Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Síða 10
VETTVANGUR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019
Eggert
Miklar umræður hafa átt sérstað síðustu ár um slæmastöðu íslenskra ungmenna
í lestri (nr. 35 af 69 þjóðum), nátt-
úrufræði (nr. 39 af 69 þjóðum) og
stærðfræði (nr. 32 af 69 þjóðum í
PISA 2015). Til samanburðar er
Finnland nr. 4 í lestri, nr. 5 í nátt-
úrufræði og nr. 13 í stærðfræði.
Stjórnvöld hafa sérstaklega beint
sjónum að mögulegum aðgerðum í
sambandi við lesturinn. Lítið hefur
heyrst um aðgerðir fyrir náttúru-
fræði og stærðfræði. Þó rekum við
lestina í hópi Norðurlandanna í lestri,
stærðfræði og náttúrufræði.
Í sambandi við lestur má spyrja
hvort þær aðgerðir sem stjórnvöld
nota séu alltaf byggðar á réttum for-
sendum og hvort við séum að mæla
þær breytur sem skipta máli fyrir
það sem við viljum bæta.
Hvað gerum við?
Eitt að því sem Menntamálastofnun
(MMS) hefur valið að gera, frá því í
september 2017, er að framkvæma
mælingar sem innihalda leshraða hjá
ca. 40.000 börnum og unglingum í
grunnskólum landsins frá 1. til 10.
bekkjar. MMS kallar þessar mæl-
ingar „lesfimi“ sem byggist á lestr-
arnákvæmni, leshraða og hrynræn-
um þáttum tungumálsins.
Lesfimiviðmið sýna síðan fjölda rétt
lesinna orða á mínútu. Fyrstu nið-
urstöður frá september 2017 til sept-
ember 2018 sýndu aukningu upp á 11
orð á 10 aldurshópa, eða 1,1 orð á
hvern aldurshóp. 9. bekkur stóð í stað
og 10. bekkur sýndi bætingu upp á
tvö orð. Vonandi eru þetta ekki lýs-
andi tölur fyrir lesskilning. Það er
líka vert að huga að því að u.þ.b. 30%
af börnum kunna ekki að lesa eftir 1.
bekk, samt er verið að prófa leshraða/
lesfimi í þeim aldurshópi. Það má
spyrja hvaða áhrif slíkar endurtekn-
ingar mælingar hafi á áhuga hjá
börnum og unglingum á lestri. Ung-
lingur sem hefur lokið 10. bekk hefur
farið í gegnum 30 mælingar á les-
hraða á 10 ára skólagöngu.
Þegar ég heyrði um þessar mæl-
ingar á leshraða (lesfimi) varð ég
mjög hissa. Erum við virkilega að
fara í mælingar á leshraða í svo
stórum stíl (120.000 mælingar á ári)?
Eftir öll mín ár í Noregi hafði ég aldr-
ei heyrt að leshraði væri mikilvægt
viðfangsefni í skólum Noregs. Leið-
beinandi minn í doktorsnáminu, John
Whiting, gaf mér mörg góð ráð. Eitt
af þeim var að reyna alltaf að vinna
með fremstu vísindamönnum á þeim
sviðum sem þú ert að vinna á. Að
vinna með góðu fólki gefur byr undir
báða vængi. Þannig að mig langaði að
athuga hvað fremsti fræðimaður
Norðmanna í lestrarfræðum, Finn-
Egil Tønnesen, segði um að fram-
kvæma mælingar sem innihéldu les-
hraða.
Finn-Egil sagði að hann myndi
ekki mæla leshraða og að leshraði
væri ekki mikið í umræðunni í Nor-
egi. Mikilvægara væri að vinna með
það að börn yrðu vel læs og að stuðla
að nógu mikilli þjálfun. Ég talaði
einnig um þetta við Heikki Lyytinen
sem er einn af fremstu fræðimönnum
Finnlands á sviði lesturs. Hann sagði
að nær væri að spyrja krakkana
hversu margar bækur þau hefðu lesið
undanfarinn mánuð og hverjar hefðu
verið áhugaverðastar. Þá hafði ég
heyrt frá tveimur sterkum fræði-
mönnum í Noregi og Finnlandi. Ég
ákvað að spyrja einn af fremstu
fræðimönnum Breta, John Stein, sem
er prófessor við Magdelene College
við Oxford University. John var sam-
mála sjónarmiðum Finn-Egils og
Heikki. Við ættum ekki að mæla les-
hraða heldur leggja áherslu á að börn
lærðu að lesa og þjálfunina. Kveikja
áhuga hjá börnunum.
Hvað um rannsóknir á
lestri?
Stanislas Dehaene er einn fremsti
sérfræðingur í heiminum á sviði heila
og færni og hefur sýnt fram á með
rannsóknum sínum að bókstafshljóð,
kunnátta og það að verða læs er það
allra mikilvægasta fyrir lestrarfærni.
Rannsóknir Kate Nation við Ox-
ford University og samstarfsmanna
hafa sýnt að það að læra að lesa og að
lesa mikið er lykillinn að velgengni í
lestri og að öðlast góðan lesskilning.
Ef við skoðum hvaða breytur eru
mikilvægar í sambandi við lestur þá
er það klárlega eins og Stanislas,
Finn-Egil og Kate benda á, að kunna
að lesa, lesa mikið og lesskilningur.
Þessir fræðimenn tala ekki um les-
hraða sem breytu. Ef maður skoðar
t.d. 100 m hlaup er hraði lykilatriði og
lykilbreyta fyrir árangur. Þar er
heimsmet Usain Bolt hjá körlum 9,58
sek. Í lestri er lesskilningur hins veg-
ar algjört lykilatriði og börn og ung-
lingar finna þann hraða sem passar
fyrir þau. Stundum þarf maður að
lesa hægt og rólega til að ná innihald-
inu en stundum getur maður lesið
hraðar. Þegar maður nær innihaldinu
í textanum þá er hraðinn réttur fyrir
mann.
Fylgjum ráði Heikki og annarra
framúrskarandi fræðimanna og
leggjum frekar áherslu á fjölda bóka
sem börnin hafa lesið síðasta mán-
uðinn og hvaða þrjár voru skemmti-
legastar.
Notum frekar fjármagn í að útbúa
bækur af mismunandi erfiðleikastigi
fyrir börn þar sem þau fá réttar
áskoranir; styrkjum rithöfunda í að
skrifa góðar spennandi bækur fyrir
börn og unglinga; styrkjum skóla-
bókarsöfn og bókasöfn í bæjar-
félögum.
Eflum lestrarþjálfun og þar með
lesskilning.
Leshraði – eru mælingar sem
innihalda leshraða rétt stefna?
Vísindi og
samfélag
Hermundur
Sigmundsson
hermundurs@ru.is
’Þegar ég heyrði um þessar mælingar á leshraða (les-fimi) varð ég mjög hissa. Erum við virkilega að fara ímælingar á leshraða í svo stórum stíl (120.000 mælingará ári)? Eftir öll mín ár í Noregi hafði ég aldrei heyrt að
leshraði væri mikilvægt viðfangsefni í skólum Noregs.