Morgunblaðið - 04.02.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 04.02.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019 LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR * Til að DHA skili jákvæðum áhrifum þarf að neyta 250 mg á dag. OMEGA-3 FYRIR SJÓN OG AUGU Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi sem er einkumætlað að viðhalda eðlilegri sjón. Omega-3 augu inniheldur lútein, zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla að viðhaldi eðlilegrar sjónar. Fæst í öllum helstu apótekum landsins. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Bridshátíðinni í Reykjavík,sem hófst hinn 31. janúarsíðastliðinn í Hörpu, lauk ígær með pomp og prakt. Meðal keppenda á mótinu var hin svokallaða Ungliðahreyfing frá Borgarfirði en hana skipa systkinin Anna Heiða Baldursdóttir og Heiðar Baldursson ásamt Loga Sigurðssyni en þau spiluðu í liði ásamt Ingimundi Jónssyni, gjaldkera Bridssambands Íslands. Hljóðið var gott í kátum í brid- sköppunum milli leikja í Hörpu í gær. „Við Heiðar erum búnir að spila brids í sex ár,“ sagði Logi um unglið- ana. „Ingimundur er náttúrlega bú- inn að spila mjög lengi og Anna Heiða svipað lengi og við. Við fórum á nýliðanámskeið sem Ingimundur hélt og erum búin að vera forfallin síðan. Við höfum rosalegan áhuga á brids og finnst þetta skemmtileg íþrótt.“ Ekki þykir mikil gróska í brids meðal íslenskra ungmenna en með- limir ungliðahreyfingarinnar kváð- ust ekki geta útskýrt orsakir þess. „Þetta hefur kannski stimpil á sér víðast hvar á landinu að vera eldri borgara íþrótt,“ sagði Ingimundur. „Nema í Borgarfirðinum, þar sem við erum til dæmis með nýlið- anámskeið núna þar sem eru að minnsta kosti sex spilarar undir þrí- tugu. Við njótum þeirra forréttinda að hafa þessa ungu spilara. Með þeim er auðveldara að krækja inn fleiri.“ Aðspurð hvers vegna hún héldi að brids hefði fengið orð á sig sem íþrótt fyrir eldra fólk svaraði Anna Heiða: „Þetta var vinsælt á sjöunda, áttunda áratugnum og aðeins á tíma Bermúdaskálarinnar. Síðan er þetta hægt og bítandi að deyja út.“ „Hópurinn eldist bara og það hefur verið lítil endurnýjun,“ bætti Logi við. „Smám saman kom þessi stimpill að þetta væri fyrir eldra fólk. En ég held að ef fleiri ungir myndu prufa þetta væru mun fleiri í þessu.“ Brids sem skyldufag? Bridsspilararnir sögðu end- urnýjun í brids vera með betra móti í nágrannaríkjum Íslands og ýmsum öðrum löndum. „Þeir eru já betri í því í Skandinavíu og Hollandi,“ sagði Ingimundur. „Í Ísrael eru þeir með þetta inni í skólakerfinu. Þar er þetta bara skyldufag!“ „Þetta er bara hollt fyrir flesta,“ sagði Logi. „Það væri ekki vitlaust að hafa þetta sem skyldugrein því að menn þjálfa hugann í þessu og verða ósjálfrátt betri í öðrum fögum.“ Heiðar sagðist geta vottað það að bridsspilun hefði hjálpað honum að bæta sig í námi. „Stærð- fræðikunnáttan batnaði heldur betur hjá mér eftir að ég byrjaði að spila. Það varð allt einfaldara.“ Aðspurð hvaða kostir einkenna góðan bridsspilara nefndu unglið- arnir ýmislegt, meðal annars heppni. „Maður verður að hafa nógan tíma til þess að æfa sig. Það skiptir mestu máli. Þetta lærist ekki á einum degi heldur töluverðan tíma að læra að skilja brids. Þegar það kemur, þá er þetta gaman.“ Ungliðarnir hvöttu fólk til þess að prófa brids og gefa því tækifæri. Jafnframt buðu þau alla velkomna til að spila með þeim í Logalandi í Borg- arfirði. Ungliðahreyfing á bridshátíðinni „Maður verður að hafa nógan tíma til þess að æfa sig. Það skiptir mestu máli. Þetta lærist ekki á einum degi heldur tekur töluverðan tíma að læra að skilja brids. Þegar það kemur, þá er þetta gaman.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Stórmót Bridsmótið sem haldið var í Hörpu var það stærsta sem farið hefur fram á Íslandi. Um 400 manns og 74 lið tóku þátt í keppninni í þetta sinn. Hugarleikfimi Heiðar Baldursson íhugull á bridshátíðinni í Hörpu í gær. Heiðar var einn af keppendum fyrir Ungliðahreyfinguna á mótinu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra setti Bridshátíð Reykjavíkur í Hörpu á fimmtudaginn, 31. jan- úar. Opnunin þótti ekki af verra taginu og var umtalað hversu glæsilega mótið hefði byrjað. Bridshátíðin í ár er sú stærsta sem haldin hefur verið á Íslandi. Tæp- lega 400 manns tóku þátt og voru nokkrir af fremstu bridsspilurum heims þar á meðal. Mátti þar helst nefnda spilara á borð við Zia Mahmood, Danan Dennis Bilde og Sabinu Auken. Bridsmótið í Reykjavík var upp- haflega haldið árið 1982 að frum- kvæði íslenska Bridssambandsins, Bridsklúbbsins í Reykjavík og Ice- landair. Þessi fyrirtæki gerðu há- tíðina síðan að árlegum viðburði. Sigurlið mótsins er íslenska liðið Grant Thornton, en liðið skipa þeir Sveinn Rúnar Eiríksson, Ragnar Hermannsson, Anton Haraldsson, Guðmundur Snorrason, Hrólfur Hjaltason og Oddur Hjaltason. Alls kepptu 74 lið á mótinu. Í tvímenn- ingsmótinu voru þeir Espen Er- ichsen og Thor Erik Hoftaniska stigahæstir, með 5782,9 stig. Bridshátíðin í ár sú stærsta í Íslandssögunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Kankvís Anna H. Baldursdóttir keppti fyrir hönd Ungliðahreyfingarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.