Morgunblaðið - 07.02.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019
Páskaveisla í Vínarborg
sp
ör
eh
f.
Vor 3
Þessi glæsilega páskaferð hefst í Passau sem er við ármót
Dónár, Inn og Ilz í Bæjaralandi og margir telja eitt fegursta
borgarstæði Evrópu. Þaðan verður farið til Vínarborgar þar sem
fagrar byggingar prýða borgina og munum við skoða helstu
staði hennar svo sem Schönbrun höllina og hið þekkta hús
Hundertwasser. Ferðin endar svo í hinni heillandi München.
13. - 20. apríl
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 214.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Hjörtur J. Guðmundsson
Erla María Markúsdóttir
Ómar Friðriksson
Forystumenn viðsemjenda í yfir-
standandi kjaradeilu bregðast með
ólíkum hætti við ummælum Más
Guðmundssonar seðlabankastjóra í
myndbandi sem birt var á vefsíðu
Seðlabankans í gær í tilefni af vaxta-
ákvörðun peningastefnunefndar.
Sagði Már ekki samdrátt vera fram-
undan nema hagkerfið verði fyrir
nýjum áföllum. Verkföll og launa-
hækkanir langt umfram svigrúm
yrðu slíkt áfall og afleiðingin yrði
hærri vextir og meira atvinnuleysi.
,,Reynum að afstýra því,“ sagði Már.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, segir skilaboð Seðla-
bankans vera skýr. „Ég hef talað
fyrir því frá upphafi að efnahagsleg
staða hljóti að hafa áhrif inn í kjara-
samningsumhverfið. Við hljótum að
taka mið af því hver staðan er
hverju sinni þegar við gerum kjara-
samninga. Seðlabankastjóri segir
með mjög skýrum hætti að efna-
hagsþróun næstu ára muni verða
með lakari hætti en gert var ráð fyr-
ir og við sjáum það t.d. af því að við
erum komin í samdrátt sé litið til
hagvaxtar á hvern mann. Í mínum
huga þarf ekki frekar vitnanna við.
Staðan er brothætt. Framhaldið er
hins vegar í okkar höndum en eins
og seðlabankastjóri orðað það sjálf-
ur; hagkerfið þolir ekki ytri áföll og
ytri áföll yrðu innistæðulausir kjara-
samningar og verkföll. Á þeirri
sviðsmynd tapa allir,“ segir Halldór.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, brást á annan hátt við ummæl-
um seðlabankastjóra í samtali við
mbl.is í gær. ,,Þetta er ekki í fyrsta
skipti sem Már Guðmundsson seðla-
bankastjóri hótar því að vextir verði
hækkaðir ef við semjum um mann-
sæmandi kjarabætur fyrir þá hópa
sem standa verst í okkar samfélagi.
Hann hótaði því fyrir síðustu kjara-
samninga ef laun myndu hækka í
300 þúsund og hækkaði stýrivexti í
þrígang í kjölfarið,“ sagði hann.
Ragnar Þór sagði það liggja alveg
fyrir að sífelldar hótanir um vaxta-
hækkanir og að halda hér uppi gríð-
arlega háu vaxtastigi, sé ákveðinn
þrýstingur á kaupgjaldið vegna þess
að fólk þurfi einhvern veginn að
standa undir því að búa við þessi
lífskjör, fáránlega vaxtastefnu og
hugmyndafræði um það að reyna að
vaxtastýra hér neyslu á meðan 90%
af húsnæðislánum eru verðtryggð á
föstum vöxtum, að sögn hans. Fram
kom í máli Más Guðmundssonar í
gær að verðbólguhorfur, hafa versn-
að vegna þess að gengi krónunnar
lækkaði á haustmánuðum. „Það eru
hins vegar góðar fréttir að langtíma-
verðbólguvæntingar hafa lækkað
nokkuð frá því sem þær risu hæst
fyrir jól og af þeim sökum hafa
raunvextir Seðlabankans hækkað.
Gagnstæðir kraftar birtast í þeirri
ákvörðun okkar að halda vöxtum
Seðlabankans óbreyttum,“ sagði
Már.
Boða næsta fund á miðvikudag
Samninganefndir SA og verka-
lýðsfélaganna fjögurra sem vísað
hafa kjaradeilunni til ríkissátta-
semjara komu saman til klukku-
stundar langs sáttfundar í gær.
Ákveðið var að boða til næsta fundar
á miðvikudag í næstu viku. Í millitíð-
inni starfa vinnuhópar fulltrúa SA
með Eflingu og VR um réttindamál
og fleira, að sögn Halldórs Benja-
míns.
„Við erum farin að nálgast nið-
urstöðu, en hver hún verður er
ómögulegt að segja en við ætlum að
reyna að blása smá púðri í þessa
undirhópa sem við erum með í
gangi,“ sagði Ragnar Þór.
