Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Frjósemin er mikil,kannski af því að hér fáhundarnir gott atlæti ogeru af sterkum stofni,“ segir Helena Þórðardóttir í Kols- holti í Flóa. Með fjölskyldu sinni hefur hún um árabil sinnt ræktun íslenska fjárhundsins og heldur bæði hunda og tíkur. Til tíðinda bar í Kolsholti síðastliðinn sunnudag að tíkin Kúnst gaut í fyrsta sinn og voru hvolparnir alls sjö. Þeir eru komnir undan Vini, hundi sem fjölskyldan á einnig. Vinur hefur gagnast vel í hundaræktinni og undan honum eru mörg afkvæmi komin. Blesóttir með hnakkablett Kúnst er fjórða tíkin í Kols- holti sem á sjö hvolpa, en þar á bæ hafa komið fimm got í röð með sjö hvolpum hvert; það er 35 stykki samtals á þremur og hálfu ári. „Ég átti ekki von á að Kúnst gyti fyrr en nokkuð væri liðið á þessa viku. Þegar ég svo kom heim úr vinnu núna á sunnudaginn voru hér komnir sjö hvolpar sem var mjög óvænt, en afar skemmti- legt. Meðgangan var aðeins 61 dagur en er að jafnaði 65 dagar,“ segir Helena. Hvolparnir sjö eru falleg dýr og ljúf, rauðkolóttir að lit, rétt eins og Kúnst, móðir þeirra. Eru með hvíta rák á andliti, blesóttir eins og það er kallað, og svo stór- an, áberandi hvítan hnakkablett. Og þriggja daga gamlir eru hvolp- arnir enn blindir og liggja löngum stundum í kassa hjá móðurinni sem hefur þá á spena. Natni er nauðsyn „Þú sérð að Kúnst er enn mjög óörugg og vill hafa afkvæmin sem mest hjá sér. Það verður að sýna hundum mikla natni og nærgætni. En laun- in eru líka góð; þetta eru ljúfar skepnur, eru hlýðnar og verða fljótt nánast hluti af fjölskyld- unni,“ segir Helena. Við ýmis tækifæri hefur Hel- ena sýnt hunda sína og fengið góða dóma þar. Hún rómar ís- lenska fjárhundakynið og segist ekki vilja rækta annað eftir að hafa reynt það. Best eru þessar skepnur þekktar fyrir uppsperrt eyru, hringaða rófu og að vera einkar vinnusamar, svo sem við smalamennskur og fjárrag. Hafa því verið ómissandi við bústörf. Lundin ljúf og góðir í umgengni „Lund íslensku hundanna er ljúf og þeir eru einstaklega góðir í allri umgengni við börn, sem mér finnst mikill kostur. Fólk sem heldur hunda hefur mikinn áhuga á þessu kyni, sem var nánast út- dautt á tímabili. Í dag er staðan allt önnur enda eru margir sem sinna ræktun á íslenska kyninu,“ segir Helena Þórðardóttir sem hefur selt hvolpa til Bretlands, Ír- lands, Þýskalands, Svíþjóðar og Danmerkur. Flestir hafa þó eign- ast heimili hér innanlands, en frá móður og ræktanda fara hvolp- arnir yngstir níu vikna gamlir, þá eftir skoðun dýralæknis sem stað- festir að allt sé í þessu fína. Sjö kátir hvolpar í Kolsholti Gelt! Í Flóanum eru ræktaðir hundar af íslenska fjárhundakyninu. Viðkoman er góð, alls 35 hvolpar á tæpum fjórum árum. Uppsperrt eyru og hringuð rófa eru aðalsmerki þessa kyns. Mjólkurstund Hvolparnir sjö sem eru enn lítils megnugir eru á spena móð- ur sinnar, Kúnstar, en sjálf kom hún einnig úr sjö hvolpa goti. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hundakona Þetta eru ljúfar skepnur, hlýðnar og verða fljótt hluti af fjölskyldunni, segir Helena Þórðardóttir. Það verður að sýna hundum mikla natni og nærgætni. En launin eru líka góð; þetta eru ljúfar skepnur, Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Keppt verður í alls 28 fögum á Ís- landsmóti iðn- og verkgreina sem hefst í Laugardalshöll á morgun og stendur til og með laugardegi. At- burður þessi sem ber yfirskriftina Mín framtíð 2019 er jafnframt kynn- ing fyrir ungt fólk á kostum sem bjóðast í iðnnámi. Hátt í 200 ung- menni taka þátt í keppninni þar sem keppt er um Íslandsmeistaratitil í hverri grein. Sigurvegarar eiga marg- ir kost á að keppa síðar við þá bestu í sinni grein á Evrópumóti sem haldið verður í Graz í Austurríki á næsta ári. Einnig verða tvær iðngreinar til við- bótar með sýningu á sínu fagi. Búist við 7.000 nemendum Alls kynna 33 skólar um allt land fjölbreytt námsframboð á framhalds- skólastigi við þetta tilefni. Búist er við meira en 7.000 grunnskólanem- endum í Laugardalshöll þar sem nemendur í 9. og 10. bekk víða af landinu fylgjast með keppni og fá að prófa fjölbreytt verkefni undir hand- leiðslu fagfólks. Má þar nefna að helluleggja, setja saman smárásir, sá kryddjurtum, líma upp flísar, sjóða, prófa ýmis verkfæri og tól, flétta og blása hár, splæsa í net og leysa ýms- ar þrautir, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Á laugardaginn verður svo fjölskyldudagskrá á milli kl. 10 og 16. Markvisst námsval „Markmiðið með þessari kynningu er m.a. að kynna fyrir ungu fólki þau fjölmörgu tækifæri sem felast í iðn- og verk- og tækninámi og auðvelda þeim að kynna sér fjölbreytt náms- framboð framhaldsskólanna með það fyrir augum að fleiri taki upplýsta ákvörðun um námsval sem tekur mið af áhugasviði þeirra og hæfni. Mark- visst námsval dregur úr brotthvarfi úr námi sem er stórt vandamál hér á landi,“ segir í tilkynningu. Námskynningin Mín framtíð, hefst í Laugardalshöll í dag Kynna störfin og fögin og keppa í alls 28 spennandi iðngreinum Rafvirki Tækifærin sem ungu fólki bjóðast til náms og starfa eru mörg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.