Morgunblaðið - 26.03.2019, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 2019
Baghouz, Bagdad. AFP. | Hryðju-
verkasamtökin Ríki íslams misstu
um helgina endanlega úr höndum
sér allt það landsvæði, sem þau
lögðu undir sig fyrir fimm árum í
Írak og Sýrlandi. Síðasta vígi þeirra
féll á laugardag og lýstu Lýðræðis-
sveitir Sýrlands, sem njóta forustu
Kúrda og stuðnings Bandaríkjanna,
yfir endalokum hins svokallaða
kalífadæmis Ríkis íslams í þorpinu
Baghouz í Sýrlandi á laugardag.
Greint var frá því í gær að rúm-
lega 9.000 útlendingar, sem tengd-
ust Ríki íslams, þar af 6.500 börn,
væru í búðum fyrir fólk á vergangi í
norðausturhluta Sýrlands.
Um tíma höfðu samtökin á valdi
sínu landsvæði þar sem bjuggu rúm-
lega sjö milljónir manna og var rúm-
lega tvöfalt stærra en Ísland að
flatarmáli. Hafa íbúar lýst lífinu þar
sem helvíti á jörð þar sem stúlkur
voru settar í þrælkun, tónlist var
bönnuð og samkynhneigð dauðasök.
Samtökin beittu harðlínutúlkun á
íslömskum lögum á yfirráðasvæði
sínu og fyrir óhlýðni var refsað með
pyntingum og dauða.
Minnihlutahópur jasída, sem
stunda trúarbrögð sótt í kristni og
íslam, var sérstaklega tekinn fyrir
og er þrjú þúsund manns úr þeirra
röðum enn saknað. Hafa Sameinuðu
þjóðirnar sagt að líta mætti á með-
ferðina á þeim sem tilraun til
þjóðarmorðs. Liðsmenn Ríkis ísl-
ams myrtu þúsundir karla og
drengja úr hópi jasída og rændu
konum og stúlkum og seldu á þræla-
mörkuðum. Margar þeirra máttu
þola kynferðislegt ofbeldi árum
saman.
„Við gerðum allt sem þeir kröfð-
ust,“ sagði Bessa Hamad, íraskur
jasídi, sem íslamskir harðlínumenn
seldu sex sinnum áður en hún komst
undan frá síðasta vígi þerra í Sýr-
landi. „Við gátum ekki sagt nei.“
Ríki íslams kom á fót lögreglu,
sem gat lagt á sektir eða refsað með
hýðingum. Nóg gat verið að lykta af
áfengi eða tóbaki.
Bækur voru brenndar og dans og
tónlist bönnuð. Ómetanlegar forn-
minjar voru sagðar heyra til hjá-
guðadýrkunar og mölvaðar með
sleggjum.
Dómstólar Ríkis íslams dæmdu
fólk til dauða. Hinir dæmdu voru
hálshöggnir eða hengdir. Karlar og
konur sökuð um framhjáhald voru
grýtt til bana og menn voru skotnir
eða varpað fram af húsþökum fyrir
samkynhneigð. Í borginni Raqa
voru menn krossfestir og höfuð sett
á stjaka til að vekja ótta almennings.
Þegar liðsmenn Ríkis íslams kom-
ust til valda nutu þeir stuðnings
fólks sem vonaði að draga myndi úr
spillingu. En spillingin hélt áfram og
ofbeldið bættist við.
AFP
Sviðin jörð Eyðilegging blasir við í bænum Baghouz eftir að síðasta vígi Ríkis íslams féll þar um helgina.
Ógnarstjórn rekin með
pyntingum og aftökum
Kalífat Ríkis íslams fallið Lífið þar líkast helvíti á jörð
Verð frá 99.999
25% afsláttur af aukakönnum
Vitamix blandararnir eiga
sér engan jafningja.
Mylja nánast hvað sem
er. Búa til heita súpu
og ís.
