Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019
Veður víða um heim 6.2., kl. 18.00
Reykjavík 2 alskýjað
Hólar í Dýrafirði 0 alskýjað
Akureyri 0 snjókoma
Egilsstaðir -2 skýjað
Vatnsskarðshólar 2 skúrir
Nuuk -5 snjóél
Þórshöfn 5 heiðskírt
Ósló -5 snjókoma
Kaupmannahöfn 2 skúrir
Stokkhólmur -7 heiðskírt
Helsinki -8 heiðskírt
Lúxemborg 4 heiðskírt
Brussel 6 rigning
Dublin 9 skúrir
Glasgow 7 léttskýjað
London 10 léttskýjað
París 9 alskýjað
Amsterdam 6 súld
Hamborg 5 rigning
Berlín 4 heiðskírt
Vín 2 heiðskírt
Moskva -4 skýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 15 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 14 heiðskírt
Aþena 9 rigning
Winnipeg -20 snjókoma
Montreal -10 alskýjað
New York 2 heiðskírt
Chicago 1 þoka
7. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:50 17:35
ÍSAFJÖRÐUR 10:09 17:26
SIGLUFJÖRÐUR 9:52 17:08
DJÚPIVOGUR 9:23 17:01
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag og laugardag Norðaustlæg átt 10-18
m/s, hvassast suðaustantil. Víða él, en léttskýjað
syðra. Frost 1 til 9 stig. Á sunnudag Hæg breytileg
átt og bjart, en stöku él með norðurströndinni.
Norðaustan 8-15 m/s og él, en léttskýjað sunnanlands. Bætir í vind suðaustantil í kvöld og líkur á
éljum allra syðst. Frost 0 til 9 stig, mildast syðst.
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Flott föt, fyrir flottar konur
Str.
38-58
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru afhent
við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær í 24.
sinn. Eysteinn Gunnlaugsson, lengst til vinstri,
Heiðar Már Þráinsson, Hanna Ragnarsdóttir og
Róbert Ingi Huldarsson hlutu verðlaunin en Ró-
bert gat ekki verið viðstaddur. Verkefni þeirra
fól í sér þróun á nýrri sjálfvirkri greiningar-
aðferð, sem byggist á gervigreind, til að finna
örvökur í svefni. Örvökur eru stutt tímabil í
svefni sem einkennast af breytingu á heilavirkni,
og er greining þeirra mikilvæg til að meta svefn-
gæði og svefntengda sjúkdóma.
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands afhent
Ljósmynd/Arnaldur Halldórsson
Verðlaunuð fyrir svefnrannsóknir
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Geðfatlað fólk er sá hópur fatlaðra
sem orðið hefur fyrir mestum for-
dómum í samfélaginu. Ég tel að það
stafi að mestu af fáfræði úti í sam-
félaginu,“ segir Anna Gunnhildur
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geð-
hjálpar. Hún segir mikla ábyrgð
liggja hjá fjölmiðlum um hvernig
þeir tjái sig um geðsjúkdóma og að
þeir setji ekki fram alhæfingar sem
eigi ekki við rök að styðjast. Anna
segir vinnuhóp í heilbrigðisráðu-
neytinu starfandi sem hún sé í for-
svari fyrir og vinni að viðmiði fyrir
fjölmiðla þegar þeir fjalli um geð-
sjúkdóma. Hún segir erfiðara að
eiga við samfélagsmiðlana þar sem
allir notendur þar séu ritstjórar. En
á þeim vettvangi þurfi hver og einn
að líta í eigin barm og gæta þess
hvað lækað er og hvaða efni sé dreift.
Anna telur nauðsynlegt þegar fjöl-
miðlamenn átti sig á því að hugsan-
lega hafi ekki verið farið rétt með í
fjölmiðlum, að leita til sérfræðinga
og koma á framfæri réttum stað-
reyndum.
„Mitt fólk upplifir það að minna
mark sé tekið á því ef það er greint
með geðsjúkdóma og erlendar rann-
sóknir hafa staðfest að einstakling-
um með greinda geðsjúkdóma sem
fara til læknis vegna líkamlegra
kvilla sé síður trúað en þeim sem
ekki eru greindir.“
Anna ítrekar að einstaklingur í
geðhvörfum sé veikur á meðan á
þeim standi en þess á milli séu þeir
jafntrúverðugir og raunveruleika-
tengdir og aðrir.
