Morgunblaðið - 07.02.2019, Side 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019
Svefnleysi er nokkuð algengtvandamál en talið er að um6-10% fullorðinna í vest-rænum löndum uppfylli
greiningu fyrir langvarandi svefn-
leysi. Í talnabrunni Landlæknis frá
2018 kemur fram að um tveir af
hverjum þremur fullorðnum Íslend-
ingum, eða 67%, fái nægan svefn eða
um 7-8 klukkustundir á nóttu. Rúm-
ur fjórðungur fullorðinna fær því of
lítinn svefn, það er sex klukkustund-
ir eða minna, og eru þar fleiri karlar
en konur.
Mun fleiri upplifa hinsvegar
skammvinnan vanda eða ýmis ein-
kenni svefnleysis. Flestir hafa ein-
hverntíma upplifað að geta ekki
sofnað á kvöldin, vaknað upp á næt-
urnar eða vaknað mun fyrr en ætl-
unin var.
Streita er algeng skýring
Svefnleysi getur átt sér ótal mis-
munandi orsakir. Stundum virðist
það koma upp úr þurru en oft er
hægt að finna skýringar út frá því
sem er að gerast í lífi hvers og eins.
Streita er algeng skýring á bráðu
svefnleysi og getur það verið tengt
við alvarlegar áhyggjur, sorg,
hjónabandsörðugleika, erfiðleika í
vinnu eða álag í skóla. Einnig geta
andleg vandamál í tengslum við
þunglyndi og kvíða valdið svefnleysi.
Þá má ekki gleyma hinum ýmsu
lyfjum sem hafa áhrif á svefn, svo
sem sterar og lyf sem virka örvandi
á miðtaugakerfi, ásamt áfeng-
isnotkun og koffínneyslu.
Óregla í svefnmynstri, hreyfing-
arleysi og mikil skjánotkun geta
einnig valdið svefnleysi. Einnig er
hópur fólks með svefntruflanir án
skýringa. En þrátt fyrir að ástæða
finnist fyrir svefnleysinu og álags-
tímabilið gangi yfir þróast svefn-
vandinn áfram hjá sumum og verður
að langvinnum vanda. Fólk festist
gjarnan í vítahring svefnleysis sem
leiðir af sér vanlíðan og áhyggjur yf-
ir ástandinu. Þá er hætt við að fólk
reyni að bæta sér upp erfiðar nætur,
til dæmis með því að leggja sig á
daginn eða fara mjög snemma í
rúmið á kvöldin til að hámarka líkur
á að sofna á tilsettum tíma. Þetta
veldur því að fólk ver oft mjög mikl-
um tíma í rúminu til þess að reyna
að sofna og fá hvíld. Það verður hins
vegar gjarnan til þess að svefn-
þrýstingur minnkar, erfiðara er að
sofna og því viðhelst svefnleysi til
lengri tíma. Því er mikilvægt að að-
stoða fólk við að komast á rétta
braut aftur ásamt því að veita
grunnorsök svefnleysisins viðeig-
andi meðferð ef það á við.
Langtímanotkun
svenflyfja ekki æskileg
Undanfarna áratugi hafa úrræði
við svefnleysi verið í stöðugri þróun.
Nýjar leiðbeiningar um meðhöndlun
á svefnleysi benda á að hugræn at-
ferlismeðferð við svefnleysi (HAM-
S) ætti að vera fyrsta val um með-
ferð langvarandi svefnleysis. Hægt
er að komast í meðferð hjá sálfræð-
ingum á stofu en einnig er boðið upp
á netmeðferð í gegnum vefinn betr-
isvefn.is. Oft er hinsvegar gripið til
svefnlyfja sem fyrsta úrræðis.
Svefnlyf geta verið gagnleg í stuttan
tíma til að meðhöndla brátt og
skammvinnt svefnleysi en langtíma-
notkun er ekki æskileg. Íslendingar
nota mikið af svefnlyfjum saman-
borið við hin norrænu löndin en
óvíst er hvað veldur þessari miklu
notkun. Nokkrar tegundir af lyfjum
eru gjarnan notaðar sem svefnlyf og
ber þá helst að nefna hin týpísku
svefnlyf imovane og stilnoct ásamt
kvíðastillandi lyfjum (benzódíazep-
ínum) en einnig eru notuð ofnæm-
islyf sem hafa þá aukaverkun að fólk
verður syfjað, ásamt melatónín og
geðlyfjum.
