Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 63

Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 63
MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2019 Það varð titringur í samfélagibíóáhugafólks þegar til-kynnt var að The Favour-ite, nýjasta mynd gríska leikstjórans Yorgos Lanthimos, yrði aðeins sýnd einu sinni í bíó. Fólki þótti sæta furðu að mynd eftir einn nafntogaðasta leikstjóra samtíma- listabíósins færi ekki í almennar sýn- ingar. Viðbrögðin létu heldur ekki á sér standa, það seldist hratt upp á sýninguna og aukasýningu var bætt við. Þegar óskarstilnefningarnar voru kynntar, þar sem myndin fékk heilar tíu tilnefningar, var loks ákveðið að setja myndina í almennar sýningar. Það er samt undarlegt að ekki skuli hafa verið tekinn séns á þessari mynd til að byrja með. Óttinn við að lista- bíóið skili ekki tekjum er tilhæfulaus í þessu tilfelli, þetta er búningadrama og þau eru sívinsæl meðal ákveðins hóps, Lanthimos er stórstjarna sem á sér fjölda aðdáenda hérlendis og myndin inniheldur marga fræga leik- ara sem hjálpar ævinlega til við að trekkja að. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem til stendur að svipta kvikmynda- áhugafólk sýningum á rjóma lista- bíósins, í fyrra sýndu kvikmynda- húsin til dæmis myndina Phantom Thread eftir Paul Thomas Anderson ekki nema einu sinni eða tvisvar, þrátt fyrir að hún þætti ein besta mynd ársins. Það er greinilegt að meginstraumsbíóin vanmeta oft hvað þau eru með í höndunum, sem er leið- indamál. Engu að síður er fagnaðar- efni að The Favourite sé komin í al- mennar sýningar, búið að splæsa í textun og allt, og því þarf ekki að kvarta meir. Mögnuð saga The Favourite fjallar um Önnu drottningu (Olivia Colman) sem réð yfir breska konungsveldinu í upphafi 18. aldar þegar Bretar voru í stríði við Frakka. Anna er plöguð af þrálátum sýkingum og er því illa á sig komin bæði líkamlega og andlega og varla fær um að sinna stjórnsýslustörfum. Hennar hægri hönd, trúnaðarvin- kona og elskhugi, greifynjan Sarah af Marlbourough (Rachel Weisz), stjórnar því landinu fyrir hönd henn- ar hátignar. Sarah er með drottn- inguna í vasanum, hún er gríðarlega útsmogin, hikar ekki við að fá vilja sínum framgengt og lætur Önnu oft taka óvinsælar ákvarðanir sem eru Söruh til framdráttar. Dag einn kemur ung kona, Abigail Hill (Emma Stone), til hallarinnar í von um að fá starf. Abigail er frænka Söruh og fæddist inn í göfuga fjöl- skyldu en eftir að faðir hennar tapaði öllu í fjárhættuspilum og seldi Abigail frá sér er hún orðin lágstéttarkona. Sarah sér aumur á henni og veitir henni starf í eldhúsinu. Það líður ekki á löngu áður en Abigail hefur komið sér í mjúkinn hjá drottningunni og það verður ljóst að Abigail mun sví- fast einskis til að velta Söruh úr sessi og endurheimta stöðu sína sem heldri dama. Lanthimos bregður hér út af van- anum, þar sem hann hefur yfirleitt skrifað handritið að myndum sínum sjálfur, í samstarfi við Efthymis Filippou. Myndin er því nokkuð frá- brugðin fyrri verkum hans og er raunsæislegri en t.a.m. The Lobster (2015) og The Killing of a Sacred Deer (2017) sem eru sveipaðar töfra- raunsæislegum blæ. Furðulegheitin krauma undir niðri í The Favourite en gjósa ekki alveg upp á yfirborðið. Handritið er eftir Deboruh Davis, sem er svo gott sem óþekkt í heimi kvikmyndanna því þetta er hennar fyrsta handrit. Verkið hefur verið af- ar lengi í fæðingu, Davis hóf skriftir árið 1998, en þessi langi meðgöngu- tími skilar sér í frámunalega vandaðri lokafurð með mögnuðum persónum og samtölum. Bygging sögunnar er líka óaðfinnanleg, upplifunin að horfa á The Favourite er líkt og að horfa á spennutrylli því hún er svo þétt og spennuþrungin. Búningadrama sem bragð er að Sjálf hef ég ekki hrifist af bún- ingadramanu í gegnum tíðina þar sem ég á