Morgunblaðið - 26.03.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Óljóst er hvernig háttað verður að-
gangi almennings og fræðimanna
að einkaskjölum Ólafs Ragnars
Grímssonar, fyrrverandi forseta Ís-
lands, í Þjóðskjalasafni. Að sögn
Njarðar Sigurðssonar, sviðsstjóra
upplýsinga- og skjalasviðs, hefur
safnið lokið frágangi og skráningu
á langstærstum hluta af skjalasafn-
inu og aðeins lítill hluti er eftir.
„Vinnan við fráganginn hefur því
tafist miðað við upphaflegar áætl-
anir. Ekki hefur því enn verið
gengið frá samkomulagi um aðgang
að skjalasafni Ólafs Ragnars en
það verður gert um leið og frá-
gangi og skráningu á því er lokið
að fullu. Ég vonast til þess að það
geti orðið á næstu misserum,“
segir Njörður.
Hann segir að enn hafi enginn
haft samband við safnið og óskað
eftir aðgangi að skjölunum.
Ólafur Ragnar afhenti Þjóð-
skjalasafninu einkaskjöl haustið
2016. Safnið innihélt 223 kassa og
þrjá fulla skjalaskápa. Samtals er
skjalasafnið nú eftir uppröðun um
50 hillumetrar. Safn Ólafs er eitt
stærsta safn einstaklings í Þjóð-
skjalasafninu. Ólafur Ragnar greið-
ir fyrir frágang og skráningu á
skjalasafninu samkvæmt samningi
frá ágúst 2017. Nemur greiðsla
hans um 3,5 milljónum króna. Í
þeirri tölu er kostnaður við vinnu
og skjalaumbúðir utan um skjölin.
Gögnin sem Ólafur Ragnar af-
henti eru fjölbreytt og spanna allan
feril hans í opinberu lífi. Þau ná frá
skólaárum hans í Menntaskólanum
í Reykjavík á sjötta og sjöunda
áratug síðustu aldar, einnig frá ár-
unum þegar hann lét að sér kveða í
Framsóknarflokknum og síðar
Samtökum frjálslyndra og vinstri
manna, kennslu hans við Háskól-
ann, og þingmennsku og ráðherra-
tíð fyrir Alþýðubandalagið. Loks
eru skjöl frá forsetatíð hans 1996
til 2016 sem líklegt er að mestur
áhugi verði á. Um er að ræða bréf,
ljósmyndir, kvikmyndir, gögn af
heimasíðu, dagbækur, minnis-
bækur, uppköst að ræðum og yfir-
lýsingum svo eitthvað sé nefnt. Um
opinber skjöl frá embættistíð Ólafs
Ragnars á Bessastöðum gildir 30
ára skilaregla. Þau munu sam-
kvæmt því ekki berast Þjóðskjala-
safni fyrr en á árunum 2026 til
2046 eftir atvikum.
Skjöl Ólafs Ragnars enn lokuð
Eitt stærsta safn einkaskjala í Þjóðskjalasafni Fullnaðarfrágangi ekki lokið Eftir að setja
reglur um aðgang almennings og fræðimanna Enginn enn haft samband og óskað eftir aðgangi
Morgunblaðið/Hari
Skjöl Starfsmenn Þjóðskjalasafns, Njörður Sigurðsson og Kristjana Vigdís Ingvadóttir, flokka skjöl Ólafs Ragnars.
Tveir mjaldrar verða fluttir með
flugvél Cargolux til Íslands 16. apríl
nk. með það að markmiði að koma
þeim fyrir í sjókví í Vestmanna-
eyjum. TVG-Zimsen mun sjá um
landflutning hvalanna eftir að þeir
lenda hér á landi og stendur undir-
búningur yfir um þessar mundir, að
því er segir í fréttatilkynningu.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu stendur Sealife Trust fyr-
ir verkefninu en hvalirnir, sem heita
Little Grey og Little White, eru
fluttir frá Changfeng Ocean World
sædýragarðinum í Sjanghæ til Vest-
mannaeyja, þar sem þeir fá nýtt
heimili í sjókvínni við Heimaey.
Eftir að vél Cargolux hefur lent
munu sérútbúnir vagnar flytja hval-
ina landleiðina þar sem m.a. þjálfar-
ar þeirra geta verið í talstöðvar-
sambandi við þá. Talsmaður
TVG-Zimsen segir þetta skemmti-
legt en krefjandi verkefni.
Mjaldraflugvélin vænt-
anleg til Eyja 16. apríl
TVG-Zimsen sér um landflutninginn
Ljósmynd/Cargolux
Flutningur Flugvél Cargolux sem mun flytja hvalina tvo til Íslands.