Öllum þessum lyfjum fylgja ýms-
ar aukaverkanir svo sem syfja og
doði á daginn, jafnvægisskortur og
minnistruflanir sem geta leitt til
þess að einstaklingar detta og hljóta
beinbrot, lenda í umferðarslysum og
fleira. Þolmyndun á sér einnig stað
sem gerir það að verkum að ein-
staklingur þarf stærri skammt með
tímanum til að geta sofnað.
Getty Images/Thinkstock
Blundur Um tveir af hverjum þremur fullorðnum á Íslandi fá nægan svefn eða um 7-8 klukkustundir á nóttu.
Föst í vanlíðan og áhyggjum
í vítahring svefnleysisins
Heilsuráð
Tinna Karen Árnadóttir, sérnámslæknir
í heimilislækningum, Heilsugæslunni
Árbæ og Erla Björnsdóttir, sálfræð-
ingur og nýdoktor, HR.
Erla
Björnsdóttir
Tinna Karen
Árnadóttir
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins.
Þema Borgarskjalasafns Reykjavíkur
á Safnanótt á föstudagskvöld er
Strætisvagnar Reykjavíkur. Saga fyr-
irtækisins verður sýnd í skjölum og
ljósmyndum . Einnig verður farið yfir
starfsemi Ársels, sem er frístunda-
miðstöð Árbæjar, Grafarholts og
Norðlingarholts. Þá verður í safninu
sýnd kvikmyndin Það er leikur að
læra þar sem gefst tækifæri til að sjá
daglegt skólahald í Miðbæjarskól-
anum í Reykjavík á miðri síðustu öld.
Þá verða á safninu tónleikar þar sem
fram koma Strætókórinn, Svavar
Knútur og Gipsy tríó.
Borgarskjalasafnið er í Grófarhús-
inu við Tryggvagötu og þar er opið á
safnanótt milli kl. 18 og 23.
Borgarskjalasafnið
Strætósýning
á Safnanótt
Strætisvagn Á því herrans ári 1979.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Stórleikarinn og
söngvarinn Jó-
hann Sigurðarson
leikari og söngv-
ari syngur gömul
og ný sjómanna-
lög á fyrstu hæð
Sjóminjasafnsins
við Grandargarð í
Reykjavík á
Safnanótt á
morgun, milli kl.
kl. 20 og 21. Ástvaldur Traustason
leikur með á píanó. – Safnið verður
opið milli kl. 19 og 21 og verður margt
til gamans gert, enda kennir margra
grasa í safninu. Má þar meðal annars
nefna varðskipið Óðin, sem er til sýn-
is.
Sjóminjasafnið
Jóhann syngur
og Óðinn opinn
Jóhann
Sigurðarson
TJARNARBÍÓ|LAUGARDAG 9. FEB.|12-16
Fulltrúar frá eftirtöldum skólum verða til viðtals:
ARTS UNIVERSITY BOURNEMOUTH • BOURNEMOUTH UNIVERSITY
CAMBERWELL COLLEGE OF ARTS • CENTRAL SAINT MARTINS • CHELSEA
COLLEGE OF ARTS • LONDON COLLEGE OF FASHION • LONDON COLLEGE
OF COMMUNICATIONS • WIMBLEDON COLLEGE OF ARTS • ISTITUTO
EUROPEO DI DESIGN (ITALIA & SPAIN) • LEEDS ARTS UNIVERSITY • MET
FILM SCHOOL (LONDON & BERLIN) • EU BUSINESS SCHOOL BARCELONA
12:00-12:45 Örnámskeið “Portfolio Preparation”.
13:00-15:00 Reynslusögur; Fyrrverandi nemar segja frá.
13:00-16:00 Viðtöl „maður á mann” við fulltrúa skóla.
Sjá nánar dagskrá: lingo.is/frettir
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Frá kr.
125.395
Madeira
Fallega blómaeyjan
Beint flug & gisting á Hotel Jardins d'Ajuda
29.apríl í 10 nætur
Allt um sjávarútveg