Morgunblaðið - 07.02.2019, Qupperneq 43
UMRÆÐAN 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019
Á vordögum mun
Félag um átjándu ald-
ar fræði fagna 25 ára
afmæli. Félagið var
stofnað 9. apríl árið
1994 og hefur vaxið og
dafnað í áranna rás.
Félagsmenn eru nú
tæplega 340 talsins. Á
ári hverju heldur fé-
lagið þrjú málþing, í
febrúar, apríl/maí og í
október. Um næstu
helgi, laugardaginn 9. febrúar,
verður fyrsta málþing þessa árs,
undir yfirskriftinni „Utangarðsfólk
á átjándu öld“, haldið í Þjóðar-
bókhlöðunni, fyrirlestrasal á 2. hæð,
auk þess sem afmæli félagsins
verður fagnað. Málþingið hefst kl.
13.30 og því lýkur eigi síðar en kl.
16.45.
Félag um átjándu aldar fræði er
þvervísindalegt fræðafélag sem hef-
ur það að markmiði að efla og
kynna rannsóknir á sviði átjándu
aldar fræða og skyldra efna (á sum-
um málþingum hefur viðfangsefnið
einnig lotið að sautjándu eða
nítjándu öld), m.a. með því að halda
fræðafundi. Þeir sem kynnst hafa
starfi félagsins, setið á málþingum
þess og farið í sumarferðir þess,
vita að starfið einkennist síst af öllu
af þurrum fræðsluerindum heldur
þvert á móti af líflegum og jákvæð-
um fræðsluanda.
Viðfangsefni á málþingum félags-
ins eru mjög fjölbreytt. Á undan-
förnum árum hefur m.a. verið
fjallað um kveðjur og kveðjusiði,
sögulegar skáldsögur, sögu Bessa-
staða, gamansemi Íslendinga, hagi
kvenna, hallæri og hörmungar, svo
og ástir og örlög. Málþing um sjúk-
dóma, lýðheilsu og aðra þætti heil-
brigðismála, fornleifarannsóknir,
bókmenntir, raunvísindi, húsakynni
og híbýlaprýði, svo og listir hafa
einnig verið haldin. Mannlíf átjándu
aldar hefur verið skoðað frá ýmsum
sjónarhornum. Frægir einstak-
lingar í sögunni hafa til dæmis ver-
ið umræðuefni á málþingum. Þar
má nefna ensku skáld-
konuna Jane Austen,
þýska stórskáldið og
vísindamanninn Jo-
hann Wolfgang von
Goethe, Jörgen Jörg-
ensen, sem betur er
þekktur sem Jörundur
hundadagakonungur,
og upplýsingarmann-
inn Jean-Jacques Ro-
usseau. Þekktir ís-
lenskir embættismenn,
sem fjallað hefur verið
um, eru m.a. Skúli
Magnússon landfógeti,
Finnur Jónsson Skálholtsbiskup,
Magnús Ketilsson sýslumaður,
Stefán Þórarinsson amtmaður og
Fjölnismaðurinn séra Tómas Sæ-
mundsson. Þá er félaginu kappsmál
að kynna reglulega nýjar rann-
sóknir í sagnfræði og unga fræði-
menn sem eru að stíga sín fyrstu
skref á fræðilegum vettvangi.
Vel hefur tekist til með að fá
góða fyrirlesara til að tala á mál-
þingunum. Þeir hafa komið úr ólík-
um fræðigreinum, jafnt af sviði
hugvísinda og raunvísinda. Um
langt árabil hafa málþingin, sem að
jafnaði eru haldin í fyrirlestrasal á
2. hæð í Þjóðarbókhlöðu, verið fjöl-
sótt. Sú hefð hefur skapast að hafa
langt kaffihlé að loknum tveimur
erindum. Þá eru veitingar í boði fé-
lagsins.
Á síðasta málþingi félagsins,
„Um kveðjur og kurteisi á átjándu
og nítjándu öld“, bar góðan gest að
garði þegar enski sagnfræðingurinn
Penelope J. Corfield hélt erindi.
Hún er varaforseti heimssamtaka
félaga um átjándu aldar fræði, Int-
ernational Society for Eighteenth-
Century Studies, sem íslenska fé-
lagið á aðild að.
Öllum þeim sem áhuga hafa á
átjándu aldar fræðum er velkomið
að skrá sig í félagið. Málþing fé-
lagsins eru hins vegar öllum opin
sem og hinar árlegu sumarferðir.
