Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 54

Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 54
54 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 Fæst í apótekum og almennum verslunum. fyrir góða tannheilsu Millitanna burstar sem hreinsa vel á milli tannanna og nudda tannholdið TRAV-LER burstarnir innihalda klórhexidin sem tryggir hreinlætið og gerir þá margnota. Eru til í mörgum grófleikum, allt eftir bili á milli tanna hvers og eins. Góð tannheilsa bætir almenna líðan og rannsóknir sýna að það geta verið bein tengls milli slæmrar munnheilsu og sjúkdóma eins og sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma. SOFT-PICKS losa auðveldlega matarrestar milli tannanna, frábærir mjúkir tannstönglar sem hreinsa vel og nudda tannholdið í leiðinni. Fást í þremur stærðum. Gunnar Ingvarsson á 85 ára afmæli í dag. Hann hefur veriðbóndi á Efri-Reykjum í Biskupstungum alla sína tíð og býr þarenn. „Ég fæddist á Miðhúsum hér skammt fyrir ofan en kem hérna að Efri-Reykjum 6 ára gamall. Við vorum lengi með sauðfjár- og kúabú- skap en svo breyttist það upp úr 1970 þegar þetta sumarbústaðavesen byrjaði. Það hlóð mjög upp á sig og í dag eru þetta um 100 bústaðir sem eru í landi Efri-Reykja.“ Efri-Reykir eru um 7-8 kílómetra fyrir neðan Úthlíð en þetta svæði er líklega ein fjölmennasta sumarbústaðabyggðin á landinu. „Aðalframkvæmdin voru samt þessar boranir sem ég fór í á landinu um 1987-88. Þeir skipta orðið hundruðum bústaðirnir sem nýta heita vatnið, allir bústaðirnir í Úthlíð og á Brekku er heilmikið af bústöðum líka.“ Rúnar Gunnarsson er núna orðinn aðaleigandi að Efri-Reykjum, en hann á líka afmæli í dag (sjá hina síðuna á Íslendingaopnunni). „Ég lét hann taka við þessu fyrir nokkrum árum, við hjónin erum orðin svo gömul,“ en kona Gunnars er Kristín Johansen og eru þau barnlaus. „Hann var búinn að vera hér mikið í sveit, ein 20 sumur og var líka farinn að koma hingað á veturna og sem betur fer vildi hann taka við jörðinni.“ Gunnar er lítið fyrir að halda upp á afmæli. „Ég veit ekki til þess að neitt stórvægilegt sé um að vera í tilefni dagsins.“ Hjónin Gunnar og Kristín með Ástu Rós Rúnarsdóttur, nýfædda 2005. Hundrað bústaðir í landi Efri-Reykja Gunnar Ingvarsson er 85 ára í dag B jörn Eyvindur Pét- ursson fæddist 7. febr- úar 1929 á Grettisgöt- unni í Reykjavík og ólst upp í Reykjavík og hefur alltaf átt heima þar. Hann var í sveit í Gröf í Miðdölum, hjá Sess- elju móðursystur sinni, í fimm sum- ur og einn vetur. Björn varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1950 og tók fyrrihlutapróf í verkfræði frá Há- skóla Íslands 1954. Hann tók próf í vélaverkfræði frá DTH í Kaup- mannahöfn 1957. Björn var verkfræðingur hjá Járnsteypunni hf. í Reykjavík 1957- 61. Var verkfræðingur hjá verkfræðideild Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli 1961-64 og hjá Mjókursamsölunni í Reykjavík 1964-67. Hann var síðan aftur verk- fræðingur hjá verkfræðideild Varn- Björn E. Pétursson verkfræðingur – 90 ára Hjónin Elísabet og Björn stödd í Borgarnesi. Þau eru dugleg að fara þangað en Elísabet fæddist þar. Veiðir enn lax og spilar bridge þrisvar í viku Sjómaðurinn Björn í Bjarnarfirði á Ströndum. Hann tók pungapróf eftir að hann fór á eftirlaun, en hann á hlut í bát og jörð á Kaldrananesi II. 60 ára brúðkaupsafmæli Hinn 7. febrúar 1959 gengu í hjóna- band Þór Magnússon og Una Stefanía Sigurðardóttir. Sama dag var frumburður þeirra, Jón- björg, skírð. Demantsbrúðkaup Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.