Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019 Eggert Miklar umræður hafa átt sérstað síðustu ár um slæmastöðu íslenskra ungmenna í lestri (nr. 35 af 69 þjóðum), nátt- úrufræði (nr. 39 af 69 þjóðum) og stærðfræði (nr. 32 af 69 þjóðum í PISA 2015). Til samanburðar er Finnland nr. 4 í lestri, nr. 5 í nátt- úrufræði og nr. 13 í stærðfræði. Stjórnvöld hafa sérstaklega beint sjónum að mögulegum aðgerðum í sambandi við lesturinn. Lítið hefur heyrst um aðgerðir fyrir náttúru- fræði og stærðfræði. Þó rekum við lestina í hópi Norðurlandanna í lestri, stærðfræði og náttúrufræði. Í sambandi við lestur má spyrja hvort þær aðgerðir sem stjórnvöld nota séu alltaf byggðar á réttum for- sendum og hvort við séum að mæla þær breytur sem skipta máli fyrir það sem við viljum bæta. Hvað gerum við? Eitt að því sem Menntamálastofnun (MMS) hefur valið að gera, frá því í september 2017, er að framkvæma mælingar sem innihalda leshraða hjá ca. 40.000 börnum og unglingum í grunnskólum landsins frá 1. til 10. bekkjar. MMS kallar þessar mæl- ingar „lesfimi“ sem byggist á lestr- arnákvæmni, leshraða og hrynræn- um þáttum tungumálsins. Lesfimiviðmið sýna síðan fjölda rétt lesinna orða á mínútu. Fyrstu nið- urstöður frá september 2017 til sept- ember 2018 sýndu aukningu upp á 11 orð á 10 aldurshópa, eða 1,1 orð á hvern aldurshóp. 9. bekkur stóð í stað og 10. bekkur sýndi bætingu upp á tvö orð. Vonandi eru þetta ekki lýs- andi tölur fyrir lesskilning. Það er líka vert að huga að því að u.þ.b. 30% af börnum kunna ekki að lesa eftir 1. bekk, samt er verið að prófa leshraða/ lesfimi í þeim aldurshópi. Það má spyrja hvaða áhrif slíkar endurtekn- ingar mælingar hafi á áhuga hjá börnum og unglingum á lestri. Ung- lingur sem hefur lokið 10. bekk hefur farið í gegnum 30 mælingar á les- hraða á 10 ára skólagöngu. Þegar ég heyrði um þessar mæl- ingar á leshraða (lesfimi) varð ég mjög hissa. Erum við virkilega að fara í mælingar á leshraða í svo stórum stíl (120.000 mælingar á ári)? Eftir öll mín ár í Noregi hafði ég aldr- ei heyrt að leshraði væri mikilvægt viðfangsefni í skólum Noregs. Leið- beinandi minn í doktorsnáminu, John Whiting, gaf mér mörg góð ráð. Eitt af þeim var að reyna alltaf að vinna með fremstu vísindamönnum á þeim sviðum sem þú ert að vinna á. Að vinna með góðu fólki gefur byr undir báða vængi. Þannig að mig langaði að athuga hvað fremsti fræðimaður Norðmanna í lestrarfræðum, Finn- Egil Tønnesen, segði um að fram- kvæma mælingar sem innihéldu les- hraða. Finn-Egil sagði að hann myndi ekki mæla leshraða og að leshraði væri ekki mikið í umræðunni í Nor- egi. Mikilvægara væri að vinna með það að börn yrðu vel læs og að stuðla að nógu mikilli þjálfun. Ég talaði einnig um þetta við Heikki Lyytinen sem er einn af fremstu fræðimönnum Finnlands á sviði lesturs. Hann sagði að nær væri að spyrja krakkana hversu margar bækur þau hefðu lesið undanfarinn mánuð og hverjar hefðu verið áhugaverðastar. Þá hafði ég heyrt frá tveimur sterkum fræði- mönnum í Noregi og Finnlandi. Ég ákvað að spyrja einn af fremstu fræðimönnum Breta, John Stein, sem er prófessor við Magdelene College við Oxford University. John var sam- mála sjónarmiðum Finn-Egils og Heikki. Við ættum ekki að mæla les- hraða heldur leggja áherslu á að börn lærðu að lesa og þjálfunina. Kveikja áhuga hjá börnunum. Hvað um rannsóknir á lestri? Stanislas Dehaene er einn fremsti sérfræðingur í heiminum á sviði heila og færni og hefur sýnt fram á með rannsóknum sínum að bókstafshljóð, kunnátta og það að verða læs er það allra mikilvægasta fyrir lestrarfærni. Rannsóknir Kate Nation við Ox- ford University og samstarfsmanna hafa sýnt að það að læra að lesa og að lesa mikið er lykillinn að velgengni í lestri og að öðlast góðan lesskilning. Ef við skoðum hvaða breytur eru mikilvægar í sambandi við lestur þá er það klárlega eins og Stanislas, Finn-Egil og Kate benda á, að kunna að lesa, lesa mikið og lesskilningur. Þessir fræðimenn tala ekki um les- hraða sem breytu. Ef maður skoðar t.d. 100 m hlaup er hraði lykilatriði og lykilbreyta fyrir árangur. Þar er heimsmet Usain Bolt hjá körlum 9,58 sek. Í lestri er lesskilningur hins veg- ar algjört lykilatriði og börn og ung- lingar finna þann hraða sem passar fyrir þau. Stundum þarf maður að lesa hægt og rólega til að ná innihald- inu en stundum getur maður lesið hraðar. Þegar maður nær innihaldinu í textanum þá er hraðinn réttur fyrir mann. Fylgjum ráði Heikki og annarra framúrskarandi fræðimanna og leggjum frekar áherslu á fjölda bóka sem börnin hafa lesið síðasta mán- uðinn og hvaða þrjár voru skemmti- legastar. Notum frekar fjármagn í að útbúa bækur af mismunandi erfiðleikastigi fyrir börn þar sem þau fá réttar áskoranir; styrkjum rithöfunda í að skrifa góðar spennandi bækur fyrir börn og unglinga; styrkjum skóla- bókarsöfn og bókasöfn í bæjar- félögum. Eflum lestrarþjálfun og þar með lesskilning. Leshraði – eru mælingar sem innihalda leshraða rétt stefna? Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hermundurs@ru.is ’Þegar ég heyrði um þessar mælingar á leshraða (les-fimi) varð ég mjög hissa. Erum við virkilega að fara ímælingar á leshraða í svo stórum stíl (120.000 mælingará ári)? Eftir öll mín ár í Noregi hafði ég aldrei heyrt að leshraði væri mikilvægt viðfangsefni í skólum Noregs.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.