Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Side 27
minnar og það væri enn bara febrúar
og að hún vissi ekkert um hvað hún
væri að tala. En þessi setning leið
mér ekki úr minni og fékk nýja merk-
ingu þegar ég heyrði sjálfa mig
kvarta yfir þessu frábæra tækifæri.
Að frjósa nærri því í hel og að sofa í
móteli þar sem maður þarf að sitja á
klósettinu á meðan maður fer í
sturtu? Þraukaðu! Þú ert að fara að
sjá Regnbogahæðirnar í Zhangye,
Kína! Ár er fljótt að líða. Aftur að
frjósa og eini kvöldmaturinn er hnet-
ustöng af því að þú vissir ekki að veit-
ingastaðnum væri lokað klukkan
átta? Þú varst á hestbaki á Íslandi!
Ár er fljótt að líða!“
2. Þekktu skipulagshæfileika þína
og takmörk þín.
„Ég myndi áætla að um það bil
60% af þessari vinnu væru að skipu-
leggja ferðina. Jafnvel þótt ég væri
með aðstoðarmann í New York sem
fann fyrir mig hótel og flug,“ segir
Yuan.
„Löndin eru öll mismunandi, mis-
munandi gjaldmiðill, ný tungumál,
öðruvísi menning og taktur. Að eiga
ekki pantaðan miða í lest þýðir eitt á
Indlandi og annað á Spáni,“ segir hún
og nefnir að á sumum stöðum borgar
sig að mæta með fullt veski af seðlum
því kort eru ekki tekin og engir hrað-
bankar sem útlendingar mega nota,
en hún lenti í þeim vandræðum á afr-
ísku eyjunum São Tomé og Príncipe.
Yuan segir því nauðsynlegt að und-
irbúa sig eftir bestu getu þótt ýmis
plön breytist á leiðinni. Hún segist
t.d. hafa þurft að endurskoða á hvaða
tímum dags hún tæki flug því þegar
ferðast er svona ört og mikið borgar
sig að fá góðan nætursvefn þegar
hægt er. Einnig hætti hún að stressa
sig þótt hún missti af flugvél eða lest;
það kæmi alltaf önnur vél og önnur
lest síðar. „Kannski missi ég einn dag
en þegar maður er svona lengi á ferð-
inni verður tíminn sveigjanlegur.“
3. Finndu ofurkraftinn í þér.
Yuan segist hafa uppgötvað, og
nýtt sér til hins ýtrasta, að hún hefði
þann „ofurkraft“ að geta sofnað hvar
og hvenær sem væri. „Ég gat sofnað
á hótelum sem voru við hávaðasamar
götur, með hundagelti alla nóttina.
Ég gat tekið tuttugu mínútna lúra
með reglulegu millibili heilu næturn-
ar þegar ég vakti við skrif.“
4. Prófaðu það!
Í heimsreisu er alveg bókað að ekki
fer allt alltaf eins og þú planaðir og
þar að auki munt þú fá tækifæri til að
upplifa og prófa ýmislegt sem þig
dreymdi ekki einu sinni um. Yuan
lenti í ýmsum ævintýrum og lærði
það á leiðinni að segja já; prófa alla
skapaða hluti. Þannig hoppaði hún af
háum kletti í ískalda á, fór á brim-
bretti og í köfun á Fiji og smakkaði
taco með stökkum maurum í Bólivíu.
Í Kambódíu rakst hún á nokkuð á
matseðli sem hún hélt að hún myndi
aldrei sjá, hvað þá smakka: steiktur
og vel kryddaður nautslimur. Vinur
hennar hvatti hana til dáða og sagði
hana alltaf geta státað sig af því að
hafa smakkað nautslim.
„Rétturinn kom á borðið. Hann leit
út nákvæmlega eins og þú gætir
ímyndað þér. Ég fékk mér að
smakka. Það var tekið upp á mynd-
band. Ég veit að ég sagði að maður
ætti að prófa allt, en ég get sagt þér
að sleppa þessu. Ég er búin að því
fyrir þig,“ segir Yuan.
5. Farðu varlega.
Yuan segist ávallt hafa haft í huga
að hún væri ferðamaður því reglur
sem gilda um heimamenn sem þekkja
hvern krók og kima og falla inn í hóp-
inn, gilda ekki endilega fyrir ferða-
menn. Hún segist t.a.m. hafa forðast
næturlífið því henni fannst hún ekki
óhult að fara út á lífið ein. Eitt skipti, í
Belgrad í Serbíu, ákvað hún að borga
fyrir leiðsögumann og túlk til þess að
fylgja sér út á lífið.
„Það kostar smávegis meira að
vera ung kona einsömul á ferðalagi. Í
borgum sem töldust hættulegar tók
ég leigubíla og Uber, frekar en ódýr-
ar almenningssamgöngur. Og ef ég
fór í fjallgöngu eða í skoðunarferðir
um borgir, valdi ég oft að fá mér leið-
sögumann og þurfti oft að borga
meira því oftast er lágmarkið að vera
með tvo í hóp,“ segir hún.
6. Talaðu samt við ókunnuga.
Yuan hitti og kynntist mörgu fólki
á leið sinni um heiminn. „Fólk spyr
mig gjarnan hvað hafi verið stærsta
lexían sem ég lærði á leiðinni. Ég
svara alltaf; að fólk er í grunninn gott
alls staðar í heiminum.“
7. Að vera einn er ekki það sama
og að vera einmana.
„Að ferðast einn er upplifun sem ég
myndi mæla með fyrir hvern sem er
og sérstaklega ættu allar konur að
prófa þetta einu sinni á lífsleiðinni.
Þótt þú sért ekki með vinum þínum
eða fjölskyldu ertu sjaldan einn. Þeg-
ar maður er með snjallsíma í vasanum
er hægt að hringja heim, eða setja inn
mynd á samfélagsmiðlana sem oftar
en ekki endar á því að þú byrjar að
spjalla við ókunnuga,“ segir hún.
Yuan hitti oft aðra ferðalanga sem
slógust í för með henni, jafnvel í
nokkra daga í senn. Hún var líka dug-
leg að vera í sambandi við vini sína
heima og segir símtöl við þerapistann
hafa verið nauðsynleg.
Eftir vikurnar 52 hélt Yuan heim á
leið, til Brooklyn. Rétt fyrir heim-
ferðina ritaði hún: „Hvað er næst? Ég
veit það ekki. Ég er á leiðinni heim í
íbúðina mína í Brooklyn sem ég
kvaddi fyrir tólf mánuðum en er ekki
lengur miðpunktur lífs míns. Hann er
hjá sjálfri mér og hann er hreyf-
anlegur.“
Á leiðinni hitti Yuan áhugavert fólk og segir hún fólkið sem hún hitti það
minnisstæðasta úr ferðinni.
Ljósmyndir/Jada Yuan
Í Afríku fór Yuan í safarí og skoðaði villtu dýrin.
Yuan ferðaðist til Gansu í Kína og segir hún einna erfiðast hafa verið að
komast þangað af öllum stöðunum 52.
Jada Yuan fór að sjálfsögðu
að skoða Kínamúrinn á
ferðalagi sínu um heiminn.
10.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is