Hún segir að 22 til 25% þeirra sem
greinast með geðraskanir lifi eðli-
legu lífi milli þess sem þeir veikjast
en 2 til 3% geti tekið takmarkaðan
þátt í samfélaginu þar sem þeir detti
út af vinnumarkaði vegna örorku.
Er þeim trúandi?
Sigursteinn Másson, fyrrverandi
formaður Öryrkjabandalagsins, seg-
ir að geðhvörf standi yfirleitt yfir í
stuttan afmarkaðan tíma og að þeim
tíma loknum sé einstaklingur ekki
lengur með ranghugmyndir. Sigur-
steinn segir að þetta hafi hann upp-
lifað á eigin skinni og kynnst hjá öðr-
um þegar hann var í forsvari fyrir
Geðhjálp og Öryrkjabandalagið í um
áratug. Þegar geðhæð ljúki taki við
tímabil þunglyndis sem geti varað
lengur.
„Ég þekki engin dæmi þess að fólk
sem greinst hefur með geðhvörf sé í
stöðugum ranghugmyndaheimi. Það
er algerlega fráleitt að halda því
fram á nokkurn hátt að taka beri
minna mark á upplifun þeirra sem
greinst hafa með geðhvarfasýki,
slíkt ber vott um fáfræði og for-
dóma,“ segir Sigursteinn sem enn er
spurður hvort hann sé í lagi þrátt
fyrir að hann hafi ekki fundið fyrir
einkennum geðhvarfa í níu ár.
,,Það er mjög gott að nýta tæki-
færið þegar umræðan fer á villigötur
og leiðrétta hana,“ segir Sigursteinn
sem ætlar m.a. að ræða um það hvort
einstaklingum með geðsjúkdóma sér
trúandi og þá hvenær á höfundar-
kvöldi í Hannesarholti í kvöld.
Ábyrg umfjöllun um geðsjúkdóma
Minna mark tekið á þeim sem greinst hafa með geðsjúkdóma Ranghugmyndir horfnar að loknum
geðhvörfum Geðfatlaðir verða fyrir mestum fordómum Fjölmiðlar þurfa að leiðrétta rangfærslur
Sigursteinn
Másson
Anna Gunnhildur
Ólafsdóttir
Logi Einarsson,
formaður Sam-
fylkingarinnar,
segir að enn sé
reiknað með að
Ágúst Ólafur
Ágústsson, þing-
maður flokksins,
taki sæti á þingi
á ný. Í dag eru
liðnir tveir mán-
uðir síðan Ágúst
tilkynnti að hann tæki sér tveggja
mánaða leyfi frá störfum vegna
áminningar sem hann fékk frá
trúnaðarnefnd flokksins eftir að
hann áreitti konu kynferðislega.
Logi sagði við mbl.is í gær að myndi
fljótlega skýrast hvenær Ágúst snúi
aftur á Alþingi.
Formaðurinn reiknar
enn með Ágústi
Ágúst Ólafur
Ágústsson
Eldur kom upp í eldhúsi á leik-
skólanum Árborg í Árbæ upp úr
hádegi í gær. Leikskólinn var
rýmdur og fengu börn og starfs-
fólk skjól í húsinu á móti fyrst um
sinn en voru svo flutt með stræt-
isvagni í Árbæjarkirkju. Eldhúsið
á leikskólanum er að öllum lík-
indum ónýtt, auk þess sem sót og
reykur fór um allt hús svo önnur
rými munu þarfnast þrifa og jafn-
vel einhverra endurbóta. Starfs-
dagur er í leikskólanum í dag og
hann verður lokaður á morgun
vegna eldsvoðans.
Leikskóla í Árbæ
lokað eftir eldsvoða
Sigurður Páll Pálsson geðlæknir
telur að fólk átti sig ekki á því
hvað geðhvörf geti verið erfiður
sjúkdómur, sérstaklega þar sem
manía geti endað í geðrofi. Hann
segir ranghugmyndir í maníu
þekktar og kynferðisleg virkni
geti orðið meiri, en það eigi ein-
göngu við meðan á maníunni
standi. Að henni lokinni séu ein-
staklingar jafn veruleikatengdir
og trúverðugir og aðrir og það sé
ekki hægt að dæma þá úr leik
vegna greiningar á geðhvörfum.
Erfiður
sjúkdómur
GEÐHVÖRF