Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 48

Morgunblaðið - 14.03.2019, Page 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019 ✝ Ásta Þorsteins-dóttir Maack fæddist í Reykjavík 30. september 1924. Hún lést á hjúkrunarheimil- i0nu Mörk 27. febr- úar 2019. Foreldrar henn- ar voru Þorsteinn Daníelsson skipa- smiður, f. 18. apríl 1903, d. 21. ágúst 1967, og Lára Guðmundsdóttir, f. 20. ágúst 1903, d. 17. desem- ber 2001. Systkini Ástu voru Daníel og Hjördís (Íris), bæði látin. Ásta giftist Viggó Einari Maack skipaverkfræðingi, f. 4. apríl 1922, d. 20. október 2013. Þau giftust 30. apríl 1948. Ásta og Viggó eignuðust fimm börn. 1) Lára Halla læknir, f. 5. októ- ber 1948. Fyrri eiginmaður hennar var Helgi Skúli Kjartansson, prófessor og sagn- fræðingur, f. 1. febrúar 1949. Sonur þeirra er Burkni verk- fræðingur, f. 2. desember 1978, kvæntur Unni Björnsdóttur barn Ástu með Aroni Ólafssyni er Arngunnur. 5) Ásta Hrönn, hagfræðingur MBA, f. 30. apríl 1964. Maður Ástu Hrannar er Jón Karlsson Lýðsson forstjóri, f. 13. mars 1946. Á milli þeirra hjóna eru sjö synir, tveir yngstu eru fæddir Ástu: Pétur, f. 24. júlí 1993, og Viggó, f. 2. maí 1997. Ásta gekk í Miðbæjarskólann, eitt ár í Kvennaskólann í Reykjavík og síðar í húsmæðra- skólann. Hún hætti í kvenna- skólanum og fór að vinna í versl- un 13 ára en seinna á skrifstofu Sjóvár. Hún var húsfreyja og móðir í Reykjavík, Kaupmanna- höfn og Álaborg. Þau Viggó dvöldu langdvölum í Danmörku með börnin við nýsmíðar skipa Eimskipafélagsins á árunum 1948-1963. Ásta kom að dag- legum rekstri og stjórnun versl- unar Rauða krossins á Landspít- alanum og sjúklingabókasafns- ins. Hún var einnig öflug sauma-, basar- og fjáröflunar- kona kvenfélagsins Hringsins um áratuga skeið. Ásta fór á sjö- tugsaldri að starfa í barnafata- verslun. Hún stundaði lestur, listiðju og saumaskap fram á síðustu ár, eða eins lengi og sjónin leyfði. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 14. mars 2019, klukkan 13. verkfræðingi, f. 17. apríl 1979. Þau eiga Helgu Lilju, Dag Einar og Öldu Maríu. Seinni eigin- maður Láru Höllu er Símon Róbert Diðriksson, geð- hjúkrunarfræð- ingur og pípari, f. 18. október 1957. 2) Sr. Pjetur Þor- steinn, f. 14. mars 1950. Kona hans er Ragnheiður Ólafsdóttir, f. 26. júní 1957. Dætur þeirra eru Margrét Erla, f. 25. apríl 1984, og Vigdís Perla, f. 24. mars 1993. 3) Einar Viggó, plötu- og ketilsmiður, f. 14. apríl 1952, d. 23. júlí 1979. 4) María Hildur líffræðingur, f. 22. nóvember 1957. Eiginmaður hennar er Finnur Árnason (Haf- stað) framkvæmdastjóri, f. 27. maí 1958. Börn Maríu og Finns eru Fífa myndlistarkona, f. 17. júlí 1985, Einar hótelrekstrar- fræðingur, f. 5. júní 1987, og Ásta líffræðingur, f. 9. júní 1991. Barn Einars með Andreu Fannýju Assier er Lea Vigdís og Nú er hún mamma farin. Hún fór utan með pabba strax á brúðkaupsdaginn sinn 30. apríl 1948. Hann var alltaf að vinna við skipasmíði og viðgerð- ir. Aðallega í Danmörku. Og síðar vorum við krakkarnir með. Oft hálfu og heilu árin. Ekki voru tíðar ferðir þá milli Íslands og Evrópu. Mamma kenndi mér allt það skemmtilega í lífinu. Að sauma út, sauma föt, prjóna peysur, hekla dúllur, baka hafratertu og bleikar, amerískar skýja- kremtertur og síðast en ekki síst að elda eftir uppskriftum. Hún var alltaf að prófa nýja rétti og hráefni. Fiskur