Morgunblaðið - 22.01.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.01.2019, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JANÚAR 2019 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Gættu þess að vera einlæg/ur og tjá tilfinningar þínar þegar erfið mál eru rædd í fjölskyldunni. Taktu afstöðu og haltu svo áfram með lífið. 20. apríl - 20. maí  Naut Þótt hlutirnir freisti skaltu skoða vandlega hvort þú hafir einhverja þörf fyrir þá. Þú finnur fyrir þrýstingi um að klára visst mál en taktu þinn tíma. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það segir sitthvað um þig að fólk tekur mark á skoðunum þínum. Líttu í eigin barm og þá sérðu að þú ein/n berð ábyrgð á þinni líðan. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú átt sérlega auðvelt með öll samskipti og munt því hugsanlega stofna til nýrrar vináttu. Æfðu þig í að segja nei. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Farðu varlega í fjármálum í dag og ekki láta plata þig út í einhverja tilrauna- starfsemi. Ljóminn er farinn að falla af vissri persónu í þínu lífi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú þarft að finna tjáningarþörf þinni útrás með einhverjum hætti, mál- aðu, syngdu eða dansaðu. Búðu þig und- ir að þurfa að svara fyrir verkefni sem þú tókst að þér. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er eitt og annað sem liggur í loftinu og þú virðist ekkert þurfa að gera annað en velja fýsilegasta kostinn. Stattu með þeim sem þess þurfa. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fólk breytist - og líka þú. Vertu góð/ur við sjálfa/n þig og aðra. Njóttu þess að lyfta þér upp með vin- unum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það skiptir þig miklu máli að sannfæra einhvern í dag. Stappaðu stál- inu í vin þinn sem á erfitt. Vertu tilbú- in/n til að grípa til aðgerða ef þarf. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú þarft að leyfa sköp- unarhæfileikum þínum að njóta sín utan starfsins. Farðu varlega í umferðinni, sér- staklega ef þú ert á ferðinni að kvöldi til. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Umhyggja þín gerir að verkum að fólk er þakklátt fyrir vináttu þína. Ein- hverjar svefntruflanir eru að hrjá þig, leitaðu lausna. 19. feb. - 20. mars Fiskar Loks, eftir langa mæðu, færðu smá svigrúm til að sinna áhugamáli þínu. Það gæti orðið lifibrauð þitt ef þú ákveður það. Eins og ég skrifaði í Vísnahorn ígær kom ný ljóðabók út fyrir helgina, Bragarblóm eftir Ragnar Inga Aðalsteinsson. Hann þarf ekki að kynna fyrir ljóðavinum. Hann er einn af kunnustu hagyrðingum landsins en hér bregður hann fyrir sig „betri“ fætinum og kastar fram 75 limrum á 75. afmælisdegi sínum og nefnir bók- ina „Bragarblóm“. Eins og raunar fyrstu limruna í bókinni, – „Bragar- blóm – Eins konar grasafræði“: Limran með lágværan hljóm læðist í hugarins tóm og sáir þar plotti með spaugi og spotti og springur svo út eins og blóm. Eins og geta má nærri er efni limr- anna af margvíslegum toga og vita- skuld koma konur víða við sögu eins og í „Það rann upp fyrir mér – löngu seinna“: Kona sem eitt sinn ég unni af útflöttum hjarta míns grunni var þrútin af ást, það var annað sem brást - hún var ofviða því sem ég kunni. Og fer vel á því, að í næstu limru spyr skáldið sjálfan sig: „Hvað er ég að gera hér?