Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 26
Í upphafi hvers árs birtir The NewYork Times lista yfir 52 áhuga-verða áfangastaði að ferðast til á
árinu. Árið 2017 var gengið skrefinu
lengra. Ákveðið var að senda mann-
eskju í langferð; á 52 staði á einu ári
og báðu fólk um sækja um þetta
draumastarf. Þrettán þúsund manns
sóttu um starfið sem þótti að vonum
spennandi. Fyrir valinu var hin tæp-
lega fertuga Jada Yuan; blaðamaður
hjá New York magazine. Yuan lagði í
hann í febrúar 2018 og var fyrsti
áfangastaðurinn New Orleans. Ári
síðar kom hún heim hokin af reynslu.
„Ég byrjaði ferðalagið, hlaðin góð-
um ráðum, staðráðin í að fara eftir
þeim öllum: borða allan góða matinn í
New Orleans, fara í fjallgöngu að sæ-
hellinum í Tasmaníu sem allir fara í,
heimsækja öll fjallahof í Pyeong-
chang, Suður-Kóreu. En það sem ég
man best eru litlu sigrarnir og mann-
legu samskiptin,“ segir hún í síðasta
ferðapistli sínum í The New York
Times nú í janúar.
Hún telur upp það sem var minn-
isstæðast.
„Allt vingjarnlega fólkið og góm-
sætu salchipapas (sundurskornar
pulsur með frönskum) sem ég fékk í
perúskum matarvagni á hraðbraut-
inni fyrir utan Disney Springs, Flór-
ída. Maðurinn í Lucerne, Sviss, sem
skilaði mér fartölvunni minni sem ég
hafði gleymt á brú í rigningu,“ segir
Yuan og bætir við: „Traust er það sem
ég hef tekið með mér úr þessu ferða-
lagi. Að treysta sjálfri mér, að treysta
á góðmennsku fólks, að treysta því að
ég sem kona og ferðalangur geti pass-
að upp á mig án þess að missa af
neinu. Sjáið til, þetta var drauma-
djobbið. Það er bara það að hugmynd
mín um hvað gerði þetta að drauma-
djobbi hefur breyst svo mikið.“
Yuan skrifaði pistla frá hverjum
stað sem birtust vikulega í The New
York Times. Nú þegar ævintýrið er á
enda hefur Yuan tekið saman sjö lífs-
lexíur sem gætu hæglega nýst okkur
hinum á ferðalögum um heiminn.
Sérstaklega ef fólk leggur í langferð á
borð við þessa!
1. Eitt ár er fljótt að líða.
Yuan segir fyrstu mánuðina hafa
verið erfiða. Á fimmtu viku var hún
stödd í Bogotá í Kólumbíu og átti hún
þá eftir að skila pistlum frá stoppi
númer þrjú og fjögur. Hún eyddi
þremur dögum við skriftir á hótelher-
berginu og eyddi þar með dýrmætum
tíma sem hún hefði getað notað í að
ganga um stræti borgarinnar, taka
inn stemninguna og mynda. Loks fór
hún út af hótelinu og tók leigubíl á
safn en uppgötvaði þá sér til skelf-
ingar að hún hefði gleymt veskinu á
hótelinu. „Ég missti það bara. Ég
hringdi í góða vinkonu sem hefur
ferðast víða um heim, og grét í sím-
ann. Hún sagði: „Ég veit að þér finnst
þetta erfitt núna en mundu bara að ár
er fljótt að líða.“ Ég mótmælti henni
og sagði að þetta væri lengsta ár ævi
Getty Images/iStockphoto
52 staðir á 52 vikum
Jada Yuan var valin úr hópi þrettán þúsund umsækjenda til þess að ferðast til 52 staða heims á
52 vikum og skrifa um ævintýrið í The New York Times. Hún ferðaðist á einu ári 120 þúsund
kílómetra, einn þriðja af vegalengdinni til tunglsins, og kom heim reynslunni ríkari.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Maturinn var
víða framandi
og Yuan
smakkaði
m.a. maura.
Jada Yuan ferðaðist í heilt ár um heim-
inn fyrir The New York Times. Bolivía
var eitt landanna sem hún heimsótti
en þar má finna falleg lamadýr.
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019
FERÐALÖG
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Almött veggjamálning
Dýpri litir - dásamleg áferð
ColourFutures2018