Möguleg áföll og
staðan brothætt
SA og VR bregðast ólíkt við orðum seðlabankastjóra
Morgunblaðið/Eggert
Sáttafundur Samninganefndir SA, VR, Eflingar og verkalýðsfélaga Grindavíkur og Akraness komu saman í gær.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Bæjarstjóri, bæjarfulltrúar og allir
aðstandendur AFÉS [Aldrei fór ég
suður-tónlistarhátíðarinnar] lofa
með samningi þessum að vera í bull-
andi, sullandi
stuði alla páska-
helgina. Enn
fremur munu
þeir leggja sig
alla fram við að
smita aðra bæj-
arbúa og gesti af
gleði sinni og
ást.“
Kemur þetta
fram í „stuð-
samningi“ sem
Ísafjarðarbær og aðstandendur há-
tíðarinnar Aldrei fór ég suður gerðu
með sér í Hafnarhúsinu á Ísafirði
nýverið. Tekur samningur þessi til
AFÉS árin 2019, 2020 og 2021. End-
urskoða skal samninginn eigi síðar
en 1. júní árið 2021.
„Það verður ekkert mál,“ segir
Guðmundur Gunnarsson, bæjar-
stjóri Ísafjarðarbæjar, spurður út í
loforð sitt um að vera í „bullandi,
sullandi stuði“ heila páskahelgi.
„Við þessa undirritun var mér
einnig tilkynnt um leyndan viðauka,
sem ekki kemur fram í sjálfum
samningnum, sem kveður á um
skyldu bæjarstjóra til þess að sjá um
plötusnúðabúrið á milli ákveðinna
atriða á hátíðinni. Ég þarf því einnig
að þeyta skífum,“ segir Guðmundur
og heldur áfram: „En svona er þetta
oft með stuðsamninga – það er oft
eitthvað á blaði en svo eru önnur at-
riði látin ósögð. Af þessum sökum
eru stuðsamningar oft flóknustu
samningar sem bæjarfélög gera.“
Plötusnúðurinn Guðmundur
Aðspurður segist Guðmundur
sem plötusnúður sjálfur mega ráða
framkomu, fatnaði og tónlistarvali.
„Ég er aðeins byrjaður að leggja
drög að lagavalinu, en ætla að reyna
að koma fólki á óvart og vera um leið
í rífandi stuði. Ég hugsa þó að ég
muni leggja meiri áherslu á fram-
komu en tónlist,“ segir hann og bæt-
ir við að búningaleit standi enn yfir.
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
mun taka að sér að þeyta skífum
Aðstandendur Aldrei fór ég suður og Ísafjarðarbær undirrita „stuðsamning“
Guðmundur
Gunnarsson
Ljósmynd/ Halldór Sveinbjörnsson
Rokkhátíð Mugison var fyrstur á svið þegar Aldrei fór ég suður var sett í
gang árið 2013, en hátíðin er fyrir löngu orðin ein sú vinsælasta hér á landi.
Ole Anton Bielt-
vedt, forstjóri
Enox, vísar á bug í
yfirlýsingu ásök-
unum og fullyrð-
ingum Neyt-
endastofu um að
Safe-Kid-One-
barnasnjallúrin séu óörugg. Þetta
kom fram á mbl.is í gær.
Yfirlýsing Ole er send í kjölfar
fréttar Morgunblaðsins þar sem
greint var frá því að fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefði innkallað Enox-snjallúr ætluð
börnum. Innköllunin var gerð í
framhaldi af rannsókn og ákvörðun
Neytendastofu.
Ole segir í yfirlýsingu að ákvörð-
un Neytendastofu hafi verið kærð
til áfrýjunarnefndar neytendamála
Þrátt fyrir að ekki sé komin nið-
urstaða í kærumálið þá hafi Neyt-
endastofa dreift upplýsingum um
þessa innköllun um allan heim.
„Væntanlega til að slá sjálfa sig til
riddara,“ segir í yfirlýsingunni þar
sem bent er á að úrið hafi verið
prófað, viðurkennt og sala á því
leyfð af Bundesnetzagentur í
Þýskalandi. ge@mbl.is
Telja Enox
úrin örugg
Persónuvernd hefur óskað eftir því
að fá afhentar upptökur af barnum
Klaustri frá 20. nóvember síðast-
liðnum þegar sex þingmenn Mið-
flokksins og Flokks fólksins sátu þar
drykklanga stund og töluðu um sam-
starfsmenn sína og aðra með niðr-
andi hætti. Persónuvernd óskar
sömuleiðis eftir því að fá afrit af
upptöku Báru Halldórsdóttur sem
tók upp samtal þingmannanna.
Á vef Persónuverndar segir að nú,
þegar krafa um sönnunarfærslu fyr-
ir dómi er ekki lengur til úrlausnar
dómstóla, hafi Persónuvernd haldið
meðferð málsins áfram.
Með þessu verður Persónuvernd
við beiðni þingmannanna sem segja
skýringar Báru á upptökunni ótrú-
verðugar. Þeir fóru fram á að Per-
sónuvernd afl-
aði myndefnis,
sem sýndi
mannaferðir
fyrir utan hót-
elið Kvosina og
veitingastaðinn
Klaustur.
Þetta kemur
fram í bréfi
Reimars Pét-
urssonar, lög-
manns þeirra fjögurra þingmanna
Miðflokksins sem sátu á Klaustri, til
Persónuverndar.
Niðurstöðu í málsmeðferðinni er
að vænta í fyrsta lagi um næstu mán-
aðamót að því er segir á vefsíðunni
og þar segir einnig að málið sé í
hefðbundnum farvegi.
Persónuvernd óskar
eftir Klausturupptökum
Klaustur Óskað er
eftir upptökum.