Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.02.2019, Qupperneq 37
Eins mikið og látið hefur verið
með Vicious gegnum tíðina og menn
velt sér upp úr lífi hans og störfum
mætti ætla að hann hafi verið kom-
inn á miðjan aldur þegar hann dó.
Öðru nær, hann var 21 árs. Segið svo
að pönkarar lifi ekki hraðar en aðrir
menn!
Var „attitjúd“ pönksins
Vicious, sem hét réttu nafni John
Simon Ritchie, fæddist í Lundúnum
10. maí 1957. Hann hafði komið við
sögu hjá einhverjum pönkböndum
áður en Sex Pistols réð hann sem
bassaleikara snemma árs 1977 sem
sætti tíðindum í ljósi þess að hann
kunni varla á bassa. En „lúkkið“, við-
horfið og sviðssjarminn voru hins
vegar upp á tíu. „Ef Johnny Rotten
[söngvari Sex Pistols] er rödd pönks-
ins, þá er Sid Vicious „attitjúdið“,“
var einu sinni haft eftir Malcolm
McLaren.
Vicious var aðeins með á einni
plötu Pistols, Never Mind the Bol-
locks, Here’s the Sex Pistols. Lék þó
bara í einu lagi, bæði vegna þess að
Steve Jones gítarleikari var betri á
bassa og svo vegna þess að Vicious lá
um tíma á spítala meðan á upptökum
stóð með lifrarbólgu vegna sprautu-
fíknar sinnar.
Seinna iðraðist John Lydon
(Johnny Rotten) þess að hafa dregið
æskuvin sinn inn í bandið. „Hann átti
enga möguleika,“ sagði hann í viðtali
árið 2014. „Móðir hans var heróínfík-
ill. Mér líður illa yfir því að hafa
fengið hann til liðs við bandið, hann
réð ekki neitt við neitt. Mér finnst ég
bera ákveðna ábyrgð á dauða hans.“
Kynlegur hippi
Lydon kallar Beverly, móður Vicio-
us, „kynlegan hippa“ í bókinni Rott-
en: No Irish, No Blacks, No Dogs frá
1993. Hún skildi við föður Vicious
þegar drengurinn var lítill og var
stöðugt á faraldsfæti. Ku hafa selt
kannabis á Ibiza um tíma til að draga
fram lífið. Loks komu mæðginin sér
fyrir í Hackney-hverfinu í Lund-
únum.
Í bók sinni um Vicious og Spungen
frá 1983 segir móðir þeirrar síð-
arnefndu, Deborah Spungen, að Vic-
ious hafi komið sér fyrir sjónir sem
feiminn og barnalegur klaufi sem
hafi verið yfir sig ástfanginn af dótt-
ur hennar. Hún rifjar meðal annars
upp símtal úr fangelsinu, þar sem
hann tjáði tengdamóður sinni tárvot-
ur: „Ég skil ekki hvers vegna ég er á
lífi, úr því Nancy er farin.“
Hann þurfti ekki að þjást lengi.
Fræg mynd ljósmyndarans
Chalkies Davies af Sid Vi-
cious og Nancy Spungen.
10.2. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
GRUGG Gítarleikarinn Jerry Cantrell kveðst muna
lítið frá fyrstu Alice in Chains-tónleikunum eftir að
söngvarinn Layne Staley féll frá en bandið kom saman
á góðgerðartónleikum árið 2005 til að safna peningum
fyrir fórnarlömb hamfara. Ástæðan er sú að það mun
hafa verið tilfinningaþrungin stund að standa á sviðinu
án kærs félaga þeirra. Þetta upplýsti Cantrell í út-
varpsþætti Lars Ulrichs, It’s Electric! Hann sagði enn-
fremur að ekki hafi staðið til að endurtaka leikinn en
þar sem þremur eftirlifandi meðlimum Alice in Chains
hafi liðið vel við flutning gömlu slagaranna hafi þeir
hugsað mér sér: Hvers vegna ekki? Bandið hefur starf-
að allar götur síðan með söngvaranum William DuVall.
Tilfinningalegt óminni
Jerry Cantrell
og Lars Ulrich.
MÁLMUR Philip Anselmo hlóð í nokkra Pan-
tera-slagara á tónleikum með hljómsveit
sinni The Illegals í Brasilíu á dögunum en
gamli Pantera-söngvarinn hefur notað það
efni sparlega í seinni tíð. Í samtali við ástr-
alska tímaritið Heavy kvaðst hann með þess-
um hætti vilja gleðja áhangendur sveit-
arinnar en trymbillinn, Vinny Paul, sálaðist
sem kunnugt er á síðasta ári. „Þetta var erf-
itt ár og hvers vegna ekki að spila gamla efn-
ið sem fólk vill heyra og hefur beðið um
lengi?“ sagði Anselmo. Dimebag Darrell, gít-
arleikari Pantera, var myrtur árið 2004.
Hlóð í nokkra Pantera-slagara
Philip Anselmo minnist fallinna félaga.
Úrvals-
FÓÐUR
fyrir hestinn þinn
Reykjavík - Selfoss - Hella - Hvolsvöllur - Sími 570 9800 - fodur@fodur.is
SÉRBLAÐ
Tíska&
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 15. febrúar
Fjallað er um tískuna í förðun,
snyrtingu, fatnaði og fylgihlutum auk
umhirðu húðarinnar, dekur o.fl.
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til mánudagsins 11. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur