Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019 VETTVANGUR Hugmyndafræðileg við-fangsefni stjórnmálannaá undanförnum árum hafa að verulegu leyti snúist um annað en hið hefðbundna þrætu- epli á milli vinstri og hægri um skatta. Umhverfismál, jafnrétt- ismál, þjóðerni og innflytjenda- mál, alþjóðasamstarf og milliríkja- viðskipti; allt eru þetta grundvallar-viðfangsefni sem hafa verið fyrirferðarmikil á sviðinu. Og það með réttu. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt gott til málanna um þetta allt. Á sama tíma skynja sjálfstæðismenn vel hve mikla sérstöðu flokkurinn hefur – og ber um leið mikla ábyrgð – þegar kemur að því að stemma stigu við skattlagningaráráttunni sem er alltof útbreidd í stjórn- málum. Að skattleggja bratt og hratt Í fyrstu ræðu minni um málefni ferðaþjónustunnar sem ráðherra málaflokksins, á fundi hjá Íslands- stofu 23. febrúar 2017, vék ég að hinni lífseigu og þrálátu umræðu um gjaldtöku og freistaði þess að dempa þær raddir frekar en hitt. Svo gripið sé niður í ræðuna: „Gjaldtaka er vinsælt umræðuefni en mér finnst umhugsunarefni hversu mikil orka fer í þá umræðu. Ferðaþjónusta er ekki lengur nein aukabúgrein heldur ein mikilvægasta atvinnugrein þjóðarinnar. Við byggj- um virkjanir fyrir tugi milljarða til að gera stóriðju mögulega, í þeim til- vikum þar sem við álítum það skyn- samlegt og hagkvæmt. Við hljótum á sama hátt að geta byggt göngustíga og aðra nauðsynlega aðstöðu til að gera ferðaþjónustu mögulega.“ Mánuði síðar kynnti þáverandi fjármálaráðherra, formaður Við- reisnar, áform sín um að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu um níu milljarða króna árið eftir – og síðan um 16 milljarða á ári þaðan í frá, að teknu tilliti til lækkunar á al- menna þrepinu sem átti að koma á móti, til hagsbóta fyrir neytendur. Á þessari aðgerð eru margar hlið- ar sem ekki verður farið út í hér og ýmislegt sem mælir bæði með og á móti. Landsfundur Sjálfstæð- isflokksins hafði til að mynda bæði ályktað gegn auknum álögum á ferðaþjónustuna og gegn því að at- vinnugreinum væri mismunað í virð- isaukaskatti. Leiðbeining lands- fundar í þessu máli var því ekki alveg einlít. En það sem kom á óvart var hve bratt og óhikað samstarfsflokkurinn gekk fram í því, eftir aðeins fáeinar vikur við völd og á grundvelli tak- markaðra greininga og umræðu, að leggja til þessa miklu skattahækkun á eina atvinnugrein, þó að auðvitað sé það viðskiptavinurinn sem borgar. Sami flokkur hafði nokkrum mán- uðum áður gengið til kosninga með það stefnumál að sækja 15-20 millj- arða af sjávarútveginum með upp- boði aflaheimilda – varlega áætlað að eigin sögn – sem samsvaraði um þreföldun veiðigjalda þess tíma. Varfærni og sanngirni Það var skynsamlegt hjá okkur að leggja áformin um hækkun virð- isaukaskatts til hliðar. Umræðunni um gjaldtöku í ferðaþjónustu er hins vegar ekki lokið þó að hún þokist í rétta átt að mínu mati. Mikilvægt er að minna á þá stað- reynd að gjaldtaka er nú þegar til staðar. Hér er innheimtur gistinátt- askattur, eins og þekkist víða um heim, og hér eru líka tekin ýmis þjónustugjöld á ferðamannastöðum, meðal annars bílastæðagjöld á Þing- völlum og svæðisgjald í Skaftafelli. Við skulum einnig hafa í huga að ríkissjóður hefur miklar beinar og óbeinar tekjur af þeim rúmlega tveimur milljónum gesta sem hingað koma. Og það jafnvel þó að við und- anskiljum skattgreiðslur starfs- manna, sem orkar tvímælis að telja með því að