Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 58

Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 58
58 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 Canada Goose Langford Parka er framúrskarandi vörn gegn kuldanum og glæsileg hönnun fyrir borgarlífið. Okkar verð er sambærilegt eða betra en í flestum öðrum löndum. CANADA GOOSE FÆST Í NORDIC STORE LÆKJARGÖTU www.nordicstore.is Opið kl . 9 -22 alla daga C a n a d a G o o se L a n g fo rd P a rk a k r. 11 9 .9 9 0 Kuldaþol: -25°C Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Enski leikarinn, kyntáknið og kvikmynda- og sjónvarpsþátta- stjarnan Idris Elba mun fara með aðalhlutverkið í næstu kvikmynd Baltasars Kormáks, Deeper, sem tökur hefjast á hér á landi í lok maí á þessu ári. Þetta staðfestir Baltasar sem er staddur í Los Angeles þegar blaðamaður nær tali af honum, erindi leikstjórans þar að vinna í kvikmyndahandriti sem nefnist Arctic 30 og að funda með ráðamönnum fyrirtækisins sem framleiðir Deeper, MGM. Tökur myndarinnar munu fara fram í nýju myndveri framleiðslu- fyrirtækis Baltasars, RVK Stud- ios, í Gufunesi og á hafi úti, lík- lega í Faxaflóa, að sögn leikstjór- ans. „Þetta verður sennilega fyrsta stóra myndin sem verður tekin öll upp á Íslandi,“ bendir Baltasar á, „stúdíóið býður upp á þennan möguleika, að gera þetta.“ Hann segir fjölda Íslendinga munu koma að gerð myndarinnar og einhverja útlendinga, eins og gefur að skilja. „Þetta hefur verið draumur minn, að reisa þetta stúdíó og geta komið með verkefni til Íslands og unnið það,“ segir Baltasar og stutt er í að sá draumur verði að veruleika. Hann er spurður að því hvort fleiri leikarar hafi verið ráðnir í kvikmyndina og segir hann svo ekki vera, verið sé að skoða þau mál en Elba sé í burðarhlutverk- inu. „Þetta er svolítið mikið „one man show“ en við vorum einmitt að ræða um aðra leikara á fundi í gær hjá MGM. Það er bara ekki komið lengra en planið er að taka myndina í lok maí, byrja tökur þá og þetta er komið á fullt, byrjað að byggja og svona.“ Lét færa tökurnar –Vildir þú fá Elba í hlutverkið? „Já, þetta var algjörlega minn draumur að fá hann og fyrst var mér sagt að það gengi ekki, að hann væri að gera eitthvað annað á þessum tíma. Þá lét ég færa tök- urnar og þetta gekk upp,“ svarar Baltasar. „Stúdíóið var einmitt að tala um það í gær hvað það væri ánægt með að ég hefði ýtt svona á þetta, hann er svo funheitur núna, karlinn,“ bætir leikstjórinn við sposkur. Elba sé á miklu flugi þessa dagana. „Ég vildi fá ein- hvern með mikla persónutöfra því hann heldur eiginlega uppi mynd- inni.“ –Ertu búinn að hitta Elba? „Já, já, við erum búnir að hitt- ast tvisvar og þetta er bara frá- bær náungi og flottur gaur. Þann- ig að þetta er bara spennandi.“ Flottur gaur Kvikmyndin segir af fyrrverandi geimfara sem ræður sig í hættu- legt verkefni, að kafa niður á mesta dýpi sjávar. Er Deeper lýst sem yfirskilvitlegri spennumynd á hinum ýmsu kvikmyndavefjum og mun Elba lenda í miklum háska á ferð sinni í sérhönnuðu djúpsjáv- arfari, eins og nærri má geta, óvæntir atburðir munu eiga sér stað. Baltasar er spurður að því hvort hlutverk Elba sé hetjuhlutverk og segir hann svo ekki vera. „Nei, þetta er „twisted“ gæi og þetta er mikið innra ferðalag,“ segir hann og að myndin falli ekki í flokk svo- kallaðra „survival“ kvikmynda, þ.e. kvikmynda sem fjalla um fólk sem þarf að berjast fyrir lífi sínu andspænis náttúrunni. Hún sé miklu heldur sálartryllir, „psycho thriller“ eins og það heitir á ensku. –Þú vilt yfirleitt hafa allt sem raunverulegast í þínum kvikmynd- um, tókst Djúpið og Adrift til dæmis að mestu leyti upp úti á sjó en þú ferð varla að kafa með Idris Elba niður á hafsbotn? Baltasar hlær að spurningunni og segir það því miður ekki mögu- legt. Hann reyni þó alltaf að hafa sem mest