknum í samvinnu við marga aðila a
Landspítalanum, HÍ og við fjölda er-
lenda háskola og birt á annað hundr-
að vísindagreina í erlendum fagtíma-
ritum. Auk menntunar læknanema í
Svíþjóð, Kúveit, Sviss og á Íslandi
hefur Gísli unnið að þróun náms í
gjörgæslulækningum á Norðurlönd-
unum síðan 2000 og verið stjórnandi
sérnáms í gjörgæslulækningum á
Norðurlöndunum síðastliðin 11 ár.
Hann hefur einnig unnið mikið að
menntun svæfinga- og gjörgæslu-
lækna í Evrópu, skilgreiningu og
samræmingu námsins og verið próf-
dómari í Evrópusérfræðiprófum í 15
ár. Gísli var ritstjóri European
Journal á 10. áratug síðustu aldar og
ritstjóri við Acta Anaesthesia Scandi-
navica (Norræna svæfinga- og gjör-
gæslulæknatímaritið) síðastliðin 10
ár. Gísli skrifaði bókina Læknir á víg-
velli um reynslu sína af stríðinu í
Kúveit.
Helstu áhugamál Gísla fyrir utan
fjölskyldu og sérstaklega barnabörn-
in eru fluguveiði, garðyrkja, íþróttir
og matargerð. Hann er góður kokkur
og er mjög áhugasamur um austur-
lenskan mat og allar kryddtegundir
sem honum fylgja. Hann var góður
skíðamaður áður fyrr og nokkuð góð-
ur í tennis, en stundar nú hjólreiðar
og fluguveiðar af kappi.
Fjölskylda
Eiginkona Gísla er Birna Guðbjörg
Hjaltadóttir, f. 14.2. 1948 á Akranesi,
þar sem hún ólst upp. Hún er þjóð-
fræðingur að mennt, starfaði fyrr
sem einkaritari og síðast sem kirkju-
vörður í Hallgrímskirkju í Reykjavík.
Foreldrar Birnu: Hjalti Björnsson,
vélvirki frá Neskaupstað, f. 22.7.
1914, d. 5.9.. 1980 og eiginkona hans,
Sigríður Einarsdóttir, kjólameistari
frá Akranesi, f. 28.10. 1913, d. 6.9.
1998. Bæði voru búsett á Akranesi til
dauðadags.
Börn: 1) Hjalti Heimir Gíslason, f.
6.1. 1973, tölvunarfræðingur og deild-
arstjóri hugbúnaðardeildar Vimond
Media Solutions í Bergen í Noregi,
kvæntur Kjersti Ingolvsdotter Ve-
vatne, f. 17.11. 1970, fornleifafræð-
ingi. Börn þeirra: Birna Hjaltadóttir
Vevatne, f. 2003 og Brynjar Hjalta-
son Vevatne, f. 2005. 2) Þorbjörg
Gísladóttir, f. 17.2. 1975, BA í ensku
og enskum bókmenntum. 3) Halldór
Gíslason, f. 1.2. 1978, tölvunarfræð-
ingur og MBA, verkefnastjóri í hug-
búnaðardeild Íslandsbanka og sendi-
fulltrúi RKÍ í Afríkulöndum, kvæntur
Katrínu Lilju Jónsdóttur, f. 19.7.
1987, sagnfræðingi og blaðamanni.
Börn þeirra: Theodór Leví, f. 2009,
Nikulás Elí, f. 2012 og Marteinn
Sebastían, f. 2017.
Systkini Gísla: Guðný Sigurðar-
dóttir, f. 27.8. 1941, bókasafnsfræð-
ingur og kennari, búsett í Reykjavík,
Guðrún Kolbrún Sigurðardóttir, f.
15.6. 1943, d. 8.3. 1983, kennari, síðast
búsett í Reykjavík og Helgi M. Sig-
urðsson, f. 13.3. 1953, sagnfræðingur
og safnvörður, búsettur í Kópavogi.
Foreldrar Gísla: Sigurður M.
Helgason, f. 22.5. 1910, d. 31.10. 2006,
lögmaður og borgarfógeti og eigin-
kona hans, Þorbjörg Gísladóttir, f.
16.8. 1917, d. 2.11. 2010, húsfreyja og
starfsmaður Pósts og síma. Þau voru
búsett í Reykjavík til dauðadags.
