Morgunblaðið - 04.02.2019, Side 23
frá Háskólanum í Reykjavík 2001 og
fékk löggildingu fasteignasala 2006.
Ásdís starfaði sem verkefnastjóri
hjá EJS frá 2000-2003 þar til hún
var svo heppin að missa vinnuna í
netbóluhruninu og fór þá að vinna
við fasteignasölu og hefur starfað
þar síðan og rekið sitt eigið fyr-
irtæki síðan 2010 sem heitir Húsa-
skjól. „Þar starfa sex manns og við
seljum bæði eignir hér heima sem
og erlendis í samstarfi við alþjóðlega
fasteignakeðju sem heitir Leading
Re.“
Ásdís ferðast mikið og hefur gam-
an af að skoða ný svæði. Hennar
kjörsvæði er þó alltaf Karíbahafið.
„Fyrir nokkrum árum breytti ég
um lífsstíl og tók mig og mitt um-
hverfi alveg í gegn; fór úr því að
vera sófakartafla í það að æfa 10-12
sinnum í viku og er núna að und-
irbúa mig fyrir Landvættina.“ Ásdís
verður að heiman á afmælisdaginn á
ráðstefnu í San Diego þar sem hún
mun m.a. halda fyrirlestur um
hvernig er hægt að breyta um lífsstíl
og þaðan er ferðinni heitið til Ja-
maíku í jóga-reggíafslöppun, þar
sem Ásdís mun hefja nýja áratug.
„Fátt er betra en að núllstilla sig
með Bob Marley.“
Ásdís hélt upp á afmæli sitt 1.
febrúar á Bryggjunni brugghúsi.
„Þetta var óhefðbundið afmæli; ég
tók upp mínímalískan lífsstíl og sló
tvær flugur í einu höggi, afþakkaði
allar gjafir og lét þær renna til
AHC-samtakanna. Við vorum líka
með happdrætti til styrktar samtök-
unum. Eftirminnilegasta afmælis-
gjöfin er þó alltaf 21 kexpakki sem
ég fékk á bát á Amazon þar sem
ferðafélagarnir gleymdu afmælinu
mínu og skítaredduðu sér með því
að fara í sjoppuna á bátnum.“
Fjölskylda
Ásdís giftist Þóri Sigurgeirssyni
hinn 2. september 1995, þau skildu
2015. Börn þeirra eru Axel Valur, f.
3.4. 1996, nemi í sagnfræði við HÍ,
Viktor Logi, f. 23.6. 2002, nemi í
MR, og Sigrún Tinna, f. 22.2. 2009,
nemi í Lindaskóla.
Systkini Ásdísar eru Rikki Þór, f.
26.12. 1966 verkamaður á Dalvík, Ír-
is Dögg, f. 23.8. 1971, skrifstofu-
maður í Reykjavík, og Hörður Her-
mann, f. 20.4. 1976, búsettur í
Danmörku.
Foreldrar Ásdísar eru Valur
Harðarson, f. 10.3. 1946, pípulagn-
ingameistari, og Sigrún Friðriks-
dóttir, f. 8.4. 1945, fiskiðnaðarkona,
þau eru búsett á Dalvík.
Úr frændgarði Ásdísar Óskar Valsdóttur
Ásdís Ósk
Valsdóttir
Þóra Sigrún Friðriksdóttir
fiskiðnaðarkona á Dalvík
Hlín Sigfúsdóttir húsfreyja í Rvík
Pétur Orri Þórðarson fv.
