Morgunblaðið - 07.02.2019, Síða 39

Morgunblaðið - 07.02.2019, Síða 39
FRÉTTIR 39Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 Með innblæstri frá birtunni í Provence, skapaði L’OCCITANE hið nýja Immortelle Reset sem býr yfir kröftugri blöndu náttúrulegra innihaldsefna. Gullin hylki sem búa yfir kröftum Immortelle ilmkjarnaolíunnar, fljóta í einstöku serumi úr kryddmæru sem hjálpar húð þinni að endurnýja sig eftir erilsaman dag. Sýnilegan mun má sjá á húðinni sem virðist ÚTHVÍLD og FERSK. loccitane.com ÚTHVÍLD OG ENDURNÆRÐ VAKNAÐU MEÐ FERSKA OG GEISLANDI HÚÐ #HelloGoldMorning Kringlan 4-12 | s. 577-7040 Norður-Makedónía færðist skrefi nær aðild í Atlantshafsbandalaginu í gær þegar fulltrúar ríkisins und- irrituðu aðildarsáttmála bandalags- ins. Jens Stoltenberg, fram- kvæmdastjóri bandalagsins, sagði að dagurinn væri sögulegur, en hin 29 ríki bandalagsins eiga enn eftir að staðfesta inngöngu Makedóna. Gæti það ferli tekið allt að ár. Fulltrúar Atlantshafsbandalags- ins og Evrópusambandsins fögnuðu skrefinu í gær og sögðu það geta ýtt undir meiri stöðugleika á Balkan- skaga. Nikola Dimitrov, utanríkis- ráðherra Norður-Makedóníu, sagði að aðildin myndi gera landið örugg- ara. „Það sem skiptir máli fyrir okk- ur er að við munum aldrei þurfa að ganga alein aftur og við stöndum við hlið þessara 29 bandamanna okkar reiðubúin til að sinna þeim skyldum sem fylgja fullri aðild.“ Tók Dimit- rov sérstaklega fram að Norður- Makedónía ætlaði sér að verja 2% af þjóðarframleiðslu til varnarmála fyrir árið 2024. Makedónía og Grikkland leystu í síðasta mánuði langvarandi milli- ríkjadeilu sín á milli er stafaði af nafni fyrrnefnda landsins, þegar nafni þess var formlega breytt í Norður-Makedónía. Féllust Grikkir í kjölfarið á að standa ekki lengur í vegi fyrir aðild Makedóna að Atl- antshafsbandalaginu og ESB. Vék Stoltenberg að samkomulagi ríkjanna í gær og óskaði báðum löndum til hamingju með að hafa sýnt hugrekki til þess að leysa deil- una. „Við getum nú horft til framtíð- arinnar,“ sagði Stoltenberg. Norður-Makedónía í NATO AFP Varnarmál Dimitrov og Stoltenberg takast í hendur að lokinni athöfn.  Verður 30. ríkið til að ganga í Atlantshafsbandalagið Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is „Meginvandamálið var öryggis- ástandið og há glæpatíðni. Á þessum tíma var dóttir mín eins árs. Allt frá aldamótum hafði verið gríðarleg fjölgun mannrána og ég óttaðist að lenda í því að ein- hverjum úr fjöl- skyldunni yrði rænt, að ganga í gegnum það var hrikaleg tilhugs- un. Þess vegna fórum við,“ segir Maikol Genovese, en hann yfirgaf Venesúela ásamt dóttur og eiginkonu árið 2010. Hann komst ásamt fjölskyldu sinni fyrst til Mið-Austurlanda þar sem hann starf- aði um tíma og settist síðar að í Bandaríkjunum. Spurður hvernig staða öryggis- mála sé nú segir hann að dregið hafi úr tíðni mannrána, en aðallega vegna þess að það eigi enginn neina pen- inga. „Lausnargjöldin eru núna einn þriðji af því sem þau voru fyrir tíu ár- um.“ Maikol tekur þó fram að gríð- arleg örvænting fólks hafi leitt til þess að margir hafi þurft að fremja glæpi til þess að hafa í sig og á. „Ástandið er svo slæmt að ættingjar mínir búa eiginlega við útgöngubann alla daga þar sem fólk þorir ekki út, það er of hættulegt. Fólk sem var í millistétt er núna lágtekjufólk og býr við fátækt. Aðstæður eru svo hrika- legar, ég hef ferðast um Suður- og Mið-Ameríku mikið síðustu átján mánuði og þar hitti ég alstaðar fólk frá Venesúela, fólk úr öllum stéttum.“ Tólf tíma í röð Móðir Maikols og frænka búa ennþá í Karakas, höfuðborg landsins, og tengdafjölskyldan utan höfuð- borgarinnar. Bróðir hans og fjöl- skylda hafa hins vegar komist til Bó- góta í Kólumbíu. „Mamma mín stendur í röð í tólf tíma til þess að fá einn poka af hrísgrjónum og það er erfitt að hugsa til þess að fólk þurfi að lifa svona,“ segir Maikol sem segist reglulega senda varning til fjölskyldu og tengdafjölskyldu sinnar í Vene- súela. „Við sendum öll föt sem við erum hætt að nota, hluti sem við myndum undir venjulegum kringumstæðum gefa Hjálpræðishernum. Við vitum að þetta eru hlutir sem ættingjar okkar geta notað eða fólk sem þeir þekkja. […] Við reynum líka að senda matvæli eins og túnfisk, dósamat, hrísgrjón. Við sendum líka hunda- og kattamat, hann er orðinn svo dýr að fólk hendir gæludýrunum sínum út vegna þess að það hefur ekki efni á því að gefa þeim að borða. Þetta er al- veg ótrúlegt,“ útskýrir hann og harmar það að varningi sem þau senda hefur oft verið stolið. Fólk þekkir ekki staðreyndir „Ég held að stjórnarandstaðan sé að taka rétt skref þar sem hún er að framfylgja ákvæðum stjórnarskrár- innar. En það er ekki nóg að hafa lög- in sín megin, það þarf líka stuðning hersins,“ segir Maikol. Spurður hvað honum finnist um það að sumir íbúar Vesturlanda telji núverandi ástand vera sökum óeðlilegrar aðkomu Bandaríkjanna, svarar hann: „Ég reyni að láta það ekki hafa áhrif á mig, því ég skil að það er söguleg ástæða að baki afstöðu þeirra en þetta fólk þekkir ekki staðreyndir málsins. Það er í raun skammarlegt ef fólk hugsar þannig að ef þetta sé frá hægri þá hljóti þetta að vera slæmt því ég er sjálfur til vinstri. Þetta snýst ekki um hægri og vinstri, þetta snýst um rétt og rangt. Oft standa mál bara þannig að önnur hliðin hefur rangt fyrir sér,“ bætir hann við. Um framhaldið segir hann trúlegt að eitthvað gerist á þessu ári, en að það verði á næstu mánuðum, ekki næstu daga. Hann segir jafnframt mikilvægt að hægt verði að leita sátta milli fylkinga, en það verði aðeins hægt ef ný ríkisstjórn kemst til valda, skipar lögmætan hæstarétt og heiðarlega kjörstjórn. AFP Örvænting Mikil mótmæli hafa geisað undanfarið í Venesúela og hafa þús- undir flúið land vegna efnahagsástandsins. Þrýst er á nýjar kosningar. Senda vistir til Venesúela  Mikilvægt að leita sátta milli fylkinga Maikol Genovese

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.