Úr frændgarði Gísla H. Sigurðssonar
Gísli H. Sigurðsson
Rósamunda Sigríður Oddsdóttir
húsfreyja á Mýrum
Guðmundur Hagalín
Guðmundsson
bóndi á Mýrum í
Dýrafirði
Guðný Guðmundsdóttir Hagalín
húsfreyja á Lokinhömrum og í Rvík
Gísli Kristjánsson
skipstjóri á Lokinhömrum í Auðkúluhr.,
V-Ís., síðar starfsm. Rafmagnsv. Rvíkur
Þorbjörg Gísladóttir
húsfreyja og starfsmaður
Pósts og síma
Sigríður Ólafsdóttir
húsfreyja á
Lokinhömrum
Kristján Oddsson
bóndi á Lokinhömrum
Andrea Helgadóttir
úsfreyja og verkakona
á Siglufirði og í Rvík
h
Helgi Guðbergsson,
sérfr. í atvinnu- og
umhverfislækningum
Gunnar
Ólafsson forstj.
Rannsóknast.
andbúnaðarins
Valdís
Helgadóttir
hjúkrunarfr.
í Rvíkl
Skúli Gunnarsson
heilsugæslu-
læknir
Guðný
Sigurðardóttir
bókasafnsfr.
og kennari
Jón Tryggvi
Héðinsson
heilsugæslu-
læknir
Hjörtur
Björgvin
Helgason
kaupfélags-
stjóri í
Sandgerði
Guðrún
Hjartar-
dóttir
fulltrúi á
Hag-
stofunni
Hjörtur
Marteins-
son
kennari í
Árbæjar-
skóla
Dagur
Hjartarson
skáld
uðmundur
G. Hagalín
thöfundur
G
ri
Sigríður
Hagalín
eikkonal
Kristín
Ólafsdóttir
ókasafns-
og upp-
lýsinga-
ræðingur
Hrafnhildur Hagalín
Guðmundsdóttir
leikritaskáld
b
f
Sigríður
Hagalín
Björnsdóttir
fréttamaður
og rithöf-
undur
Hallgerður Sigurðardóttir
húsfreyja í Stóra-Lambhaga
Illugi Bárðarson
bóndi í Stóra-Lambhaga,
Skilmannahreppi
Guðrún Illugadóttir
húsfreyja á Akranesi og í Rvík
Helgi Guðbrandsson
sjómaður í Lykkju á Akranesi, síðar í Rvík
Margrét Helgadóttir
húsfreyja á Klafastöðum
Guðbrandur Brynjólfsson
bóndi á Klafastöðum, Skilmannahr., Borg.
Sigurður M. Helgason
lögmaður og borgarfógeti
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019
Finnbogi Rútur Þorvaldssonfæddist 22. janúar 1891 íHaga á Barðaströnd. For-
eldrar hans voru hjónin Þorvaldur
Jakobsson, f. 1860, d. 1954, prestur í
Sauðlauksdal, síðar kennari í Hafnar-
firði, og Magdalena Jónasdóttir, f.
1859, d. 1942, húsfreyja.
Finnbogi varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1912. og
lauk prófi í byggingaverkfræði árið
1923 frá Den polytekniske Lærean-
stalt í Kaupmannahöfn.
Eftir heimkomuna varð Finnbogi
aðstoðarverkfræðingur á teiknistofu
Jóns Þorlákssonar en var síðan verk-
fræðingur hjá Vita- og hafnamála-
skrifstofunni 1925-42. Þar gerði hann
áætlanir, uppdrætti og hafði umsjón
með hafnargerð á Akranesi, Borgar-
nesi, Siglufirði, Akureyri og víðar.
Hann var enn fremur kennari við
Iðnskólann í Reykjavík 1924-49. Síð-
an var Finnbogi Rútur forstöðumað-
ur undirbúningskennslu í verkfræði
við Háskóla Íslands 1940-44 og pró-
fessor við verkfræðideild Háskólans
1945-61.
Finnbogi var mörg ár forseti verk-
fræðideildar og átti sæti í háskólaráði
og var um tíma varaforseti þess.
Hann lét félagsmál mikið til sín taka
og átti sæti í fjölmörgum nefndum.
Hann var m.a. formaður Verkfræð-
ingafélags Íslands, sat í nefnd til und-
irbúnings tækniskóla og var formað-
ur Íslandsdeildar alþjóðastúdenta-
skipta. Hann var formaður í stjórn
sameigna Hvals hf. og Olíustöðvar-
innar hf. Finnbogi Rútur var sæmdur
Fálkaorðunni og gullmerki Verk-
fræðingafélags íslands.
Eiginkona Finnboga Rúts var Sig-
ríður Eiríksdóttir, f. 16.6. 1894, d.
23.3. 1986, hjúkrunarfræðingur og
formaður Félags íslenskra
hjúkrunarkvenna í 36 ár. Börn
þeirra: Vigdís Finnbogadóttir, f.
