Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Page 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.2. 2019 LESBÓK Í lífi Hörpu Óskar Björnsdóttur, sópran-söngkonu og háskólanema, er eins og jan-úarmánuður hafi keppst við að bæta upp fyrir janúar í fyrra, sem reyndist henni fádæma erfiður mánuður. Í ár er annað upp á teningn- um. Ekki aðeins var hún valin einn fjögurra sig- urvegara í einleikarakeppninni Ungir einleik- arar 2019 heldur líka Rödd ársins 2019 í keppninni Vox Domini, þar sem hún hafnaði líka í fyrsta sæti í sínum flokki; háskólaflokki, og hlaut auk þess áhorfendaverðlaunin. Ekki of- mælt að Harpa Ósk hafi slegið í gegn síðustu helgina í janúar í Salnum í Kópavogi. Á sama tíma í fyrra hafði hún áhyggjur af að söngferill- inn væri fyrir bí. Komum að því síðar. Eins og undanfarin ár stóð Félag íslenskra söngkennara, FÍS, fyrir Vox Domini, söng- keppni klassískt menntaðra söngvara. Keppt var í þremur flokkum; háskólamenntaðir kepptu í opnum flokki, háskólanemar í há- skólaflokki og framhaldsflokkurinn var fyrir þá sem lokið höfðu framhaldsnámi. Rödd ársins var svo valin þvert á flokka. Keppninni er ætlað að vera vettvangur fyrir söngnema til þess að koma fram og kynnast því hvernig áheyrnar- prufur og keppni í öðrum löndum fara fram. Framtak í þágu söngmenningar með öðrum orðum. Sigur eykur sjálfstraustið „Við vorum 14 af 23 sem þriggja manna dóm- nefnd, með Elmar Gilbertsson óperusöngvara í forsæti, valdi á laugardeginum til að keppa til úrslita á sunnudagskvöldið. Sem betur fer þurftum við ekki að bíða eftir úrslitunum í Tón- listarskóla Garðabæjar þar sem undankeppnin var haldin, heldur gátum við farið heim og beðið eftir tilkynningu um hvort við ættum að syngja daginn eftir. Mig langaði á skíði af því það var svo gott veður en þorði ekki að fara ef kallið kæmi,“ segir Harpa Ósk. Þrátt fyrir að hafa tíu dögum áður sungið í Eldborg í Hörpu í tilefni sigursins í keppninni Ungir einleikarar 2019, sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur árlega fyrir í samstarfi við Listaháskóla Íslands, segist hún hafa verið pínu smeyk um að komast ekki gegnum undan- úrslitin í Vox Domini. „Mér finnst ég bara vera raunsæ, en fólk er alltaf að segja að ég eigi að hafa meiri trú á sjálfri mér. Þátttaka í keppnum eins og Ungum einleikurum og Vox Domini er dýrmæt reynsla. Sigur eykur sjálfstraustið og er kannski vísbending um að ég eigi að halda söngnáminu áfram og gera sönginn að atvinnu. Mér hefur alltaf fundist fólk þurfa að hafa alveg sérstakan haus til að funkera í óperuheiminum. Þeir sem eru með óbilandi sjálfstraust þrífast best og ég þarf bara að læra af þeim.“ Ekki var þó annað að merkja en Harpa Ósk væri full sjálfstrausts þegar hún steig á svið Eldborgar og söng rómantíska franska aríu eft- ir Gustave Charpentier, brá sér í hlutverk Næt- urdrottningarinnar í Töfraflautu Mozarts og sýndi loks leikræn tilþrif sem Kúnígúnd í „Glitt- er and be Gay“ úr óperettunni Candide eftir Leonard Bernstein, sem byggð er á Birtingi eft- ir Voltaire. Eða þegar hún heillaði dómarana í Vox Domini og áhorfendur með „Ave Maria“ eftir Sigvalda Kaldalóns og Næturdrottning- unni sem hún valdi að syngja aftur þar sem svo skammur tími var milli viðburðanna í Eldborg og Salnum. Á úrslitakvöldinu söng hún „Svarta Rosor“ eftir Sibelius og „Depuis le jour“ eftir Charpentier. Næturdrottningin hentaði raf- magnsverkfræðingnum „Næturdrottningin og Kúnígúnd eru drauma- hlutverkin mín. Mér finnst ég hafa verið heppin að hafa fengið tækifæri til að syngja þau og meira að segja Næturdrottninguna þrisvar, því ég fór fyrst með hlutverkið í uppfærslu nem- endaóperu Söngskólans á Töfraflautunni í Hörpu fyrir tveimur árum. Mér finnst skemmtilegast að syngja fjörugar og flúraðar aríur sem bjóða upp á að ég geti brugðið svolítið á leik,“ segir Harpa Ósk og bætir við – svona eins og í framhjáhlaupi – að hlutverk Næt- urdrottningarinnar hafi verið mjög hentugt fyr- ir manneskju eins og hana sem jafnframt stund- aði nám í rafmagnsverkfræði í Háskóla Íslands. „Ég þurfti ekki að syngja á öllum æfingunum því Næturdrottningin kemur bara þrisvar sinn- um inn á sviðið í uppfærslunni. Hún syngur stutt, en er tilkomumikil og vekur mikla at- hygli,“ útskýrir hún. Upp úr dúrnum kemur að Harpa Ósk útskrif- ast með BS í rafmagnsverkfræði eftir nákvæm- lega tvær vikur, hinn 23. febrúar. „Algjör klikk- un,“ svarar