raunverulegt í sínum kvikmyndum, hvort heldur er á sjó eða landi. Í Everest hafi hann til að mynda tekið upp eins stóran hluta kvikmyndarinnar og hægt var á fjallinu. Milli Adrift og Everest –Hvernig er þessi kvikmynd á framleiðsluskalanum ef þú berð hana t.d. saman við seinustu kvik- mynd þína, Adrift? „Hún er aðeins stærri en Adrift, einhvers staðar á milli hennar og Everest. Það er sá staður sem ég hef viljað vera á, mér var boðið að gera Hobbs and Shaw sem er um 200 milljóna dollara mynd en ég hafnaði því. Ég hef ekki áhuga á að fara inn í þann geira, mér finnst gefa mér meira frelsi að gera myndir eins og þessa sem kosta um 30 til 35 milljónir doll- ara,“ svarar Baltasar en til skýr- ingar þá er Hobbs and Show af- leggjari af hasarmyndasyrpunni Fast and the Furious og segir af tveimur harðhausum úr þeim bálki. Blaðamanni leikur að lokum for- vitni á að vita meira um Arctic 30 sem Baltasar minntist á í byrjun viðtals. „Það er mynd sem ég er búinn að vera að vinna í, rosa flott verkefni sem vonandi getur farið fljótlega í gang,“ segir Baltasar. Myndin mun fjalla um áhöfn skips Greenpeace-samtakanna, Arctic Sunrise, sem var handtekin af rússneskum yfirvöldum árið 2013 eftir að hafa farið upp á olíubor- pall Gazprom til að mótmæla olíu- vinnslu. Baltasar segist vera með fleiri verkefni í pípunum, m.a. fyr- ir Netflix. „Það er ýmislegt í gangi,“ segir hann, hinn rólegasti yfir öllu annríkinu. Stjarna Idris Elba hefur leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarpsþátta, m.a. The Wire, og hér er hann í hlutverki harðsvíraða rannsóknarlögreglumannsins Johns Luther í sakamálaþáttunum Luther sem RÚV hefur sýnt lengi vel. Baltasar á bólakaf með Elba  Idris Elba fer með aðalhlutverkið í næstu kvikmynd Baltasars Kormáks, Deeper, sem segir af hættuför í hyldýpi sjávar  Alfarið tekin upp á Íslandi  Draumur að rætast, segir Baltasar Iðinn Baltasar Kormákur. Morgunblaðið/Einar Falur Tónleikaröðin Söngvaskáld á Suð- urnesjum hefur notið mikilla vin- sælda í Hljómahöllinni í Reykja- nesbæ síðustu misseri. Hún verður haldin í síðasta skipti nú á næstu mánuðum og hefst með tónleikum helguðum söngvaskáldinu Gunnari Þórðarsyni í kvöld, 7. febrúar, kl. 20. Þá verður dagskrá helguð Ellý Vil- hjálms 7. mars og loks Jóhanni G. Jóhannssyni 4. apríl. Markmiðið með tónleikaröðinni er að vekja athygli á ríkum tónlistar- arfi Suðurnesjamanna með afslöpp- uðum stofutónleikum þar sem sam- an fara ljósmyndir, sögur og tónlist. Að tónleikunum standa Dagný Mag- gýjar handritshöfundur og kynnir, Arnór B. Vilbergsson organisti í Keflavíkurkirkju og Elmar Þór Hauksson söngvari. Í tilkynningu segja þau tónlistarröðinni hafa verið vel tekið frá upphafi en hún hófst ár- ið 2016 og hefur fjallað um níu söngvaskáld fyrir fullu húsi. „Þetta hefur verið skemmtilegt verkefni og frábært hvað því hefur verið tekið vel en það er óhætt að segja að við séum komin með okkar fastagesti sem kaupa miða á alla tónleikana á hverju ári. En nú er svo komið að við höfum fjallað um helstu söngvaskáldin svona fyrir utan þá sem eru starfandi í dag svo við telj- um að nú sé tímabært að hætta, nema annað komi í ljós,“ segir Dagný. Óhætt er að segja að vagga ís- lenskrar popptónlistar sé á Suður- nesjum, þar sem íslenska bítla- tónlistin sprakk út, og þaðan hafa komið ófáir tónlistarmenn sem sett hafa sitt mark á tónlistarsögu Ís- lands. „Listinn er langur og má þar nefna Hljómafélaga Gunna Þórðar og Rúnna Júll, Þorstein Eggertsson textaskáld Íslands og hinn íslenska Presley, Magnús og Jóhann, Villa Vill, Magga Kjartans, Bjartmar Guð- laugs og áfram má telja.“ Gunnar Þórðarson hylltur í Hljómahöll  Söngvaskáld á Suðurnesjum Morgunblaðið/Eggert Virtur Gunnar Þórðarson hefur markað spor í tónlistarsöguna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.