Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 11

Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fjarskiptasjóður styrkir tengingu 1.702 lögbýla og fyrirtækja í sveitum landsins við ljósleiðara á næstu þremur árum. Búast má við að mun fleiri tengist í þessum verkefnum, meðal annars sumarhús og önnur hí- býli sem ekki njóta ríkisstyrks. Þeg- ar þessum verkefnum sveitarfélag- anna lýkur verður landsverkefninu Ísland ljóstengt að mestu lokið með nærri 6.000 tengingum. Fjarskiptasjóður ver 450 millj- ónum á ári í verkefnið, alls 1,3 millj- örðum á þremur árum. Að auki veit- ir ríkið byggðastyrki, samtals að fjárhæð 154 milljónir kr. Fram til þessa hafa verið veittir styrkir samkvæmt samkeppnisfyrir- komulagi sem leitt hefur til þess að þéttbýl sveitarfélög hafa verið í for- gangi. Nú sitja eftir dýrustu svæðin og var fyrirkomulaginu breytt. Nú er sveitarstjórnum gefinn kostur á að gera áætlanir fyrir allt sveitar- félagið með mótframlögum sveitar- stjórnar og íbúa og úthlutun dreift á þrjú ár. Milljarður í Borgarbyggð Borgarbyggð og Fljótsdalshérað eru langdýrustu svæðin sem eftir eru. Þannig er gert ráð fyrir að lagn- ing 600-700 km ljósleiðara um dreif- býli Borgarbyggðar með 440 tengi- staði kosti hátt í milljarð króna. Fjarskiptasjóður leggur til rúmar 500 milljónir, sveitarfélagið 300 milljónir, íbúar rúmar 100 milljónir og byggðastyrkir eiga að brúa mis- muninn. Gunnlaugur A. Júlíusson sveitar- stjóri segir að framkvæmdaröðin hafi ekki verið ákveðin. Verkinu verður skipt upp í 18 áfanga. Hann segir að sveitarstjórn hafi sett sér að tengja grunnskólana á Kleppjárns- reykjum og Varmalandi sem fyrst og að verkefnið verði sýnilegt sem víðast í sveitarfélaginu frá upphafi. Sveitarfélagið hefur lagt ljósleið- ararör þegar Rarik hefur verið að plægja niður strengi fyrir þriggja fasa rafmagn í Reykholtsdal og Hálsasveit og síðan unnið með Ferðaþjónustunni í Húsafelli að því að hraða lagningu ljósleiðara þang- að. Þá segir Gunnlaugur að komin sé viljayfirlýsing frá Rarik um að leggja þriggja fasa rafmagn að Lambastöðum á Mýrum í vor og verði sett niður rör fyrir ljósleiðara með þeim streng. Borgarbyggð bauð út lagningu ljósleiðarans í vetur og samdi við verktakann SH leiðarann ehf. Nú er beðið eftir tillögum fyrirtækisins um það hvernig hagkvæmast er að dreifa verkinu yfir þessi þrjú ár. Gunnlaugur segir að fjarskipti séu ótrúlega léleg í dreifbýli Borgar- byggðar og á þess vegna von á góðri þátttöku íbúa. Léleg fjarskipti hái ferðaþjónustu og íbúum í þeirra dag- lega lífi. Jákvæð áhrif á búsetu Fljótsdalshérað er langland- stærsta sveitarfélag landsins, nærri 9 þúsund ferkílómetrar að stærð. Þar eins og víðar er erfitt að koma við hringtengingum þannig að leggja þarf anga í allar áttir, út frá Egilsstöðum þaðan sem ljósið þarf að koma. Hitaveita Egilsstaða og Fella hef- ur fengið það verkefni að leggja ljós- leiðarann sem verður um 550 kíló- metrar í heildina með 294 styrkhæfa staði. Sveitarfélagið fær 213 millj- ónir kr. í styrk úr Fjarskiptasjóði og 20 milljónir í byggðastyrk. Páll Breiðfjörð Pálsson hitaveitu- stjóri segir að vegna þess að út- hlutun styrkja hafi dregist sé óvíst hvað hægt sé að leggja í sumar. Eftir sé að kaupa lagnaefni og bjóða lagningu strengsins út. Hann segir stefnt að því að byrja á lagningu 36 kílómetra strengs um Velli og í Úlfs- staði og þaðan upp Skriðdal. Einnig frá Egilsstöðum og um Eiðaþinghá, um 22 km leið. Við þessar leiðir séu um 100 styrkhæfir tengistaðir auk sumarhúsa. „Ljósleiðari býður upp á mikla þróunarmöguleika fyrir þá starfsemi sem er í dreifbýlinu, svo sem ferðaþjónustu og landbúnað. Það að hafa fjarskiptamálin í lagi mun hafa jákvæð áhrif á þróun bú- setu,“ segir Björn Ingimarsson bæjarstjóri. 