hún einfaldlega þegar hún er spurð hvernig sé að hefja söngnám í LHÍ og vera á sama tíma að útskrifast í gjörólíku fagi frá HÍ. Þegar hér er komið sögu er vert að staldra við og líta aðeins yfir farinn veg: Harpa Ósk og systkini hennar tvö eru alin upp við mikla tón- list. Hún segir móður sína, Heiðrúnu Hákonar- dóttur, söngkennara og kórstjóra, og föður sinn, Björn Þrastar Þórhallsson, tannlækni, ætíð hafa stutt þau og verið hvetjandi. „Ég var fjög- urra ára þegar ég byrjaði að læra á píanó hjá Kristni Erni Kristinssyni, sem löngu seinna var undirleikari minn í Söngskólanum í Reykjavík. Þegar ég var níu ára dreif mamma mig í kór, en hún stjórnaði kór Snælandsskóla í 12 ár, var sjálf í Þjóðleikhúskórnum á sínum tíma og hefur sungið með kammerkórnum Hljómeyki áratug- um saman. Fjórtán ára byrjaði ég í Gradualekór Langholtskirkju hjá Jóni Stefánssyni og einnig í söngnámi hjá Þóru Björnsdóttur í kórskólan- um. Árið 2012 fór ég svo yfir til Ólafar Kol- brúnar Harðardóttur í Söngskólanum í Reykja- vík.“ Þaðan lauk Harpa Ósk 8. stigs prófi vorið 2018 og er nú á fyrsta ári á bakkalárstigi í LHÍ undir leiðsögn Ólafar Kolbrúnar, Hönnu Dóru Sturludóttur, Kristins Sigmundssonar og Þóru Einarsdóttur. „Ég valdi sönginn fram yfir pí- anóið þegar ég var sautján ára því þá var orðið of mikið fyrir mig að stunda nám í hvoru tveggja samhliða náminu á eðlisfræðibraut í Menntaskólanum í Reykjavík. Þegar ég byrjaði í LHÍ valdi ég píanó sem aukahljóðfæri og fór í vikunni í minn fyrsta píanótíma í sjö ár. Mjög skemmtilegt.“ Bílslys setti strik í reikninginn Hörpu Ósk gengur nú allt í haginn, þótt slys sem hún varð fyrir í janúar í fyrra hafi sett strik í reikninginn og hún hafi um hríð óttast um röddina af þess völdum. „Maður sem var undir áhrifum fíkniefna keyrði jeppanum sínum aftan á Yarisinn minn þar sem ég beið eftir rauðu ljósi. Ég fékk tvö högg, fyrst skelltist höfuðið aftur og síðan fram þannig að brjósk milli hryggjarliðanna skaddaðist með þeim afleið- ingum að ég þarf ennþá að vera í sjúkraþjálfun. Sem betur fer höfðu meiðslin ekki áhrif á rödd- ina, en það var mjög sárt að þurfa að hætta að æfa og segja mig frá tveimur verkefnum. Ann- ars vegar hlutverki Adele í Leðurblökunni í uppfærslu Söngskólans í Hörpu og hins vegar sópranhlutverkinu í Messíasi með kór Lang- holtskirkju. Mér finnst erfiðast að sitja lengi, en kannski hef ég bara gott af að standa og hreyfa mig meira. Ég get sungið og það er fyrir mestu.“ Í fyrrasumar var Harpa Ósk næstum ákveðin í að starfa sem rafmagnsverkfræðingur. Hún hafði hlotið styrk til að vinna að þróun ígræð- anlegrar rafrásar í tíu vikna rannsókn við einn fremsta háskóla heims, California Institute of Technology – Caltech í Pasadena í Kaliforníu í Bandaríkjunum. „Rafrásin mælir glúkósa í blóði og er hugsuð fyrir sykursjúka svo að þeir þurfi ekki að mæla sig með því að stinga sig sí- fellt með nál í fingurgómana. Ég hugsaði með mér að ég vildi starfa við eitthvað þessu líkt en þegar ég kom heim og fór að syngja meira gleymdi ég því öllu saman og langaði bara að syngja.“ Söngurinn spyr um aldur Harpa Ósk kveðst þó hafa í huga að rafmagns- verkfræðin spyrji ekki jafn mikið um aldur og söngurinn. Hár sópran eins og hún sé endist ekkert rosalega lengi öfugt við til dæmis bass- ann. „Ég ætla því að einbeita mér að söngnámi og söng á næstunni og hvíla verkfræðina aðeins, hún getur alveg beðið,“ segir Harpa Ósk og við- urkennir að hún líti svolítið á sigur í keppni á borð við Unga einleikara og Vox Domini sem skilaboð um að leggja fyrir sig söng – að minnsta kosti fyrst um sinn. Harpa Ósk Björnsdóttir valdi sönginn fram yfir píanó- ið þegar hún var sautján ára. Morgunblaðið/Eggert Rafmögnuð óperusöngkona Harpa Ósk Björnsdóttir var einn fjögurra sigurvegara í einleikarakeppninni Ungir einleikarar 2019. Skömmu síðar var hún valin Rödd ársins 2019 í Vox Domini-söngvakeppninni þar sem hún hlaut líka fyrsta sætið í sínum flokki og áhorfendaverðlaunin Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is ’Rafrásin mælir glúkósa í blóðiog er hugsuð fyrir sykursjúkasvo að þeir þurfi ekki að mæla sigmeð því að stinga sig sífellt með nál í fingurgómana. Ég hugsaði með mér að ég vildi starfa við eitthvað þessu líkt en þegar ég kom heim og fór að syngja meira gleymdi ég því öllu saman og langaði bara að syngja.Rödd ársins 2019.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.