og flot stóð samt alltaf fyrir sínu. Hún saumaði dýrgripi á saumavél: Bútapúða, barnasmekki, sæng- urver, svuntur, stelpukjóla, strákaföt og töskur. Fyrst á okkur krakkana, og síðar fyrir kvenfélagið Hringinn. Listiðja hennar var einstök, frumleg og afar vel unnin. Hún kenndi mér líka að taka til, þurrka af, þvo þvott, strauja, þrífa, ryksuga, þvo klósett, vaska upp, þvo þvotta og hugsa um blóma- potta, matjurtir og garðrækt. Mamma þekkti öll blóm og jurtir. Inniblóm, en líka haga- blóm á Íslandi og skógarblóm Evrópu, og síðast en ekki síst blómabúðablóm og garðablóm. Hún tíndi sveppi upp úr öllum skurðum undir Eyjafjöllum, löngu áður en sveppir voru fundnir upp á Íslandi. Hún var ekki einungis blómakennarinn minn og fyr- irmynd, heldur hafði hún ýmsa eiginleika, sem gott var að erfa. Henni veittist auðvelt að læra tungumál. Ekki lærði hún þau í skóla, heldur fór hún að vinna í búð á fermingaraldri og hætti í kvennaskólanum, en bæði talaði og las reiprennandi þýsku, ensku og dönsku. Hún mamma var fagurkeri á tónlist, bíómyndir, föt, hús- muni, listaverk og byggingar- list. Mamma var líka útivistar- og göngukona, og fjölskyldan gekk oft upp á hvert einasta fjall í nágrenni Reykjavíkur og skautaði á öllum vötnum, og þetta var líka áður en útivist var fundin upp, fyrir 1960. Ekki margir á ferli þá á fjöllum. Hún var heit í pólitík, og kröftugar stjórnmálaumræður voru stöð- ugt í gangi á æskuheimilinu. Enda tímar kalda stríðsins. Síðast en ekki síst, og dýr- mætt, kenndi mamma mér að kynlíf væri ódýrasta skemmt- unin og besta upplifunin í lífinu. „Ekki missa af því.“ Ekki ónýt þau skilaboð út í lífið, sem hún mamma gaf mér. Nestið í barnaskólanum var líka óvenju- legt: hnetusmjör, rabarbar- asulta og heimabakað brauð. Þakka þér, mamma mín, fyr- ir ómetanlega veganestið mitt. Held líka áfram að borða einn sólskinsdag á dag, þ.e. eina appelsínu. Ekki bara í þína minningu. Við báðar alltaf vit- lausar í appelsínur. Lára Halla Maack. Kynslóðin sem sletti frekar á dönsku en ensku er að renna sitt skeið. Ásta Þorsteinsdóttir átti það til að fornermast og ganga eftir fortóvum í Reykja- vík á leið í miðbæinn en að flestu leyti var hún algjör nú- tímamanneskja. Þegar hún nú er fallin frá kemur fyrst upp í hugann þessi þorsti hennar í upplýsandi samtöl og rökræður um málefni líðandi stundar. Jafnframt skúffelsi yfir því að hafa ekki farið í lengra nám. Óskipt athygli hennar beindist að útvarpsþáttum um fjarlæg lönd, pólitíska umræðu, frétta- skýringarþætti og útvarpssög- ur. Ætli hún mamma hafi ekki verið aðdáandi ríkisútvarpsins númer eitt. Danskir rómanar og greinar um samfélagsleg málefni í Alt for damerne voru sjálfsögð lesning í áratugi og glugg í Bo Bedre, einkum um lekkert föndur. Nýmóðins mat- argerð, ekki síst úr grænmeti, hollusta fram yfir sætindi, krydd og túmata fram yfir grá- meti. Búrda-snið að frjálslegum klæðnaði notfærði hún sér mik- ið og handavinna eins og mak- rame, hekl, leðurvinna, gler- skurður og vatnslitanámskeið var auðvitað meðal áhugamála. Síðar meir breyttist þetta í lestur Íslendingasagna og ferðalög með Árna Bö og inn- gang að þungum leikritum. Vinna með kvenfélagi Ásprestakalls, á bókavagni Rauðakrossins á Landspítalan- um og handavinna með kven- félagi Hringsins. Í æsku minni var oftast hægt að ganga að mömmu vísri við saumavélina í þvottahúsinu