Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Síða 6
ERLENT
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019
Það var fleira fréttnæmt viðsigur New England Patriotsá Los Angeles Rams í of-
urskálarleiknum í NFL-ruðn-
ingnum í Atlanta í Bandaríkjunum
um síðustu helgi en það að Tom
Brady hefði unnið sinn sjötta titil.
Á sunnudagskvöldið var 53. of-
urskálarleikurinn leikinn en þetta
var í fyrsta skipti sem karlkyns
klappstýrur tóku þátt. Napoleon
Jinnies og Quinton Peron hvöttu lið
sitt, LA Rams, en alls eru 40 í
klappstýruliðinu. Úrslitaleikurinn
og þar á meðal tvíeykið fær mikla
athygli út á þetta en ofurskálarleik-
urinn er vinsælasta sjónvarpsefnið
vestra.
Jinnies og Peron eru fyrstu karl-
kyns klappstýrunar í NFL auk
Jesse Hernandez, sem er í liði New
Orleans Saints. Hernandez hefur
einmitt lýst því yfir að hann hefði
farið í prufur eftir að hafa fylst með
Peron og Jinnies.
Aldrei verið bannað
Karlmenn hafa áður tekið þátt í at-
riðum með einhverjum NFL-liðum
en hafa þá verið kallaðir „brellu-
karlar“ eða ámóta. Peron og Jinnes
eru fyrstu karlmennirnir sem taka
fullan þátt og gera sömu hreyfingar
og konurnar í klappstýruliðinu.
Þeir eru báðir með langa menntun
að baki í dansi og voru á meðal
þeirra 300 sem tóku þátt í prufum
til að komast í liðið í fyrra.
Það hefur samt aldrei verið
bannað að hafa karlmenn í
klappstýruliðum í NFL-deildinni en
þetta hefur ekki tíðkast. Hinsvegar
er tiltölulega algengt að sjá karla
og konur saman í klappstýruliðum í
háskólaruðningi í Bandaríkjunum.
Þetta er framtíðin
Steven Leslie er einn fjölmargra
aðdáenda LA Rams og hefur ekki
misst af leik síðustu fjögur ár.
„Þeir eru mjög vinsælir. Þessir
tveir strákar eru frábærir. Þeir eru
búnir að vera æðislegir alla leiktíð-
ina. Það er enginn búinn að vera að
berjast gegn þeim eða eitthvað
álíka vitlaust, þeim hefur bara verið
tekið fagnandi. Þetta hlaut að ger-
ast, það er árið 2019 núna,“ sagði
hann í samtali við Radio 1 News-
beat og endurspeglar viðhorf þorra
aðdáendanna.
„Mér finnst þetta frábært og ég
held að þetta eigi eftir að vera
svona í framtíðinni í hinum liðunum
líka,“ sagði hann.
Framsækið lið LA Rams
Þetta þýðir samt ekki að þeir hafi
ekki lent í neinu mótlæti, ekki síst í
upphafi tímabilsins, sem end-
urspeglaðist í ljótum orðum fylg-
ismanna liðsins á vellinum og á
samfélagsmiðlum. Þeir enda leiktíð-
ina hins vegar í ofurskálarleiknum,
búnir að vinna hug og hjörtu
flestra. Aðdáendur liðsins eru stolt-
ir af því að klappstýruliðið end-
urspegli viðhorfið í Los Angeles,
sem sé að fagna fjölbreytileika og
skilja engan útundan.
Fyrsti svarti leikmaðurinn í NFL
spilaði einmitt fyrir Rams, Kenny
Washington, árið 1946 og liðið var
jafnframt það fyrsta sem valdi sam-
kynhneigðan leikmann, sem var
kominn út úr skápnum, Michael
Sam, árið 2014.
„Þrátt fyrir það sem hefur gerst
höfum við vel getað tekist á við
þetta því við vitum að fólkið okkar
styður okkur. Fjölskyldan okkar
styður okkur, stelpurnar og stór-
borgin LA,“ sagði Peron, sem er 26
ára, við Los Angeles Times.
„Þeir eru svo stórkostlegir dans-
arar að þegar fólk sér þá koma
fram og dansa, skiptir það um
skoðun. Allt gengur svo full-
komlega upp,“ sagði stjórnandi
klappstýruliðs Rams, Keely Fim-
bres, við sama blað.
„Allur heimurinn, sérstaklega
skemmtanaiðnaðurinn, er staður
sem er opinn fyrir möguleikum. Ef
þú ert hæfur til starfsins, hví ekki
að gera það?“ sagði Jinnies, sem er
28 ára gamall, í samtali við CBS.
