Morgunblaðið - 07.02.2019, Blaðsíða 48
Þegar frost
er á fróni
Þinn dagur, þín áskorunOLYMPIA
Sölustaðir:
Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Heimkaup
Verslunin Bjarg, Akranesi • JMJ, Akureyri • Lífland, Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði
Efnalaug Vopnafjarðar • Kaupfélag Skagfirðinga • Smart, Vestmannaeyjum • Kaupfélag V-Húnvetninga
Borgarsport, Borgarnesi • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Verslun Dóru, Hornafirði • Þernan, Dalvík
Siglósport, Siglufirði • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi
100% Merino
ullarnærföt
Stærðir: S–XXL
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.run.is
Kraftur fagnar á þessu ári 20 ára
afmæli sínu og því var brugðið á
það ráð að gefa LífsKraft út í
nýrri og nútímalegri mynd. „Okk-
ur fannst þetta bara viðeigandi.
Af því að það er svolítið bara
„fokk“ að greinast og „Fokk ég er
með krabbamein“ er jú oftast það
fyrsta sem kemur upp í kollinn á
fólki þegar það greinist með
krabbamein,“ segir Hulda Hjálm-
arsdóttir, framkvæmdastjóri
Krafts, um nafnið á bókinni er
hún mætti í viðtal til Loga og
Huldu í síðdegisþættinum á K100.
Tékklistar og hagnýtar
upplýsingar
LífsKraftur, eða bókin „Fokk
ég er með krabbamein“, inniheld-
ur hagnýtar upplýsingar fyrir ein-
staklinga sem greinst hafa með
krabbamein, aðstandendur þeirra
og vini. Tilgangur þessarar útgáfu
er að safna saman á einn stað
upplýsingum, fræðsluefni og
bjargráðum sem koma að gagni
fyrir ungt fólk með krabbamein og
aðstandendur. Því hafi verið leitað
til félagsmanna. „Til dæmis sett-
um við inn tékklista hvað á að
spyrja lækninn að í fyrsta viðtal-
inu. Og hvað á að taka með sér á
spítalann og fleira,“ útskýrir
Hulda. Því sé þetta góð upp-
flettibók og þarna sé til dæmis
kafli sem er bara fyrir aðstand-
endur, annar kafli fjallar um að
fara aftur í út lífið og svo fram-
vegis. „Þetta er því kannski ekki
bók sem þú lest frá A-Ö heldur
sem þú flettir í eftir tilefni hverju
sinni.“
Bókin kom fyrst út árið 2003 og
er þetta er fimmta útgáfan af
LífsKrafti en við tókum mið af
gömlu bókinni en ákváðum að end-
urskrifa hana með það í huga að
hún höfðaði betur til ungs fólks.
Hún er eftir sem áður handbók
um flest sem viðkemur krabba-
meini og þær hugleiðingar sem
fólk hefur um krabbamein,“ segir
Hulda. Hún segir að bókin hafi
verið tekin saman upphaflega af
þeim sem þótti vanta hagnýtar
upplýsingar á sínum tíma og að
þessu sinni vildu þau bæta fullt af
nýjum upplýsingum inn í bókina.
Bókin er skrifuð af Krafti, í
samvinnu við fagfólk sem kemur
að krabbameinsgreindu ungu fólki.
Velferðarráðuneytið styrkti útgáfu
bókarinnar en fjölmargir aðrir
lögðu félaginu lið með skrifum og
ráðgjöf segir Hulda sem vill nú
koma bókinni sem víðast og getur
fólk haft samband við félagið.
k100@k100.is
Fokk ég er með
krabbamein
Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur, hef-
ur endurútgefið bókina LífsKraftur í algjörlega nýrri mynd, nú undir heitinu
„Fokk ég er með krabbamein.“ Allir sem greinast með krabbamein á aldrinum
18-45 ára og fjölmargir fleiri fá bókina afhenta sér að kostnaðarlausu en hún
liggur einnig frammi á öllum spítölum landsins. Útgáfu bókarinnar var fagnað
á Alþjóðadegi krabbameins, mánudaginn 4. febrúar, í Kaffi Flóru í Laugardal.
K100
Kraftur Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, hér með bókina
sem inniheldur hagnýtar upplýsingar fyrir einstaklinga sem greinst hafa
með krabbamein, aðstandendur þeirra og vini.
Ljósmynd/Kraftur
Samvinna Ragnheiður Guðmundsdóttir, Ástrós Rut Sigurðardóttir, formaður Krafts, Laila Sæunn Pétursdóttir,
verkefnastjóri Krafts, Guðlaug Birna Guðjónsdóttir, framkvæmdastóri Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins,
Ragnheiður Davíðsdóttir, verkefnastjóri, Hulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts, og Hildur Björk
Hilmarsdóttir stofnandi Krafts
Ljósmynd/Kraftur
Heiðursgestur Fjölmargir kíktu í hófið og þar á meðal Frú Vigdís Finn-
bogadóttir sem er verndari Krabbameinsfélags Íslands en Kraftur er
einmitt eitt af aðildarfélögum þess.