Hraðastillir, prógrömm
og pulse rofi sjá til þess
að blandan verður ávallt
fullkomin og fersk!
Byrjaðu árið með stæl
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Ascent serían frá Vitamix
Norskir fornleifafræðingar segja, að
fundist hafi víkingaskip grafið í
jörðu á Vestfold suðaustur af Ósló.
Er skipið grafið nálægt öðrum forn-
um haugum sem fundist hafa á
svæðinu þar sem nú er Borre-
parken.
Sérfræðingar, sem fóru yfir svæð-
ið með jarðsjá, fundu skipið. Terje
Gansum, yfirmaður menningar-
minjadeildar Vestfold, segir í yfir-
lýsingu að gögnin úr jarðsjánni sýni
greinilega að það móti fyrir skipi í
jörðinni.
Vísindamenn munu rannsaka
staðinn nánar til að reyna að leggja
mat á stærð skipsins.
Aðeins hafa verið grafin upp sjö
skip úr haugum frá víkingaöld í
Evópu. Þar af fundust þrjú á Vest-
fold og eitt þeirra er Gauksstaða-
skipið, stærsta víkingaskip sem
varðveist hefur frá víkingatímanum.
Á síðasta ári fundust að auki vís-
bendingar um slíkan haug í Jellestad
í suðausturhluta Noregs og er skip-
ið, sem nú er að öllum líkindum skip-
ið, sem nú er fundið á Vestfold, því
það níunda.
„Þetta er sögulegur atburður sem
mun vekja alþjóðlega athygli,“ sagði
Ola Elvestuen, umhverfisráðherra
Noregs, á blaðamannafundi þar sem
tilkynnt var um skipsfundinn.
Ummerki um skipið fundust fyrst
árið 2017 en síðan hafa farið fram
ýmsar rannsóknir til að staðfesta
fundinn. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvort reynt verði að
grafa skipið upp.
AFP
Víkingaskip Ola Elvestuen, umhverfisráðherra Noregs á staðnum þar sem
víkingaskipið fannst. Útlínur þess hafa verið markaðar á jörðina.
Hafa fundið vík-
ingaskip í jörðu
Fjórða skipið sem finnst á Vestfold
Donald Trump, Bandaríkjaforseti,
skrifaði í gær undir yfirlýsingu þar
sem yfirráð Ísraelsmanna yfir
Gólanhæðum eru viðurkennd.
Ísraelsmenn hernámu svæðið, sem
er á landamærum Ísraels og Sýr-
lands, í sex daga stríðinu svonefnda
árið 1967.
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, sem er í opinberri
heimsókn í Bandaríkjunum, sagði
að yfirlýsingin væri söguleg og Gól-
anhæðir, sem Sýrlendingar gera
enn tilkall til, yrðu áfram undir
stjórn Ísraelsmanna.
Sýrlensk stjórnvöld sögðu hins
vegar að viðurkenning Bandaríkja-
manna á réttmæti hernáms Gól-
anhæða væri frekleg árás á full-
veldi Sýrlands.
Maria Zakharova, talsmaður
rússneska utanríkisráðuneytisins,
sagði í gær að þessi ákvörðun
bandarískra stjórnvalda mundi
auka á spennuna fyrir botni Mið-
jarðarhafs.
Ísrael ráði Gólanhæðum
Frekleg árás á fullveldi okkar, segja sýrlensk stjórnvöld
AFP
Við Hvíta húsið Trump og Netan-
yahu á gangi í Rósagarðinum.
Að minnsta kosti átján hafa látið lífið og yfir 70 slasast
af völdum flóða, sem komið hafa í kjölfar mikillar úr-
komu í Íran. Vatnsveður á borð við þetta eru sjaldgæf í
Íran, þar sem miklir þurrkar hafa verið áratugum
saman. Á myndinni sjást bílar sem flóð hrifu með sér í
borginni Shiraz.
AFP
Mannskæð og sjaldgæf flóð í Íran