Morgunblaðið - 14.03.2019, Side 55
an hefði aldrei verið betri en nú fjár-
hagslega og það mætti m.a. þakka
netinu með streymi sínu og verslun.
Eftir heimsóknina í Tutl var svo
haldið til Klaksvíkur þar sem boðið
var upp á kynningu á alþjóðlegri
tónlistarhátíð sem þar er haldin ár-
lega og tónleika með innfæddum
sem voru, merkilegt nokk, allt karl-
menn með gítar. Svo virðist sem
annar hver karl í Færeyjum sé
gítarleikari og þriðji hver trúbador.
Heitur Teitur
Eftir stutta hvíld á hóteli var
komið að tilefni heimsóknarinnar,
Færeysku tónlistarverðlaununum,
FMA. Verðlaunahátíðin var sýnd
„beinleiðis“ í Kringvarpinu og marg-
ir fremstu tónlistarmenn landsins
komu fram, þeirra á meðal hinn
heillandi og fjölhæfi Teitur Lassen
sem lék á flygil og fiðlu og söng af
mikilli innlifun. Lúppaði hann rödd
sína og fiðluleik listavel og spann úr
fallegan vef. Teitur hlaut tvenn
verðlaun þetta kvöld, fyrir lag ársins
í flokki rokk- og popptónlistar, lagið
„Sara“ og sem besti sólólistamaður í
sama flokki. Áttu eflaust margir von
á því að hann yrði kosinn söngvari
ársins en fyrir valinu varð Jón Ald-
ará úr dómsdagsmálmsveitinni
Hamferð. Hamferð hlaut tvenn
verðlaun til viðbótar, fyrir besta
textann og upptökustjórnanda árs-
ins, Theodor Kapnas. Íslandsvin-
urinn Eivør Pálsdóttir hlaut jafn-
mörg verðlaun og Hamferð þetta
kvöld en var fjarri góðu gamni og
þakkaði fyrir sig með vídeóupptök-
um frá Stokkhólmi. Verðlaunin
hlaut hún í opnum flokki fyrir út-
gáfu ársins eða tónleika, tónlist sem
hún samdi með skoska tónskáldinu
John Lunn við sjónvarpsþættina
The Last Kingdom og hlutu þau
einnig verðlaun í opnum flokki fyrir
tónverk ársins. Þriðju verðlaunin
hlaut Eivør svo sem söngkona árs-
ins í opnum flokki og tók Sigvør
Laksá við verðlaunagripunum
þremur. Hélt blaðamaður fyrst að
þar væri komin móðir tónlistar-
konunnar þar sem hann skorti þjálf-
un í færeysku. Reyndist konan vera
fyrrverandi umboðsmaður tónlistar-
konunnar.
Einna mest spenna ríkti um verð-
launin fyrir bestu popp- eða rokk-
plötu ársins 2018 og hlaut þau Mar-
ius nokkur Ziska fyrir hina mjög svo
vönduðu breiðskífu sína Port. Var
samkeppnin hörð í þessum flokki því
meðal tilnefndra voru Teitur fyrir
plötu sína I Want To Be Kind og
Hamferð fyrir Támsins likam en
báðar hafa hlotið mikið lof. Þá var
nýjasta stjarna Færeyinga, rapp-
arinn Silvurdrongur, líka tilnefndur
fyrir Silvurpláta sem er líkt og hinar
virkilega vönduð.
Étið hund!
Af öðrum verðlaunum þetta kvöld
má svo nefna að í opnum flokki var
hljómsveit ársins valin Sinfóníu-
hljómsveit Færeyja og Eli nokkur
Tausen var verðlaunaður sem nýliði
ársins. Áheyrendaverðlaunin hlaut
gleðipopp- og danssveitin VSJ og
heiðursverðlaun söngkonan Tey av
Kamarinum, sem af tóndæmum
mætti segja að væri Helena Eyjólfs
þeirra Færeyinga eða jafnvel Svan-
hildur Jakobs. Af hljómsveitum sem
stigu á svið þetta kvöld ber svo sér-
staklega að nefna Joe and the Shit-
boys, litríka pönkrokksveit sem lék
stutt og skemmtilega stuðandi lög.
Söngvarinn hljóp um sviðið líkt og
óður væri og söng - eða æpti öllu
heldur - á ensku að þeir sem vildu
borða kjöt ættu að byrja á því að éta
hundinn sinn. Einmitt það!
Verðlaununum var að hátíð lok-
inni svo fagnað fram á nótt í eftir-
teiti í Reinsaríinu góða þar sem boð-
ið var upp á mat, drykk og - auðvitað
- tónlist. Føroyska tónleikalívið
blómar, eins og frændur vorir
myndu orða það.
Ljósmynd/Jens Kr. Vang
Kveðja Eivør Pálsdóttir, þekktasta tónlistarkona Færeyja, sendi kveðju.
Ljósmynd/Álvur Haraldsen
Spuni Teitur Lassen sýndi listir sínar við flygilinn í Norðurlandahúsinu.
