Morgunblaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Áformað er að taka nýtt hótel á Landssímareitnum í notkun haustið 2020. Uppbyggingin á reitnum nær til níu bygginga eða byggingarhluta og snýr hluti þeirra að tveimur torgum í miðborginni. Stærsta byggingin á reitnum verð- ur 145 herbergja Icelandair-hótel. Það verður há- gæðahótel með margvíslegri þjónustu. Sam- kvæmt heimildum blaðsins má ætla að herbergi á slíku hóteli í mið- borginni kosti ekki undir 40 milljónum. Miðað við það kostar hótelið eitt og sér á sjötta milljarð í byggingu. Þar munu starfa um 60 manns, auk starfa sem verður úthýst og starfa hjá öðrum fyrirtækjum á reitnum. THG Arkitektar fara með hönnun Landssímareitsins. Þeir hafa áður unnið með Icelandair-hótelun- um, meðal annars við hönnun Ice- landair-hótelsins Reykjavík Marina við Slippinn í Reykjavíkurhöfn. Nær til margra bygginga Freyr Frostason, hönnunarstjóri THG Arkitekta, segir teikninguna hér til hliðar endurspegla nýjustu hugmyndir um skipulag á reitnum. Þær hafi verið nokkur ár í mótun. „Það má segja að við séum að vinna með níu mismunandi byggingar. Þrjár af þeim eru alfriðuð hús; Thor- valdsensstræti 2, sem er gamli Kvennaskólinn, Vallarstræti 4, sem er gamla bakaríið, og Aðalstræti 7, sem er gula húsið á horninu. Þessi hús verða endurbyggð í upprunalegri mynd. Við erum búin að skila teikn- ingum og fá öll leyfi fyrir þessum hús- um í góðu samráði við Minjastofnun og þeirra arkitekta.“ Freyr segir aðspurður að áfram verði timburklæðning á gamla Kvennaskólanum. Þá verði timbur- klæðning á Aðalstræti 7 og Báru- járnsklæðning á Vallarstræti 4, í sam- ræmi við upprunalegar byggingar. Þá verði gamli samkomusalurinn í Sjálfstæðishúsinu endurbyggður í upprunalegri mynd. Á húsinu verði álklæðning og bárujárnsklæðning. Veitir birtu inn í götuna Jafnframt verði sett upp ljósaskilti meðfram útvegg í Vallarstrætinu sem auglýsa viðburði í húsinu, líkt og al- gengt sé í leikhúsum. Sá ljósakassi muni veita birtu í götuna. „Við ætlum að gera upp gamla Landssímahúsið, eitt glæsilegasta húsið við Austurvöll, og fara aftur í upprunalegu pússninguna og hvít- mála. Það var pússað hús og grámál- að í byrjun en svo steinað seinna. Við erum líka að horfa til þess að taka alla utanhússlýsingu í gegn,“ segir Freyr um fyrirhugaðar breytingar. Varðandi fyrirhugaðar nýbygging- ar við Kirkjustræti verði klæðningin sambland af bárujárni og læstum sinkklæðningum. Búið sé að binda niður þakgerðir, stærðir á kvistum og svo framvegis í deiliskipulagi frá árinu 2013. Öll hönnun bygginga byggist á samþykktu deiliskipulagi frá 2017. Á jarðhæð nýbyggingar í Kirkju- stræti verði inndreginn veggur, hlað- inn úr hellustein líkt og Alþingishús- ið. Framhliðin verði þrískipt eins hún væri þrjár byggingar. „Við erum að draga efni, form og liti úr umhverfinu og reynum að endurspegla það í þessu húsi,“ segir Freyr en ál- og sinkklæðningar verða líka á húsum á þeirri hlið reitsins sem snýr að Víkurgarði. Á þeim hluta sem snýr að Ingólfs- torgi og Vallarstræti er lögð áhersla á að viðhalda fjölbreytileika og smá- gerðum mælikvarða byggðar. Opna hótel hjá Alþingi 2020  Stefnt er að því að opna 145 herbergja glæsihótel við Austurvöll haustið 2020  Hluti af uppbyggingu sem nær til níu bygginga og byggingarhluta  Jarðhæð hótelsins á að tengja gesti við menningu borgar INGÓLFSTORG Ve rs l a n i r G a m l a ba ka r í i ð Ve rs l a n i r o g ve i t i n ga r Sa m ko m u sa l u r G a m l i N a sa - sa l u r i n n e n d u r byg g ð u r M e n n i n ga r- o g ve i t i n ga h ú s G a m l i Kve n n a - s k ó l i n n Ve i t i n ga - sta ð u r á j a r ð h æ ð G a m l a L a n d s - s í m a h ú s i ð Ve i t i n ga st a ð i r Móttaka og ba r/ ka f f i h ú s Þ j ó n u st u r ý m i Í b ú ð a h ú s Ve rs l a n i r o g ve i t i n ga r á j a r ð h æ ð G ö n g u á s /v i ð b u r ð a r ý m i G ö n g u le ið AUSTUR- VÖLLUR KIRKJUSTRÆTI VALLARSTRÆTI VÍKURGARÐUR A Ð A L S T R Æ T I T H O R V A L D S E N S S T R Æ T I Fyrirhuguð uppbygging á Landssímareit Horft til vesturs frá Kirkjustræti Mynd: THG Arkitektar Grunnkort: THG Arkitektar 145 herbergi verða á hótelinu 11.000 fermetrar er áætluð heildarstærð hótelsins 2020 Stefnt er að verk- lokum og opnun hótelsins árið 2020 16 nýjar íbúðir Hótel, verslanir, veitingastaðir og íbúðir í 9 mismunandi byggingum/byggingarhlutum 4 8 16 12 10 8 108b 7 4 2 4 6 119 Horft frá Aðalstræti/Víkurgarði Hér má m.a. sjá drög að glerbyggingu. Freyr Frostason Horft frá Ingólfstorgi Hér má sjá drög að byggingum við Vallarstræti. Uppbyggingin mun setja svip á torgið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.