“ Svekktur á ráðleysis sveimi ég svitna og misskil og gleymi, en staðreynd er hitt: það varð hlutskipti mitt að villast í vitskertum heimi. En þótt skáldið segi að þetta sé „Undarleg afstaða“ finnst mér niður- staðan skiljanleg þrátt fyrir allt: Svo skrýtin að um það ég skrifa mín skoðun sem ekkert mun bifa: Þótt mannlífið hér sé eins og það er þá langar mig samt til að lifa. Hér er yrkisefnið „Minni skáldsins“ og svipar til reynslu okkar sem náð höfum áttræðisaldri: Framan af örlítið eimdi eftir af því sem mig dreymdi; svo máðist það út og í móðu og sút ég man ekki hverju ég gleymdi. „Ársuppgjör athafnamanns“ kallast þessi limra en er líka leikur að erfiðu endarími: Þótt upp ég hér dágóðan arð rífi í annars vel heppnuðu jarðlífi ég ámálga hitt að einkalíf mitt er andskotans voðalegt harðlífi. Nú er kominn tími til að segja: „Verði ljós“: Það er sama hvert sólrisið er; því að sólgeislaljósflóðið hér verður neikvætt og skrýtið og nýtist mér lítið ef nóttin er innan í mér. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Limrublómið springur út „FYRIRGEFÐU, SAGÐI ÉG SKRÆFU? ÉG MEINTI KÆFU.” „hringdu á sjúkrabíl.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... sameiginleg lífsreynsla. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann TÍMI TIL AÐ FAGNA! ÞAÐ ER … ALÞJÓÐLEGI SKÝJAKLJÚFA DAGURINN! NÚ SKAL ETIÐ! ERTU AÐ FÁ ÞÉR Í FJÓRÐA SKIPTIÐ Á DISKINN?! ÉG ER GERÐUR FYRIR HLAÐBORÐ! VERST AÐ FÖTIN ÞÍN ERU ÞAÐ EKKI! Hið fornfræga knattspyrnufélagLiverpool gerir nú harða atlögu að Englandsmeistaratitlinum sem það hefur ekki unnið frá árinu 1990. Eftir miklar vangaveltur hefur Vík- verji loksins glöggvað sig á því hvers vegna þessi eyðimerkurganga hefur staðið svona lengi. Jú, Liver- pool hætti að tefla fram leik- mönnum með yfirvararskegg. x x x Á gullaldarárunum á áttunda ogníunda áratugnum voru alltaf í liðinu menn með myndarlegar mott- ur; Tommy Smith, Steve Heighway, Alan Kennedy, Terry McDermott, Graeme Souness, Mark Lawrenson, Bruce Grobbelaar, Ian Rush og John Aldridge, svo dæmi séu tekin. Vel má vera að Kenny Dalglish hafi líka verið með mottu en þar sem skeggið á honum er í hörundslit gat ekki nokkur maður áttað sig á því. Á löngum köflum voru fleiri menn í liði Liverpool með mottu en ekki. Og titlarnir streymdu í hús. Síðan fór mottan úr tísku og Liverpool snarhætti að verða Englandsmeist- ari. x x x Eftir geggjaða frammistöðu áþessum vetri er Liverpool loks- ins í dauðafæri að endurheimta titil- inn. Stríðmannað lið Manchester City andar að vísu niður í hálsmálið á Rauða hernum og til að halda þeirri sveit í skefjum ráðleggur Vík- verji Jürgen Klopp knattspyrnu- stjóra að gefa að minnsta kosti ein- um leikmanni sínum, helst fleirum, fyrirmæli um að láta sér vaxa yfir- vararskegg hið fyrsta. Það yrði án efa til þess fallið að sigla titlinum örugglega í hús. Mikilvægt er að hafa haldreipi í hörðum slag sem þessum og í því sambandi er yfir- vararskegg ekkert verra en hvað annað. Alltént ef gott er í mottunni. x x x Eins og gengur yrðu menn að hafamismikið fyrir söfnuninni; þann- ig er t.d. ólíklegt að Trent Alexand- er-Arnold sé farin að spretta grön. Stórstirnið Mohamed Salah er hins vegar með alskegg fyrir og yrði ugglaust ljómandi huggulegur með mottu. vikverji@mbl.is Víkverji Drottinn, Guð vor, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina. Þú breiðir ljóma þinn yfir himininn. (Sálm: 8.2) Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.