Á afmælisárinu verður margt
spennandi á dagskrá. Meðal annars
geta félagsmenn sótt heimsþing
International Society for Eight-
eenth-Century Studies, sem haldið
verður í Edinborg dagana 14.-19.
júlí. Heimssamtökin halda fjölmenn
þing fyrir félagsmenn allra aðildar-
þjóða fjórða hvert ár. Reglulega
eru einnig haldin málþing á vegum
Norðurlandafélaganna fimm.
Eins og áður greinir verður ald-
arfjórðungsafmæli félagsins fagnað
á laugardaginn kemur, samhliða því
að haldið verður fyrrgreint málþing
um utangarðsfólk á átjándu öld.
Lítilli afmælisveislu verður slegið
upp í kaffihléi í tilefni af 25 ára far-
sælu starfi.
Á málþinginu mun Ólöf Garðars-
dóttir, prófessor í sagnfræði við
Menntavísindasvið Háskóla Íslands,
fjalla um flakkara og förufólk; Sig-
ríður Hjördís Jörundsdóttir, dokt-
orsnemi í sagnfræði við Háskóla Ís-
lands, mun fjalla um niðursetninga
á árinu 1703; Erla Dóris Halldórs-
dóttir, doktor í sagnfræði og hjúkr-
unarfræðingur, mun segja frá
holdsveikum í íslensku samfélagi á
átjándu og nítjándu öld; og Stein-
unn Kristjánsdóttir, prófessor í
fornleifafræði við Háskóla Íslands,
mun segja frá nýjum rannsóknum
sínum á stöðu þeirra sem minna
máttu sín í samfélaginu í erindi sem
hún nefnir „Eyvindarmál hin fyrri
– um afdrif þjófa og utangarðsfólks
á sautjándu og átjándu öld“.
Blómlegt starf Félags um
átjándu aldar fræði í 25 ár
Eftir Margréti
Gunnarsdóttur » Félag um átjándu
aldar fræði fagnar
25 ára afmæli um þessar
mundir og heldur mál-
þing á laugardaginn.
Margrét
Gunnarsdóttir
Höfundur er formaður Félags um
átjándu aldar fræði.
Hinn æðri máttur
mannsins, sköp-
unarkraftur verald-
arinnar, sá kraftur,
sem fær sólir til að
lýsa og hnetti að snú-
ast, gaf mönnunum í
fornöld boð um að vera
frjósamir og fjölga sér.
Þeir höfðu heila jörð
til að uppfylla.
Sáðkornin bíða eftir
því að fá að komast í
móður jörð og spíra. Sekkir sáð-
mannanna yfirfullir og akurlöndin
tilbúin til sáningar.
Langt er síðan í fornöld og margt
breytt síðan þá. Nú er útsæði úr yf-
irfullum sekkjum hellt í gúmmíposa,
sem enda ferð sína úti í sjó eða sorp-
tunnum. Það sem af slysni spírar í
jörð er slitið upp með offorsi og
fræðilegri nákvæmni og hent út,
þótt sumt af því sé notað í ynging-
arkrem fyrir konur sem verða
kannski aldrei mæður og vilja prýð-
ast æskunnar ljóma um ómælda
framtíð.
Seinni tíma kynslóð hefur útbúið
uppskrift að lífsstíl sem er gagn-
stæður formúlu lífsins,
löggjafarvaldi himn-
anna. Það er vandamál
þessarar kynslóðar,
hörmungar þessa nú-
verandi jarðarmann-
kyns í víðáttu alheims.
Getnaðarvarnir, fóst-
ureyðingar og allur
annars konar ófrjósem-
islífsstíll eru náttúru-
hamfarir af mannavöld-
um og eru í raun ekki
annað en sjálfseyðing
þeirra manna, sem
ganga í berhögg við vilja sköpunar-
máttarins, sem trúað fólk hefur um
aldir og árþúsund kallað Guð.
Mannfellir
Eftir Einar Ingva
Magnússon
Einar Ingvi
Magnússon
» Getnaðarvarnir, fóst-
ureyðingar og allur
annars konar ófrjó-
semislífsstíll eru
náttúruhamfarir af
mannavöldum.
Höfundur er áhugamaður um
samfélagsmál.
einar_ingvi@hotmail.com
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk.
s: 781-5100
Opið: Mán-fim: 12-18
fös: 12-16
NÝ
SENDING
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostar
Íbúð
óskast
sem fyrst
Fjölskylda sem var að flytja heim
frá Svíþjóð óskar eftir 3ja-5 herbergja
íbúð á höfuðborgarsvæðinu.
Reglusöm og reyklaus.
Vinsamlega hafið samband við
Kristínu í síma 768 6986.