þær eru vitaskuld ekki eyrnamerktar stuðningsaðgerðum í þágu viðkomandi atvinnugreinar. Ísland er einnig orðið dýr áfanga- staður í alþjóðlegum samanburði og því er rétt að stíga varlega til jarðar. Ferðaþjónustan stendur á við- kvæmum tímamótum óvissu í tengslum við bæði kjarasamninga og þróun flugframboðs. Þetta eru ekki kjöraðstæður til að snarhækka verð- miðann til landsins. Hitt er þó líka ljóst að uppbygg- ingarþörfin er veruleg. Sem dæmi má nefna að áætlað hefur verið að það kosti um milljarð að byggja upp nauðsynlega innviði við Jökulsárlón og það er bara einn áfangastaður af mörgum. Eitt af því sem nokkuð hefur verið horft til í þessum efnum er hvort ekki sé eðlilegt að fyrirtæki greiði eins konar afnotagjald fyrir að fá að nýta land í opinberri eigu til að stunda þar ferðaþjónustu. Oft er um að ræða takmörkuð gæði en stýring á þeim gæðum er lítil enn sem komið er. Vaxandi skilningur er á því að þarna gæti verið skynsamlegt að stíga skref – skref sem þjóna öðru og stærra markmiði en hreinni „skattlagningaráráttu“ ef svo má segja, nefnilega aukinni og nauðsyn- legri stýringu í þágu bæði grein- arinnar, almennings og náttúrunnar. ’Mikilvægt er aðminna á þá staðreyndað gjaldtaka er nú þegartil staðar. Hér er inn- heimtur gistináttaskattur, eins og þekkist víða um heim, og hér eru líka tek- in ýmis þjónustugjöld á ferðamannastöðum. Úr ólíkum áttum Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Eggert Að nálgast álögur af varfærni Tónlistarmaðurinn Pétur Jónsson tísti: „Það er ekkert sem ég elska ekki við Gretu Thun- berg. Eins og Astrid hafi skrifað hana. Staðföst og ákveðin, sjálfstæð og sterk, í baráttu við meðvirkt og sjálfhverft samfélag með réttlætið og framtíðina að leiðarljósi, vopn- uð vísindalegum niðurstöðum. Vilj- iði von? Hér er hún.“ Aron Leví Beck skrifaði á sama miðil: „Ég sniðugur: linsýð tvö egg alla morgna og nota þau til að ylja mér um hendurnar á leið út í strætóskýli og borða þau svo þar. Líka ég: dúndra eggjunum í vas- ann á jakkanum mínum, hleyp á eft- ir strætó og þau springa þar.“ Útvarpsmaðurinn Þorsteinn Hreggviðsson, jafnan kallaður Þossi, tísti: „Er að keyra mig í gang til að horfa á þessa Clubdub-mynd, er þetta ekki svip- að og Útkall – Kraftaverk á menntaskólaballi?“ Þórunn El- ísabet Boga- dóttir skrifaði: „Ég held ég hafi aldrei séð gömlu- kallakvenfyrirlitn- inguna kristallast eins skýrt og í þessu viðtali. Og aldrei séð slíkri fyrirlitningu rústað eins vel og hjá okkar einu sönnu @fanneybj #silfrið“ Birta Björns- dóttir tísti: „Besti misskiln- ingur dagsins er að starfsdagur heiti Star Wars-dagur.“ AF NETINU Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími 570 8600 Smyril Line Seyðisfjörður 470 2808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is Heimsæktu Færeyjar eða Danmörku með Norrænu Bókaðu núna og tryggðu þér pláss Innifalið: Sigling með Norrænu fram og til baka, flutningur á bíl og gisting í 2m klefa án glugga. Verð miðast gengi gengi DKK 30. janúar 2019 og getur breyst. DANMÖRK FÆREYJAR Lágannatímabil verð á mann ISK 58.000 Miðannartímabil verð á mann ISK 77.000 Háannatímabil verð á mann ISK 150.000 Lágannatímabil verð á mann ISK37.250 Miðannartímabil verð á mann ISK57.900 Háannatímabil verð á mann ISK88.800 Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Dekraðu við þann sem þú elskar með gómsætri matvöru og fallegum eldhúsáhöldum frá

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.