Morgunblaðið - 07.02.2019, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 07.02.2019, Qupperneq 44
Heillandi Förðunarlínan Fall Chroma er samstarf Lan- côme og Proenza Schouler. hvattar til að nota litina eins og þeim finnst þeir koma best út. ,,Proenza Schouler ýtir undir styrkleika kvenna og það er það sama og við hjá Lancôme höfum alltaf haft að leiðarljósi,“ segir Francoise Lehmann, stjórnandi hjá Lancôme. Chroma Eye Palette Augnskuggapallettur með 10 lit- um, bæði mattir og sanseraðir. Það skemmtilega við pallettuna er að helmingur augnskugganna er með kremaðri áferð en hinn helming- urinn með púðuráferð. Með mis- munandi áferð geturðu leikið þér með litadýpt og förðunin endist lengur. Augnskuggapalletturnar koma í tveimur litasamsetningum; Warm Chroma inniheldur hlýja litatóna en Cold Chroma býr yfir heldur kaldari tónum. Ombre Hypnôse Kajal Chroma Ein af mínum uppáhaldsvörum innan línunnar er Ombre Hypnôse Kajal Chroma en þessa kremuðu og endingargóðu formúlu má nota sem augnblýant, augnskugga, kol eða jafnvel til að búa til freknur á húðina. Kemur í fjórum litum; svörtum, brúnum, grábrúnum og blágrænum. Skemmtilegur varalitur sem býr yfir kajal á öðrum endanum og glossi á hinum. Kajal-inn má nota til að móta varirnar eða sem matt- an varalit og svo má setja glossið yfir eða nota eitt og sér. Með því að blanda áferðunum færðu sterka og grafíska útkomu. Kemur í fjór- um litatónum. Lip Kajal x Proenza Skemmtilegur varalitur með ka- jal á öðrum endanum og glossi á hinum. Kajal-inn má nota til að móta varirnar eða sem mattan varalit og svo má setja glossið yfir eða nota eitt og sér. Með því að blanda áferðunum færðu sterka og grafíska útkomu. Kemur í fjórum litatónum. L’Absolu Rouge x Proenza Innan línunnar eru fjórir varalit- ir með tveimur mismunandi áferð- um. Litirnir Minimal Red og Grap- hic Orange koma í flauelskenndum áferðum en Pure Nude og Abstract Burgundy hafa léttari þekju. Frönsk fegurð undir áhrifum New York Vortískan í förðun iðar af litagleði og þokka. Bleiki liturinn kemur sterkur inn. Vandað Ombre Hypnôse Kajal Chroma er krem- uð og endingargóð formúla á augun en Lip Kajal er varalitur með tvenns konar áferð. Litríkt Hægt er að blanda saman áferð varalitanna fyrir meira áberandi förðun. Allt bleikt Bleiki liturinn er áberandi á pakkningum snyrtivaranna. Allt í stíl Lancôme Juicy Shaker er fljótandi varalitur sem er léttur á vörunum og svo er hægt að toppa förðunina með naglalakki í stíl. Augnskuggar Chroma Eye Palette í litn- um Cold Chroma og Warm Chroma. Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenninn@gmail.com ,,Það er draumi líkast að við fáum að hanna snyrtivörulínu í samstarfi við svo þekkt lúxusmerki í snyrti- heiminum,“ segja Jack McCollough og Lazaro Hernandez en þeir eru stofnendur og aðalhönnuðir banda- ríska tískuhússins Proenza Schoul- er. Nýverið kom á markað snyrti- vörulínan Fall Chroma sem þeir unnu í samstarfi við franska snyrti- húsið Lancôme og er útkoman ferskt, litrík og frjálsleg. Pakkning- arnar grípa augað samstundis og er skarpur bleikur litatónninn áberandi. Hönnun Proenza Schouler end- urspeglar sterkan og frjálsan kven- leika sem kemur skýrt fram í förð- unarlínunni þar sem konur eru Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is Dermapen Vinnur á húðsliti og ör um Láttu fagfólkið á Húðfegrun sjá um þína húð á nýju ári! Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökum vel ámóti ykkur hudfegrun.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.