Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 14

Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ „Ég er afar hamingjusöm; enda með fullt af skemmti- legum Grindvíkingum í kringum mig alla daga,“ segir Linda María Gunnarsdóttir, kaupkona í kvenfataversl- uninni Paloma. „Já, það er nóg að gera í búðinni. Grindavíkurkonur vilja vera vel til fara. Ég hef búið nánast alla mína tíð hér í Grindavík og get staðhæft að hér er frábært að ala upp börn og skólarnir hér eru góðir. Hér eru líka haldnar ýmsar samkomur, svo sem Sjóarinn síkáti um sjómannadagshelgina og sú bæjar- hátíð og aðrar gera mikið fyrir samfélagið. Hér búa í dag um 3.500 manns og hefur fjölgað mikið á síðustu ár- um, svo maður þekkir ekki nánast alla í bæjarfélaginu eins og var áður fyrr. Allra síst er það nú þegar svo margir af nýju íbúun- um eru af erlendum uppruna. Eigi að síður hefur grunngerð samfélagsins haldist; þetta er alltaf sama góða Grindavíkin.“ Alltaf sama góða Grindavíkin Linda María Gunnarsdóttir Morgunblaðið/Eggert Undirstaðan Grindavík er annar kvótahæsti útgerðarstaður landsins. „Þegar liðum Grindavíkur í íþróttum gengur vel hefur slíkt alltaf jákvæð áhrif á bæjarbraginn, mikil kátína til dæmis með sigurinn á Stjörnunni síðastliðinn sunnudag í körfunni,“ segir Gunnar Már Gunnarsson, umboðs- maður Sjóvár og formaður knattspyrnudeildar Ung- mennafélags Grindavíkur. „Í fótboltanum eigum við lið í Pepsi Max-deild karla og konurnar eru í Inkasso- deildinni. Okkur hefur gengið vel í íþróttum í gegnum tíðina, alltaf haft mikinn metnað þar. Íþróttir eru alltaf mikið til umræðu, til dæmis hér í verslun Olís en þangað mæta margir á morgnana í kaffi og ræða málefni líðandi stundar. Já, almennt séð er fólk ánægt með þjónustu bæjarfélagsins að mínu mati og fólk lætur fljótt í sér heyra ef eitthvað þarf að bæta í þeim efnum. Staðan á bæjarsjóði er líka mjög góð og getum við því framkæmt töluvert á ári hverju án þess að fara í lántöku sem er mikill kostur. Nú og svo blómstrar menningin hér, nú er til dæmis nýafstaðin menningarvika hér þar sem var efnt til margra áhugaverðra viðburða sem mæltust vel fyrir. Undirstaða þessa alls er svo að næga atvinnu sé að hafa og þar stöndum við Grindvíkingar vel; fiskiríið er gott og ferðaþjónustan hefur á síðustu árum komið hér sterk inn enda er Bláa lónið, sem er fjöl- sóttasti ferðamannastaður landsins, örfáa kílómetra héðan frá bænum.“ Næg atvinna er undirstaðan Gunnar Már Gunnarsson „Náttúran og samfélagið eru að mínu mati það sem skapar hamingjuna í Grindavík,“ segir Sigríður María Eyþórsdóttir tónlistarkennari. „Hér búa í dag um 3.400 manns og enn þekkjast flestir sem hér búa innbyrðis. Fyrir vikið er fólki ekki sama hvað um annað, samkenndin er til staðar og þegar upp koma vandamál þá finnst mér allir boðnir og búnir til þess að hlaupa undir bagga og hjálpa. Velferðarkerfið er einfaldlega innbyggt í samfélagið sjálft svo ekki þarf alltaf opinbera þjónustu þar. Á síðustu árum hefur Grindavík eflst mikið sem menningarbær. Hér eigum við til dæmis margt af góðu tónlistarfólki og í hverju samfélagi er það auðvitað hluti af hamingjunni að söngur og tónlist ómi.“ Velferðarkerfi fólksins sjálfs Sigríður María Eyþórsdóttir Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Hamingjusamasta fólk landsins býr í Grindavík. Á Alþjóðlega hamingju- deginum sem var á miðvikudag í síð- ustu viku, 20. mars, var á málþingi í Háskóla Íslands kynnt ný könnun sem gerð var á vegum Embættis landlæknis þar sem spurt var um hamingju, heilsu og vellíðan. Þar kom fram að 73,2% Grindvík- inga, segjast vera hamingjusöm, 23,5% hvorki né og 3,3% eru bein- línis þjökuð af óhamingju. Næstir á eftir Grindavík í lukk- unnar velstandi