Menning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn Sun 12/5 kl. 13:00 58.sýn
Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn Sun 12/5 kl. 16:00 59.sýn
Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn Sun 19/5 kl. 13:00 60.sýn
Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 54.sýn Sun 19/5 kl. 16:00 61.sýn
Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 55.sýn Sun 26/5 kl. 13:00 Auka
Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 13:00 56.sýn Sun 2/6 kl. 13:00 Auka
Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 57.sýn Lau 8/6 kl. 13:00 Auka
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Lau 23/3 kl. 19:39 18.sýn Fös 5/4 kl. 19:30 20.sýn Lau 4/5 kl. 19:30 22.sýn
Fös 29/3 kl. 19:30 19.sýn Lau 13/4 kl. 19:30 21.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 3/5 kl. 19:30 9.sýn
Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 24/3 kl. 15:00 19.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 23.sýn
Sun 17/3 kl. 17:00 16.sýn Sun 24/3 kl. 17:00 20.sýn Lau 6/4 kl. 15:00 24.sýn
Lau 23/3 kl. 15:00 17.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 21.sýn Sun 7/4 kl. 15:00 25.sýn
Lau 23/3 kl. 17:00 18.sýn Sun 31/3 kl. 15:00 22.sýn
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Fös 15/3 kl. 19:30
Aðalæfing
Mið 27/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 Aukas.
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums. Fim 28/3 kl. 19:30 6.sýn Mið 10/4 kl. 19:30 Aukas.
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 8.sýn
Nýtt og bráðfyndið leikrit, fullt af "gnarrískum" húmor
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 20/3 kl. 20:00 Mið 3/4 kl. 20:00
Mið 27/3 kl. 20:00 Mið 10/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 14/3 kl. 21:00 Fim 21/3 kl. 21:00 Lau 23/3 kl. 19:30
Fös 15/3 kl. 19:30 Fös 22/3 kl. 19:30 Lau 23/3 kl. 22:00
Fös 15/3 kl. 22:00 Fös 22/3 kl. 22:00
Dimmalimm (Brúðuloftið)
Lau 16/3 kl. 14:00 Lau 23/3 kl. 14:00 Lau 30/3 kl. 14:00
Ástsælasta ævintýri þjóðarinnar
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/3 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Fim 14/3 kl. 19:00 Fors. Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Fös 26/4 kl. 19:00 24. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Sun 28/4 kl. 19:00 25. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Þri 30/4 kl. 19:00 26. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s Fim 2/5 kl. 19:00 27. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s Mið 8/5 kl. 19:00 29. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s Fim 9/5 kl. 19:00 30. s
Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Frumsýning 15. mars.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 30/3 kl. 20:00 209. s Sun 5/5 kl. 20:00 213. s Fös 31/5 kl. 20:00 217. s
Lau 6/4 kl. 20:00 210. s Sun 12/5 kl. 20:00 214. s Lau 8/6 kl. 20:00 218. s
Lau 13/4 kl. 20:00 211. s Fös 17/5 kl. 20:00 215. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas.
Lau 27/4 kl. 20:00 212. s Fös 24/5 kl. 20:00 216. s
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Fös 29/3 kl. 20:00 15. s Fim 4/4 kl. 20:00 16. s Fim 11/4 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fim 14/3 kl. 20:00 51. s Lau 16/3 kl. 20:00 53. s
Fös 15/3 kl. 20:00 52. s Sun 17/3 kl. 20:00 Lokas.
Síðustu sýningar komnar í sölu.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Fös 15/3 kl. 20:00 43. s Lau 23/3 kl. 20:00 44. s Lau 30/3 kl. 20:00 45. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Club Romantica (Nýja sviðið)
Lau 16/3 kl. 20:00 5. s Fös 22/3 kl. 20:00 6. s
Hvað varð um konuna?
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Bæng! (Nýja sviðið)
Fös 26/4 kl. 20:00 Frums. Mið 8/5 kl. 20:00 4. s Fim 23/5 kl. 20:00 7. s
Sun 28/4 kl. 20:00 2. s Fim 9/5 kl. 20:00 5. s Sun 26/5 kl. 20:00 8. s
Fös 3/5 kl. 20:00 3. s Fim 16/5 kl. 20:00 6. s Fim 30/5 kl. 20:00 9. s
Alltof mikið testósterón
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!
setningar, setja inn þessa hluti eins
og púðana og bolina, hugmyndir sem
ég fékk meðan ég var að vefa.
Mér finnst stuttermabolurinn
annars mjög áhugavert fyrirbæri,
þetta er svo almennt form, eitthvað
sem allir eiga og er alltaf fjölda-
framleiddur, en mér fannst hrein-
lega fyndið að gera boli úr handofnu
efni og samt líta þeir ekki út fyrir að
vera einstakir og dýrmætir.“
Eins og Arna segir er vefnaðurinn
samt hennar aðalmiðill, og þar þarf
að skipuleggja hvert verk áður en
byrjað er að vefa. „Svo er þetta bara
mikil og tímafrek vinna! Maður
fylgir skissunni og verður að treysta
því að verkið gangi upp.“ efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Sumarlegt Tíkin Ylfa fylgdist með húsmóður sinni, Örnu Óttarsdóttur, útskýra verkin í Nýló, vefnað sem blóm.