1.700 hús tengjast ljósleiðara  Ríkið leggur 1,5 milljarða í ljósleiðaraverkefni sveitanna næstu þrjú árin Ísland ljóstengt 2019-2021 Upphæðir eru í milljónum króna Heimild: Stjórnarráðið Samvinnustyrkir Byggðastyrkir Fjöldi staða Bláskógabyggð 132,9 14,0 230 Bolungarvíkurkaupstaður 3,4 11 Borgarbyggð 506,6 20,0 440 Dalabyggð 17,1 12,0 20 Fjarðabyggð 13,0 0 Fljótsdalshérað 213,1 20,0 294 Flóahreppur 32,2 67 Hrunamannahreppur 32,4 81 Húnaþing vestra 58,4 10,0 57 Ísafjarðarbær 14,6 10,0 26 Langanesbyggð 10,1 10,0 14 Mosfellsbær 11,0 22 Norðurþing 32,7 61 Reykhólahreppur 8,6 12 Reykjavíkurborg 49,0 131 Skaftárhreppur 17,7 8,0 22 Strandabyggð 2,8 2,0 2 Súðavíkurhreppur 5,5 3,0 6 Sveitarfélagið Árborg 28,1 26 Sveitarfélagið Hornafjörður 30,4 17,0 39 Sveitarfélagið Skagafjörður 70,8 10,0 88 Tálknafjarðarhreppur 3,2 11 Vesturbyggð 40,8 5,0 42 Samtals 1.321,4 154,0 1.702 Morgunblaðið/Eggert Að vegg Grafið fyrir ljósleiðara á Suðurlandi. Ljós er komið víða um sveitir. Tveir innbrotsþjófar voru hand- teknir í Kópavogi á laugardag eftir að tilkynnt var innbrot í nýbygg- ingu í bænum. Á vettvangi var á litlu að byggja, þjófarnir hvergi sjáanlegir, en þó mátti sjá einhver skóför og hjólför að auki. Lögreglumenn, sem sinntu út- kallinu, komust þó á sporið sem leiddi þá að íbúð annars staðar í bænum. Þar fyrir utan stóð bifreið, sem hafði að geyma þýfið, en í íbúð- inni voru tveir menn. Voru þeir sakleysið uppmálað í fyrstu, að sögn lögreglu, en voru handteknir og leiddir til yfirheyrslu. Þar ját- uðu þeir sök í málinu en í íbúð þeirra fannst einnig talsvert magn fíkniefna sem hald var lagt á. Lögregla komst á spor tveggja þjófa Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Gallabuxur Kr. 10.990 Str: 42-52 Sídd: 76cm og 80cm Litir: Blátt og svart Guðbjörg Kristmundsdóttir var kjörin nýr formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og ná- grennis, VSFK, á aðalfundi félags- ins síðastliðinn fimmtudag. Guð- björg var sjálfkjörin, þar sem einungis eitt framboð var til stjórnar. Guðbjörg hefur verið varafor- maður félagsins frá árinu 2015. Í fréttatilkynningu frá Starfsgreina- sambandinu segir að Guðbjörg sé ættuð af Ströndum og frá Akureyri. Vann hún ýmis verkamanna- og þjónustustörf á sínum yngri árum. Þá lauk hún kennaraprófi árið 2003 og starfaði sem kennari í tíu ár. Guðbjörg tók við embættinu af Kristjáni Gunnarssyni, sem starfað hefur fyrir VSFK í 29 ár, þar af sem formaður félagsins frá árinu 1992. auk þess sem hann var formaður Starfsgreinasambandsins á árunum 2004-2011. Þakkaði stjórn VSFK Kristjáni fyrir störf sín í þágu fé- lagsins á aðalfundinum. Kristján kveður og Guðbjörg tekur við Ljósmynd/Starfsgreinasambandið Formenn Þau Guðbjörg Kristmundsdóttir og Kristján Gunnarsson á aðalfundinum. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, greindi frá því við upphaf þing- fundar í gær að samkomulag hefði verið gert við Ríkisútvarpið um að frá og með gærdeginum yrðu beinar sjónvarpsútsendingar frá þingfundum og opnum nefndarfundum á sjónvarpsrásinni RÚV 2. „Það er mikilvægt að al- menningur geti fylgst með störfum Alþingis og því er þessi breyting fagn- aðarefni þar sem meira rými er fyrir beina útsendingu frá Alþingi á sjón- varpsrásinni RÚV 2 en á aðalsjónvarpsrás Ríkisútvarpsins,“ sagði Steingrímur. Í tilkynningu á vef Alþingis segir að sjónvarpsútsendingum á RÚV hafi áður verið þannig háttað að sjónvarpað var á aðalsjónvarpsrás RÚV frá því að þingfundur hófst þar til regluleg sjónvarpsdagskrá hófst um kl. 17. Stæði þingfundur lengur var honum sjónvarpað morguninn eftir. Kosturinn við að senda út á RÚV 2 sé því sá að dagskráin þar er að jafn- aði mun styttri og marga daga ársins er þar engin dagskrá. Bein útsending frá Alþingi á RÚV 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.