Morgunblaðið - 04.02.2019, Side 4

Morgunblaðið - 04.02.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019 TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Veður víða um heim 3.2., kl. 18.00 Reykjavík -2 snjókoma Hólar í Dýrafirði -6 alskýjað Akureyri -12 skýjað Egilsstaðir -14 heiðskírt Vatnsskarðshólar 1 snjókoma Nuuk -4 léttskýjað Þórshöfn 1 léttskýjað Ósló -5 léttskýjað Kaupmannahöfn 0 snjóél Stokkhólmur -7 skýjað Helsinki 2 rigning Lúxemborg 1 léttskýjað Brussel 4 skúrir Dublin 7 rigning Glasgow 5 rigning London 4 heiðskírt París 5 skýjað Amsterdam 5 léttskýjað Hamborg 2 léttskýjað Berlín 2 súld Vín 5 skúrir Moskva 0 þoka Algarve 14 heiðskírt Madríd 8 léttskýjað Barcelona 12 léttskýjað Mallorca 10 léttskýjað Róm 10 rigning Aþena 15 léttskýjað Winnipeg -20 snjókoma Montreal -13 alskýjað New York 5 heiðskírt Chicago 6 þoka  4. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:59 17:25 ÍSAFJÖRÐUR 10:19 17:15 SIGLUFJÖRÐUR 10:03 16:57 DJÚPIVOGUR 9:33 16:50 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Gengur í austan 15-23 m/s með snjó- komu, en slyddu eða rigningu við ströndina, einkum SA-lands. Hægari vindur og þurrt N-til á landinu, en dálítil snjókoma og hvessir með kvöldinu. Þurrt N-til á landinu og talsvert frost. Víða dálítil snjókoma annars staðar, en úrkomulítið á Aust- fjörðum og SA-landi síðdegis. Frost 0 til 10 stig. Vaxandi austanátt í kvöld með éljum S-lands. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Á Dýraspítalann í Garðabæ hafa komið hundar sem eru illa skaðaðir á sál og líkama eftir að hafa verið með rafmagnsól um hálsinn. Slík ól gefur hundinum rafstuð þegar hann geltir eða þegar eigandi gefur rafstuð með fjarstýringu til að refsa hundinum fyrir einhverja tiltekna hegðun. Notkun þessara óla er bönnuð hér á landi og dýra- læknar á spítalan- um hafa tilkynnt þessi tilvik til Matvælastofnun- ar sem illa með- ferð á dýri. Hanna M. Arn- órsdóttir, dýra- læknir á spítalan- um, segir að a.m.k. í einu tilvik- inu hafi eigendur hundsins sagt að hundaþjálfari hafi mælt með notkun svona ólar vegna þess að viðkomandi hundur hafi gelt mikið þegar hann var einn heima og sýnt merki um aðskilnaðarkvíða. „Það er ástæða fyrir því að þessar ól- ar eru bannaðar á Íslandi og fleiri lönd hafa tekið upp slíkt bann,“ segir Hanna. „Rafmagnsól tekur í engu á hegðun hundsins eða þeirri líðan sem veldur henni. Ólin getur í besta falli aukið á vanlíðan en í versta falli valdið hundinum bæði líkamlegum og sálar- legum skaða.“ Hrottaskapur og heimska Hanna nefnir dæmi um hund sem höndlaði illa að vera einn heima. Hann hafi sýnt talsverð merki geðs- hræringar, gelt mikið og skemmt muni, m.a. heilu hurðirnar og innrétt- ingarnar. Eigendurnir hafi brugðið á það ráð að setja á hann ól sem úðaði á hann sítrónulykt, sem honum líkaði illa, en þegar það skilaði engum ár- angri var sett á hann rafmagnsól og fékk hann líkamlega áverka af henni „Hann upplifði enn meira óöryggi í kjölfarið. Aðskilnaðarkvíði er ekki óalgengur meðal hunda og við verð- um að muna að hundurinn er félags- vera. Honum er ekki eiginlegt að vera einn, þó að hann geti lært að sætta sig við það. Að refsa hundi fyrir hræðslu er hrottaskapur og heimskulegri að- ferð þekkist varla,“ segir Hanna. Hún nefnir dæmi um annan hund sem hafði verið með rafmagnsól þeg- ar hann var yngri. „Áður en þeir fá rafstuðið, gefur ólin frá sér hátíðni- hljóð. Hundurinn var orðinn logandi hræddur við svipuð hljóð vegna þess að hann hélt að hann ætti að fá raf- stuð þegar hann heyrði þau.“ Spurð um hvernig standi á því að hundaþjálfarar mæli með aðferðum sem þessum við hundaeigendur, sem að auki eru ólöglegar, segist Hanna ekki geta svarað fyrir það. „Hunda- þjálfun er ekki leyfisskylt starfsheiti, í raun geta allir kallað sig þessu heiti og enginn tekur þessa starfsemi út. Það sem fólk kallar jákvæðar aðferðir er mjög mismunandi innan þessarar stéttar, flestir þeirra fylgjast með því sem er að gerast í hundaþjálfun, en það eru alltaf einhverjir sem gera það ekki og vita ekkert um þá miklu þekk- ingu sem komin er á atferli og hegðun hunda og skilgreina hegðunina sem mótþróa, mótmæli eða heimsku.“ Hanna segir að það sé sín tilfinning að þeir hundaeigendur sem noti raf- magnsólar á hunda sína séu almennt ekki meðvitaðir um þann skaða sem þeir valdi með því. Yfirleitt sé um að ræða hugsunarleysi. „En við eigum að vita betur og við ættum að geta sett okkur í spor hrædds dýrs. Fólk sem velur sér að eiga gæludýr er með því að undirgangast tiltekna skuld- bindingu og í því felst m.a. að fara með dýrið á mannúðlegan hátt. Það er okkar, sem eigum þau, að veita þeim það sem þau þurfa til að eiga gott líf. Við þurfum að líta okkur nær og spyrja okkur hvað við getum gert bet- ur til að hundurinn skilji hvað við er- um að fara fram á í staðinn fyrir að vera svona refsiglöð.“ Skaðlegar hundaólar í notkun  Brögð eru að því að rafmagnsólar sem gefa rafstuð séu notaðar á hunda  Eru bannaðar hér á landi  Dýralæknir segir að hundaþjálfarar hafi ráðlagt þessa notkun  Tilkynnt til MAST sem ill meðferð Ljósmynd/Dýraspítalinn í Garðabæ Brunasár Myndin var tekin af starfsfólki Dýraspítalans í Garðabæ fyrir nokkru og sýnir áverka á hálsi hunds sem hafði verið með rafmagnsól um háls sinn. Ólöglegt Notkun rafmagnsólar, eins og er á myndinni, brýtur í bága við reglugerð. Í reglugerð um velferð gæludýra segir að óheimilt sé að nota hvers konar tæki eða tól, eða beita þau dýr sem þjálfa skal, neinum þeim aðferðum eða þvingunum, sem valdi þeim sársauka eða hræðslu. „Notkun, sala og dreifing á hvers konar útbúnaði sem gefa dýri rafstuð eða valda verulegum óþæg- indum er bönnuð,“ segir í reglu- gerðinni. Valdi ekki sársauka DÝRAVELFERÐ Hanna M. Arnórsdóttir Rafmagnsól Hanna segir að þeir hundaeigendur sem noti raf- magnsólar á hunda sína séu almennt ekki meðvitaðir um skaðann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.