1930, forseti Íslands 1980-96, og Þor-
valdur Finnbogason, f. 1931, d. 1952,
verkfræðistúdent.
Finnbogi Rútur lést 6. janúar 1973.
Merkir Íslendingar
Finnbogi
Rútur
Þorvaldsson
95 ára
Jóhann Guðmundsson
90 ára
Ármann Þórðarson
Einar Þ. Þorsteinsson
85 ára
Hjördís Durr
Jónas Þórðarson
Rósa Arnaldsdóttir
Sigrún Auður
Sigurðardóttir
80 ára
Aðalbjörg Ingvarsdóttir
Gréta Elín
Guðmundsdóttir
Gunnar Emilsson
Hafsteinn Guðnason
75 ára
Anna Eymundsdóttir
Freyja Ragna
Guðmundsdóttir
Hrafn U. Björnsson
Kristín Helgadóttir
Magnús Reynir
Guðmundsson
Sigrún Þóra Haraldsdóttir
Snæfríður Jensdóttir
70 ára
Benjamín Baldursson
Gísli Heimir Sigurðsson
Guðrún Helga
Sigurðardóttir
Gunnlaugur Magnússon
Haukur Halldórsson
Jack Ernest James
Kristín Finnsdóttir
Ólafur Björnsson
Sigríður Eggertsdóttir
60 ára
Guðrún Ólöf Jónsdóttir
Hanna Ólafsdóttir
Ingveldur María
Tryggvadóttir
Jón Gunnarsson
Ólöf Ásgeirsdóttir
Stefán Oddsson
50 ára
Árni Jón Sigfússon
Elsche Oda Apel
Helga Fanney
Sigurðardóttir
Helgi Bjarnason
Joaquim Paulo Pinto
Monteiro
Kristín Ólfjörð Káradóttir
Kristján Þorsteinsson
Óttar Freyr Gíslason
Runólfur Eymundsson
Sigríður Margrét Jónsdóttir
Sigrún Jónbjarnardóttir
Sólrún Sigurjónsdóttir
40 ára
Andrea Kristín
Unnarsdóttir
Baldur Ólafsson
Björk Sigursteinsdóttir
Guðmundur Óskar
Ragnarsson
Gunnar Sævarsson
Hrefna Hugosdóttir
Linda Yi Zhang
Lorna Macaranas
Sveinsson
Salbjörg Ósk Reynisdóttir
Sigvarður Hans Ísleifsson
Sunna Björg Guðnadóttir
Vigdís Gunnarsdóttir
Þorkell Andrésson
30 ára
Anna Gerður Ófeigsdóttir
Bjarni Jónsson
Eva Dögg Þorkelsdóttir
Jakobína Sigurgeirsdóttir
Kamilla Kristín Auðunsd.
Magnús Dilan Soransson
Til hamingju með daginn
40 ára Björk er frá Skjól-
brekku á Mýrum en býr í
Garðabæ. Hún er tækni-
teiknari hjá Loftorku í
Borgarnesi.
Maki: Sigurður Jónas Sig-
urðarson, f. 1975, rekur
bifreiðaverkstæðið Lyngás.
Sonur: Sigursteinn Jónas,
f. 2015.
Foreldrar: Sigursteinn Sig-
ursteinsson, f. 1949, d.
2016, og Guðrún Jóhanns-
dóttir, f. 1954, búsett í
Skjólbrekku.
Björk Sigur-
steinsdóttir
40 ára Gunnar er Húsvík-
ingur, rafvirki að mennt
og er sjómaður á frysti-
togaranum Vigra RE hjá
HB Granda.
Dóttir: Kristel Eva, f.
2005.
Systir: Sædís, f. 1977.
Foreldrar: Sævar Guð-
brandsson, f. 1954, við-
haldsstjóri hjá Fiskeldinu
Haukamýri, og Svala
Björgvinsdóttir, f. 1950, er
hætt að vinna. Þau eru
bús. á Húsavík.
Gunnar
Sævarsson
30 ára Kamilla er frá
Akureyri en býr í Hafnar-
firði. Hún er förðunarfr. og
vinnur í MAC í Kringlunni.
Maki: Sindri Þór Sigurðs-
son, f. 1993, sölu- og
þjónustufulltrúi í Nova.
Dóttir: Amelía Ýr, f. 2017.
Foreldrar: Auðun Bene-
diktsson, f. 1942, og
Ragnheiður Ragnars-
dóttir, f. 1965, reka ferða-
þjónustufyrirtækið No17
og búa í Heiði á
Svalbarðsströnd.
Kamilla Kristín
Auðunsdóttir
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288