Morgunblaðið - 07.02.2019, Síða 34

Morgunblaðið - 07.02.2019, Síða 34
34 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 SVIÐSLJÓS Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Hart er barist á afþreyingarmark- aðinum og nú hefur bandaríska efn- isveitan Netflix ákveðið að bjóða helstu keppinautum sínum birginn og er helsta skotmarkið tölvu- leikjaveitan Fortnite. Netflix hefur drottnað á þessum markaði en hefur samt stigið skref til aukinna gagnvirkra samskipta í því augnamiði að koma í veg fyrir flótta áskrifenda yfir til annars af- þreyingarefnis á borð við Epic Games, Fortnite og Microsoft Xbox. Forstjóri Netflix, Reed Hastings, ræddi um samkeppnina í streymi vídeóleikja nú í janúar er hann gerði 140 milljónum áskrifenda um heim allan grein fyrir ársfjórðungslegri afkomu fyrirtækisins. „Ég lít á þetta sem svo að við auk- um við okkur í afþreyingarefni frá öðrum efnisveitum … Xbox, Fort- nite eða HBO, já löngum lista,“ sagði Hastings. „Við keppum við all- ar þessar efnisveitur á breiðum grunni.“ Dag hvern er horft á milljarð klukkustunda af sjónvarpsefni í Bandaríkjunum og er hlutdeild Net- flix í því um tíund, að sögn Hastings. Hann var spurður um áætlanir Disney fyrirtækisins um að hefja streymi á sjónvarpsefni síðar á árinu og draga til sín girnilegt efni á borð við hina gríðarlega vinsælu þætti með Marvel-hetjunum. Þessu svaraði hann ekki beint en talaði í staðinn um hvernig neytendur verja tíma sínum fyrir framan sjónvarps- tækin, og nefndi í því sambandi gagnvirka leiki og rafíþróttir á borð við Fortnite. Stríð um tíma „Hugmyndin er sú að tími til áhorfs er mun takmarkaðri en pen- ingar eru. Því er eina leiðin til að þéna peninga að fá fólk að skjánum til þátttöku og gefa sig að henni,“ sagði sérfræðingur NDP Group um tölvuleiki, Mat Piscatella, við AFP- fréttastofuna. Microsoft hefur einbeitt sér sér- staklega að því að fjölga áskrif- endum og fá þá til að verja meiri tíma við Xbox leikjatölvur. Tækni- risinn vinnur að því að streyma leikjum úr netskýjum sínum. Twitch, sem er í eigu Amazon- fyrirtækisins, stærir sig af því að streyma leikjum á netinu til fjöl- mennari hópa en Netflix. „Áhuginn virðist bara aukast,“ sagði Piscatella um notkun tölvuleikja sem spilaðir eru með fjölda mismunandi net- tengdra tækja. „Fólk virðist skemmta sér meira með þátttöku fremur en halla sér aftur í sætinu og halda að sér höndum þótt það eigi sinn tíma líka. Netflix hefur um skeið haft áhuga á að auka á gagnvirkni í sjónvarps- leikjum og sendi nýverið frá sér sér- stakan gagnvirkan þátt í þáttaröðinni Black Mirror sem býður áhorfendum upp á visst val sem hefur áhrif á framvindu sög- unnar. Piscatella segir þetta bara byrjunina á einhverju stærra og meira af hálfu Netflix. „Það verður gaman að fylgjast með því.“ Stjórnendur Netflix hafa heitið fjölgun gagnvirkra þátta. „Þessi fær sögumenn til að seyta munnvatni,“ segir efnisstjóri Netflix, Ted Sar- andos, um gagnvirka Black Mirror- þáttinn. Erfið samkeppni Tölvu- og vídeóleikir kunna að keppa við svefnþörfina um tíma fólks en efnisveiturnar standa betur í raunverulegri samkeppni við Net- flix, segir greinandinn Paul Verna hjá eMarketer. Hann álítur ólíklegt að Fortnite sé raunverulegur keppi- nautur Netflix um frístundir fólks, sem hefur úr víðtæku vali skemmti- efnis að moða. Heldur séu streym- isveitur á borð við Hulu, HBO Now og Amazon Prime lífvænlegri og raunverulegri keppinautar fyrir Netflix. Hann telur að efnisveita sú standi frammi fyrir mun alvarlegri samkeppni frá streymisþjónustu sjónvarpsstöðva en Fortnite, Fa- cebook Watch og YouTube. „Það sem Netflix ætti að hafa áhyggjur af eru beinir keppinautar og þjónustur sem koma til sögunnar innan árs,“ sagði Verna. Sumar þeirra munu koma með hvelli með öflug fyrirtæki á bak við sig, svo sem Disney. Munu þau draga efni sitt frá Netflix og laða til sín eigin áskrifendur. En þrátt fyrir samkeppnina segir Verna Netflix standa styrkum fót- um sem leiðandi efnisveita sjón- varpsefnis. Netflix hefur í auknu mæli lagt áherslu á að framleiða eigið efni og hafa kvikmyndir og þáttaraðir sem fyrirtækið hefur framleitt notið tals- verðrar velgengni. Má þar m.a. nefna kvikmyndina Roma sem vann Golden Globe-verðlaun og fékk til- nefningar til Óskarsverðlauna, með- al annars sem besta kvikmynd árs- ins. „Þeir sigla með góðan byr í segl- um,“ sagði Verna um Netflix. „Það táknar þó ekki að samkeppnin sé ekki mikil og að ekki muni hægja á vexti fyrirtækisins. En ég býst við því að það verði áfram í farar- broddi.“ Netflix með Fortnite í sigtinu AFP Roma Ferðamenn taka myndir við húsið þar sem kvikmyndin Roma var tekin upp í Mexíkóborg. Myndin hefur fengið góða dóma, notið hylli áhorfenda og verið tilnefnd í 10 flokkum Óskarsverðlaunanna. Eru það fyrstu slíku tilnefningarnar sem efnisveitunni Netflix hlotnast sem kvikmyndaframleiðandi.  Margir berjast um hituna í afþreyingariðnaðinum  Netflix hefur hug á að bæta við framboð sitt  Búast má við meiri áherslu á gagnvirkt sjónvarpsefni  Áskrifendur Netflix um 140 milljónir Netflix Fyrirtækið hefur í auknum mæli lagt áherslu á að framleiða eigin þætti og myndir. Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Misty ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA 20-40% afsláttur Undirföt, náttfatnaður og aðhaldsfatnaður

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.