Morgunblaðið - 26.03.2019, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Alþingi hefur ekki auglýst á sam-
félagsmiðlum, eins og Facebook,
Instragram, YouTube og Twitter,
og hefur ekki uppi áform um að
gera það. Þetta kemur fram í svari
Steingríms J. Sigfússonar, forseta
Alþingis, við fyrirspurn frá Birni
Leví Gunnarssyni Pírata.
Spurði Björn hvort Alþingi hefði
haft einhver útgjöld af þessum
auglýsingum frá árinu 2015. Segir
í svari þingforseta að á vef Alþing-
is og Twitter-síðu þess séu hins
vegar reglulega tilkynningar um
starfsemi Alþingis og viðburði á
vegum þess. Svipað gildi um Hús
Jóns Sigurðssonar í Kaupmanna-
höfn, en þar er efni miðlað á vef
Jónshúss, Facebook, Instagram og
Flickr.
Auglýsingakostnaður Alþingis
er fyrst og fremst auglýsingar um
laus störf á skrifstofu Alþingis og
reglan verið sú að birta slíkar aug-
lýsingar í Fréttablaðinu, Morgun-
blaðinu og á www.starfatorg.is.
Auglýsir ekki
á samfélags-
miðlum
Alþingi auglýsir
bara í dagblöðum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Auglýsir ekki á samfélags-
miðlum, samkvæmt svari forseta.
Í nýrri ráðgjöf um veiðar á sæbjúg-
um á skilgreindum svæðum frá 1.
apríl til loka fiskveiðiárs er miðað
við að afli samtals fari ekki yfir 883
tonn. Það sem af er fiskveiðiári er
búið að landa 2.300 tonnum skv.
upplýsingum á vef Fiskistofu.
Stærsti hluti þess sem eftir er að
veiða á árinu, eða 508 tonn, yrði
veiddur á afmörkuðu svæði í Faxa-
flóa. Upphafleg ráðgjöf þar var um
644 tonn og voru 136 t. veidd frá 1.
september 2018 til loka febrúar.
Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar
segir að afli á sóknareiningu í
Norður-Aðalvík, Faxaflóa og
norður- og miðsvæði Austfjarða
hafi fallið á undanförnum árum,
hugsanlega vegna of stífrar sóknar.
Stífar veiðar hafi verið stundaðar á
miðsvæði Vestfjarða og suðursvæði
Austfjarða og greinileg merki séu
um fall í afla á sóknareiningu sem
bendi til að veiðar hafi verið um-
fram afrakstursgetu stofnsins.
Veiðisvæði í nýrri ráðgjöf byggj-
ast á drögum að reglugerð sem
kynnt voru á samráðsgátt stjórn-
valda fyrr í vetur. Til fiskveiðiára-
móta yrðu leyfðar veiðar á 66 tonn-
um á miðsvæði Vestfjarða, 50
tonnum á suðursvæði Vestfjarða og
56 tonnum á utanverðum Breiða-
firði. Á suðursvæði við Austurland
yrði heimilt að veiða 203 tonn.
Veiðar í N-Aðalvík og norður- og
miðsvæði Austurlands hafa nú þeg-
ar náð ráðlögðum afla fyrir fisk-
veiðiárið samkvæmt ráðgjöf sem
gefinn var út í júní í fyrra og því
eru ekki ráðlagðar frekari veiðar
þar. Þá er lagt til að veiðar utan
skilgreindra veiðisvæða verði háð-
ar leyfum til tilraunaveiða. Í ljósi
stífrar sóknar og stutts veiðitíma-
bils er ráðlagt að veiða helming af
ráðlögðum ársafla á miðsvæði Vest-
fjarða og suðursvæði Austurlands.
„Sæbjúgu eru almennt talin stað-
bundin og ferðast stuttar vega-
lengdir með virkri hreyfingu. Ný-
legar rannsóknir hafa sýnt að við
áreiti, t.d. vegna veiða eða sterkra
strauma geta sæbjúgu fyllt sig af
sjó og þannig orðið nánast þyngd-
arlaus í sjónum og borist umtals-
verðar vegalengdir með straumum.
Sömu viðbrögð sáust einnig ef þétt-
leiki sæbjúgna varð of mikill, segir í
ráðgjöf Hafró. aij@mbl.is
Sókn eftir sæbjúgum mögulega of stíf
Morgunblaðið/Albert Kemp
Aukin sókn Stíft hefur verið sótt í
sæbjúgun á síðustu misserum.
Megnið af því sem óveitt er á fiskveiðiárinu yrði veitt á svæði í Faxaflóa
Alls voru 47.278 íslenskir ríkis-
borgarar með skráða búsetu er-
lendis 1. desember síðastliðinn.
Þetta kemur fram á nýju yfirliti
Þjóðskrár.
Flestir voru búsettir í Danmörku
eða alls 10.952 einstaklingar, 9.501
einstaklingar voru búsettir í Noregi
og 8.705 einstaklingar í Svíþjóð.
Þar á eftir voru flestir búsettir í
Bandaríkjunum eða 6.492 ein-
staklingar og 2.406 í Bretlandi.
Þýskaland kemur nokkru neðar en
þar bjuggu 1.665 Íslendingar og
887 bjuggu í Kanada.
Fram hefur komið að meðal er-
lendra ríkisborgara sem búsettir
eru á Íslandi eru Pólverjar langfjöl-
mennastir eða 19.190 þann 1.
desember síðastliðinn og 4.094 eru
frá Litháen.
Fram kemur í tölum Þjóðskrár
að 699 Íslendingar eru búsettir á
Spáni en nokkru fleiri Spánverjar,
eða 923, eru búsettir hér á landi.
Flestir Íslend-
ingar erlendis
búa í Danmörku
Endursöluaðilar á landsbyggðinni: Jötunn vélar Selfossi, Akureyri og Egilsstöðum - Bike Tours Grindavík