Morgunblaðið - 26.03.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Veður víða um heim 25.3., kl. 18.00
Reykjavík 8 rigning
Hólar í Dýrafirði 5 alskýjað
Akureyri 8 súld
Egilsstaðir 6 alskýjað
Vatnsskarðshólar 8 súld
Nuuk -2 snjókoma
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló 5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 rigning
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 1 skúrir
Lúxemborg 7 léttskýjað
Brussel 8 skýjað
Dublin 10 skýjað
Glasgow 10 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 11 heiðskírt
Amsterdam 9 skýjað
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 6 léttskýjað
Vín 8 skýjað
Moskva 5 heiðskírt
Algarve 22 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 19 heiðskírt
Mallorca 20 léttskýjað
Róm 16 heiðskírt
Aþena 17 heiðskírt
Winnipeg -9 léttskýjað
Montreal -3 heiðskírt
New York 8 alskýjað
Chicago 3 heiðskírt
26. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:08 20:00
ÍSAFJÖRÐUR 7:10 20:08
SIGLUFJÖRÐUR 6:53 19:50
DJÚPIVOGUR 6:37 19:30
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á miðvikudag Allhvöss sunnan- og suðvestanátt og
rigning eða slydda, en úrkomulítið NA-til á landinu.
Hiti 1 til 6 stig. Vestlægari með éljum og kólnar um
kvöldið, fyrst V-lands.
Skúrir en síðan él S- og V-lands. Bjartviðri á austanverðu landinu. SV 8-15 í kvöld. Hiti 4 til 10 stig
en kólnar smám saman og víða frost í kvöld.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
leggst alfarið gegn áformum um
stofnun miðhálendisþjóðgarðs sem
kynnt hafa verið sveitarfélögum á
umliðnum vikum,“ segir í bókun
sveitarstjórnarinnar frá 21. mars.
„Samráð um þann grundvallarþátt
málsins, hvort stofna skuli þjóðgarð
á miðhálendinu, hefur ekki átt sér
stað,“ segir sveitarstjórnin. „Sveitar-
stjórn Bláskógabyggðar telur ekki
ásættanlegt að stjórn og umráð yfir
40% Íslands verði í höndum fárra að-
ila. Stöðugt er vegið að sjálfstæði
landsbyggðarsveitarfélaga og þeim
ekki treyst fyrir því landsvæði sem
er innan þeirra sveitarfélagsmarka.“
Hvað kallar á þjóðgarð?
„Þetta er stórmál,“ sagði Helgi
Kjartansson, oddviti Bláskóga-
byggðar, um þjóðgarðsáformin. „Við
óttumst að við missum þarna skipu-
lagsvaldið og þjóðgarðurinn muni
ráða því í gegnum stjórnunar- og
verndaráætlanir hvernig allt á að
vera á þessu svæði, verði þjóð-
garðurinn að veruleika. Bændur og
sveitarfélög eiga þarna upprekstrar-
rétt sem er óbeinn eignarréttur.
Þarna eru líka ýmis hlunnindi, nám-
ur, veiðiréttur og þess háttar. Maður
óttast að þessi réttindi hverfi. Svo
spyr maður sig hvort eitthvað kalli á
að þetta svæði sé þjóðgarður?“
Helgi benti á að sveitarstjóri
Húnavatnshrepps hafi ritað minnis-
blað um stofnun þjóðgarðs á miðhá-
lendinu. Þar kemur skýrt fram að
veigamikil völd munu færast frá
sveitarfélögunum við stofnun þjóð-
garðs til þeirra sem fara með stjórn
hans. Einnig hafi sveitarfélagið
Hornafjörður tjáð sig um hana.
Hornfirðingarnir, sem þekki til
Vatnajökulsþjóðgarðs, bendi m.a. á
að mikilvægt sé að tryggja þjóðgörð-
um sem fyrir eru í landinu rekstrar-
grundvöll áður en lögð sé áhersla á
að stofna nýjan þjóðgarð.
Rekstri þjóðgarða ábótavant
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
segir reynsluna af rekstri þjóðgarða
á Íslandi sýna að mjög víða sé pottur
brotinn t.d. í viðhaldi vega, fráveitu-
málum og merkingum í þjóðgörðum.
Helgi oddviti sagði að góð reynsla
hafi verið af Þingvallaþjóðgarði, sem
er innan vébanda Bláskógabyggðar,
og sátt ríkt um stofnun hans á sínum
tíma. „En það er engin sátt nú þegar
þjóðgarður á miðhálendinu vofir yfir
okkur. Við vorum ekkert spurð hvort
það ætti að stofna þjóðgarð á miðhá-
lendinu. Það samráð vantar. Okkur
er sagt að það sé búið að ákveða
þetta. Svo erum við spurð hvernig
eigi að útfæra það,“ sagði Helgi.
Aðspurður kvaðst Helgi hafa litla
trú á að það verði af áformum um
stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu.
„Nefndin á að skila tillögu í haust.
