Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019
Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 | heimilioghugmyndir.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Vertu sjálfum þér trúr og reyndu ekki
að gera þér upp skoðanir á mönnum og mál-
efnum. Gættu þess að gefa ekki svo mikið frá
þér að þú eigir ekkert aflögu handa sjálfum
þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Samstarfsmenn þínir sækja í þig um of
svo þú þarft að læra að verja þig ef þú vilt að
þér verði eitthvað úr verki. Vertu varkár í dag
því þú kynnir ella að þurfa að greiða háan
reikning.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur öll tök á því að læra sitthvað
um sjálfan þig í samskiptum við þá sem standa
þér næst, það er maka og nána vini. Vertu því
varkár í umgengni þinni við aðra.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Grasið er ekkert grænna handan girð-
ingarinnar. Til allrar hamingju kanntu vel við að
grúska í einrúmi þessa dagana.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú stendur frammi fyrir verkefni sem
krefst allrar þinnar atorku og útsjónarsemi.
Notaðu daginn og talaðu við foreldri eða mik-
ilvæga manneskju í þínu lífi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Sum mál eru þannig vaxin, að það þarf
hreinlega að setja á pappír kosti þeirra og galla
til þess að heildarmyndin blasi við. Þú þarft
bara að takast á við vandann með hetjulund.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú munt komast að því að hæfileikar þínir
liggja á mörgum sviðum. Vendu þig á að líta á
björtu hliðarnar því þannig hefur lífið mest
gildi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þótt einhverjir kasti að þér hnút-
um í dag skaltu láta sem ekkert sé. Hugur þinn
er opinn fyrir undrum, og opinn hugur finnur
alltaf meira en hann leitar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Gerðu hvaðeina sem þér kemur til
hugar til þess að auka við þekkingu þína.
Teygðu þig út á ystu nöf í kunningjahópnum,
biddu fólk að vísa þér á einhverja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Skemmtileg neyð gæti komið upp í
líki óvæntra og svangra gesta. Það þarf ekki að
vera neikvætt að þarfnast einhvers og gæti
hugsanlega verið styrkur þinn í dag.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Með örlítilli þolinmæði og smá hug-
kvæmni áttu að geta fellt alla hluta saman
þannig að úr verði heil mynd. Finndu þeim því
farveg þar sem þeir fá notið sín.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert í náðinni þessa dagana en mátt
gá að þér því skjótt skipast veður í lofti. Zen-
meistarar vita hvernig á að yfirvinna persónu-
legar langanir og gera það sem gera þarf.
Guðmundur Arnfinnsson yrkirog kallar „Heiða“:
Undir himninum bláum og breiðum
hún birtist á vormorgni heiðum
á blómskrýddum kjól,
það var blikandi sól
og bjart yfir öllum leiðum.
Helgi R. Einarsson skrifar mér
og segir, að hann hafi lesið grein í
blöðunum þar sem reynt er að rétt-
læta gróðursetningu pálmatrjáa á
klakanum!
Segir það Holu – Hjálmar,
sem hjólar um götur og skálmar:
„Ef bæta á borg
og byggja fínt torg
verða að vera þar pálmar.“
Því þykir mér vænt um að mér
verða stundum á pennaglöp að oft
bregðast menn skemmtilega við og
svo var núna. Sigmundur Bene-
diktsson skrifaði í Leirinn á þriðju-
dag og kallar „Ættarstöður“: „Þeg-
ar ég las Vísnahornið í Mogga í dag
og sá að ég var þar skráður Magn-
ússon, datt þessi vísa upp alveg
óvart:
Eflast mínar ættarstöður,
ennþá mun á nýjum von.
Eg hef fengið aukaföður
orðinn líka Magnússon.
Ég bið afsökunar á þessum mis-
tökum.
Pétur Stefánsson yrkir og kallar
„Bakstur“:
Andans deig ég hræri og hræri,
hress og kátur laus við þref.
Sérhvern dag ég lifi og læri
leikinn þann að yrkja stef.