þar sem hún framleiddi sæng- urföt, barnasmekki, puntu- kraga og bútasaumspúða á færibandi. Fyrir þann tíma hafði hún þó mestan áhuga á að rýja gólfmottur með pabba framan við sjónvarp og prjóna peysur eftir eigin mynstri. Enn fyrr bróderaði hún dúka ef ekki var verið að sauma barna- föt og kjóla upp úr eldri fötum. Hún mamma hafði smekk fyrir hinu vandaða, einstakt val á klæðnaði og innanstokksmun- um og þá var ekki verið að velta sér upp úr rókókó. Nei, nútímalegt, létt og danskt skyldi það vera í mublum, mat og innréttingum. Hún togaði pabba á myndlistarsýningar, leikhús, námskeið og söfn en sinfóníutónleikar voru fastur liður í áratugi og þar grunar mig að hún hafi verið meira fyrir móðins en hann. Í útlönd- um stunduðu þau óperur og ballett. Samt hafði hún tíma til að komast í leikfimi og sund, göngur og sumarbústað. Mamma var stöðugt að og eng- inn komst upp með slugs á heimilinu. Við skyldum sýna ambisjónir og mennta okkur, vera framúrskarandi dugleg og helst bera af. Hvort sem við börnin vorum til í það eður ei. Það er einkum fernt sem ég tel að mamma hafi haft fyrir mér: Passa að brjóta ekki tenn- urnar, ást á gróðri landsins, göngu í náttúrunni, og sjatt- erandi litum og formum. Já og að vera skapandi. Hún sýndi óbrigðula smekkvísi í öllu fasi og mótaði umhverfi sitt huggu- lega. Og allt fram á síðustu ár gekk hún í búðir og stundaði jóga til að halda kondí. María Hildur Maack. Kær tengdamóðir mín hefur kvatt þetta líf, södd lífdaga. Margs er að minnast og þakka fyrir. Þegar ég kom á Selvogs- grunnið ung stúlka fannst mér allt vera fullkomið hjá Ástu tengdó, fallegt heimili, góður matur og fólkið kátt. Ég man að hver og einn af fjölskyldunni átti sinn servíettuhring með tauserví- ettu, þetta fannst mér flott. Henni var margt til lista lagt, og alltaf var saumavélin uppi við. Fallegur garðurinn hennar og vil ég nú þakka henni fyrir allar plönturnar og ráðleggingar sem hún gaf mér um garðrækt. Svo má ég til með að þakka henni fyrir þegar hún bað mín fyrir hönd sonar síns. Þannig var að hún var einhverju sinni að spyrja mig hvort við ætl- uðum ekki að gifta okkur, ég og sonur hennar. Ég gat ekki svarað því, sagði henni að hann hefði ekki beðið mín. Veit ég ekki fyrr en Ásta er komin á hnén fyrir framan mig og biður mín fyrir hönd sonar síns … og ég sagði Já! Ég hugsa að það séu ekki margir sem hafa gert þetta fyrir son sinn. Svona var Ásta hrein og bein. Það var fallegt samband tengdaforeldra minna Ástu og Viggós. Þau ferðuðust mikið vegna vinnu Viggós hjá Eim- skipi. Þau kölluðu hvort annað „honey“ sín á milli, fallegt. Ásta fór að vinna hjá móður minni í Versluninni Bangsa, Bankastræti 11. Þá voru börnin farin að heiman og Ástu langaði að vinna úti. Hún var þá 64 ára. Hún saumaði smekki, blúndukraga og rúmföt fyrir búðina. Hún mætti vel til fara og alltaf allt í stíl. Henni fannst gaman að koma dag og dag til að afgreiða í búðinni með okkur mæðgum og hinu starfsfólkinu. Ásta var mjög áhugasöm að vinna því hún ætlaði að kaupa sér fyrsta bílinn sinn. Og stolt var hún þegar hún mætti á litla hvíta bílnum til vinnu. Fyrir um 15 árum fór sjónin að daprast, Ásta lét þó ekki deigan síga, þræddi íslenskan borða í gamlar skeifur og setti miða á sem á stóð „Lukku- skeifa“. Skeifurnar seldi hún svo í minjagripaverzlanir. Svo gerði Ásta sér ferð í bæinn, klæddi