Framkvæmdastjóri Rams, Kevin
Demoff, sagði að Peron og Jinnies,
hefðu staðið sig svo vel á prufunum
að þeir hefðu átt skilið að vera með.
Aðlagað að þeim
Rams aðlagaði liðið að þessari
breytingu. Hannaður var sérstakur
búningur fyrir strákana og þeir
jafnframt látnir sleppa því að veifa
dúskum. Danssporunum hefur að
einhverju leyti verið breytt eins og
í þá veru að gera stærri og kraft-
meiri handahreyfingar. Loks dansa
klappstýrunar ekki lengur við lög
sem eru ekki við hæfi fyrir blönduð
kynjalið eins og t.d. „Diamonds Are
a Girl’s Best Friend“ og „Single
Ladies (Put a Ring on It)“.
„Við vildum sýna öllum að við
værum glöð og stolt af fjölbreytn-
inni hjá okkur,“ sagði Fimbres.
Peron og Jinnies hafa sagt frá
því í viðtölum að margir karlmenn
hafi rætt við þá um hversu spenntir
þeir séu fyrir að fara í prufur fyrir
klappstýruliðin í NFL-deildinni.
Þetta er því væntanlega upphafið
að einhverju meira og stærra.
Tímabærar
breytingar
Napoleon Jinnies og Quinton Peron urðu fyrstu
karlkyns klappstýrurnar til að taka þátt í ofur-
skálarleik í NFL-ruðningi þegar lið þeirra, Los
Angeles Rams, mætti New England Patriots í
Atlanta í Bandaríkjunum um síðustu helgi.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
AFP
Klappstýran Quinton Peron með fleiri klappstýrum úr liði sínu í úrslitaleiknum á milli New England Patriots og Los
Angeles Rams sem fram fór á Mercedes-Benz-vellinum í Atlanta í Georgíu um síðustu helgi.
Quinton Peron (t.v.) og Napoleon Jinnies í atriði með hinum 38 klappstýr-
unum í LA Rams. Þeir eru fyrstu karldansararnir í NFL-deildinni og urðu jafn-
framt þeir fyrstu til að dansa í ofurskálarleik.
AFP
BRASILÍA
Íbúar í suðaustur-
hluta Brasilíu þar
sem stífl a sprakk
fyrr á árinu eiga á
hættu að smitast
af ýmsum sjúk-
dómum. Hundruð
létust í slysinu
og er enn verið að leita að fólki á svæðinu. Vandamálið
nú er mengun af völdum þungmálma og mikil hætta er
á ýmsum magakveisum. Eftir einhverja mánuði er hætta
á að smitsjúkdómar breiðist út og sníkjudýr sömuleiðis.
Mæla vísindamenn með því að bólusett verði strax gegn
gulusótt. Ennfremur þurfi að fylgjast vel með andlegri
heilsu íbúanna eftir svona mikið áfall.
JEMEN
Samvaxnir
tvíburar
fæddust í
Jemen fyrir
um tveimur
vikum. Þeir
eru með
aðskilin
lungu og hjörtu en deila nýrum og fótum. Yfi rlækn-
ir á sjúkrahúsinu í Sanaa hefur óskað eftir því að
þeir fái að yfi rgefa landið til að geta gengist undir
aðgerð til þess að aðskilja þá. Búnaður til aðgerðar-
innar er ekki fyrir hendi á sjúkrahúsinu en landið er
í molum eftir stöðug átök að undanförnu.
PÁFAGARÐUR
Frans páfa hefur verið boðið að milljón dalir renni til góðgerðarfélags að hans
vali. Skilyrðið er að páfi muni gerast vegan yfi r páskaföstuna, eða í alls 40 daga.
Genesis Butler, 12 ára baráttukona, skrifaði í bréfi til páfa að við yrðum að
bregðast við ástandinu. Hún sagði að ef fl eiri færu að borða grænmetisfæði
myndi það vernda jörðina og hjálpa þeim verst stöddu. Undir bréfi ð skrifa
einnig m.a. Paul McCartney og Brigitte Bardot. Frans páfi lifi r hófsömu lífi
en í heimalandi hans, Argentínu, er hinsvegar borðað mikið kjöt.
HOLLAND
Hollenskir vísindamenn eru forviða eftir að 20.000 dauðum eða
dauðvona svartfuglum skolaði upp á strönd í landinu. Fuglarnir eru allir
að deyja úr hungri. Vísindamenn vita ekki hvað veldur og hafa miklar
áhyggjur. Sama er ekki í gangi í nágrannalöndunum og ekki hafa fundist
merki um að þetta sé af völdum mengunar. Sterkir vindar og slæmt
veður gæti hafa haft áhrif en þykir ekki nægja til að útskýra fyrirbærið.