Þetta mál þarf miklu lengri tíma og
miklu meira samtal. Ef það er ekki
sátt um þennan þjóðgarð þá er þetta
andvana fætt.“ Hann varpaði því
einnig fram hvers vegna fjármunum
sem eiga að fara í stofnun þjóðgarðs-
ins sé ekki frekar varið í brýn verk-
efni eins og heilbrigðismál og sam-
göngumál.
„Á okkar svæði á hálendinu hefur
mikið verið unnið að landgræðslu og
uppgræðslu, skálar, vegir og slóðar
byggðir upp. Mikið af þessu hefur
verið unnið í sjálfboðavinnu. Ég sé
ekki fyrir mér að það verði framhald
á sjálfboðavinnunni ef þarna verður
stofnaður þjóðgarður,“ sagði Helgi.
Leggst gegn þjóðgarði á miðhálendi
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Ásgarður Fjármenn úr Hrunamannahreppi koma með fé úr Hveradölum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar er andvíg áformum um þjóðgarð á miðhálendinu Ekki ásættanlegt
að stjórn og umráð 40% landsins verði í höndum fárra Óttast að missa skipulagsvald og ýmis afnot
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Strákar í tíunda bekk drekka meira
gos og bursta sjaldnar tennurnar en
stelpur á sama aldri. Þetta kemur
fram í rann-
sóknarverkefni
Dönu Rúnar
Heimisdóttur
tannlæknis sem
fjallar um neyslu-
og tannhirðu-
venjur unglinga.
Rannsóknarverk-
efnið náði til ung-
linga í tíunda bekk
árin 2014 og 2016
og svöruðu 4.135
unglingar spurningalista rannsókn-
arinnar. Voru unglingar á öllu land-
inu spurðir og er rannsóknin talin
veita góða innsýn í munnhirðu og
neysluvenjur 10. bekkinga á Íslandi.
Alls 86,6% stelpna og 70,1%
stráka burstuðu tennurnar tvisvar á
dag eða oftar, 11,7% stelpna og
26,2% stráka burstuðu einu sinni á
dag. Einungis 1,9% stelpna og 5,3%
stráka burstuðu sjaldnar en einu
sinni á dag. Stelpur burstuðu tennur
marktækt oftar en strákar, segir í
rannsókninni. Marktækur munur
var á tíðni tannburstunar eftir bú-
setu en einstaklingar sem bjuggu til
sveita voru líklegri til þess að bursta
sjaldnar. Ekki var munur á neyslu
sælgætis eftir kyni eða búsetu.
Marktækt fleiri stelpur sögðust ekki
drekka gos eða 28,8% samanborið
við 14,3% stráka. Strákar voru einn-
ig líklegri til þess að drekka orku-
drykki en stelpur og sögðust 33,5%
stráka drekka orkudrykki en 21,6%
stelpna. Í samtali við Morgunblaðið
segir Dana Rún að strákar komi
verr út í nær öllum flokkum er varð-
ar munnhirðu. Hvað varðar tann-
burstun eru niðurstöðurnar hjá
strákum í samræmi við erlendar
rannsóknir.
Forvarnir besta lausnin
„Það er spurning með forvarnir,
hvort þær henti frekar stelpum al-
mennt. Hvort þær höfði bara betur
til stelpna,“ segir Dana, spurð hvað
mögulega valdi þessum mun. Hún
segir einnig að frekari forvarnir séu
lausnin á því að auka tíðni tann-
burstunar hjá unglingum.
Nemendur voru einnig spurðir um
þekkingu sína á skaðsemi drykkja
fyrir tennur. Niðurstöður rann-
sóknarinnar sýndu að ekki var mikil
þekking á mögulegri skaðsemi
drykkja fyrir tennur og bentu þær
til þess að auka mætti til muna
fræðslu um áhrif drykkja á tennur.
Mesta þekkingin reyndist vera um
áhrif kóks á tennur en rúmlega
helmingur (61,7%) svaraði því rétt
að kók ylli bæði glerungseyðingu og
tannátu. „Það sem var kannski sorg-
legt var að við spurðum t.d. um
Kristal með mexican lime-bragði.
Sem er ekki með sítrónusýru og ekki
glerungseyðandi en þau halda að
hann sé glerungseyðandi, því það er
sítrónubragð,“ segir Dana og bætir
við að þekkingin sé almennt léleg um
skaðsemi drykkja. „Núna er Ölgerð-
in t.d. farinn að merkja með tann-
merkinu sem er mjög gott. Það má
benda á að t.d. Kristal plús er gler-
ungseyðandi þannig að þetta er
kannski villandi almennt fyrir fólk.
Það er jákvætt fyrir framleiðendur
að merkja betur.“
Munnhirða
unglings-
stráka slæm
Morgunblaðið/Eggert
Munnhirða Marktækur munur var á gosdrykkju og munnhirðu unglingsstráka og -stelpna í 10. bekk.
Drekka meiri gos og bursta sjaldnar
Dana Rún
Heimisdóttir