skólastjóri í Hvassaleitisskóla
Sigfús Þórðarson fv. lögfræðingur
í Seðlabanka Íslands
Friðrik Þorsteinsson
bóndi og verkamaður á
Selá á Árskógsströnd
Valgerður Sigfúsdóttir
húsfreyja á Litlu-
Hámundarstöðum
Þorsteinn Þorsteinsson
útvegsbóndi á Litlu-Hámundarstöðum á Árskógsströnd
Ása Marinósdóttir
jósmóðir á Ytra-
Kálfsskinni
l
Erla Gerður
Sveinsdóttir
læknir í
Heilsuborg
Marinó Þorsteinsson
bóndi og oddviti
á Krossum og í
Engihlíð
Anna Sigríður Sigurðardóttir
húsfreyja á Brattavöllum
Sigurður Flóvent Sigurðsson
bóndi á Brattavöllum á
Árskógsströnd
Anna Soffía Sigurðardóttir
húsfreyja á Selá
offía Júnía Sigurðardóttir
húsfreyja á Brattavöllum
Sgurður Konráðssonútgerðarmaður á
Árskógssandi
SiAgnes Anna Sigurðardóttir
eigandi Kalda
bruggverksmiðju
Gunnlaugur
Sigurðsson
útgerðarmaður
á Brattavöllum
Anton Gunnlaugs-
son skipstjóri og
útgerðarmaður á
Dalvík
Gunnlaugur
Antonsson
stýrimaður
á Dalvík
Eyþór Ingi
Gunnlaugsson söngvari
ngimar Friðriksson
framkvæmdastjóri
á Akureyri
IElvar Ingimarsson
meðeigandi á
Bryggjunni brugghúsi
Ómar Ingimarsson
eigandi írsku kráarinnar
The Drunk Rabbit
Sigríður Björnsdóttir
húsfreyja á Víkurbakka
Þorvaldur Árnason
útvegsbóndi á Víkurbakka
á Árskógsströnd
Hermína Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Gunnþór Eyfjörð
Gunnþórsson skólaráðgjafi
hjá Tröppu ehf. og
forseti sveitarstjórnar
Dalvíkurbyggðar
Ásgerður
Harðardóttir
húsmóðir á
Dalvík
Hörður Sigfússon
bifvélavirki á Dalvík
Ásgerður Jónsdóttir
húsfreyja á Dalvík
Sigfús Þorleifsson
útgerðarmaður á Dalvík
Valur Harðarson
pípulagningameistari á Dalvík
Fasteignasalinn Ásdís við Signu.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
ALLT Í BAÐHERBERGIÐ
FRÁ A TIL IFÖ
Tengi hefur mikla og góða reynslu af IFÖ baðinnréttingum.
IFÖ eru sænskar hágæðavörur sem framleiddar hafa verið allt frá 1936.
Pétur Kristján Árnason fæddist 4.febrúar 1919 á Áslaugarstöðumí Selárdal, Vopnafirði. For-
eldrar hans voru hjónin Árni Árnason,
f. 1881 á Haga í Þistilfirði, d. 1968,
bóndi á Breiðumýri og síðar á Áslaug-
arstöðum, og Hólmfríður Jóhanns-
dóttir, f. 1883 í Spónsgerði í Arnar-
neshr., Eyj, d. 1970, húsfreyja. Árni
var sonur Árna Árnasonar bónda í
Haga sem var bróðir Guðrúnar, lang-
ömmu Kristins Péturssonar, fiskverk-
anda á Bakkafirði og fyrrverandi al-
þingismanns.
Pétur fluttist suður 17 ára gamall og
bjó og starfaði hjá systur sinni Kristínu
og mági sínum Ólafi Óskari Þórðarsyni
á Varmalandi í Mosfellssveit. Síðar fór
hann að vinna hjá Kleppsbúinu og
starfaði þar þar til hann hóf nám við
múrverk 1944 og lauk sveinsprófi 1947,
meistararéttindi fær hann 1951.
Pétur var umsvifamikill sem bygg-
ingameistari í áratugi og sá um margar
stórbyggingar, svo sem Þjóðar-
bókhlöðu, Listasafn Íslands, Lang-
holtskirkju, Valhúsaskóla og fleiri. Sem
múrarameistari útskrifaði hann á
fjórða tug múrsmiða.
Pétur spilaði á harmonikku og lék
fyrir dansi og á böllum þegar hann var
yngri. Hann var mikill unnandi gömlu
dansanna.
Eiginkona Péturs var Úlfhildur Þor-
steinsdóttur frá Úlfsstöðum í Loð-
mundarfirði, f. 25.11. 1919, d. 7.10.
2006, saumakona og húsfreyja. For-
eldrar hennar voru hjónin Þorsteinn
Jónsson, bóndi á Úlfsstöðum í Loð-
mundarfirði, og Sigríður Valtýsdóttir.
Þau hjónin hófu sinn búskap á
Grandavegi, síðan fluttust þau í Kópa-
voginn og árið 1955 byrjuðu þau að
byggja inni á Bugðulæk 7 og fluttu inn
árið 1956, þar sem síðan hefur verið
þeirra heimili.
Pétur og Úlfhildur eignuðust átta
syni, en tveir elstu eru kjörsynir Pét-
urs. Fimm urðu múrarar og sömuleið-
is fleiri afkomendur þeirra. Synirnir
eru Ómar, f. 1946, Hlini, f. 1949, Guð-
mundur, f. 1950, Hólmsteinn, f. 1951,
d. 2011, Ingibert, f. 1952, d. 1995, Árni,
f. 1953, Logi, f. 1957, og Lýður, f. 1960.
Pétur lést 10. ágúst 1997.