sig upp, með blindras- tafinn í hendi og þungar skeif- urnar í lítilli hjólatösku og sagðist vera að fara í „söluferð“ niður í bæ. Kæra Ásta, hafðu þökk fyrir samfylgdina. Ég veit að Viggó og Einar taka vel á móti þér. Hvíl í friði. Ragnheiður Ólafsdóttir. Ásta Þorsteins- dóttir Maack Ég var svo lán- söm að búa fyrstu sex árin á heimili ömmu minnar, afa og ömmusystur á Urðarstígnum. Þarna bjuggu líka Inga og Gulli, systkini föður míns sem ég tengdist sterkum böndum og það var ómetanlegt að alast upp með þessu góða og kærleiksríka fólki. Inga var aðeins sextán árum eldri en ég svo hún var ekki bara frænka heldur svolítið eins og stóra systir. Eftir því sem ár- in liðu færðumst við Inga nær í aldri og urðum góðar vinkonur. Hún var alltaf til staðar bæði fyrir mig og aðra og hélt fjöl- skyldunni saman. Inga á stóran þátt í því hvað fjölskyldan hefur alltaf verið náin og samheldin. Hún var einstaklega dugleg að hóa í fólkið sitt, t.d. í afmælisboð og ómissandi hluti af jólahátíð- inni var boðið á jóladag þegar allir komu saman heima hjá Ingu og Kristjáni svo árum skipti. Inga og Kristján voru ein- staklega samrýnd og hamingju- söm hjón. Það var lærdómsríkt að fylgjast með gegnum árin þeirra fallega sambandi sem ein- kenndist af ást og virðingu. Kristján varð fljótt hluti af fjöl- skyldunni og eins og Inga opn- aði hann faðminn og heimilið sitt fyrir okkur öllum. Börn áttu sérstakan stað í hjarta Ingu hvort sem þau voru hennar eigin eða annarra. Þetta fundu m.a. börnin mín og barna- börn en Inga frænka var alltaf í miklu uppáhaldi hjá þeim. Undanfarna daga hefur rifj- ast upp gömul minning frá bernskuárunum eftir að Inga flutti í Vesturbæinn. Ég sé Mundu frænku fyrir mér þar sem hún stendur úti á tröppum og segir um leið og hún horfir í vesturátt: „það held ég að sól- arlagið sé fallegt hjá henni Ingu minni núna“. Nú er elsku Inga okkar farin inn í sólarlagið en eftir sitja ljúfar minningar um umhyggjusama og kærleiksríka konu . Ég er þakklát fyrir að hafa átt hana að í gegnum árin og fjölskyldan mín öll syrgir kæra frænku. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra, elsku Kristján, Bogga, Sigfús, Sjonni og fjöl- skyldur Rósa María. Fátt er ungu fólki mikilvæg- ara en að eignast góða vini. Við kynntust árið 1960 í Kennaraskólanum og erum svo heppin að vinátta okkar hefur haldist fram til þessa dags. Nú þegar við kveðjum kæra bekkj- arsystur okkar, Guðfinnu Ingu, minnumst við hennar með hlýju og söknuði. Við bekkjarsysturn- ar höfum haldið hópinn og hist í hverjum mánuði öll þessi ár og nefndum við það saumaklúbb. Inga okkar var einstakur fé- lagi. Hún var ætíð jafn hlý og elskuleg og lagði ávallt gott til málanna. Hún var umhyggju- samur og nærgætinn vinur og kennslan hentaði henni mjög vel. Hún var farsæll kennari og átti allan sinn starfsferil í Hlíða- skóla í Reykjavík. Einn lærifaðir okkar í gamla Kennó líkti kenn- arastarfinu stundum við ræktun og sagði: „Þegar þið komið út á akurinn er að mörgu að hyggja.