Morgunblaðið - 14.03.2019, Qupperneq 27
þurfa að lýsa sérstaklega yfir sjálf-
stæði spænskra dómstóla á erlend-
um vettvangi vegna málsmeðferð-
arinnar yfir leiðtogum Katalóna.
„Þegar spænska ríkisstjórnin þarf
að fara í sérstaka auglýsingaherferð
til að taka það fram að landið sé lýð-
ræðisríki sýnir það óöryggi og veik-
leika í pólitíska kerfinu.“
Trúðu ekki ofbeldinu
Bosch víkur aftur að aðgerðum
spænsku lögreglunnar í atkvæða-
greiðslunni 2017. „Sumir Spánverj-
ar, sérstaklega þeir sem muna
Franco-tímann, trúðu því ekki að
þetta væri að gerast, að ríkisstjórn-
in hefði sent lögreglu og herlög-
reglu til þess að trufla atkvæða-
greiðslu. Þá er framferði
dómstólanna umhugsunarvert, þar
sem pólitískum föngum var varpað í
fangelsi og haldið í meira en ár án
möguleika á lausnargjaldi,“ segir
Bosch og bætir við að svo hafi fólkið
verið ákært fyrir tilraun til bylt-
ingar og að hvetja til uppreisnar.
„Og slíkar ákærur eiga að fela í sér
að ofbeldi hafi verið beitt, en það
var alls ekki raunin af hálfu þeirra
sem skipulögðu atkvæðagreiðsluna.
Ákærurnar fela hins vegar í sér allt
að 25 ára fangelsi í refsingu, sem er
meira en fyrir morð til dæmis.“
Bosch segir enn fremur að sú stað-
reynd að þeir leiðtogar Katalóna
sem flúðu land hafi hvergi í Evrópu
verið settir í fangelsi bendi til þess
að pólitíska hlið málsins vegi meira
en réttlætið í málinu.
Stundarávinningur réð för
Nú hefur Katalóníumálið þegar
haft þau áhrif að Pedro Sanchez,
forsætisráðherra í minnihlutastjórn
Sósíalistaflokksins, gat ekki komið
fjárlögum sínum í gegnum þingið,
og boðaði hann til kosninga 28. apríl
næstkomandi. Bosch segir að kata-
lónskir sjálfstæðissinnar ætli sér að
segja sannleikann í kosningabarátt-
unni, sem sé sá að spænska rík-
isstjórnin hafi bundið enda á við-
ræður um Katalóníumálið sem
hefðu getað skilað miklum árangri
fyrir báða aðila. „Og Sanchez gerði
það að mínu mati þar sem hann vildi
það. Hann boðaði til kosninga en
þurfti ekki að gera það. Hann hefði
getað endurnýjað fjárlög síðasta
árs, það hefur verið gert nokkrum
sinnum, hann hefði getað haldið
áfram með viðræðurnar og reynt að
skapa andrúmsloft þar sem fjárlög-
in hans yrðu samþykkt og hann
áfram við völd, en hann valdi að
fara í kosningar.“
Bosch telur að Sanchez hafi þar
látið stundarhagsmuni ráða för, þar
sem væntingar um úrslit kosning-
anna vegi þyngra en hin atriðin.
„Við viljum segja heimsbyggðinni
frá þessu, því við erum ekki bara að
tala um það lögmæta markmið að
ná fram lýðveldi í Katalóníu, heldur
erum við einnig að ræða um almenn
grundvallarmannréttindi, við erum
að tala um tjáningarfrelsi, skoðana-
frelsi og önnur réttindi sem við telj-
um algild. Þetta er ekki bara innan-
ríkismál fyrir Spán og Katalóníu,
heldur er þetta mál sem allir þurfa
að huga að.“
Bosch segist því vera þakklátur
fyrir tækifærið til að ræða við Ís-
lendinga um ástandið. „Þetta er
stór pólitísk krísa sem getur haft
áhrif á konungsríkið Spán, Evrópu
og heiminn í heild sinni. Við höfum
því skyldu til að útskýra hvað er að
gerast.“
Fundurinn í Safnahúsinu hefst á
hádegi á laugardaginn, en auk
Bosch munu dr. Elisenda Casanas
Adam og Guðmundur Hrafn Arn-
grímsson flytja erindi um Katalón-
íumálið. Ögmundur Jónasson, fyrr-
verandi ráðherra og þingmaður,
stýrir fundi. Aðgangur er öllum op-
inn og ókeypis.
Alfred Bosch, utanríkisráðherra
Katalóníuhéraðs, flytur framsögu á
laugardaginn um ástandið þar.
AFP
Katalóníumálið Bosch segir að
framferði lögreglunnar í atkvæða-
greiðslunni í október 2017 hafi vak-
ið óhug margra í Katalóníu.
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MARS 2019
NÝSKÖPUNARMÓT
ÁLKLASANS
þriðjudaginn 19. mars kl. 14–17
í hátíðarsal Háskóla Íslands
Dagskrá
Sigurður Magnús Garðarsson
Forseti verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands
Gísli Hjálmtýsson
Sviðsforseti hjá Háskólanum í Reykjavík
Torfi Þórhallsson
Nýsköpunarmiðstöð Íslands – Snjallvæðing í áliðnaði
Guðmundur Ingi Einarsson
Alcoa Fjarðaál – Sjálfvirk þekjun skauta
Kristján Leósson
DTE – Efnagreining áls í rauntíma
Kaffihlé – Ísar, íslenski álbíllinn til sýnis
Einar Karl Friðriksson
Árnason Faktor - Hugverkavernd í áliðnaði
Leo Blær Haraldsson
Eflu – Varmaendurvinnsla frá Fjarðaáli
Breki Karlsson
HRV – Orka og kolefni, sparnaður sem ummunar
SunnaWallevik
NMÍ, Gerosion – Nýting affallsefna
Guðrún Sævarsdóttir
HR – Straumhönnun fyrir kísilver
Hvatningarverðlaun Álklasans
Að dagskrá lokinni verður boðið upp á léttar veitingar og spjall.
Allir velkomnir - skráning á www.si.is
Fundarstjóri er Dagmar Stefánsdóttir
fjölmiðlafulltrúi Alcoa Fjarðaáls
Nú finnur
þú það sem
þú leitar að
á FINNA.is