Merkir Íslendingar
Pétur Kristján Árnason
90 ára
Helgi Magnússon
Sölvi Víkingur
Aðalbjarnarson
85 ára
Stefán G. Stefánsson
80 ára
Sigurbjörg Sigurðardóttir
75 ára
Anna Margrét
Gunnlaugsdóttir
Fríða Petrína Petersen
Gunnþór Guðmundsson
Hallgrímur Hallgrímsson
Ólafur Benediktsson
Ólína Guðbjörg
Ragnarsdóttir
Stefán Geirsson
70 ára
Flora Omoike
Heiða Karlsdóttir
Sigríður Halldórsdóttir
Sigrún Benediktsdóttir
Unnur Jónsdóttir
Valdís Finnbogadóttir
60 ára
Árni Valdimarsson
Ásbjörn Már Jónsson
Bára Skæringsdóttir
Friðrik Aðalsteinn Diego
Guðlaug Linda
Brynjarsdóttir
Guðmundur Jakobsson
Haraldur B. Hreggviðsson
Inga Sigríður
Gunndórsdóttir
Marzellíus Sveinbjörnsson
50 ára
Ásdís Ósk Valsdóttir
Dorota Helena Kajl
Dorota Malgorzata
Antoniak
Elínborg B. Benediktsdóttir
Gréta Hólmfríður
Grétarsdóttir
Guðrún Bryndís
Hafsteinsdóttir
Heiða Björk Jósefsdóttir
Oddný Ragna
Sigurðardóttir
Vera Rún Erlingsdóttir
Þórsteinunn R.
Sigurðardóttir
40 ára
Aldís Mae Kibler
Beata Katarzyna
Brzozowska
Brynja Björk Hinriksdóttir
Christian A. G. Carrasquel
Drazen Cvjetkovic
Ghassan Al Mohamed
Guðni Þorri Helgason
Haukur Gunnar Guðnason
Jakob Ingi Helgason
Leó Alexander
Guðmundsson
Margrét Ólafsdóttir
Óli Gneisti Sóleyjarson
Sigurður Grétar Sigurðsson
Sigurjón Magnússon
Sigurlaug Sif Ragnarsdóttir
Stefán Svan Aðalheiðarson
Tinna Sigurjónsdóttir
Tomasz Krupinski
Þórunn Emelie
Ágústsdóttir
30 ára
Ásdís Erla Ásgrímsdóttir
Edda Sif Sveinbjörnsdóttir
Guðrún Heiða
Magnúsdóttir
Harpa Guðjónsdóttir
Helena Ásta Hreiðarsdóttir
Hólmfríður Helgadóttir
Karen Helga Karlsdóttir
Magnús Þór Sigurðarson
Renaldas Brazaitis
Skarphéðinn Magnússon
Snorri Örn Sveinsson
Stylianos Kalomoiris
Tetiana Konovaltseva
Til hamingju með daginn
40 ára Vanessa er frá
Cebu á Filippseyjum en
flutti til Íslands 1999 og
býr í Njarðvík. Hún vinnur
við tollfrjálsa sölu hjá
Wow air.
Maki: Brynjar Rainir Le-
bumfacil, f. 1982, vaktstj.
í töskusal hjá Icelandair.
Börn: Rafael, f. 2008,
Sofia, f. 2011, og Isabella,
f. 2014.
Systkini: Dolores, Sarah,
Annabelle og Dionesio, öll
bús. á Íslandi.
Vanessa
Valle
30 ára Sindri er Reykvík-
ingur, er með BS-próf í
tölvunarfræði frá Háskól-
anum í Reykjavík og er
tölvunarfræðingur hjá
Tempo.
Systkini: Sara, f. 1987,
og Sölvi, f. 1994.
Foreldrar: Sigurjón Ás-
geirsson, f. 1961, vélstjóri
hjá Faxaflóahöfnum, bú-
settur í Reykjavík, og
Berglind Valdimarsdóttir,
f. 1962, d. 2013, þroska-
þjálfi.
Sindri
Sigurjónsson
40 ára Lóa er Reykvík-
ingur og myndlistar- og
tónlistarmaður. Hún er
með MA-gráðu í ritlist frá
HÍ og BA í myndlist frá
Listaháskólanum.
Maki: Árni Rúnar Hlöð-
versson, f. 1982,
tónlistarmaður.
Sonur: Fróði, f. 2012.
Foreldrar: Hjálmtýr Heið-
dal, f. 1945, kvikmynda-
gerðarmaður, og Anna
Kristín Kristjánsdóttir, f.
1949, sjúkraþjálfari.
Lóa Hlín
Hjálmtýsdóttir