koma Akurnesingar; 72,4% þeirra segjast vera lukkunnar pamfílar, rúmlega helmingur er hálfvolgur í afstöðu til lífsgleðinnar og innan við hálft prósent er í tómu tjóni. Óhamingja í Eyjum Næst á eftir Grindavík og Akra- nesi í hamingjumælingum koma Hveragerði og Fjarðabyggð. Þar er fólk almennt sátt við lífið og til- veruna. Hæsta hlutfall óhamingju- samra er í Vestmannaeyjum, eða 9,6% svarenda í bænum. Fólk úti á landi virðist almennt vera í betri málum en þegar litið er á höfuð- borgarsvæðið. Um 56% Reykvíkinga segjast hamingjusöm en 5,1% telur gæfuhjólið ekki snúast með sér. Ef niðurstöðurnar eru skoðaðar yfir allt landið sést að flestir svarenda telja sig hamingjusama, eða 58% sem hlýtur að teljast dágott. Sé svo litið til einstakra hópa eru atvinnurekendur og forystufólk það hamingjusamasta en fólk sem á við veikindi að stríða, er ekki starfandi til dæmis vegna veikinda og svo þeir sem eru í almennum verkamanna- störfum sjá síst hamingjuna. Góð veiði er undirstaða En aftur til Grindavíkur. Sá sem þetta skrifar kemur starfa sinna vegna stundum í sjávarplássið á Suðurnesjum og finnst staðurinn áhugaverður. Sýnilega er mikil gróska í öllu, mikil umsvif og gaman að vera við bryggjuna þegar bátar, litlir sem stórir, koma að landi með afla. Að vel veiðist er undirstaðan og Grindvíkingar, fólkið í verstöðinni, er með bros á vör. Bærinn er vel hýstur, bílar yfirleitt nýlegir og fínir og svo mætti tiltaka fleiri merki vel- megunar og að fólkið uni hag sínum og tilveru vel. Úr ferðum Íslendinga á erlenda slóð minnist blaðamaður þess að hafa oft hitt Grindvíkinga; kátt fólk og lífsglatt sem slær stundum svolít- ið og það bara á jákvæðan máta. Út- gerðarstaðurinn Grindavík hefur líka þróast á jákvæðan hátt og er í dag öðrum þræði orðinn ferða- mannastaður, með margvíslegri þjónustu og afþreyingu, sem gefur lífinu lit! Uppbygging íþróttaaðstöðu Þótt engin ein uppskrift að ham- ingju sé til – og hver sé sinnar gæfu smiður eins og máltækið segir – er þó skýrt að góðar ytri aðstæður þurfa að vera til staðar. Góð íþrótta- aðstaða er eitt af því og fyrir henni er vel séð í Grindavík. Þar er íþrótta- hús með tveimur sölum og líkams- ræktaraðstöðu sem er mikið sótt, stór knattspyrnuleikvangur með keppnisvelli og góðum æfinga- svæðum, stórt knatthús og útisund- laug, með pottum, rennibraut og ýmsu öðru ágæti. Í byggingu er svo 1.200 fermetra íþróttahús sem ætl- unin er að taka í notkun í haust. Er það ætlað fyrir körfubolta og júdó- iðkun. „Uppbygging á aðstöðu fyrir íþróttirnar hér í Grindavík hefur verið mjög myndarleg og við hlökk- um til þess að fá nýja íþróttahúsið í notkun í haust,“ segir Hermann Guðmundsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja. „Líkamsræktar- stöðin hér er mikið notuð og hér er kominn fjöldi fólks á æfingar strax klukkan sex á morgnana. Svo taka íþróttir skólanna við og æfingar í keppnisgreinum síðdegis og fram á kvöld. Sundlaugin er einnig þokka- lega nýtt, sérstaklega eru Pólverj- arnir sem hér búa duglegir að nýta sér þessa frábæru aðstöðu. Í sund- lauginni hugsum við okkur ýmsa uppbyggingu í náinni framtíð; svo sem á innisundlaug og útisvæðið þarf að bæta.“ Gæfan býr í Grindavík  Hamingja Íslendinga könnuð  Með bros á vör í verstöð  Góð íþróttaaðstaða  Menning og blómstrandi mannlíf Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Körfubolti Bæjarbragurinn mótast að talsverðu leyti af gengi íþróttalið- anna. Hér sést Jóhann Árni Ólafsson, leikmaður Grindvíkur, með boltann. Hermann Guðmundsson Grindavík Í elsta bæjarhlutanum. Í dag eru Grindvíkingar um 3.400 talsins og hefur fjölgað mikið á síðustu árum. Erlent fólk er þar áberandi. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.