Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Tenerife
Suites at the HollywoodMirage
20. mars í 14 nætur
Frá kr.
169.995
aaaa
FLOGIÐMEÐ
Flugsæti frá kr.
69.900
FLUGOGGISTING
báðar leiðir
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Kyrrsetning þriggja Boeing 737
MAX 8-véla Icelandair hefur áhrif á
störf og þjálfun um 70 flugmanna
félagsins, en Flugöryggisstofnun
Evrópu (EASA) hefur bannað notk-
un farþegaþotna af þessari gerð í
lofthelgi Evrópu í kjölfar flugslyss-
ins í Eþíópíu sl. sunnudag.
„Þetta hefur áhrif á um 60-70 flug-
menn hjá okkur sem eru þjálfaðir á
MAX,“ segir Jens Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarsviðs Ice-
landair, í samtali við Morgunblaðið
og bætir við að sumir þessara flug-
manna sitji heima, þar sem MAX-
vélarnar hafa nú verið teknar úr
áætlun, á meðan aðrir flugmenn sjá
um þjálfun og enn aðrir eru í þjálfun
á vegum félagsins.
„Flugfreyjur og flugþjónar eru í
flestum tilfellum þjálfuð á allar okk-
ar vélar og því getur þetta fólk farið
á milli véla. Þeir flugmenn sem eru
þjálfaðir á MAX-inn sitja hins vegar
heima meðan á þessu stendur. Flug-
menn fljúga bara einni flugvélateg-
und í einu,“ segir Jens og bætir við
að flugmenn Icelandair sýni þessari
stöðu mikinn skilning og hafi
„brugðist mjög vel“ við þessu flókna
ástandi.
Snertir um 70 flugmenn
Kyrrsetning á MAX-vélum Icelandair hefur áhrif á störf
og þjálfun 60-70 flugmanna Sumir sitja auðum höndum
Morgunblaðið/Eggert
Kyrrsett Ein þriggja Boeing 737 MAX 8 sem Icelandair hefur í sinni eigu.
„Hún getur látið
sig hverfa tíma-
bundið í samráði
við ríkisstjórnina.
En svona útspil
hefur hins vegar
gerst afar sjald-
an,“ segir Ólafur
Þ. Harðarson,
prófessor í stjórn-
málafræði við Há-
skóla Íslands, í
samtali við Morgunblaðið og vísar í
máli sínu til ákvörðunar Sigríðar Á.
Andersen þess efnis að stíga tíma-
bundið til hliðar sem dómsmála-
ráðherra. Tilkynnti hún um þetta á
blaðamannafundi í gær.
Fyrstur ráðherra til að segja tíma-
bundið af sér var Magnús Guðmunds-
son þáverandi dómsmálaráðherra ár-
ið 1932. Gerði hann það eftir að hafa
verið dæmdur í undirrétti en eftir að
hafa verið sýknaður í Hæstarétti Ís-
lands tók Magnús aftur við sínu fyrra
embætti.
„Svo gerðist þetta einnig þegar
Katrín Júlíusdóttir var fjármála-
ráðherra og fór í barneignarleyfi. Það
er að vísu svolítið öðruvísi en þá var
Oddný G. Harðardóttir sett í hennar
stað,“ segir Ólafur. „Miðað við hefð-
ina er þetta ákvörðun Sjálfstæðis-
flokksins hvort fallist sé á að Sigríður
fari í leyfi og hvort og þá hvenær hún
kemur aftur.“ khj@mbl.is
Útspil ráð-
herrans er
sjaldgæft
Ólafur Þ.
Harðarson
Tveir hafa áður
vikið tímabundið
„Ég hef skilning á þessari ákvörð-
un,“ segir Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Miðflokksins,
um ákvörðun Sigríðar Á. Andersen
að víkja úr sæti dómsmálaráðherra.
„Hins vegar finnst mér blasa við
pólitískt séð að einn ríkisstjórnar-
flokkur neyðir þarna annan til þess
að setja sinn ráðherra út. Með því er
ég að vísa til þess að með ákvörðun
dómsmálaráðherra sé verið að
bregðast við kröfu VG sem hafi nú
tekist að losa sig við þann ráðherra,
til lengri eða skemmri tíma, sem
hvað helst hefur veitt einhverja mót-
spyrnu gegn vinstri grænum innan
ríkisstjórnarinnar,“ sagði Sigmund-
ur í viðtali á mbl.is í gær.
Losna við erf-
iðan ráðherra
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Hæstiréttur Íslands sendi aðilum
máls nr. 29/2018, Glitni Holdco ehf.
og Útgáfufélaginu Stundinni ehf.,
fyrirspurn í gær þar sem spurt var
hvort krafa yrði gerð um að fyrri
dómur Landsréttar í málinu yrði
ómerktur, í ljósi niðurstöðu Mann-
réttindadómstóls Evrópu (MDE) í
tengslum við Landsréttarmálið.
Málflutningur í málinu er áætlaður á
föstudag í þessari viku.
Fram kemur að Ragnheiður
Bragadóttir landsréttardómari hafi
átt hlut að úrlausn málsins fyrir
Landsrétti. Því hafi svo verið slegið
föstu í dómi MDE að ranglega hafi
verið staðið að skipun Arnfríðar Ein-
arsdóttur í embætti landsréttardóm-
ara með þeim afleiðingum að við
meðferð málsins hafi ekki verið full-
nægt skilyrðum samnings um vernd-
un mannréttinda og mannfrelsis.