Sigmundur Benediktsson kann-
ast við þetta:
Aldrei líður efnisskort
óðinn við að baka,
er þó hugsi um það hvort
úr því verði kaka.
Nú eru veðrabrigði í lofti. Ing-
ólfur Ómar Ármannsson yrkir á
Boðnarmiði:
Veðurhvinur úti er
ýfast bylgjur ránar.
Lægðin geyst um frónið fer
fönn og klaki hlánar.
Þannig er hljóðið í Hallmundi
Kristinssyni:
Leiðindaveður og lélegt skyggni
vér látum ei á oss fá.
Bílstjórar reyna með hugdirfsku og
hyggni
að hanga veginum á.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Heiða, pennaglöp
og bakstur
„ég stóÐ ekki meÐ honum í eitt
skipti. hann hefur aldrei leyft mér
aÐ gleyma því.”
„áttu einhverjar bækur um sparnaÐ á
hundraÐkall?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sakna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
EKKI
STRAX! NÝR HLJÓÐMAÐUR
ÞÚ ERT MEÐ FLÆR! ÞÚ VERÐUR AÐ KOMA
HUNDINUM ÚT ÚR HÚSINU UNDIR EINS!
ÞAÐ ER ORÐIÐ OF SEINT! ÉG ER ÞEGAR
BÚINN AÐ SMITA HANN!
BÆKUR
Víkverji er með böggum hildarþessa dagana. Enn eitt keppnis-
tímabilið er farið í súginn hjá hans
mönnum í Vesturbænum, og það er
bara febrúar. Nú kynnu menn að
spyrja hvers vegna Víkverji er svona
svartsýnn þrátt fyrir að ekki hafi
verið spilaður einn einasti leikur á
Íslandsmótinu og ekki stendur á
svari: Jú, þeir unnu Reykjavík-
urmótið enn einu sinni.
x x x
Í minningu Víkverja hefur þaðnefnilega haldist í hendur að vel-
gengni á Reykjavíkurmótinu hefur
sjaldnast skilað sér inn í sumarið.
Minning Víkverja er reyndar ekki
byggð á hávísindalegri athugun og
gæti raunar verið alröng, en engu að
síður hefur það jafnvel verið léttir
fyrir hann þegar KR-ingarnir
standa sig ekki neitt sérstaklega vel
á vorin. Það helst kannski í hendur
við það að þá eru væntingarnar
minni og því minna svekkelsi ef liðið
verður ekki Íslands-, bikar- og Evr-
ópumeistari á komandi tímabili.
x x x
Einn vinnufélagi Víkverja sá aum-ur á honum, vitandi það hver
skoðun hans á Reykjavíkurmótinu
væri, og reyndi að hughreysta hann.
Bikar væri jú alltaf bikar og því ætti
hann að gleðjast, jafnvel þótt KR
ynni ekki neitt annað í ár. Víkverja
leið nú ekki miklu betur við það.
x x x
Eða hvað? Er ekki löngu tímabærtað Reykjavíkurmótið fái ögn
meiri viðurkenningarsess í íslensk-
um knattspyrnuheimi? Þarna mæt-
ast bestu knattspyrnulið lang-
stærsta sveitarfélagsins og keppa
um heiðurinn að vera meistari
Reykjavíkur, Reykjavíkurmeist-
arar. Ekki skemmir fyrir að KR hef-
ur unnið þennan titil oftar en hin lið-
in. Enda væri annað skrítið í ljósi
þess að liðið heitir bókstaflega
Knattspyrnufélag Reykjavíkur. Það
er rökrétt að það sé með fleiri titla
en til dæmis Glímufélagið Ármann.
Hver veit, kannski nú þegar Víkverji
hefur hafið þetta mót upp til
skýjanna mun það verða upphafið að
glæstu sumri! Hver veit, það er nú
bara febrúar. vikverji@mbl.is
Víkverji
Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó
Guð, mannanna börn leita hælis í
skugga vængja þinna.
(Sálm: 36.8)