“ Kennarastarfið er ekki bara Guðfinna Inga Guðmundsdóttir ✝ Guðfinna IngaGuðmunds- dóttir fæddist 13. maí 1943. Hún lést 26. febrúar 2019. Útför Guðfinnu Ingu fór fram 8. mars 2019. fræðsla, heldur líka ræktun og tileink- aði Inga sér það vel. Hún bar alltaf hag og velferð nem- enda sinna fyrir brjósti. Ingu var margt til lista lagt, mörg ár söng hún í kirkjukórum, bæði í Neskirkju og Hjallakirkju og nú seinni ár var hún félagi í kór kennara á eftirlaunum, Ekkó- kórnum. Hún var listaskrifari og oft var hún fengin til að skrifa þegar vanda þurfti til verka. Ingu verður sárt saknað af okkur bekkjarsystkinunum og sendum við þér, kæri Kristján, og fjölskylda okkar innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd bekkjarsystkina úr KÍ, Valborg Elísabet og Þóra Alberta. Kveðja frá Hlíðaskóla Guðfinna Inga Guðmunds- dóttir var kennari við Hlíðaskóla allan sinn kennsluferil. Hún var afar farsæl í starfi og góður fag- maður. Guðfinna náði vel til nemenda sinna, byggði upp traust og öryggi og skapaði góð- an bekkjaranda. Hún hafði ríkan metnað fyrir hönd nemenda sinna, lagði sig fram við að sinna þeim öllum af alúð og velferð þeirra skipti hana miklu máli. Eins fylgdist hún gjarnan með hvernig þeim vegnaði eftir að þeir luku námi við skólann. Guðfinna var traustur og góð- ur samstarfsmaður og einstak- lega næm á líðan fólks. Henni var umhugað um að öllum liði vel á vinnustaðnum. Hún var glaðvær og góðgjörn og kom fram við okkur samstarfsfólk sitt af nærgætni og umhyggju. Það var mjög gott að leita til hennar og leysti hún margra vanda með lagni sinni og innsæi. Fólk treysti henni vel og leitaði jafnvel til hennar til að fá ráðn- ingu drauma sinna en á því sviði þótti hún líka flink. Fyrir tíma sónartækni leituðu margar barnshafandi samstarfskonur til Guðfinnu til að fá kyn væntan- legs barns greint og gekk sá spádómur iðulega eftir. Guðfinnu var margt til lista lagt. Hún hafði góða söngrödd og sérstaklega fagra rithönd. Skrautritaði hún margar viður- kenningar sem veittar voru nemendum skólans. Hún unni góðri íslensku og í skólanum varðveitum við nokkur af fallegu handskrifuðu íslenskuverkefn- unum hennar. Nöfn Guðfinnu og Kristjáns hljómuðu oft í sömu andrá en Hlíðaskóli naut starfskrafta þessara einstaklega samhentu hjóna um langa hríð. Við minnumst Guðfinnu Ingu með virðingu, hlýju og eftirsjá og sendum Kristjáni og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðj- ur. Náttmyrkrið Treystu náttmyrkrinu fyrir ferð þinni heitu ástríku náttmyrkrinu Þá verður ferð þín full af birtu frá fyrstu línu til þeirrar síðustu (Sigurður Pálsson) Fyrir hönd starfsfólks Hlíða- skóla, Kristrún G. Guðmundsdóttir. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skiln- aðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún.) Fyrir hönd Vestfirðinga- félagsins í Reykjavík vil ég minnast Sigurbjargar og þakka fyrir góð störf í þágu félagsins í gegnum árin. Sigurbjörg var í stjórn félagsins í mörg ár og sá Sigurbjörg Björgvinsdóttir ✝ Sigurbjörgfæddist 1. nóv- ember 1941. Hún lést 13. desember 2018. Sigurbjörg var jarðsungin 14. jan- úar 2019. lengi um að skipu- leggja flestar ferðir félagsins bæði inn- an lands og utan. Með jákvæðni og atorkusemi fékk hún félagana með í þessar ferðir og miðlaði gjarnan af þekkingu sinni í leiðinni. Sigurbjörg náði að kenna mér mikið á þeim tíma sem við vorum sam- an í stjórn og vekja áhuga minn á að halda starfinu áfram og er ég henni þakklát fyrir það. Við kveðjum hér magnaða konu og góðan félaga. Fjölskyldu hennar sendum við hlýjar samúðar- kveðjur. Fyrir hönd Vestfirð- ingafélagsins í Reykjavík, Hrund Ýr Óladóttir formaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.