Morgunblaðið - 07.02.2019, Page 68
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
NIDAROS
WWW.ILVA.IS/NORTHBEDS
Nýtt
25%
KYNNINGARAFSLÁTTUR
1
2
3
4
5
6
7
1 Teygjanlegt efni sem má þvo
2 Comfort Latex - 5 cm
3 Softflex svampur - 3 cm
4 7 svæða pokagormar - 15 cm
5 Stuðningssvampur
6 Stuðnings-pokagormar - 13 cm
7 Mjög sterkur viðarrammi - 12 cm
NIDAROS N°6729
160x200 cm 239.900 kr. Nú179.900 kr.
180x200 cm 249.900 kr. Nú186.900 kr.
HÖFUÐGAFL N°04
160x200 cm 59.900 kr. Nú 44.900 kr.
180x200 cm 69.900 kr. Nú 49.900 kr.
Vetrarhátíð verður sett í kvöld og
stendur út laugardag. Hátíðin er nú
haldin í 18. sinn og fer fram í öllum
sex sveitarfélögum höfuðborgar-
svæðisins. Setningin fer fram við
Hallgrímskirkju og hefst kl. 19.45.
Opnunaratriðið er ljósainnsetn-
ingin Passage eftir listamannahóp-
inn Nocturnal frá Nýja-Sjálandi og
verður henni varpað á kirkjuna.
Vetrarhátíð sett við
Hallgrímskirkju
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 38. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Þrettán Íslendingar hafa leikið í
efstu deild karla í þýska fótbolt-
anum og þrír þeirra léku á þriðja
hundrað leiki. Alfreð Finnbogason
hefur skorað 32 mörk fyrir Augs-
burg frá því hann kom þangað ár-
ið 2016 og er þegar orðinn þriðji
markahæstur af Íslendingunum.
Farið er yfir sögu Íslendinga í
þýsku deildinni í íþróttablaðinu. »4
Þrettán Íslendingar í
efstu deild Þýskalands
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Í dag verður opnuð í Kiasma, Sam-
tímalistasafni Finnlands í Helsinki,
umfangsmikil einkasýning Hrafn-
hildar Arnardóttur myndlistarkonu
sem einnig er þekkt sem Shoplifter.
Sýninguna kallar Hrafhildur
Nervescape eða Taugafold VIII en sú
sjöunda í röð þeirra innsetninga var
sett upp í Listasafni Íslands 2017 og
vakti mikla athygli. Það er skammt
stórra högga á milli
hjá Hrafnhildi því
hún verður fulltrúi
Íslands á Feneyja-
tvíæringnum í ár
og verður sýn-
ing hennar
þar opnuð í
maí.
Sýning Hrafnhildar
opnuð í Kiasma
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Save the Children, ein stærstu al-
þjóðlegu, frjálsu félagasamtökin
sem starfa í þágu barna í heiminum,
fagna 100 ára afmæli í ár. „Í tilefni
tímamótanna leggjum við áherslu á
að fá stjórnvöld og almenning í lið
með okkur til að gera enn betur
fyrir börn sem búa við ofbeldi og
beinum sjónum okkar sérstaklega
að börnum sem búa við stríðs-
ástand,“ segir Erna Reynisdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaheilla –
Save the Children á Íslandi.
Erna segir að söfnun til styrktar
börnum í Jemen og Sýrlandi haldi
áfram í ár, en samtökin, með stuðn-
ingi styrktaraðila sinna og utanrík-
isráðuneytisins, sendu 28 milljónir
króna til Sýrlands fyrir áramót og
ráðgera að senda um 22 milljónir til
Jemen innan skamms. „Stofnandi
samtakanna, Eglantyne Jebb, sagði
fyrir 100 árum að öll stríð væru
stríð gegn börnum og það er sorg-
legt til þess að hugsa að aðstæður
barna séu enn í dag svona skelfileg-
ar eins og raun ber vitni – og það af
mannavöldum.“
Barnaheill taka þátt í áskorun al-
þjóðasamtakanna um að ráðamenn
heims taki höndum saman um að
gera stríðandi fylkingar ábyrgar
fyrir þeim aðstæðum sem þær setji
börn í með stríði. Erna segir að auk
þess vilji Barnaheill að stjórnvöld
tryggi að Ísland tengist ekki vopna-
flutningum á nokkurn hátt og að yf-
irvöld stöðvi alla slíka háttsemi, sé
hún raunin, því öll stríð bitni á
börnum.
Auk mannúðaraðstoðar í Sýrlandi
og Jemen eru Barnaheill á Íslandi
með í undirbúningi þróunarsam-
vinnuverkefni í Úganda sem snúa
að vernd barna gegn ofbeldi.
Barnaheill í 30 ár
Barnaheill á Íslandi hafa nú
starfað í 30 ár. Erna bendir á að
áherslan hafi alla tíð verið á börn á
Íslandi og stærsta baráttumálið
verið vernd barna gegn hvers konar
ofbeldi. „Við höfum ásamt mörgum
öðrum lagt okkar af mörkum til
þess að breyta samfélaginu með vit-
undarvakningu, fræðslu og for-
vörnum,“ segir hún og leggur
áherslu á að Barnasáttmálinn, sem
var formlega samþykktur á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
1989 og lögfestur á Alþingi 2013, sé
leiðarljós samtakanna. Eins megi
nefna að Barnaheill hafi barist fyrir
gjaldfrjálsri tannlæknaþjónustu fyr-
ir börn og gjaldfrjálsri grunn-
menntun. „Undanfarin ár höfum við
unnið að „Vináttu“, forvarnaverk-
efni gegn einelti í leikskólum og
grunnskólum og það er í fullum
gangi.“ Erna nefnir auk þess mikil-
vægi ábendingahnappsins á heima-
síðunni (barnaheill.is). „Þar getur
fólk tilkynnt um ólöglegt og óviðeig-
andi efni og hegðun á netinu en
verkefnið er unnið í samstarfi
Barnaheilla og Ríkislögreglustjóra.“
Þrátt fyrir að vera lítil samtök
innan alþjóðasamtaka Save the
Children hafa Barnaheill mikilvægt
hlutverk á alþjóðavísu og taka full-
an þátt í heimsátaki samtakanna
„Stöðvum stríð gegn börnum“ í til-
efni aldarafmælisins. „Við skorum á
stjórnvöld, atvinnulífið og almenn-
ing að taka þátt í að styðja börn
sem búa við þær skelfilegu að-
stæður sem stríðsástand er og
krefjumst þess að stríðandi fylk-
ingar séu dregnar til ábyrgðar
gagnvart þeim mannréttindabrotum
sem unnin eru á degi hverjum
gagnvart saklausum börnum,“ segir
Erna.
Barnaheill Erna Reynisdóttir í hópi barna í Suður-Afríku. Áhersla er á að stöðva stríð gegn börnum.
Til varnar börnum
Barnaheill skora á stjórnvöld, atvinnulífið og almenning
að taka þátt í að styðja börn sem búa við stríðsástand