Sömu aðstæður og byggt hefði verið
á að þessu leyti í dóminum ættu við
um Ragnheiði Bragadóttur.
Senda fleirum fyrirspurnir
Af þessum sökum beindi Hæsti-
réttur fyrirspurn til aðila málsins um
hvort þeir hefðu þetta í hyggju. Í
ljósi þess sem opinberlega hefði
komið fram, að íslenska ríkið hefði til
athugunar að óska eftir því að fyrr-
nefndu máli fyrir MDE yrði vísað til
yfirdeildar MDE, yrði þá óhjá-
kvæmilegt að fresta munnlegum
flutningi máls Glitnis HoldCo og
Stundarinnar þar til endanleg nið-
urstaða fengist um þetta efni. „Verði
á hinn bóginn engin slík krafa gerð
mun málið koma til munnlegs flutn-
ings á áður boðuðum tíma,“ segir í
fyrirspurninni.
Í svörum aðilanna kom fram að
þeir myndu ekki krefjast þess fyrir
Hæstarétti að dómur Landsréttar
yrði ómerktur. Ákvað Hæstiréttur
því að munnlegur málflutningur
málsins færi fram á áður boðuðum
tíma, á föstudag. „Sams konar erindi
verður beint til aðila annarra dóms-
mála fyrir Hæstarétti þar sem eins
stendur á um,“ segir Hæstiréttur.
Hæstiréttur kannaði hug aðila
Spurt, með vísan til MDE, hvort farið yrði fram á ómerkingu dóms Landsréttar
Hugmyndir ríkisins um áfrýjun geti leitt til frestunar málflutnings í Hæstarétti
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, formaður
Dómarafélags Íslands, segir bolt-
ann hjá stjórnvöldum og Alþingi,
hvað varðar úrlausn þeirrar óvissu
sem dómur Mannréttindadómstóls
Evrópu hefur valdið um stöðu
Landsréttar. Hún lýsir ánægju með
yfirlýsingar stjórnvalda í gær um
að þau hyggist leysa málið hratt.
„Við sjáum ekki alveg til lands í
þessu máli frekar en aðrir,“ segir
Ingibjörg. „En við leggjum mikla
áherslu á að það verði að eyða
óvissu um stöðu Landsréttar og
hvernig hann heldur áfram. Hann
getur ekki verið óstarfhæfur eins
og í dag og í gær, það er útilokað,“
segir hún.
Ingibjörg kveðst vongóð um að
hægt verði að finna lausnir á óvissu-
ástandinu til skamms tíma, en það
velti þó á því hve langt það tímabil
verði sem óvissan vari.
„Það verður samt að hafa fyr-
irvara á þessum dómi því hann
kann ef til vill ekki að vera end-
anlegur. Mér heyrðist að forsætis-
ráðherra hefði lýst því yfir að óskað
yrði eftir því að honum yrði áfrýjað.
Það veldur auðvitað ákveðnum
áhyggjum, því þá getur óvissu-
ástandið staðið lengur en ella,“ seg-
ir hún og ítrekar að málið þoli enga
bið. „Ég vænti þess að stjórnvöld
hafi íhugað að þessi staða kynni að
koma upp og ekki verið algjörlega
óundirbúin, með vísan til þess
hvernig rétturinn vann þetta mál,“
segir hún og bendir á í því sam-
hengi hve skjótlega málið fékk af-
greiðslu hjá Mannréttindadómstóln-
um.
Lýsa „sturluðu ástandi“
Berglind Svavarsdóttir, formaður
Lögmannafélags Íslands, sagði í
samtali við mbl.is í gær að dóm-
urinn skapaði gríðarlega réttar-
óvissu sem leysa þyrfti úr sem
fyrst. „Það þarf að bregðast við með
einhverjum hætti,“ sagði hún og
kvað það eðlilegt að einhvers konar
viðbragðsáætlun yrði sett af stað.
„Stjórnvöld hljóta að vera með ein-
hverja viðbragðsáætlun, en að
henni þurfa að koma aðilar úr rétt-
arvörslukerfinu,“ sagði hún. Lög-
mannafélagið væri reiðubúið að eiga
aðkomu að málinu yrði þess óskað.
Greint var frá því í gær að Fang-
elsismálastofnun hefðu borist beiðn-
ir um frestun afplánunar og lög-
menn hafa lýst „sturluðu ástandi“.
Berglind sagði að ákveðinn glund-
roði hefði skapast. „Þess vegna er
svo mikilvægt að úr þessum glund-
roða verði leyst sem fyrst og það
þurfa allir að leggjast á eitt til þess
að reyna að leysa þetta mál og gera
það með hag réttarríkisins í huga,“
sagði hún.
Boltinn hjá stjórnvöldum og
Alþingi hvað Landsrétt varðar
Morgunblaðið/Hanna
Landsréttur Engin mál verða dæmd í hinum nýstofnaða dómstól út vikuna.
Ingibjörg
Þorsteinsdóttir
Berglind
Svavarsdóttir
„Glundroði“ meðal lögmanna
Úrlausn óvissunnar þoli enga bið