gjarnan erfitt með að tengj- ast persónunum. Ég á bágt með að finna samúð með veruleikafirrtri breskri valdastétt sem belgir sig út af kökum og hugsar bara um heiður og álit annarra fyrirmenna. Vandamál þeirra virðast oft svo yfirborðskennd. Líkt og hefðbundnu búningadrama sæmir fjallar The Favourite um heið- ur, völd og pólitískar vendingar. Hún sker sig þó úr þar sem myndin er fyrst og fremst persónudrifin; mest áhersla er lögð á persónur Önnu, Sö- ruh og Abigail og þeirra tilfinningalíf. Það er allt gert til þess að tengja áhorfendur við þessar þrjár persónur og sýna að undir öllum stælunum og rjómabollukjólunum eru manneskjur af holdi og blóði sem þrá það sem all- ar manneskjur þrá; ást og viðurkenn- ingu. Umgjörðin er afhjúpuð með meistaralegum hætti og gert ljóst að það er ekkert eðlilegt eða náttúrulegt við þessa hárkolluprýddu heldri stétt og það að vera drottning er full- komlega sturlað dæmi. Þrátt fyrir að kvikmyndin byggist á raunverulegum persónum er farið nokkuð frjálslega með sögulegar staðreyndir. Það er að sjálfsögðu hið besta mál því þetta er bíómynd, ekki kennsluefni. Bæði Sarah og Abigail eiga til dæmis í ástarsambandi við drottinguna, sem er ekki staðfest samkvæmt heimildum að ég tel, en þetta bætir sterkri frásagnarlegri vídd við söguna og eðli ástarsam- banda er kannað með áhugaverðum hætti. Abigail dregur drottninguna á tálar til að ná sínu fram og nokkuð ljóst að hún er ekki raunverulega ást- fangin. Þótt samband Söruh og Önnu sé ansi brenglað er það á vissan hátt heilbrigðara en samband drottning- arinnar og Abigail af því það byggist síður á lygum. Ég má til með að drepa niður í samtali, þar sem Anna og Sarah ræða um Abigail: Anna: Ég vildi óska að þú gætir elskað mig eins og [Abigail]! Sarah: Óskarðu þess að ég ljúgi að þér? „Ó þú ert líkt og engill fallinn af himn- um ofan, yðar hátign.“ Nei. Stundum líturðu út eins og greifingi. Og getur treyst á mig til að segja þér það. Anna: Af hverju? Sarah: Af því ég neita að ljúga! Það er ást! Ástin er ekki skilyrðislaus og grundavallast ekki á innantómri að- dáun og skjalli. Raunverulegt ástar- samband byggist á gagnkvæmri greiðastarfsemi. Svo er bara mis- sjúklegt hvernig þessum greiðaskipt- um er háttað. Rammsterk umgjörð Sviðsmynd, búningar og kvikmynda- taka í The Favourite eru mikið augnakonfekt. Búningarnir eru í takt við tísku þessa tímabils en hafa samt sem áður nútímalegan brag þar sem búningahönnuður hefur tekið sér visst skáldaleyfi. Sviðsmyndin í höll- inni er vitaskuld mjög flókin og íburð- armikil og það er auðvelt að gleyma sér við að rýna í hana. Leikkonurnar þrjár, Olivia Col- man, Rachel Weisz og Emma Stone, eru hver annarri stórkostlegri. Col- man túlkar hina sjúku drottningu af ótrúlegu næmi, það er mikill þungi í flutningi hennar og líkamsburði, sem endurspeglar þunglyndi persónunn- ar. Þær eru allar þrjár tilnefndar til Óskarsverðlauna sem er ekki að undra því það er erfitt að gera upp á milli þeirra, allar vinna þær leiksigur. Hvert einasta smáatriði í The Fav- ourite er úthugsað, óvænt og hlaðið og útkoman er frámunalega heillandi bíómynd. The Favourite er skínandi perla og skylduáhorf fyrir allt kvik- myndaáhugafólk. Ást er aldrei skilyrðislaus Háskólabíó The Favourite  Leikstjórn: Yorgos Lanthimos. Handrit: Deborah Davis og Tony McNamara. Kvikmyndataka: Robbie Ryan. Klipping: Yorgos Mavropsaridis. Aðalhlutverk: Olivia Colman, Emma Stone, Rachel Weisz Nicolas Hoult, Joe Alwyn. 120 mín. Bretland og Bandaríkin, 2018. BRYNJA HJÁLMSDÓTTIR KVIKMYNDIR Kvikmyndaperla Rachel Weisz og Olivia Colman í The Favourite sem rýnir telur skylduáhorf fyrir allt kvikmyndaáhugafólk. Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimiliS Ö N G L E I K U R I N N MIÐASALAN ERHAFIN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.